Morgunblaðið - 10.05.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
Hreint loft –betri heilsa
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð viðmyglugróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HFD323E Air Genius 5.
Hægt að þvo síuna.
Verð kr. 39.420
HPA830 Round Air
Purifier. Mjög hljóðlát.
Verð kr. 29.960
S. 555 3100 · donna.is
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
stóð fyrir minningarathöfn í Foss-
vogskirkjugarði í gær. Þar komu
safnaðarmeðlimir saman til að
biðja og minnast þeirra sem létu
lífið í seinni heimsstyrjöldinni.
Rússar kalla daginn, 9. maí, „sig-
urdaginn“ en einn skipuleggjenda
athafnarinnar, Anna Valdimars-
dóttir, segir hann meðal þeirra
heilögustu í rússneskri sögu. „Á
þessum degi lauk seinni heims-
styrjöldinni sem var fyrir okkar
þjóð endirinn á ættjarðarstríðinu
mikla. Þegar ég segi okkar þjóð þá
meina ég alla þá sem eru frá fyrr-
verandi Sovétríkjunum,“ segir
Anna.
„Seinni heimsstyrjöldin snerti
þjóðina alla og við lítum öll á enda-
lok hennar sem sameiginlegan sig-
ur okkar gagnvart nasisma,“ bætir
hún við.
Vanalega mæta um hundrað
manns í Fossvogskirkjugarðinn til
að halda upp á sigurdaginn en
heldur fámennara var á minningar-
athöfninni í ár. Þrátt fyrir það var
lögreglan með talsverðan viðbúnað
á svæðinu. „Ég er eiginlega hissa
að sjá hve fáir mættu til að mót-
mæla en það þýðir að fólk hefur
lesið sér til,“ sagði Anna við mbl.is.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan með minningarathöfn í Fossvogskirkjugarði á sigurdeginum
Styrjöldin
snerti alla
Morgunblaðið/Eggert
Athöfn Tímur Zolotuskiy, prestur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi, stjórnaði minningarathöfninni, sem fór friðsamlega fram.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Mikill skortur er á starfsfólki í sum-
ar greinar innan ferðaþjónustunnar.
Sérstaklega vantar kokka og fram-
reiðslufólk fyrir
sumarið á landinu
öllu. Þetta segir
Bjarnheiður
Hallsdóttir, for-
maður Samtaka
ferðaþjónustunn-
ar, í samtali við
Morgunblaðið.
Það sé áskorun
að ná að manna
stöður áður en
háannatíminn í
ferðaþjónustunni hefjist.
Hún segist ekki hafa heildaryfir-
sýn yfir stöðuna enda sé erfitt að
verða sér úti um nákvæmar tölur um
ráðningar en hún hafi grennslast
fyrir um stöðuna víða.
„Það ríkir ekki neyðarástand og
þetta hefur gengið, að hluta til, betur
en við reiknuðum með. Þetta er mis-
jafnt eftir því hvar við berum niður,“
segir Bjarnheiður og bætir við að til
dæmis hafi gengið vel að manna
skrifstofustörfin í ferðageiranum.
„Það er þáttur sem gleymist oft en
það eru auðvitað þúsundir sem
starfa við skipulagningu ferða,
markaðssetningu, sölu og slíkt. Þar
hafa flestir komið til baka í gömlu
störfin sín.“ Henni hefur líka skilist
að það hafi gengið vel að manna störf
herbergisþerna víðast hvar.
„En það er skortur á kokkum og
þjónum, almennur skortur á þessu
fólki alls staðar.“
Spurð hvort þessi störf séu að
miklu leyti mönnuð af erlendu
starfsfólki segir Bjarnheiður að það
sé nokkuð blandað en bætir þó við:
„Fólkið sem rekur hótelin og veit-
ingastaðina er mikið að ráða erlenda
starfsmenn. Það eru allir á fullu að
reyna að klára að manna og leita
allra leiða til þess og það er mjög
mikið erlendis.“
Gengur betur ef húsnæði fylgir
Í þessu samhengi nefnir Bjarn-
heiður að húsnæðismál starfsfólks-
ins skipti máli þegar kemur að ráðn-
ingum. „Fyrirtækjum sem geta
boðið starfsfólki sínu upp á húsnæði
gengur betur en hinum í þessu. Það
skiptir í rauninni ekki máli hvar á
landinu þau eru hvað það varðar.
Mörg af þessum hótelum í dreifðu
byggðunum eru búin að koma sér
upp húsnæði og gerðu það bara strax
í upphafi vegna þess að það þýðir
ekkert annað. Svo hafa hótel hér í
bænum líka farið út í að kaupa íbúðir
til þess að tryggja starfsemi sína.
Það eru dæmi um það hér á höfuð-
borgarsvæðinu og í Keflavík.“
Bjarnheiður bætir við að auk
kokka og framreiðslufólks sé áskor-
un að fá nægilega marga bílstjóra til
þess að sinna rútuferðum og öðru
slíku í sumar.
„En það gengur rosalega vel að
ráða í flugið. Það má ekki gleymast
heldur, því flugsamgöngur eru
grundvöllurinn fyrir því að ferða-
menn geti komið,“ segir hún.
„Þetta er mál í vinnslu enn þá en
það leggja sig allir fram við að full-
manna til þess að geta annað allri
eftirspurninni. Hún er auðvitað gríð-
arlega mikil. Þetta sumar lítur alveg
svakalega vel út, fer fram úr björt-
ustu vonum held ég. Það er lykil-
atriði að geta mannað bæði fyrir
okkur og líka fyrir hagkerfið okkar,“
segir Bjarnheiður.
Skortur á kokkum og þjónum
Morgunblaðíð/Ásdís
Veitingahús „Það eru allir á fullu að reyna að klára að manna.“
- Misvel gengur að ráða í störf í ferðaþjónustunni - Almennur skortur á starfsfólki - Formaður SAF
segir lykilatriði fyrir greinina og hagkerfið að fullmanna og anna þar með eftirspurn háannatímans
Bjarnheiður
Hallsdóttir
„Þó dregið hafi úr hækkun leigu á
meðan Covid-faraldurinn gekk yfir
þá er hækkun leigu nú þegar hafin á
ný og fyrirséð að hún verður kröftug
þegar aukinnar eftirspurnar eftir
leiguhúsnæði fer að gæta frá inn-
fluttu vinnuafli og auknum fjölda
ferðamanna,“ segir í nýútkomnum
Kjarafréttum Eflingar. Þar kemur
fram að aukin byrði vegna húsaleigu
hafi tekið umtalsverðan hluta kjara-
bóta sem áttu að skila sér til lág-
tekjufólks í síðustu kjarasamning-
um.
Birt er greining á stöðunni á leigu-
markaði í fréttabréfinu en rúmlega
20% heimila eru á leigumarkaði og
eru leigjendur oftast lágtekjufólk og
í meiri mæli ungt fólk. Bent er á að
húsnæðiskostnaður leigjenda hafi
hækkað langt umfram húsnæðis-
kostnað þeirra sem búa í eigin hús-
næði frá 2006 til 2021. Leiga taki nú
mun stærri hlut ráðstöfunartekna
leigjenda en var á árunum fyrir
hrun.
Að meðaltali taki íbúðaleiga um
45% ráðstöfunartekna og umtals-
verður hluti leigjenda sé með óhóf-
lega háa leigubyrði. „Talað hefur
verið um að æskilegt sé að leiga fari
ekki yfir 25% af ráðstöfunartekjum,
en þegar meðaltalið fyrir leigjenda-
hópinn allan er 45% og umtalsverðir
hópar fara upp í 70% eða meira þá er
ófremdarástand,“ segir þar. Á síð-
ustu tíu árum hafi leiga á höfuðborg-
arsvæðinu hækkað um 102%, langt
umfram það sem sést hafi í Evrópu.
Staða leigjenda versnað og
spá kröftugri hækkun leigu
- Leiga á höfuðborgarsvæði hækkað um 102% á tíu árum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúðir Leigjendur greiða að jafnaði
45% ráðstöfunartekna sinna í leigu.