Morgunblaðið - 04.05.2022, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
Bætt
hreinlæti
í nýjum heimi
Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Gestavinnustofur SÍM, Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna, fengu ný-
verið rúmlega sjö milljóna króna
styrk frá The Nordic Culture Point
til að bjóða sjö listamönnum til
vinnustofudvalar í gestavinnustofum
sambandsins á Korpúlfsstöðum í
byrjun næsta árs. Reyndir atvinnu-
listamenn frá Norðurlöndum og
Eystrasaltslöndum geta sótt um
dvölina.
„Við sóttum um styrk til að bjóða
listamönnum, sem hafa áhuga á að
taka þátt í þessu verkefni, að koma
hingað til eins mánaðar vinnustofu-
dvalar í næsta janúarmánuði. Þau fá
greiddar ferðir, uppihald og gistingu
og koma til með að vera sjö saman á
Korpúlfsstöðum í vinnustofum,“ seg-
ir Anna Eyjólfsdóttir formaður SÍM.
Hún segir að sérstaklega verði horft
til þess að styrkja samstarf gesta-
listamannana og íslenskra lista-
manna. „Valdir verða góðir lista-
menn sem eru í fullu starfi í
myndlistinni.“
Á undanförnum tveimur áratugum
hefur SÍM byggt upp afar öflugt pró-
gramm með gestavinnustofum fyrir
erlenda listamenn. Anna segir að á
þeim tuttugu árum sem þessi starf-
semi félagsins, SÍM Residency, hef-
ur verið starfrækt hafi um 3.500
listamenn alls staðar að dvalið á veg-
um SÍM í Reykjavík. Auglýst er
tvisvar á ári eftir umsóknum og segir
hún að alltaf sæki mun fleiri um en
hægt sé að bjóða að dvelja og starfa í
vinnustofunum. Frá stofnun hefur
SÍM Residency-prógrammið ekki
fengið neina beina opinbera styrki
frá ríki og borg, umfram lægri húsa-
leigu.
Stærsta miðstöð Norðurlanda
„Í húsnæði SÍM við Seljaveg eru
ellefu gestavinnustofur og sjö á
Korpúlfsstöðum. Í þeim dvelja lista-
menn og starfa í einn til þrjá mánuði
og greiða fyrir aðstöðuna. Flestir fá
þeir styrki í sínu heimalandi fyrir
dvalarkostnaðinum. Þetta er stærsta
miðstöð fyrir gestavinnustofur af
þessu tagi á Norðurlöndum,“ segir
Anna. Hún bætir við að í húsnæði fé-
lagsins í Hafnarstræti, þar sem
skrifstofurnar eru, séu einnig fjögur
gestaherbergi. „Þau eru ætluð fyrir
skemmri dvöl, að hámarki tíu daga,
fyrir sýningarstjóra og aðra slíka
sem eiga erindi til Íslands vegna
verkefna sem tengjast myndlist.“
Íslenskir listamenn hafa um langt
skeið sótt í gestavinnustofur fyrir
listamenn víða um lönd í þeim til-
gangi að víkka sjóndeildarhringinn
og kynnast kollegum sínum utan
heimalandsins. Anna segir að með
tilkomu SÍM Residency hafi Ísland
orðið fullgildur þátttakandi í þessum
mikilvægu alþjóðasamskiptum
myndlistarmanna. Gestavinnustofur
SÍM séu vel þekktar innan hins al-
þjóðlega listaheims, hafi stuðlað að
auknum sýnileika íslenskrar mynd-
listar og Reykjavíkur sem menning-
arborgar á alþjóðavettvangi. Mark-
miðið sé að Ísland verði jafn sjálf-
sagður vettvangur fyrir heimslistina
og hver annar staður í heiminum.
Alltaf fullbókað
Anna segir að allt frá því að SÍM
hóf rekstur gestavinnustofanna árið
2002 hafi alltaf verið fullbókað, fram
að heimsfaraldri Covid-19. „Þá náð-
um við ekki nema um 60 prósent nýt-
ingu, en það er merkilegt að við höf-
um náð að hafa opið,“ segir hún og
hnykkir á því að á sama tíma hafi
flestum slíkum vinnustofum út um
löndin verið skellt í lás. „Og það er
aftur orðið fullbókað núna hjá okk-
ur,“ bætir hún við.
Þegar spurt er að því hvaða lista-
menn sæki um að koma og starfa hér
segir Anna að það séu að mestu leyti
myndlistarmenn og oft býsna þekkt-
ir og með langa reynslu.
„Það hafa líka komið fulltrúar ann-
arra listgreina og stefnan hjá okkur
er nú, í samvinnu við Bandalag ís-
lenskra listamanna, að gera lista-
mönnum í öðrum greinum kleift að
sækja um hjá okkur í auknum mæli.“
Ein ástæðan sé sú að sífellt fleiri
listamenn flakki milli listgreina og sé
ekki hægt að festa þá í neinni einni.
Hún tekur dæmi af Ragnari Kjart-
anssyni, sem sé ekki bara í strangt
skilgreindri myndlist heldur hafi
unnið í marga aðra miðla, svo sem
dans og tónlist. „Myndlistarmenn
eru ekki lengur bara að mála eða
höggva í stein og okkur finnst vera
tækifæri til að efla samstarf og sam-
vinnu milli listgreina með vinnu-
stofudvölinni.“ Hvað varðar bak-
grunn listamanna sem koma til
dvalar segist Anna gjarnan myndu
vilja sjá enn fleiri listamenn frá hin-
um norrænu þjóðunum og liður í því
að styrkja þann samgang er styrk-
urinn sem SÍM fékk nú.
Anna segir að tilkoma gestavinnu-
stofa SÍM hafi haft mikil og jákvæð
áhrif á listasenuna í Reykjavík, og í
raun um land allt. Velgengni SÍM
Residency hafi líka verið öðrum
fyrirmynd og ýtt undir stofnun
þeirrar fjölbreyttu flóru af gesta-
vinnustofum fyrir erlenda listamenn
sem nú eru starfræktar víða um
land. Hún segir fjölbreytta menning-
arstarfsemi hafa víðtæk afleidd áhrif
í efnahagslegu tilliti.
Mynda alls kyns tengingar
Einn helsti tilgangur gestavinnu-
stofa SÍM er að tengja listamenn úr
ólíkum áttum með ólíkan menningar-
legan bakgrunn við listasenuna á Ís-
landi og skapa vettvang þar sem
listamennirnir geta myndað teng-
ingar sín á milli og þannig styrkt
sköpunarferli hver annars.
Í hverjum mánuði koma um 20
erlendir myndlistarmenn til dvalar í
SÍM Residency og Anna segir að
þannig myndist í hverjum mánuði
nýtt alþjóðlegt listamannasamfélag í
Reykjavík. Árlega er síðan haldinn
fjöldinn allur af myndlistarsýningum
út um allan heim, þar sem gestalista-
mennirnir sýna afrakstur dvalar
sinnar í Reykjavík, innblásnir af feg-
urð Reykjavíkur og Íslands.
„Hér eru líka settar upp samsýn-
ingar með verkum þeirra í hverjum
mánuði, þar sem þeir sýna afrakstur
dvalarinnar, og svo eru þeir með opið
listamannaspjall ýmist á Seljavegi
eða á Korpúlfsstöðum. Fyrir utan
gestavinnustofurnar framleigir SÍM
vinnustofur til félagsmanna sinna og
eru þær nú um 200 í níu vinnustofu-
húsum víðsvegar á höfuðborgar-
svæðinu. Þetta er heilmikill rekstur
og margþætt starfsemi,“ segir hún
en Ingibjörg Gunnlaugsdóttir er
framkvæmdastjóri þessa þáttar í
rekstri SÍM og Martynas Petreikis
verkefnastjóri SÍM Residency.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýningarsalur Anna Eyjólfsdóttir, formaður SÍM, og Martynas Petreikis, verkefnastjóri SÍM Residency, á Hlöðu-
loftinu á Korpúlfsstöðum. Í lok janúar verður sett þar upp sýning listamannanna sem verða styrktir til vinnudvalar.
Jákvæð áhrif gestavinnustofanna
- SÍM fékk styrk til að bjóða sjö listamönnum til vinnustofudvalar - Á tveimur áratugum hafa
þúsundir erlendra listamanna dvalið og starfað í gestavinnustofum SÍM Residency í Reykjavík
Gestur samtalsraðar Listasafns
Reykjavíkur, „Morgunkorn um
myndlist“, í maí er Sigurður Guð-
jónsson myndlistarmaður en hann
er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíær-
ingnum 2022 sem hófst í apríl. Sig-
urður sest niður með gestum á 2.
hæð Hafnarhúss í dag, miðvikudag,
kl. 9 og spjallar yfir kaffibolla. Við-
burðurinn fer fram á íslensku og er
þátttaka ókeypis.
Íslenski skálinn í Feneyjum er að
þessu sinni á Arsenale, öðru af aðal-
sýningarsvæðum hátíðarinnar, og
þar sýnir Sigurður Guðjónsson
vídeóverkið Ævarandi hreyfingu.
Íslenski skálinn var á dögunum val-
inn af blaðamönnum Financial Tim-
es einn af fimm bestu á tvíær-
ingnum.
Sigurður Guðjónsson (f. 1975)
stundaði nám við Billedskolen í
Kaupmannahöfn 1998-1999,
Listaháskóla Íslands 2000-2003 og
Akademie der bildenden Künste í
Vínarborg 2004. Hann hlaut Ís-
lensku myndlistarverðlaunin 2018.
Sigurður Guðjónsson í Morgunkorni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listamaðurinn Sigurður Guðjónsson er
fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum.
Á tónleikunum
Jazzklúbbsins
Múlans á Björtu-
loftum í Hörpu í
kvöld kl. 20 kem-
ur fram fransk-
íslenska dúóið
Hamamelidae.
Um er að ræða
útgáfutónleika
dúósins sem er
að senda frá sér sína fyrstu plötu en
hún var tekin upp í Berlín fyrir
rúmu ári og kom út hjá HOUT re-
cords á dögunum. Hamamelidae er
dúó saxófónleikarans Sölva Kol-
beinssonar og franska píanóleik-
arans Vincents Audusseaus. Sölvi
og Audusseau kynntust í Berlín ár-
ið 2016 þar sem þeir stunduðu báðir
nám við Jazz-Institut Berlin. Síðan
hafa þeir unnið mikið saman í ólík-
um hópum en komu fyrst fram sem
dúó sumarið 2018. Hamamelidae
spila frumsamið efni, innblásið af
trjám, grískri danstónlist,
neðanjarðarlestum og fleiru. Þeir
kanna þá fjölbreyttu hljóðheima
sem þessi dúó-samsetning býður
upp á.
Útgáfutónleikar Hamamelidae í Múla
Sölvi Kolbeinsson