Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 17

Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022 Á síðustu árum hef- ur tískuorðið einföldun regluverks verið mikið í umræðunni. Ákveðnir stjórnmálamenn ætl- uðu að nota tækifærið og þurrka út heilu iðn- greinarnar án tillits til þeirrar þekkingar og færni sem býr að baki þeim. En einföldunin (hreinsunin) átti að verða trúverðugri með aðstoð OECD sem virðist vera í áskrift hjá íslenska ríkinu með skattfé landsmanna. Dýrir starfs- menn ráðuneyta og Samkeppniseft- irlitsins voru nýttir í vinnuna í stað þess að vinna við það sem þeir voru ráðnir til. Íslendingar eiga framúrskarandi gott iðnkerfi og þurfa ekki á aðstoð OECD að halda til að níða það niður og bera saman við lönd sem hafa kerfi langt að baki því íslenska. Kerfið okk- ar er einstakt að því þýska und- anskildu en Þjóðverjarnir hafa þó borið gæfu til að ramma kerfið sitt inn frá a til ö og gerðu það strax 1897. Á Íslandi eru námssamningar á könnu framhaldsskólanna, námskrár eru gefnar út af Menntamálastofnun, sveinsbréfin eru gefin út af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, iðnmeistaranám er í tilteknum fram- haldsskólum, meistarabréfin eru gef- in út af sýslumönnum og endur- menntun, m.a. hjá Iðunni, og svo má lengi telja. Sérhagsmunasamtök rugla svo öllu kerfinu ásamt illa upp- lýstum stjórnmálamönnum. Hvað getum við gert til að einfalda kerfið? Við leggjum til að stofnað verði á Íslandi Handwerkskammer („Handverksstofnun“) að þýskri fyr- irmynd. Í Þýskalandi eru 53 slíkar svæðisbundnar stofnanir en þýska þjóðin telur tæpar 83 milljónir manna. Það myndi því nægja að koma einni slíkri stofnun á laggirnar á Íslandi sem telur 350.000 manns. Lögum samkvæmt eru öll iðnfyrirtæki skyld- uð til að starfa undir Handwerk- skammer, annars fá þau ekki starfs- leyfi. En hvað gerir Handwerkskammer? Í stuttu máli sagt er allt sem tengist handiðnaði undir einu þaki. Haldið er utan um iðnaðarskrá, námssamninga, iðnskólana, leyfisveitingar, útgáfu sveins- og meistarabréfa, alla iðn- menntun og endurmenntun og allt sem viðkemur rekstri iðnfyrirtækja. Jafnframt er aðstoð við stofnun nýrra iðnfyrirtækja og nýsköpun í iðnaði. Er þetta ekki einfalt? Við þurfum ekki alltaf að reyna að finna upp hjólið. En hvernig eigum við að fjármagna þetta? Það yrði gert með hóflegu fé- lagsgjaldi sem iðnfyrirtækin greiða og fá í staðinn mikla þjónustu sem er miðuð að þeirra hagsmunum og iðn- aðinum í heild. Allir eru félagar og allir greiða, ólíkt því sem er í dag að aðeins hluti iðnaðarmanna velur að greiða til SI. Félagsgjöld til Samtaka iðnaðarins (SI) eru gríðarlega há og myndi hluti þeirra nýtast til reksturs hinnar nýju og þjónustumiðuðu stofn- unar. Jafnframt myndi ríkið færa þjónustu til nýju stofnunarinnar og hagræða á þann hátt. Í Þýskalandi er fúsk og ólöglegur iðnrekstur kallaður „ólögmæt sam- keppni“, en stjórnmálamenn á Íslandi telja það til nýsköpunar og fram- taksemi þrátt fyrir að undir því þrífist svart hagkerfi. Ungt fólk er hvatt til að leggja fyrir sig iðnnám en svo er ætlast til að iðnfyrirtækin og mörg önnur atvinnustarfsemi á Íslandi keppi við ólögmæta samkeppni þeirra sem fara ekki að lögum. Telji iðn- meistari einhverja starfsemi stangast á við lög þarf hann í eigin persónu að kæra slíkt til lögreglu sem telur slíkt ekki vera forgangsmál til að rann- saka. Í staðinn má gera kerfið skil- virkara með því að auka eftirlit með brotum á handiðnaðarlögum og setja á háar stjórnvaldssektir við lög- brotum. Því skal haldið til haga að með samþykkt laga nr. 92/2008 voru Iðn- skólinn í Reykjavík og Iðnskólinn í Hafnarfirði með 2.600 nemendur lagðir niður, iðn- og starfsnám fært sérhagsmunasamtökunum í Borg- artúni 35 á silfurfati til fimm ára sem síðan hefur verið framlengt athuga- semdalaust af ráðherrum mennta- mála þrátt fyrir svarta skýrslu Rík- isendurskoðunar í apríl 2017 um hvernig til tókst. Samtök atvinnulífsins, Samtök iðn- aðarins og Viðskiptaráð Íslands hafa keppst við á undanförnum árum að koma sér fyrir á miðunum og vísa illa upplýstum stjórnmálamönnum hvert skal halda. Ríkisstjórnir síðustu ára með viðkomandi fagráðherra í far- arbroddi hafa ítrekað hlýtt kalli sér- hagsmunasamtakanna í Borgartúni 35 sem skarta hátt í 80 manna starfs- liði fyrir utan mikinn fjölda stjórn- armanna. Stjórnmálamenn raða sér á fyrsta bekk á skrautsýningum samtakanna og láta nýútskrifað fólk sem sumt hef- ur litla sem enga reynslu segja sér hvernig hlutirnir eigi að vera. Iðn- meistarar hafa talið sig eiga öruggt skjól og stuðning undir svokallaðri regnhlíf SI sem er götótt og engum iðnmeisturum til gagns sem borga svo allar veislurnar og sýningarnar. Sam- tökin þora ekki að koma fram og mót- mæla brotum á iðnlöggjöfinni og festa í sessi fúsk með aðgerðaleysi sínu. Undir afskiptum þessa fólks sem hef- ur ráðskast með stjórnmálamenn eins og strengjabrúður hefur verið unnið gríðarlegt tjón á íslenskum iðnaði. Ríkisstjórn Íslands ber þó höf- uðábyrgð á afskiptum OECD af ís- lenskum menntamálum og greiddi 120 milljónir króna í október 2020 fyr- ir herlegheitin. Að sjálfsögðu fagnaði Viðskiptaráð Íslands þegar ráðu- neytið samdi við OECD um fram- kvæmd svokallaðs samkeppnismats á ferðaþjónustu og byggingastarfsemi. Nú gætu þeir loksins komið sínum „banvæna bita“ í framkvæmd. Út- koman varð reyndar allt önnur því helstu tillögurnar voru að „AF- NEMA löggildingu bakara og ljós- myndara“. Hvert eru ráðandi stjórnvöld kom- in þegar stóra myndin er skoðuð? Stórtækir auðmenn kaupa at- hugasemdalaust upp land á meðan ráðherra eyðir tíma sínum og skatt- peningum landsmanna í óþurftar- verkefni sem ættu að nýtast betur í mörgum áríðandi verkefnum á mikl- um óvissutímum. Aðilar eru að leggja til breytingar á iðnnámi en hafa aldr- ei lagt fyrir sig slíkt nám. Hrein árás ríkisstjórnar Íslands er fyrir neðan allar hellur á lögvernduð starfsrétt- indi bakarastéttarinnar sem er stórt lýðheilsumál. Traustið hverfur þegar „virtir rektorar“ fagskólanna tjá sig opin- berlega með ýmsar öfgafullar skoð- anir að leiðarljósi, meðal annars „að leggja niður sveinsprófin – burt með þetta allt saman“. Er það þangað sem við stefnum? Það er ekki lengur verið að hugsa um framtíð ungs fólks sem leggur fyrir sig iðnnám og sér fyrir sér fagréttindi með miklum framtíð- armöguleikum. Nei, þvert á móti. Mun gamall draumur heildarsamtak- anna í Borgartúni 35, eigenda Tækni- skólans og Háskólans í Reykjavík, sem hafa námskrárgerð iðnnáms í hendi sér og sjá fyrir sér í hillingum þrepaskipt iðnnám og hópa iðjufólks á lágum launum, raungerast? Einföldum kerfið Eftir Sigurð Má Guðjónsson og Helga Steinar Karlsson Sigurður Már Guðjónsson » Íslendingar eiga framúrskarandi gott iðnkerfi og þurfa ekki á aðstoð OECD að halda til að níða það niður. Sigurður Már er bakara- og kökugerðarmeistari. Helgi Steinar er múrarameistari. konditor@konditor.is Helgi Steinar Karlsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.