Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 8

Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Hjálmar Sveinsson, borgar- fulltrúi Samfylkingar, lét sem sér sárnaði þegar Kolbrún Bald- ursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, sagði við afgreiðslu árs- reiknings borg- arinnar rangt af meirihlutanum í borginni að segja borgarbúum að borg- arsjóður stæði sterkt. „Það er ekki satt,“ sagði Kolbrún. „Auð- vitað á borgin eignir en við erum ekki að fara að selja sund- laug upp í skuld.“ Hið sama gildir um íbúðir Félagsbústaða, sem laga afkomu borgarinnar um tæpa tuttugu milljarða króna þegar þær eru færðar upp í reikningunum, þær verða ekki seldar fyrir sívaxandi skuldum borgarinnar. - - - Þegar við bætist að sú uppfærsla eigna skýrist að stórum hluta af stefnu borgarinnar í skipulags- málum, sem hefur keyrt upp hús- næðisverð, er ekki ofmælt að upp- færslan sé óeðlileg. - - - Þá var athyglisverð í umræðunum sú ábending Eyþórs Arnalds, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, að tekjur borgarinnar hefðu í faraldr- inum aukist um sextán milljarða króna, en að borgin hefði samt hald- ið uppi hámarksútsvari. - - - Hvers vegna var útsvarið ekki lækkað til að létta borgar- búum róðurinn? Og hvernig má það vera að þegar tekjur aukast svo mjög vegna hratt hækkandi launa, þá sé varla minnst á að tímabært sé að lækka útsvar? Er það almennt viðhorf frambjóðenda að sveitar- sjóðir eigi ríkara tilkall til alls þess fjár almennings sem þeir geta kom- ist yfir en almenningur sjálfur? Hjálmar Sveinsson Sannleikanum verður hver … STAKSTEINAR Kolbrún Baldursdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Umferðin á hringveginum í nýliðn- um mánuði sló öll fyrri met í umferð í aprílmánuði frá því mælingar Vega- gerðarinnar hófust. „Umferðin frá sama mánuði í fyrra jókst um tæpt 21 prósent. Um- ferðin reyndist 8,5 prósentum meiri en hún hefur áður mælst í apríl. Um- ferðin jókst mest á Austurlandi en í mælisniði á Mýrdalssandi jókst um- ferðin um heil 170 prósent,“ segir í umfjöllun Vegagerðarinnar um um- ferðina yfir 16 lykiltekjara á hring- veginum í apríl. Fram kemur að gríðarmikil um- ferð átti sér stað á teljurum Vega- garðarinnar sem varð til þess að nýtt umferðarmet var slegið en fyrra met var sett á árinu 2019. Hlutfallslega mældist aukning umferðarinnar mest á Austurlandi miðað við sama mánuð í fyrra eða um rúm 52% en minnst jókst umferðin við höfuðborgarsvæðið þar sem hún jókst um tæplega tólf prósent á milli ára. „Athygli vekur að umferðin hefur dregist saman fyrri part meðalvik- unnar en aukist seinni hluta hennar. Mest hefur umferð aukist á miðviku- dögum, eða um rúmlega 6%, en dregist mest saman á mánudögum, eða um tæp 7%,“ segir á vef Vega- gerðarinnar. Metumferð á hringveginum í apríl - Umferðin á Austurlandi jókst um rúm 52% frá sama mánuði í fyrra Morgunblaðið/Sigurður Bogi Á ferð Umferðin í apríl jókst um tæpt 21% frá sama mánuði í fyrra. Guðmundur Knútur Eg- ilsson, fv. forstöðumaður Minjasafns Orkuveit- unnar, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sl. föstudag, á 94. aldursári. Guðmundur fæddist í Reykjavík 15. október 1928 og ólst upp á Laugavegi 72. Hann var í Austurbæjarskólanum, stundaði nám við Hand- íðaskólann í Reykjavík og sótti námskeið við Námsflokka Reykjavík- ur í nokkur ár. Auk þess lauk hann námi í verk- stjórnarfræðum. Guðmundur hóf störf hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur 15 ára, árið 1944, með Agli Ólafssyni, föður sínum, og starfaði þar nær óslitið til 2010, eða í rúmlega 66 ár, lengur en nokkur ann- ar starfsmanna fyrirtækisins fyrr og síðar. Árið 1988 tók Guðmundur að sér að skrá muni og halda til haga sögulegum þáttum í starfi Rafmagnsveitunnar. Hann varð fyrsti forstöðumaður Minjasafns Rafmagnsveitu Reykjavík- ur, síðar Orkuveitu Reykjavíkur, við Elliðaár, sem opnað var vorið 1990. Guðmundur var í fjölda ára í rit- nefnd og síðar ritstjóri Línunnar, tímarits starfsmanna Rafmagnsveit- unnar. Hann sinnti fjölda trún- aðarstarfa fyrir Félag heyrnarlausra um langt árabil en Hervör Guðjóns- dóttir eiginkona hans, sem lést fyrir rúmu ári, var fædd heyrn- arlaus og var meðal stofnenda Félags heyrnarlausra og for- maður félagsins um árabil. Þau hjónin, Guðmundur og Her- vör, voru gerð að fyrstu heiðursfélögum Félags heyrnarlausra á 25 ára afmæli félags- ins. Guðmundur gaf út tvær bækur um ættir sínar, fyrri bókin um ættir móður hans, „Niðjatal hjónanna Jóns Pálssonar og Ragnheiðar Jóns- dóttur“, og sú síðari um ættir föður hans, „Fólkið mitt suður með sjó“. Þá hafa birst eftir hann greinar í blöðum og tímaritum, m.a. greinin „Verk hans lofa meistarann“ þar sem hann rýnir í iðnsögu Íslands og fjallar um byggingarmeistarann Jens Eyjólfs- son. Börn Guðmundar og Hervarar eru Bryndís talmeinafræðingur, Magnús, ráðgjafi og hestabóndi í Svíþjóð, Ragnheiður Eygló, deildarstjóri í upplýsingatækni, Guðjón Gísli við- skiptafræðingur og María Guðrún viðskiptafræðingur. Barnabörnin eru nítján talsins. Útför Guðmundar verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 13. maí og hefst kl. 15. Andlát Guðmundur K. Egilsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.