Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi
Ársalir ehf fasteignamiðlun, s. 533 4200, Engjateigi 5, 105 Rvk.
Bjart og vel innréttað
200 fm skrifstofu-
húsnæði á 2. hæð,
með sérinngangi.
Hæðinni er skipt í
rúmgott anddyri,
8 herbergi með
parketi á gólfum,
auk eldhúsaðstöðu
og tveimur
snyrtingum.
Húsnæðið er laust til afhendingar strax.
Áhugasamir sem vilja bóka skoðun,
sendið línu á: arsalir@arsalir.is
Tangarhöfði 6 - 2. hæð - 110 RVK
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum vel á veg komin en enn
vantar herslumuninn,“ segir Arna
Björg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri
við byggingu nýrrar Miðgarða-
kirkju í Grímsey, um söfnun fjár til
kirkjubyggingarinnar. Nýja kirkjan
kemur í stað kirkjunnar sem brann
til kaldra kola síðastliðið haust.
Miðgarðakirkja brann til grunna
að kvöldi 21. september á síðasta
ári, ásamt öllum munum hennar.
Grímseyingar voru strax staðráðnir
í að byggja nýja kirkju. Strax söfn-
uðust nokkrir fjármunir til verksins
og síðan hefur verið unnið að fjár-
öflun fyrir þetta mikla verkefni fá-
menns samfélags.
Haldnir voru styrktartónleikar í
Akureyrarkirkju í síðustu viku með
heitinu Sól rís í Grímsey. Allir lista-
menn og aðrir sem unnu að tónleik-
unum og undirbúningi þeirra gáfu
vinnu sína og segir Arna að nokkrir
fjármunir hafi safnast. Jafnframt
hafi einstaklingar, félagasamtök og
fyrirtæki lagt fjármuni inn á söfn-
unarreikninginn í tengslum við þá
umfjöllun sem tónleikarnir fengu.
Hún segir að ekki sé búið að taka
saman hvað safnaðist í apríl en segir
að þótt söfnunin gangi vel vanti enn
upp á að tekist hafi að fjármagna
bygginguna að fullu.
Hægt að fylgjast með söfnun
Hægt er að finna upplýsingar um
söfnunina inn á grimsey.is/kirkja og
þar á jafnframt að vera hægt, í dag
eða næstu daga, að fylgjast með
hversu langt fjármögnunin er komin
á hverjum tíma.
Undir lok síðasta árs var samið
við smíðaverkstæðið Loftkastalann
um smíði nýrrar kirkju. Er unnið að
því að forvinna einingar sem settar
verða saman á staðnum síðar á
þessu ári.
Arna segir að næstkomandi
mánudag muni fornleifafræðingar
gera athuganir á kirkjustæðinu til
að ganga úr skugga um hvort þar sé
einhverjar fornleifar að finna. Ef
svo reynist ekki vera verði hafist
handa við að grafa fyrir grunni
kirkjunnar og framkvæmdir hefjist
af fullum krafti. Markmiðið sé að
kirkjan verði risin 21. september en
þá verður ár liðið frá brunanum.
Veturinn verði síðan notaður til að
innrétta og skreyta húsið þannig að
hægt verði að vígja kirkjuna á
næsta ári.
Hún viðurkennir að ef fornminjar
finnist á kirkjureitnum sem þurfi að
rannsaka nánar kunni það að raska
tímaáætlunum.
Enn vantar herslumuninn í fjársöfnun
- Könnun verður gerð á fornminjum á kirkjustæðinu í Grímsey í næstu viku - Vinna við grunn
hefst í kjölfarið - Stefnt að því að ný kirkja í stað þeirrar sem brann verði risin í september
Ný kirkja Tölvugerð mynd sýnir nýja Miðgarðakirkju eins og hún mun líta
út. Verklegar framkvæmdir geta hugsanlega hafist eftir næstu viku.
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í hafnir Fjarða-
byggðar í gær er Borealis lagðist að bryggju á Eskifirði. Alls
voru 693 farþegar um borð en mest getur skipið tekið um
1.400 farþega og þá eru á sjöunda hundrað manns í áhöfn.
Liðlega 1.100 manns búa á Eskifirði og má því segja að tíma-
bundið hafi fjölgað hressilega í bænum.
Borealis er skráð í Hollandi, tæplega 62 þúsund brúttótonn
að stærð og kom áður við í Reykjavík, Ísafirði og á Akureyri í
þessari ferð sinni til Íslands. Borealis var fyrsta skemmti-
ferðaskip ársins hér á landi, en það lagðist að bryggju á Ak-
ureyri um miðjan mars. Á næstu dögum og vikum er von á
fjölda skemmtiferðaskipa til landsins. aij@mbl.is
Ljósmynd/Gungör Tamzok
Hressileg fjölgun á Eskifirði með komu Borealis
Aldrei hafa jafnmargir komið að ár-
legri sölu SÁÁ-álfsins eins og nú en
hún hefst í dag og stendur yfir til 8.
maí. Í tilefni þess kom Willum Þór
Þórsson heilbrigðisráðherra og
keypti fyrsta álfinn í húsakynnum
samtakanna í Efstaleiti í gær.
Einar Aron, einn yngsti töframað-
ur landsins, afhenti ráðherra álfinn
sem var vel við hæfi þar sem um
töfra-álf er að ræða og skartar hann
fjólubláum hatti og sprota.
Guðný Pálsdóttir, verkefnastjóri
SÁÁ, kveðst afar þakklát fyrir þann
stuðning sem þjóðin hefur sýnt í
gegnum árin og segir hún álfasöluna
vera lífæð fjáröflunar samtakanna.
Vonar hún að landsmenn taki vel á
móti þeim sem sjá um söluna og eru
væntanleg í hús á næstu dögum en
hún segir álfinn hafa töfrandi áhrif á
ungt fólk. hmr@mbl.is
Sala á SÁÁ-álfinum hafin
- Töfra-álfurinn skartar fjólubláum hatti og sprota
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Töfra-álfur Einar Aron töframaður afhenti Willum Þór Þórsson heilbrigð-
isráðherra fyrsta álfinn í gær í húsakynnum SÁÁ í Efstaleiti.