Morgunblaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 11
AFP Kreml Rússlandsforseti gengur fram hjá heiðursverði í Moskvu. Hann gæti lýst formlega yfir stríði á mánudag. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Næstkomandi mánudag, hinn 9. maí, munu Rússar halda upp á sigurdag- inn svonefnda, en þá er þess minnst þegar Sovétríkin sálugu unnu sigur á Þriðja ríki Þýskalands árið 1945. Sérfræðingar telja líklegt að þá muni draga til tíðinda í Úkraínustr- íðinu. Bent hefur verið á að Moskvu- valdið kann að lýsa formlega yfir stríði gegn Úkraínu, en hingað til hefur einungis verið talað um „sér- staka hernaðaraðgerð“. Stríðsyfir- lýsing myndi auka svigrúm hersins og svara mannaflsþörf. En fleira kemur til greina, að sögn hernaðar- sérfræðinga á Vesturlöndum. Leyniþjónustur Bandaríkjanna telja sig vita fyrir víst að Rússar muni um miðjan maí innlima héruðin Lúhansk og Donetsk í austurhluta landsins. Eins telja þær líklegt að Rússar muni gera slíkt hið sama í borginni Kerson í suðausturhlutan- um. Þá er ekki talið útilokað að Rússar reyni að blása til sóknar og ráðast inn í Ódessu í suðri. Það sé þó erfitt í ljósi þess hve laskaður Svartahafsfloti þeirra er eftir altjón eldflaugabeitiskipsins Moskvu. Hvort heldur sem er þá segja sér- fræðingar ljóst að 9. maí verði nýttur til áróðurs heima fyrir, nauðsynlegt sé fyrir Moskvuvaldið að beina athygli almennings frá slæmu gengi innrásarliðsins í Úkraínu. Einn þess- ara sérfræðinga, talsmaður utanrík- isráðuneytis Bandaríkjanna, segist þegar farinn að greina aukinn þunga í áróðri Rússa. Og Bandaríkin muni í samstarfi við bandamenn sína í Atl- antshafsbandalaginu (NATO) einnig halda upplýsingum um gang Úkraínustríðsins á lofti. Er sem blóðlaus sjúklingur Nákvæmar upplýsingar um mannfall í röðum Rússa liggja ekki fyrir. Úkraínumenn segjast hafa fellt yfir 23 þúsund innrásarher- menn frá upphafi átaka, tölur sem taka skal með fyrirvara. NATO telur Rússa hafa misst á bilinu 7 til 15 þús- und hermenn. Það sé þó ágiskun sem varnarbandalagið segist hafa „litla trú“ á. Þrátt fyrir ónákvæmar upp- lýsingar segist varnarmálaráðuneyti Bretlands telja fullvíst að fallhlífa- sérsveitir Rússlands, sem bera skammstöfunina VDV, hafi orðið fyrir gríðarlegu mannfalli. Er tjónið svo mikið, að þeirra mati, að mörg ár mun taka að byggja upp fyrri styrk. Þá líkir varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna stríðsrekstri Rússa í Úkraínu við sjúkling sem þjáist af blóðleysi. Herinn glími við augljósa óstjórn, þekkingarleysi og slæman móral sem dregur úr baráttuþreki. Hvað gerir Moskvuvaldið 9. maí? - Hernaðarsérfræðingar telja fullvíst að Kremlverjar muni koma með sterkt útspil á sigurdeginum svonefnda - Formleg stríðsyfirlýsing ekki útilokuð - Mörg ár mun taka að bæta upp mannfall hersins AFP Árás Þykkur og dökkur reykur stígur til himins í kjölfar loft- árása Rússa á borgina Lvív í vesturhluta Úkraínu í gær. AFP Tár Kona grætur á fjöldafundi í Kænugarði í gær, til stuðnings þeim hermönnum sem eftir standa í hafnarborginni Maríupol. AFP Stríð Úkraínskir hermenn á leið til hvíldar eftir tveggja mán- aða bardaga á víglínunni við Kramatorsk í Austur-Úkraínu. FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur • Vesti • Kjólar Peysur • Bolir • Jakkar Blússur • Buxur VORVÖRUR Vinsælu velúrgallarnir Nýjir litir Stærðir S-4XL Einnig stakar velúrbuxur í svörtu, gráu og dökkbláu Yfir 200 andstæðingar ríkis- stjórnar Nikols Pashinyans, for- sætisráðherra Armeníu, voru í gær handteknir á miklum mótmælum sem fram fóru í höfuðborginni Jerevan. Mikil pólitísk spenna hef- ur verið í landinu undanfarna mán- uði í kjölfar ósigurs hersins í vopn- uðum átökum við her Aserbaídsj- ans um héraðið Nagornó-Karabak, en þau hófust fyrst árið 2020. Mótmælendurnir kröfðust af- sagnar forsætisráðherrans, sem gagnrýndur hefur verið fyrir upp- gjöf í átökunum við Aserbaídsjan. Stríðið stóð yfir í sex vikur og á þeim tíma týndu minnst 6.500 her- menn lífi. AFP Fjölmennir útifundir og handtökur í Armeníu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.