Morgunblaðið - 10.05.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
ÞORPSBÚAR KOMU TIL AÐ BERJA
SKRÍMSLIÐ AUGUM – EN ÞAÐ VAR
BAKRADDASÖNGVARINN SEM STAL
SENUNNI.
„ÉG VEIT AÐ DEMANTAR ENDAST AÐ
EILÍFU. HVAÐ GET ÉG KEYPT FYRIR TVO
MÁNUÐI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem við erum
best í.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Í DAG ERUM VIÐ MEÐ AFAR
SÉRSTAKAN GESTALISTAMANN
ELMAR MUN LEIKA
HLUTVERKODDA
AFSAKAÐU EN VIÐGERÐIN TÓK LENGRI
TÍMA EN ÉG BJÓST VIÐ!
HEYRÐU! HVAÐ
MEÐ AÐ BORGA
REIKNINGINN?
SORRÍ… ÞAÐ MUN
LÍKA TAKA LENGRI
TÍMA EN ÞÚ BJÓST
VIÐ!
SPARK!
og hef ferðast víða um landið í frí-
stundum. Stórfjölskyldan hefur ann-
ast trjágarð í Fossvogi sem foreldrar
mínir ræktuðu og plöntuðu öllum
trjánum í garðinum frá fræjum árið
1930 og er garðurinn nú með stærri
og elstu trjágörðum á Reykjavíkur-
svæðinu. Síðustu árin hef ég verið í
myndlistarnámi í Gerðubergi og hef
haft mikla ánægju af því.“
Fjölskylda
Helga er gift Jóni G. Stefánssyni
geðlækni, f. 10.1. 1939. Þau eru búsett
í Reykjavík. Foreldrar Jóns voru
Stefán Þorsteinn Sigurjónsson, f.
25.2. 1910, d. 16.1. 1991, skrifstofu-
maður hjá tollstjóraembætti í
Reykjavík og Aðalbjörg Jónsdóttir, f.
28.7. 1912, d. 17.2. 2000, húsfreyja.
Börn Jóns og Helgu eru 1) Aðal-
björg , f. 12.8. 1966, dýralæknir á
Akureyri, gift Ólafi Sveinssyni mynd-
listarmanni og kennara. Börn þeirra
eru Karólína Rós, f. 1997, Sveinn Áki,
f. 2000, og Baldvin Kári, f. 2002; 2)
Hannes Valgarður, f. 1.6. 1969, við-
skiptafræðingur, fráskilinn, búsettur
í Våxjö í Svíþjóð. Börn hans eru
Tinna Helga Margreta, f. 2003, Lilja
Alice, f. 2007, og Beatrice Edda, f.
2009; 3) Stefán Hallur tannlæknir, f.
25.12. 1970, kvæntur Kristlaugu
Stellu Ingvarsdóttur, hjúkrunar-
fræðingi og talmeinafræðingi. Börn
þeirra eru Helga Hlín, f. 1997, Þór-
unn, f. 2000, og Jón Orri, f. 2002; 4)
Valgerður Björg , f. 4.5. 1975, innan-
hússhönnuður, búsett í London, gift
Chris Wieszczycki arkitekt og börn
þeirra eru Max, f. 2003, og Nína, f.
2005.
Systkini Helgu voru Leifur Hann-
esson, f. 13.1. 1930, d. 14.5. 2001, verk-
fræðingur og eigandi Miðfells verk-
takafyrirtækis; Valgerður Hannes-
dóttir, f. 20.7. 1931, d. 1.4. 2004, hús-
freyja í Reykjavík, og Lína Lilja
Hannesdóttir, f. 14.8. 1935, d. 18.7.
2013, gjaldkeri hjá Hans Petersen í
Reykjavík.
Foreldrar Helgu voru hjónin
Hannes Valgarður Guðmundsson, f.
25.2. 1900, d. 27.5. 1959, húð- og kyn-
sjúkdómalæknir í Reykjavík, og Val-
gerður Björg Björnsdóttir, f. 24.5.
1899, d. 27.1. 1974, húsfreyja í
Reykjavík.
Helga
Hannesdóttir
Anna Sigríður Björnsdóttir
bóndi á Brekku
Sigfús Jónsson
bóndi á Brekku í Svarfaðardal
Björn Zóphanías Sigfússon
sjómaður í Tjarnargarðshorni
Lilja Daníelsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Valgerður Björg
Björnsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Tjarnargarðshorni
Daníel Friðriksson
bóndi í Tjarnargarðshorni í Svarfaðardal
Halldóra Pálsdóttir
húsfreyja á Guðlaugsstöðum
Hannes Guðmundsson
bóndi og smiður á Guðlaugsstöðum
í Blöndudal
Guðmundur Hannesson
prófessor í Reykjavík
Karólína Margrét Sigríður
Ísleifsdóttir Breiðfjörð
húsfreyja í Reykjavík
Gróa Sveinbjarnardóttir
útvegsbóndi í Klöpp í Miðneshreppi
Ísleifur Einarsson
prestur á Stað í Grindavík,
síðar á Stað í Steingrímsfirði
Ætt Helgu Hannesdóttur
Hannes Valgarður
Guðmundsson
húð- og kynsjúkdóma-
læknir í Reykjavík
Á Boðnarmiði yrkir Magnús Geir
Guðmundsson í tilefni mæðra-
dagsins 8. maí 2022:
Hana mömmu hjarta í,
heilagasta geymi.
Móðurástin mild og hlý
er mögnuðust í heimi!
Ingólfur Ómar lumaði að mér
einni hlýrri vísu á laugardag:
Svölun tæra sólin blíð
sálu færir minni.
Blómstur grær um grund og hlíð
gleðin hlær í sinni.
„Morgunn í maí“ eftir Brodda B.
Bjarnason:
Sólin gefur gull í mund,
gróður jarðar nærir.
Fuglasöngur léttir lund,
lifna þankar kærir.
Og Maísól eftir Þórunni Hafstein:
Maísólin á sig minnir;
mundu að ég er til;
þótt ei mig ávallt skynjir
alltaf mun senda yl.
Helgi R. Einarsson er kominn
heim frá Berlín, skrapp í sund og
því varð þessi til:
Besservisserar
Það er best að þegja
ekki neitt
og yfirleitt
auk þess fussa og sveia.
Og síðan:
Á fundinum
Þeir fóru að þrefa
og þóttust loforð gefa
um skárri tíð.
Já, skemmtu lýð,
en, skammta svo úr hnefa.
Á Boðnarmiði yrkir Guðmundur
Arnfinnsson limruna „Ljóðskáld“:
Valdi ei barnanna bestur
og breyskari’ en nokkur prestur
stundar á fundum
hjá fjörugum sprundum
barasta ljóðalestur.
Jón Atli Játvarðarson skrifar:
„Mosi og skófir leggjast á friðaða
sanda í ráðuneytum.“
Maður kemur manns í stað,
mikið um þá spunnið.
Allt því miður aflagað,
út á tíma runnið.
Umhverfisþursarnir eldast nú senn,
eldingum flugu þeir skjótar.
Valdir í skörðin vistheimskir menn
vinstri grænir og þrjótar.
Þórarinn Eldjárn yrkir um leka:
Þetta er ósköp almenn speki
en þó rétt að flíka:
Víða þar sem verður leki
vill oft mygla líka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í tilefni mæðradagsins
og fleira gott