Morgunblaðið - 10.05.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
Besta deild kvenna
KR – ÍBV................................................... 0:2
Selfoss – Þróttur R................................... 1:1
Valur – Keflavík........................................ 3:0
Breiðablik – Stjarnan............................... 3:0
Staðan:
Selfoss 3 2 1 0 6:2 7
Breiðablik 3 2 0 1 7:2 6
Valur 3 2 0 1 6:2 6
Keflavík 3 2 0 1 5:3 6
Þór/KA 3 2 0 1 5:6 6
Stjarnan 3 1 1 1 6:5 4
ÍBV 3 1 1 1 3:2 4
Þróttur R. 3 1 1 1 5:5 4
Afturelding 3 0 0 3 4:10 0
KR 3 0 0 3 1:11 0
Ítalía
Fiorentina – Roma ................................... 2:0
Staða efstu liða:
AC Milan 36 24 8 4 64:31 80
Inter Mílanó 36 23 9 4 78:31 78
Napoli 36 22 7 7 68:31 73
Juventus 36 20 9 7 55:33 69
Lazio 36 18 8 10 72:53 62
Atalanta 36 16 11 9 65:45 59
Roma 36 17 8 11 55:42 59
Fiorentina 36 18 5 13 56:47 59
_ Tveimur umferðum er ólokið. AC Milan á
eftir að mæta Atalanta og Sassuolo en Int-
er á eftir að mæta Cagliari og Sampdoria.
AC Milan verður meistari vegna innbyrðis
úrslita ef liðin enda jöfn að stigum.
England
C-deild, umspil, undanúrslit, seinni leikur:
Sheffield Wed. – Sunderland .................. 1:1
_ Sunderland áfram, 2:1 samanlagt, og
mætir Wycombe í úrslitaleik um sæti í B-
deildinni.
Mexíkó
8-liða úrslit, seinni leikur:
Club América – Pachuca ........................ 1:2
- Andrea Rán Hauksdóttir kom inn á hjá
América á 83. mínútu. Pachuca vann 4:2
samanlagt og er komið í undanúrslit.
Bandaríkin
Angel City – Orlando Pride ................... 0:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék fyrstu 74
mínúturnar með Orlando Pride.
Svíþjóð
Värnamo – Häcken.................................. 1:2
- Valgeir Lunddal Friðriksson lék fyrstu
69 mínúturnar með Häcken
Helsingborg – Norrköping..................... 0:1
- Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 69 mín-
úturnar með Norrköping en Jóhannes
Kristinn Bjarnason var ekki í hópnum.
Elfsborg – Djurgården ........................... 0:0
- Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á hjá
Elfsborg á 85. mínútu og Hákon Rafn
Valdimarsson var varamarkvörður liðsins.
Staðan:
Hammarby 7 5 1 1 13:4 16
Malmö FF 7 4 3 0 8:1 15
AIK 7 5 0 2 8:7 15
Häcken 7 4 2 1 13:9 14
Mjällby 7 4 1 2 8:5 13
Djurgården 8 3 3 2 12:7 12
Kalmar 7 4 0 3 10:5 12
Elfsborg 7 3 2 2 14:6 11
IFK Göteborg 7 3 1 3 7:6 10
Norrköping 7 3 1 3 7:6 10
Sirius 7 3 1 3 5:11 10
Varberg 7 2 1 4 4:9 7
Helsingborg 8 1 2 5 6:10 5
Värnamo 7 1 2 4 5:10 5
Sundsvall 7 1 0 6 6:17 3
Degerfors 7 1 0 6 5:18 3
B-deild:
Örebro – Östersund................................. 1:0
- Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn
með Örebro sem er í áttunda sæti.
Noregur
B-deild:
Sogndal – Kongsvinger .......................... 2:1
- Hörður Ingi Gunnarsson, Valdimar Þór
Ingimundarson og Jónatan Ingi Jónsson
léku allan leikinn með Sogndal og Jónatan
og Hörður lögðu upp mörk liðsins.
50$99(/:+0$
Norski knatt-
spyrnumaðurinn
Erling Braut
Haaland verður
orðinn leikmaður
Manchester City
innan fárra
daga, samkvæmt
breskum fjöl-
miðlum. Borussia
Dortmund hefur
staðfest að City
hafi virkjað klásúlu í samningi
hans, um að hann geti farið frá
þýska félaginu fyrir 64 milljónir
punda sem greiddar séu í einu lagi.
Haaland, sem er 21 árs, þykir einn
efnilegasti framherji heims og hef-
ur skorað 92 deildamörk í 121 leik á
ferlinum.
Haaland á leið
til Manchester
Erling Braut
Haaland
SELFOSS – ÞRÓTTUR R. 1:1
0:1 Andrea Rut Bjarnadóttir 2.
1:1 Brenna Lovera 66.
M
Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfossi)
Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi)
Katla María Þórðardóttir (Selfossi)
Magdalena Anna Reimus (Selfossi)
Brenna Lovera (Selfossi)
Sóley María Steinarsdóttir (Þrótti)
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
Danielle Marcano (Þrótti)
Murphy Agnew (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þrótti)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 8.
Áhorfendur: 685.
VALUR – KEFLAVÍK 3:0
1:0 Elísa Viðarsdóttir 57.
2:0 Ída Marín Hermannsdóttir 62.
3:0 Elín Metta Jensen 70.
MM
Elísa Viðarsdóttir (Val)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Val)
M
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Val)
Brookelynn Ertz (Val)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Ída Marín Hermannsdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Samantha Leshnak (Keflavík)
Dómari: Jóhann Atli Hafliðason – 8.
Áhorfendur: Um 200.
BREIÐABLIK – STJARNAN 3:0
1:0 Melina Ayres 41.
2:0 Birta Georgsdóttir 51.
3:0 Melina Ayres 64.(v)
M
Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki)
Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki)
Clara Sigurðardóttir (Breiðabliki)
Birta Georgsdóttir (Breiðabliki)
Melina Ayres (Breiðabliki)
Karítas Tómasdóttir (Breiðabliki)
Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjörnunni)
Betsy Doon Hassett (Stjörnunni)
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson – 8.
Áhorfendur: 386.
KR – ÍBV 0:2
0:1 Viktorija Zaicikova 42.
0:2 Kristín Erna Sigurlásdóttir 73.
M
Rebekka Sverrisdóttir (KR)
Ísabella Sara Tryggvadóttir (KR)
Bergdís Fanney Einarsdóttir (KR)
Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Ameera Hussen (ÍBV)
Olga Sevcova (ÍBV)
Viktorija Zaicikova (ÍBV)
Haley Thomas (ÍBV)
Kristín Erna Sigurlásdóttir (IBV)
Dómari: Helgi Ólafsson – 8.
Áhorfendur: 70.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
BESTA DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Selfosskonur eru einar á toppi Bestu
deildar kvenna eftir þrjár umferðir
þrátt fyrir að þær yrðu að sætta sig
við jafntefli, 1:1, í fyrsta heimaleik
tímabilsins gegn Þrótti í gærkvöld.
Mikil stemning var á Selfossi fyrir
leiknum og um 700 áhorfendur
mættir í stúkuna.
_ Andrea Rut Bjarnadóttir sló þó
örlítið á stemninguna þegar hún
kom Þrótti yfir eftir aðeins 65 sek-
úndur.
_ Brenna Lovera skoraði jöfn-
unarmark Selfoss á 66. mínútu.
Hennar fjórða mark í fyrstu þremur
umferðunum og Brenna heldur upp-
teknum hætti frá því í fyrra þegar
hún varð markahæst í deildinni.
_ Sif Atladóttir lék sinn fyrsta
heimaleik með Selfossi og um leið
sinn 100. leik í úrvalsdeildinni hér á
landi. Hún lék með Val, KR og FH í
deildinni frá 2000 til 2009 áður en
hún fór í atvinnumennsku. Sif hefur
samtals leikið 328 deildaleiki á
löngum ferli.
Héldu hreinu í 414 mínútur
Valur stöðvaði Keflvíkinga með
öruggum sigri á Hlíðarenda, 3:0, og
Keflavíkurliðið tapaði sínum fyrstu
stigum og fékk á sig sín fyrstu
mörk.
Meira en það því Keflavík hafði
ekki fengið á sig mark í deildinni
síðan á 3. mínútu í næstsíðustu um-
ferð 2021, einmitt gegn Val. Liðið
hafði haldið hreinu í þremur heilum
leikjum í millitíðinni.
Samtals liðu 414 leikmínútur frá
því Ída Marín Hermannsdóttir
skoraði gegn Keflavík í byrjun sept-
ember og þar til Elísa Viðarsdóttir
braut ísinn fyrir Val á 57. mínútu í
gærkvöld.
_ Ída Marín og Elín Metta Jensen
bættu við mörkum á næstu þrettán
mínútum og gerðu út um leikinn.
Brooklelyn Ertz og Mariana
Speckmaier, nýju bandarísku leik-
mennirnir hjá Val, fóru beint í byrj-
unarliðið. Hjá Mariönu var um stutt
gaman að ræða, hún fór meidd af
velli á 20. mínútu og Elín Metta kom
í hennar stað.
Melina þakkaði traustið
Stjarnan tapaði sínum fyrsta leik,
3:0 gegn Breiðabliki á Kópavogs-
velli, og Blikar eru því eitt fjögurra
liða sem eru komin með sex stig.
Stjarnan vann Breiðablik 3:0 í
Lengjubikarnum í vor og margir
hafa spáð því að Garðabæjarliðið
veiti Val og Breiðablik keppni á
þessu tímabili. Miðað við þennan
leik eiga Stjörnukonur enn dálítið í
land til þess.
_ Ástralski framherjinn Melina
Ayres var í fyrsta sinn í byrjunarliði
Blika og þakkaði fyrir sig með því að
skora fyrsta mark leiksins, og sitt
fyrsta hér á landi, á 41. mínútu.
_ Birta Georgsdóttir bætti við
laglegu einstaklingsmarki á 51. mín-
útu og Ayres skoraði sitt annað
mark og þriðja mark Breiðabliks úr
vítaspyrnu.
_ Hildur Antonsdóttir, miðju-
maður Breiðabliks, lék sinn 150. leik
í deildinni í gærkvöld.
Fyrsti sigur ÍBV, erfitt hjá KR
ÍBV innbyrti fyrsta sigurinn af
talsverðu öryggi gegn KR í Vest-
urbænum, 2:0. Þriðja tap KR-inga í
jafnmörgum leikjum, markatalan
1:11, og brekkan verður þyngri með
hverjum leik hjá nýliðunum.
Fyrir mót þótti líklegast að ÍBV
og Keflavík yrðu í fallbaráttunni
með KR og Aftureldingu en nýju lið-
in tvö virðast ætla að lenda strax í
erfiðri stöðu á botni deildarinnar.
KR mætir Breiðabliki og Val í
næstu leikjum þannig að útlit fyrir
stig á næstunni er ekkert sérstakt.
_ Lettneska landsliðskonan Vikt-
orija Zaicikova skoraði fyrra mark-
ið. Hennar fyrsta í ár en hún var ein
þriggja sem skoruðu sjö mörk fyrir
ÍBV í deildinni í fyrra.
_ Kristín Erna Sigurlásdóttir
innsiglaði sigurinn með sínu fyrsta
marki eftir endurkomuna til Eyja en
43 af 46 mörkum hennar í efstu deild
hafa verið fyrir ÍBV.
Eitt stig en
Selfoss samt
á toppnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlíðarendi Kristrún Ýr Holm fyrirliði Keflavíkur reynri að stöðva Ídu
Marín Hermannsdóttur sem skoraði annað mark Vals í gærkvöld.
- Valur og Breiðablik komust aftur á
sigurbraut gegn Keflavík og Stjörnunni
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
Tvenna Melina Ayres kom inn í byrjunarlið Breiðabliks og skoraði tvö mörk
gegn Stjörnunni. Málfríður Erna Sigurðardóttir reynir að stöðva hana.
_ Serbneski körfuboltamaðurinn Nik-
ola Jokic hjá Denver Nuggets er leik-
maður ársins í bandarísku NBA-
deildinni annað árið í röð. Þetta hefur
ekki verið gefið formlega út en ESPN
skýrir frá þessu í dag og segir að
deildin muni tilkynna um útnefn-
inguna á næstu dögum. Jokic er með
enn betri tölfræði en á síðasta tímabili
en hann skoraði 27,1 stig að meðaltali
í leik fyrir Denver í vetur og tók 13,8
fráköst að meðaltali. Þá átti hann 7,9
stoðsendingar að meðaltali. Þá varð
Jokic fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA
til að skora 2.000
stig, taka 1.000
fráköst og eiga
500 stoðsend-
ingar á sama tíma-
bilinu. Denver fór
lengra en reiknað
var með, náði
sjötta sæti í Vest-
urdeildinni og fór
beint í úrslitakeppnina þar sem liðið
tapaði að lokum 4:1 fyrir Golden State
Warriors í fyrstu umferðinni.
_ Körfuboltamaðurinn reyndi Collin
Pryor hefur samið við ÍR-inga um að
leika áfram með þeim á næsta tíma-
bili, sem verður hans þriðja með lið-
inu. Hann er bandarískur að uppruna
en hefur leikið hér á landi í átta ár, er
orðinn íslenskur ríkisborgari fyrir
nokkru og á fjóra landsleiki að baki
fyrir Íslands hönd.. Collin lék áður með
Stjörnunni, Fjölni og FSu.
_ Handknattleiksmaðurinn Ísak
Rafnsson hefur komist að sam-
komulagi við ÍBV um að leika með lið-
inu næstu þrjú tímabil. Ísak kemur frá
uppeldisfélagi sínu FH, þar sem hann
hefur leikið allan sinn feril fyrir utan
tímabilið 2018/2019 þegar hann lék
með Schwaz í Austurríki. Hann hefur
verið einn sterkasti varnarmaður
deildarinnar undanfarin ár.
_ Handknattleiksþjálfarinn sigursæli
Bengt Johansson er látinn, 79 ára að
aldri, eftir erfið veikindi en hann
glímdi við parkinsonsjúkdóminn frá
2018. Bengan,
eins og hann var
kallaður í Svíþjóð,
stýrði karlalands-
liði Svía á besta
tíma þess í sög-
unni, í sextán ár
frá 1988 til 2004.
Á þeim tíma varð
liðið fjórum sinn-
um Evrópumeistari og tvisvar heims-
meistari, ásamt því að fá þrisvar silf-
urverðlaun á Ólympíuleikum. Sjálfur
lék Bengan með sænska landsliðinu á
árunum 1964 til 1972.
_ Landslið Argentínu og Brasilíu í fót-
bolta þurfa að mætast aftur í Brasilíu í
undankeppni HM karla í fótbolta. Liðin
áttu að mætast 5. september á síð-
Eitt
ogannað