Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
EUROVISION
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Systkinin Sigríður, Elísabet, Elín og
Eyþór Eyþórsbörn stíga á stóra
sviðið í Eurovision-söngvakeppninni
í Tórínó á Ítalíu í kvöld. Systurnar
hafa ekki skorað hátt í veðbönkum
undanfarnar vikur, en sem stendur
er þeim spáð 13. sæti af 17 í undan-
keppni kvöldsins. Þetta er fyrri und-
ankeppnin fyrir aðalkvöldið sem fer
fram á laugardag, 14. maí. Seinni
undankeppnin er á fimmtudag.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi stuttlega við Siggu, Betu og
Elínu í Tórínó í gær og sögðust þær
vera orðnar aðeins stressaðar fyrir
kvöldinu en vonuðust til þess að
atriðið væri komið í vöðvaminnið og
þær kæmust nokkuð klakklaust í
gegnum þetta.
Systurnar hafa verið við æfingar í
Tórínó síðan í byrjun maí og í gær-
kvöldi var dómararennslið, sem er
ein mikilvægasta æfingin til þessa.
Foreldrar systkinanna eru tónlist-
arfólkið Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson en þau ákváðu
að vera heima á Íslandi meðan á
Eurovision-ævintýri barna þeirra
stendur og hugsa um barnabörnin,
en öll eiga systkinin börn heima á
Íslandi.
„Við erum búin að ákveða að fara
frekar öll saman eitthvað til útlanda
um jólin, þegar við erum öll í fríi,“
segir Sigríður.
Veðbankar segi ekki allt
Steinunn Björk Bragadóttir, fyrr-
verandi stjórnarmeðlimur í Félagi
áhugafólks um Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva (FÁSES),
segir að lítið sé að marka veðbanka
hvað viðkemur sætum 6 til 10. Hún
segir að fólk megi ekki dæma Syst-
ur úr leik þótt þeim sé ekki spáð
áfram að svo stöddu.
„Neðri hlutinn segir ekki neitt.
Það er hægt að taka mark á þessu
upp að vissu marki. Ég hef lært það
af minni reynslu að maður á ekki að
taka þetta of alvarlega,“ segir
Steinunn, sem er hér úti á sinni
fimmtu Eurovision-keppni.
Það er mikil stemning í Tórínó
um þessar mundir og hingað eru
farnir að tínast Eurovision-
aðdáendur hvaðanæva úr álfunni,
einnig frá Ástralíu, þar sem ein-
stakur áhugi er á Eurovision.
Úkraínu spáð sigri
Hljómsveitin Kalush keppir fyrir
hönd Úkraínu í ár og er henni spáð
sigri í keppninni. Meðlimir sveit-
arinnar stíga á sviðið í kvöld en lag
þeirra flokkast sem þjóðlagaskotið
rapp. Steinunn telur að Úkraína
muni vinna keppnina og að hljóm-
sveitin hefði líka náð langt í henni
þótt ekki geisaði stríð í heimaland-
inu.
„Rapp er nú reyndar ekki þekkt
fyrir að ríða feitum hesti frá Euro-
vision en þetta er þjóðlagaskotið.
Ástandið í Úkraínu mun alveg spila
inn í og fyrir mína parta er það
bara allt í lagi. Þetta er alveg gott
lag, þeir hefðu komist í efstu tíu
sætin þótt stríðið væri ekki í
gangi.“
Styttist í stóru stundina
- Ísland keppir í Söngvakeppninni á Ítalíu í kvöld - Systkinin Sigga, Beta, Elín
og Eyþór klár í slaginn - Veðbankar spá 13. sæti af 17 í fyrri undankeppninni
AFP/Marco Bertorello
Opnunin Systkinin mæta hér til opnunarhátíðar keppninnar í Tórínó og minntu í leiðinni á stríðið í Úkraínu og rétt-
indi transfólks. Þau stíga á svið í kvöld og er spáð 13. sæti í undankeppni kvöldsins. Smá stress er komið í hópinn.
Morgunblaðið/Sonja Sif
Gleði Halla Ingvarsdóttir, Sunna
Mímisdóttir og Gísli Kjærnested
fylgjast spennt með keppninni.
Nýverið fór þingmaðurinn Birgir
Þórarinsson í aðra ferð sína til Lviv í
Úkraínu. Að þessu sinni fór hann
með læknavörur frá Íslandi á her-
sjúkrahúsið í borginni. Ferðina fór
hann á eigin vegum.
Birgir segir fyrirtækin Össur og
Medor hafa gefið vörurnar.
„Össur gaf ýmsar stuðningsvörur,
m.a. til að auka hreyfanleika þeirra
sem hafa misst útlimi. Medor gaf
ýmsar sárasogsvörur, dælur og sára-
umbúðir auk mælitækja sem taka
hjartalínurit, hjartslátt, súrefnis-
upptöku og blóðþrýsting.“
Þá segir hann starfsmenn her-
sjúkrahússins hafa verið mjög þakk-
láta íslensku fyrirtækjunum.
„Mikil ánægja var á hersjúkrahús-
inu með sendinguna og þakklæti til
íslensku fyrirtækjanna. Sjúkrahúsið
er gamalt og fremur illa búið. Þar
eru 35 rúm og voru þau öll upptekin
þegar vörurnar voru afhentar.“
Úkraína Birgir segir vörurnar hafa samtals vegið um áttatíu kíló.
Birgir fór með
læknavörur til Lviv
- Össur og Medor gáfu vörurnar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Harðbotna slöngubátur tók niðri
við eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi á
áttunda tímanum í gærkvöldi. Sex
voru um borð í bátnum og fram
kom í tilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni að aðstæður í Ísafjarðar-
djúpi hefðu verið krefjandi. Þar
hefði verið hvassviðri og kröpp
alda.
Kemur jafnframt fram að bát-
urinn hafi orðið aflvana í kjölfar
þess að hann tók niðri og rak hann
þá stjórnlaust í átt að klettum suður
af eyjunni, rétt utan við mynni
Hestfjarðar.
Áhöfnin á varðskipinu Þór,
þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og
áhöfn á björgunarskipinu Gísla
Jóns voru kallaðar á vettvang á
mesta forgangi. Skip og bátar í
grenndinni voru einnig beðin að
halda á staðinn.
Farþegabátur sem staddur var í
Djúpinu var fyrstur að bátnum.
Hann náði að koma taug yfir í
slöngubátinn og dró hann í höfn
laust fyrir klukkan átta.
Sex manns bjargað
úr bát sem tók niðri
Guðjón Hreinn
Hauksson var í
gær kjörinn for-
maður Félags
framhaldsskóla-
kennara til
næstu fjögurra
ára. Guðjón
Hreinn hefur
gegnt for-
mennsku fyrir
FF síðan 2019.
Hann hlaut 732 atkvæði eða 70,4%
en Kjartan Þór Ragnarsson hlaut
264 atkvæði eða 25,4%. Ríflega 59%
þeirra sem voru á kjörskrá greiddu
atkvæði.
Um helgina var Mjöll Matthías-
dóttir kjörin formaður Félags
grunnskólakennara. Hún bauð sig
fram gegn sitjandi formanni, Þor-
gerði Laufeyju Diðriksdóttur.
Hlaut Mjöll 41,53% atkvæða, Þor-
gerður Laufey 29,64% atkvæða og
Pétur Georgsson tæp 23,8%.
Guðjón Hreinn end-
urkjörinn formaður
Guðjón Hreinn
Hauksson