Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 21

Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022 ✝ Sigurður Pálm- ar Gíslason fæddist 18. apríl 1934. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 27. apríl 2022. Foreldrar hans voru Sigurlaug Sig- urðardóttir, f. 8.9. 1913, d. 26.9. 2007, og Gísli Jóhann Jónsson, f. 25.5. 1910, d. 8.4. 1941. Sigurður ólst upp hjá móður sinni ásamt afa og ömmu, þeim Sigurði Sverrissyni og Sesselju Guðmundsdóttur, og bjuggu þau lengst af á Laugavegi 27b í Reykjavík. Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum 1954 og var lögreglumaður í Reykjavík um skeið. Sigurður lauk íþrótta- kennaraprófi frá Íþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni árið 1959 og var kennari við Hlíða- skóla í Reykjavík. Þá starfaði hann einnig sem íþróttakennari í Reykholti í Borgarfirði í tvö ár. Sigurður hóf seinna nám í viðskiptafræði við Háskóla Ís- lands og lauk viðskiptafræði- prófi þaðan árið 1974. Hann starfaði til fjölda ára hjá Há- skóla Íslands þar sem hann sá um styrktarsjóði Háskólans. Þá rak Sigurður sitt eigið fyrir- tæki, Hagvís, frá árinu 1980. Hann stundaði frjálsar íþróttir frá unga aldri og lék körfuknattleik með ÍR og var hluti af svokölluðu gullald- arliði félagsins. Sigurður kvænt- ist Rósu Sigríði Lúðvíksdóttur, þau skildu árið 1958. Sonur þeirra var Ragnar, f. 18.1. 1956, d. 30.4. 2010. Dóttir hans er Cecilia Sigurdsson, bú- sett í Danmörku. Sigurður kvæntist 26.8. 1961 Kristínu Eiríksdóttur, f. 6.1. 1938, bankaritara hjá Lands- banka Íslands. Börn þeirra eru Helga Sig- urlaug, f. 24.1. 1963, maki Björn Jónsson, f. 11.1. 1961, og Gunn- ar Kristinn, f. 27.4. 1971, maki Anna R. Valdimarsdóttir, f. 8.3. 1973. Börn Helgu og Björns eru Jón Pálmar, Helgi Steinn og Kol- beinn. Börn Gunnars og Önnu eru Nína Kristín og Hugi Freyr. Barn Jóns Pálmars og Guð- rúnar Hrannar Hilmarsdóttur er Hilmar Björn, f. 1.9. 2020. Útför Sigurðar fer fram frá Garðakirkju, Álftanesi í Garða- bæ í dag, 10. maí 2022, kl. 15. Elsku pabbi okkar er farinn yfir í sumarlandið. Við kveðjum hann með söknuði en hugsum á sama tíma um allar góðu minn- ingarnar með hlýjum hug. Pabbi var einstakur maður. Hann ólst upp í fátækt hjá móður sinni Sig- urlaugu, sem við kölluðum alltaf ömmu Laugu, í bakhúsi á Lauga- veginum ásamt ömmu sinni og afa og frændsystkinum. Þetta var ekkert sældarlíf en þó minnt- ist pabbi þess alltaf með hlýhug þegar hann rifjaði upp æskuárin á Laugaveginum. Þar kynntist hann æskuvinum sínum, hóf íþróttaiðkun af kappi, upplifði stríðsárin með hermenn þramm- andi upp og niður götuna og keypti sína fyrstu djassplötu 15 ára. Hans líf var viðburðaríkt en hann þurfti að hafa fyrir hlutun- um eins og margt fólk á þessum árum. Hann stundaði frjálsar íþróttir með KR og körfubolta með ÍR og náði góðum árangri í báðum íþróttagreinum. Hann starfaði sem lögreglumaður, menntaði sig sem kennari og síð- ar viðskiptafræðingur og stofnaði sitt eigið fyrirtæki seinna meir. Við systkinin minnumst góðra tíma á Móaflöt hjá pabba og mömmu. Pabbi var traustur og góður pabbi af gamla skólanum, og vildi hafa hlutina í röð og reglu. Hann kenndi okkur að gef- ast ekki upp og vildi að við sinnt- um námi okkar og hafði alltaf óbilandi trú á því sem við vorum að gera. Hann var stoltur af sín- um. Pabbi kenndi okkur að hlusta á djass enda ómaði djassinn ósjaldan í stofunni á föstudags- eða laugardagskvöldum. Hann hafði mikinn áhuga á myndlist og við lærðum að meta góð málverk eftir helstu meistarana hvort sem það voru Jóhann Briem, Kjarval, Hringur eða Rembrandt. Hann hvatti okkur til að hugsa vel um heilsuna og stunda hreyfingu, enda var hann sjálfur óþreytandi í líkamsrækt. Hann hljóp um göt- ur Garðabæjar um 1980 löngu áð- ur en fólk fór almennt að stunda hlaup og uppskar oft stór augu vegfarenda. Hann mætti daglega í sund og synti sinn kílómetra á dag alveg fram að 85 ára aldri. Við minnumst með hlýhug allra matarboðanna hjá pabba og mömmu, þar sem pabbi var iðu- lega búinn að kveikja upp í arn- inum, setja góðan djass á fóninn og kannski blanda drykk. Þá var gaman, spjallað fram eftir kvöldi um allt milli himins og jarðar og Sinatra, Ella og Louie og Count Basie ómuðu undir. Við erum þakklát fyrir utanlandsferðirnar með pabba og mömmu til Eng- lands, Flórída, New York, Frakklands, Kanarí, Þýskalands og víðar. Pabbi fylgdist vel með barnabörnunum sínum fram á síðasta dag og hafði ánægju af því að sjá þau vaxa upp og dafna. Það var því yndislegt að hann gæti átt fallegan 88 ára afmælisdag með okkur systkinum, mömmu, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabarni einungis rúmri viku áður en hann kvaddi okkur. Þar spjallaði hann við okkur og fékk sér kökur og kaffi í tilefni dagsins og er þetta yndisleg minning fyrir okkur öll til að geyma. Síðustu tvö ár dvaldi pabbi á Hrafnistu í Hafnarfirði. Við vilj- um þakka starfsfólki á Báru- hrauni á Hrafnistu fyrir einstaka aðhlynningu, hlýhug og virðingu í hans garð. Elsku pabbi, hvíl í friði. Minn- ing þín lifir. Helga og Gunnar. Siggi tengdapabbi var hold- gervingur „the selfmade man“, reif sig upp úr þeim aðstæðum sem hann fæddist í, vann og lærði og kom undir sig fótunum. Tók kennarapróf, lögregluskólapróf, íþróttakennarapróf og að lokum viðskiptafræðipróf frá HÍ. Hann ákvað ungur að sætta sig ekki við sitt hlutskipti og það er nákvæm- lega það sem hann gerði. Hörku- duglegur, góður námsmaður, af- reksmaður í íþróttum og glæsilegur lét hann ekki erfið skilyrði í æsku stoppa sig. Hann fór þetta kannski á hnefanum að ákveðnu leyti og ég fann það strax að hann var ekki maður sem flíkaði tilfinningum sínum. En hann elskaði engu að síður Dinnu sína mikið og var mjög stoltur af börnum og barnabörn- um og það skein alltaf í gegn. Traustur sem klettur sem vissi ekkert betra en að fá fjölskyld- una í mat á laugardagskveldi, spila djass og spjalla um lífið. Þar naut hann sín og lagði alúð við að allir hefðu nóg, laumaði vísum og málsháttum undir diskana sem voru svo lesnir upp eftir mat til þess að – á sinn hátt – deila áhuga sínum á kvæðum, ljóðum og ann- arri visku. Siggi var listunnandi, málaði myndir og orti ljóð þó svo að hann, rétt svona eins og með tilfinningarnar, væri ekki mikið að bera þetta á borð fyrir aðra. En hann skrifaði niður æsku- minningar sínar sem hann deildi með okkur og þær minningar eru okkur mikill fjársjóður. Þær hafa einnig gefið okkur fjölskyldunni dýpri skilning á hver Siggi var og hvernig það var að alast upp í Reykjavík við sárafátækt á stríðsárunum, vera sendur í sveit hingað og þangað og oft látinn vinna mun meira en nokkurn tím- ann ætti að leggja á barn. Allt þetta setti sitt mark á Sigga og gerði að þeim manni sem hann var. Fyrir mér var hann fyrst og fremst tengdapabbi, pabbi Gunna míns og afi barnanna minna og fyrir það get ég aldrei nægilega þakkað. Takk fyrir allt og allt elsku Siggi. Kveð þig að lokum með orð- unum sem þú kvaddir svo oft með: „Hang loose and play it co- ol.“ Anna. Tengdafaðir minn og góður vinur, Sigurður Pálmar Gíslason, er látinn eftir erfið veikindi, 88 ára gamall. Siggi er gott dæmi um elstu kynslóð okkar Íslendinga, fólk sem þurfti að leggja mikið á sig til að sjá sér og sínum farborða og fór í gegnum lífið með dugnað og nægjusemi í blóðinu. Á langri ævi upplifði Siggi margt og gam- an var að hlusta á hann segja sög- ur frá uppvexti sínum. Þetta voru frásagnir af baráttu barns í fá- tækt stríðsáranna í Reykjavík, en hann var alinn upp hjá einstæðri móður, í lítilli íbúð í bakhúsi við Laugaveg, þar sem einnig bjuggu amma hans og afi auk nokkurra frændsystkina. Saga unglingsins var barátta til mennta, en Siggi var góður námsmaður og komst hann inn í Menntaskólann í Reykjavík og áfram í Kennara- skólann, sem ekki var sjálfgefið á þessum tíma. Ungi maðurinn var íþróttamaður góður, fjölhæfur í frjálsum íþróttum og einn af frumkvöðlum körfuknattleiks- íþróttarinnar á Íslandi. Hann var einn af fyrstu landsliðsmönnum Íslands í körfuknattleik og marg- faldur íslandsmeistari. Í bókinni „Leikni framar líkamsburðum – Saga körfuknattleiks á Íslandi“ segir: „Körfuknattleiksdeild KR var stofnuð í október 1956. Helstu hvatamenn voru Pétur Rögnvaldsson og Sigurður P. Gíslason og var Pétur kjörinn fyrsti formaður stjórnar og Sig- urður varaformaður.“ Íþróttir stundaði hann alla tíð og 85 ára gamall synti hann 1.000 metra skriðsund flesta daga. Siggi var meðvitaður um mik- ilvægi menntunnar og bætti við sig þekkingu alla ævi. Hann tók kennarapróf og síðar íþrótta- kennarapróf, fór í Lögregluskól- ann og útskrifaðist sem lögreglu- maður. Töluvert síðar nam hann viðskiptafræði og útskrifaðist frá Háskóla Íslands með cand. oe- con.-gráðu, þá orðinn fertugur. Stuttu fyrir starfslok sótti hann sumarnámskeið við þekktan am- erískan háskóla. Hann las heims- bókmenntir og málaði myndir sér til ánægju. Siggi starfaði sem kennari, íþróttakennari og lögreglumaður á sínum yngri árum en síðar var hann lengi starfsmaður Háskóla Íslands þar sem hann hélt utan um sjóði Háskólans. Samhliða starfi rak hann heildverslunina Hagvís ehf. í mörg ár Tengdafaðir minn var heima- kær fjölskyldumaður og ákaflega stoltur af börnum sínum og barnabörnum. Hann giftist eftir- lifandi eiginkonu sinni, Kristínu Eiríksdóttur, 1961 og saman stofnuðu þau sitt fyrsta heimili á Austurbrún í Reykjavík. Síðar byggðu þau sér æviheimili á Móaflöt 55 í Garðabæ. Þegar þau fluttu í Garðabæinn var lítið um gróður og ræktuðu þau verð- launagarð sem notið hefur um- hyggju og grænna fingra Dinnu. Siggi naut sín best heima á Móa- flöt og þangað hefur alltaf verið gott að koma. Þegar boðið var til veislu var verkaskiptingin klár; Dinna sá um matinn en Siggi um tónlist og drykki en hann var mikill tónlistarunnandi og sann- kallaður „djassgeggjari“. Mér er minnisstætt einn góðviðrisdag þegar fjölskyldan var saman á Móaflöt, Siggi leit í kringum sig og sagði: „Hér er allt sem ég þarf.“ Margs er að minnast frá langri samferð og hans verður sárt saknað. Björn Jónsson. Elsku afi Siggi. Ég dansaði á tánum þínum og þú tókst mig í kleinu. Þú hnyklaðir vöðvana framan í vini mína og spurðir hvort afar þeirra væru í jafn góðu formi. Sagan um manninn sem breyttist breyttist með tímanum en kækirnir þínir og brosið ekki. Seinna ræddum við ótrúleg mannvirki reist í Róm fyrir langalöngu fyrir framan arineld- inn. Guð geymi þig elsku afi. Þitt afabarn, Jón Pálmar Björnsson. Kæri afi. Ég kynntist þér alltof seint í lífinu en er svo þakklát fyr- ir að við náðum að kynnast og fyrir allar þær ánægjulegu stundir sem við áttum saman. Þú varst ótrúlega flottur og dugleg- ur afi og fórst létt með að synda 1.000 metra þrátt fyrir aldur, sem ég er mjög stolt af að segja öðrum. Ég vona að þú hafir það friðsælt þar sem þú ert og passir upp á okkur. Ég sendi þér ást og umhyggju frá Danmörku og segi góða ferð. Þitt barnabarn, Cecilia. Þegar við í dag kveðjum Sig- urð Gíslason mág minn leitar hugurinn aftur í tímann. Mér er minnisstætt þegar Dinna systir mín kom heim í Gróðrarstöð fyrst með Sigga, hvað mér fannst hann myndar- legur og hve þau voru falleg og glæsileg saman. Það fór ekki mikið fyrir Sigga en fljótlega áttaði ég mig á hversu fjölhæfur hann var. Hann var listrænn og mjög smekklegur og hafði áhuga á bókmenntum og tónlist. Þegar Dinna og Siggi voru í Reykholti heimsótti ég þau með strákunum mínum, þá kynntist ég íþróttamanninum Sigurði. Hann fór í alvöru handbolta með krökkunum í íþróttasalnum, lét þau hlaupa og synda. Þeir voru mjög hrifnir og ánægðir og muna þessa daga enn. Ég sendi elsku systur minni, Helgu og Gunna og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur, það er gott að eiga góðar minn- ingar. Blessað veri grasið sem grær kringum húsin bóndans og les mér ljóð hans, þrá og sigur hins þögula manns. Blessað veri grasið sem grær yfir leiðin, felur hina dánu friði og von. Blessað veri grasið sem blíðkar reiði sandsins, grasið sem græðir jarðar mein. Blessað veri grasið, blessað vor landsins. (Snorri Hjartarson) Margrét Helga Eiríksdóttir. Það er komið vor, sólin fer hækkandi, ilmur úr jörðu og söngur smáfuglanna í fallega garðinum að Móaflöt fyllir loftið. Þá lýkur æviskeiði mágs míns og góðs vinar, Sigurðar Pálmars. Ég var lítill snáði þegar Dinna systir og Siggi, fjallmyndarlegur mað- ur, rugluðu saman reitum sínum. Hann var þá lögreglumaður og þótti mér mikið til koma þegar ég fékk eitt sinn að sitja aftan á lög- regluhjóli niður Smáragötu, það er ógleymanleg stund. Síðar var ég svo heppinn að fá hann fyrir kennara en þá hafði Siggi snúið sér að kennslu. Hann var afskap- lega fær kennari, hæfilega strangur. Ólátabelgir komust ekki upp með neitt múður hjá honum. Nemendur minnast hans ævinlega með hlýju.Það er svo margs að minnast á langri ævi, ekki verður allt tíundað hér. Dinna og Siggi voru afskaplega samhent. Hvergi leið Sigga betur en með fjölskyldunni á yndislegu heimili þeirra hjóna og í fallega garðinum sem prýðir Móaflöt. Þetta var honum kærast. Hann skilur eftir sig margar fagrar og dýrmætar minningar sem munu verða ástvinum hans til blessunar um ókomna tíð. Kveðjustundin er alltaf sár þegar lagt er upp í ferð- ina miklu yfir landamæri lífs og dauða. Sigurði Pálmari fylgja góðar fyrirbænir og þakklæti vina. Öll eigum við þessa ferð fyr- ir höndum og þá ber okkur til sama lands. Þar munum við hitt- ast að nýju og gleðjast við þá end- urfundi. Til hinstu hvílu heldur þú nú senn á helgum kertum loginn brennur enn en söknuðurin læðist hægt og hljótt í hljóðri bæn, við bjóðum góða nótt. (HZ) Að lokum þökkum við fallega samfylgd og vottum ástvinum dýpstu samúð, guð geymi ykkur öll. Helgi og Freyja Góður vinur, Sigurður P. Gíslason, er fallinn frá. Okkar fyrstu kynni við þau hjónin Sigga og Dinnu voru þegar Helga dóttir þeirra og sonur okkar Björn rugluðu saman reytum. Fljótlega tókst með okkur hjónum góður vinskapur og árið 1985 fæddist elsti sonur Helgu og Bjössa, Jón Pálmar. Seinna bættust þeir Helgi Steinn og Kolbeinn við í drengjahópinn og hafa þeir ávallt verið nánir afa sínum og missir þeirra því mikill. Við hjónin eig- um margar skemmtilegar minn- ingar um Sigga og brúðkaup Helgu og Bjössa kemur fyrst fram í hugann. Það var glatt á hjalla á heimili þeirra hjóna á Móaflöt þann daginn í júlí árið 1986 þar sem hinn fallegi garður þeirra hjóna skartaði sínu feg- ursta á fögrum sólskinsdegi. Seinna ferðuðumst við mikið saman og fórum með þeim hjón- um tvisvar í siglingar á skemmti- ferðaskipum. Fyrri ferðin um Eystrasalt og sú síðari frá Kaup- mannahöfn til Ítalíu. Þau voru einstaklega skemmtilegir ferða- félagar og það var alltaf glatt á hjalla þegar við hittumst í drykk fyrir kvöldmatinn. Siggi valdi alltaf að fá Jack Daniels og þar var oft mikið hlegið. Sigurður var mikill sundgarpur og við hitt- umst alltaf reglulega í Sundlaug Kópavogs. Hann hugsaði alltaf vel um heilsuna, synti mikið og alltaf á sömu brautinni svo það var auðvelt að finna Sigurð til að spjalla. Langafastrákurinn okkar hann Hilmar Björn kom svo í heiminn eftir að Sigurður veiktist en hann gladdist alltaf þegar hann kom í heimsókn. Í gegnum tíðina hafa þau verið ófá matar- boðin hjá Helgu og Bjössa þar sem við höfum verið saman. Allt- af mikið spjallað og ekki fannst okkur verra hvað við vorum sam- mála í pólitíkinni. Sigurðar verður sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Við sendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur til Dinnu og fjöl- skyldunnar allrar. Þorgerður og Jón. Sigurður Pálmar Gíslason Okkar ástkæri, EIÐUR PÁLL SVEINN KRISTMANNSSON, Skógarvegi 6, sem andaðist miðvikudaginn 27. apríl, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 13. maí klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. Ólöf Gísladóttir Hjartkær föðursystir okkar og frænka, JÓHANNA RANNVEIG ELÍASDÓTTIR (LILLA), lést á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri þriðjudaginn 3. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 19. maí klukkan 13. Róslín Jóhannesdóttir Birgir Ísleifsson Kristín Jóhannesdóttir Jóhannes Páll Sigurðarson Unnur Ýr Guðráðsdóttir Freyja Kristín Jóhannesdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÓA JÓELSDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 7. maí. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 17. maí klukkan 13. Valgerður Jónsdóttir Jóel Friðrik Jónsson Þuríður Steinþórsdóttir Jón Magnús Jónsson Stefanía Gunnarsdóttir ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.