Morgunblaðið - 10.05.2022, Síða 27
asta ári en leikurinn var aðeins sex
mínútna gamall þegar hann var stöðv-
aður af brasilískum lögregluþjónum
sem vildu vísa fjórum leikmönnum
Argentínu úr landi þar sem þeir upp-
fylltu ekki reglur vegna kórónuveir-
unnar í landinu. FIFA hefur ekki gefið
út hvenær leikurinn verður spilaður en
báðar þjóðir hafa þegar tryggt sér
sæti á lokamóti HM í Katar.
_ Ólafía Þórunn Kristinsdóttir at-
vinnukylfingur keppir á sínu fyrsta
móti erlendis í tæp tvö ár þegar hún
tekur þátt í Jabra Ladies Open-mótinu
í Evian í Frakklandi 19. til 21. maí en
það er liður í Evrópumótaröðinni.
Ólafía og eiginmaður hennar Thomas
Bojanowski eignuðust sitt fyrsta barn
síðasta sumar. Ólafía sagði við golf.is í
gær að það væri
ekkert grín að
byrja á Evian-
vellinum eftir
svona langt hlé því
hann væri virki-
lega erfiður og
krefjandi keppn-
isvöllur. Guðrún
Brá Björgvins-
dóttir keppir einnig á mótinu en hún
hefur verið með á flestöllum mótum í
mótaröðinni það sem af er þessu ári.
_ Guðni Valur Guðnason kringlukast-
ari úr ÍR hafnaði í öðru sæti á al-
þjóðlegu móti í Örbyhus í Svíþjóð í
gær. Guðni kastaði kringlunni 62,84
metra og aðeins Simon Pettersson,
silfurverðlaunahafinn á síðustu Ól-
ympíuleikum, gerði betur en hann
kastaði 63,86 metra. Þriðji varð Sven
Martin Skagestad frá Noregi með
rúma 60 metra. Þessir þrír mætast
allir á Selfoss Classic, alþjóðlega
mótinu á Selfossvelli, 28. maí.
_ Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir úr
ÍR varð um helgina svæðismeistari há-
skóla í sleggjukasti í Richmond í Virg-
iníu þegar hún sigraði í greininni með
59,55 metra kasti. Það er næstlengsta
kast hennar á ferlinum. Guðrún fékk
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
árangur nýliða á mótinu. Guðrún, sem
er tvítug, er á fyrsta ári í Virginia
Commonwelth-háskólanum og náði
þar sínum besta árangri í aprílmánuði
þegar hún kastaði 60,14 metra, sem
er skólamet. Hún er þriðji besti
sleggjukastari Ís-
lands í kvenna-
flokki frá upphafi
en aðeins Elísabet
Rut Rúnarsdóttir,
64,39 metrar, og
Vigdís Jónsdóttir,
63,44 metrar, hafa
náð betri árangri í
greininni.
_ Gunnar Gunnarsson var í gær ráð-
inn þjálfari kvennaliðs Gróttu í hand-
knattleik til næstu þriggja ára en hon-
um var sagt upp sem þjálfara
kvennaliðs Hauka í fyrrakvöld. Gunnar
þjálfaði áður kvennalið Gróttu á ár-
unum 1998 til 2002, með góðum ár-
angri, og hann tekur nú við því af Kára
Garðarssyni.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
Það er til marks um á hve
háu stigi Manchester City og
Liverpool hafa leikið á þessu
tímabili og flestum undan-
förnum tímabilum þegar manni
líður sem titilbaráttunni í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu
karla hafi lokið endanlega um
síðustu helgi þegar Liverpool
gerði jafntefli við Tottenham og
Man. City vann stórsigur á New-
castle.
Man. City er nú með þriggja
stiga forskot á toppnum þegar
þremur umferðum er ólokið. Á
blaði ætti því sannarlega allt að
vera galopið ennþá. Tilfinningin
er þó sú að Man. City muni ekki
fatast flugið úr þessu.
Einhverjum þótti líklegt að
leikmenn Man. City myndu láta
vonbrigðin yfir því að vera
slegnir úr leik af Real Madríd í
undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu á sig fá en það var svo
sannarlega ekki að sjá í 5:0-sigri
á Newcastle á sunnudag.
Þvert á móti virðast þeir
bláklæddu ætla að breyta von-
brigðunum í hvatningu til þess
að vinna eina titilinn sem þeim
stendur til boða á tímabilinu.
Ég átta mig á því að allt get-
ur gerst í fótbolta eins og sást
þegar Real Madríd vann ótrúleg-
an endurkomusigur á Man. City í
Meistaradeildinni en liðin sem
liðið á eftir að leika gegn í
ensku úrvalsdeildinni búa ekki
yfir töframönnum á við Karim
Benzema, Vinícius Jr. og Ro-
drygo, sem geta breytt tapi í
sigur á augabragði.
Ætli við fáum að sjá endur-
tekið efni frá árinu 2019? Þá var
Liverpool í eltingaleik við Man.
City sem stóð uppi sem Eng-
landsmeistari. Á sama tíma
komst Liverpool í úrslit Meist-
aradeildarinnar og vann hana.
Það skyldi þó aldrei vera.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, fjórði leikur:
Eyjar: ÍBV – Haukar (2:1)........................ 18
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, 2. umferð:
Fjarðabyggðarhöll: FHL – Völsungur.... 19
Í KVÖLD!
Subway-deild karla
Annar úrslitaleikur:
Tindastóll – Valur................................. 91:75
_ Staðan er 1:1 og þriðji leikur á Hlíðar-
enda á fimmtudagskvöldið.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Philadelphia – Miami ....................... 116:108
_ Staðan er 2:2.
>73G,&:=/D
Olísdeild kvenna
Undanúrslit, annar leikur:
KA/Þór – Valur..................................... 26:23
_ Staðan er 1:1.
ÍBV – Fram........................................... 18:20
_ Staðan er 2:0 fyrir Fram.
Noregur
Undanúrslit, annar leikur:
Arendal – Drammen ........................... 33:31
- Óskar Ólafsson skoraði 8 mörk fyrir
Drammen.
_ Staðan er 2:0 fyrir Arendal.
Svíþjóð
Undanúrslit, fjórði leikur:
Kristianstad – Skövde......................... 31:36
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 5
mörk fyrir Skövde sem vann einvígið 3:1 og
mætir Ystad IF eða Sävehof í úrslitum.
%$.62)0-#
KÖRFUBOLTINN
Aron Elvar Finnsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Tindastólsmenn sýndu og sönnuðu í
gærkvöldi að heimavöllur þeirra í
Síkinu er sá erfiðasti heim að sækja á
landinu í dag. Tindastóll gerði sér
nefnilega lítið fyrir og valtaði yfir Val
í Skagafirði, 91:75, í öðrum leik lið-
anna í úrslitaeinvíginu um Íslands-
meistaratitil karla í körfubolta.
Tapið var það fyrsta hjá Vals-
mönnum í úrslitakeppninni til þessa.
Þeir áttu enga möguleika gegn vægð-
arlausum Skagfirðingum, sem náðu
mest 24 stiga forskoti en Valur komst
aldrei yfir í leiknum.
Líkt og í fyrsta leiknum spilaði
Tindastóll mjög ákafa vörn, sem
Valsmönnum líkaði ekki. Hinum
megin hittu heimamenn vel og náðu
snemma tíu stiga forskoti og voru
Valsmenn ekki sérstaklega líklegir
eftir það. Besti kafli Valsmanna kom
snemma í seinni hálfleik er þeir
minnkuðu muninn í tíu stig en Tinda-
stóll átti alltaf svör, fyrir framan troð-
fulla stúku af mögnuðum stuðnings-
mönnum.
Gestirnir áttu engin svör
„Stemningin í Síkinu var hafin
löngu fyrir leik og eiga Skagfirðingar
og aðrir sem mættu þvílíkt hrós skilið
fyrir stuðninginn sem þeir sýndu í
kvöld. Spilamennska Tindastólsliðsins
gerði svo akkúrat ekki neitt til að
minnka stemninguna eftir að leik-
urinn hófst en gestirnir áttu engin
svör hvorki í vörn né sókn,“ skrifaði
Aron Elvar Finnsson um leikinn á
mbl.is.
Taiwo Badmus skoraði 22 stig og
tók átta fráköst fyrir Tindastól og Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson kom með
glæsilega innkomu af bekknum og
skoraði 15 stig. Þá gerði Javon Bess
12 stig og gaf fimm stoðsendingar.
Hjá Val var Jacob Dalton stiga-
hæstur með 16 stig og tók hann einnig
sex fráköst. Callum Lawson og Kári
Jónsson áttu einnig ágætan leik en
reynsluboltar eins og Kristófer Acox
og Pavel Ermolinskij áttu ekki sinn
besta dag.
Stóra spurningin núna er hvort
Tindastóll nær að vinna útileik í þessu
einvígi en rétt eins og Skagfirðingar
eru Valsmenn einnig ósigraðir á
heimavelli í úrslitakeppninni.
Ógnvænlegir heim að sækja
- Tindastóll valtaði yfir Val - Enn
ósigraðir á heimavelli í úrslitakeppninni
Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson
Tvöföldun Taiwo Badmus úr Tindastóli sækir á Valsmennina Kristófer
Acox og Pavel Ermolinskij í Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi.
HANDBOLTINN
Einar Sigtryggsson
Guðmundur Tómas Sigfússon
Jóhann Ingi Hafþórsson
Deildarmeistarar Fram eru aðeins
einum sigri frá sæti í lokaúrslitum
Íslandsmóts kvenna í handbolta eft-
ir góða ferð til Vestmannaeyja í
gærkvöldi. Fram vann þá 20:18-
sigur á ÍBV og fer í úrslit með sigri
í þriðja leiknum á heimavelli næst-
komandi fimmtudag.
Karen Knútsdóttir var í miklu
stuði hjá Fram og skoraði helming
marka liðsins, tíu stykki. Sunna
Jónsdóttir gerði sjö mörk fyrir ÍBV
en þau dugðu ekki til. Fram vann
tíu marka sigur í fyrsta leik og lék
ÍBV betur í gær, en þegar upp var
staðið var sóknarleikurinn einfald-
lega ekki nægilega góður.
ÍBV verður að fá miklu meira frá
Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur
sem er aðeins með samtals tvö
mörk í einvíginu til þessa. Þá verð-
ur liðið einnig að nýta vítin sín bet-
ur en Hafdís Renötudóttir í marki
Fram varði tvö slík og 14 skot alls.
Eins og lokatölurnar gefa til
kynna vörðust bæði lið mjög vel og
Stefán Arnarson, þjálfari Fram,
segir slíkt geta gerst í úrslita-
keppninni. „Þetta gerist oft í úr-
slitakeppninni, liðin þekkjast svo
gríðarlega vel svo oft verður lítið
skorað,“ sagði Stefán við Morg-
unblaðið eftir leik og bætti við að
einvígið væri langt frá því að vera
búið, þrátt fyrir að Fram sé í kjör-
stöðu.
Eins og sportbíll í fúapytti
Íslandsmeistarar KA/Þórs jöfn-
uðu einvígi sitt við Val í 1:1 með
26:23-heimasigri. KA/Þór gerði
gríðarlega vel í að halda sterkustu
leikmönnum Vals niðri. Lovísa
Thompson skoraði aðeins eitt mark
og átti sitt fyrsta skot skömmu fyr-
ir leikslok. Einar Sigtryggsson, sem
skrifaði fyrir leikinn á mbl.is, líkti
frammistöðu Lovísu við sportbíl í
fúapytti. Mariam Eradze skoraði
sömuleiðis aðeins eitt mark og gat
Valur helst þakkað vítanýtingu Þór-
eyjar Önnu Ásgeirsdóttur og einum
og einum þrumufleyg hjá Theu Im-
ani Sturludóttur að tapið var ekki
stærra.
Hjá KA/Þór fór Aldís Ásta Heim-
isdóttir, senuþjófurinn úr einvíginu
gegn Haukum, á kostum og Martha
Hermannsdóttir, sem verður fertug
á næsta ári, skoraði sex.
Kosningar og Eurovision
Hin 39 ára gamla Martha Her-
mannsdóttir ætlar sér sigur á úti-
velli í næsta leik og 3:1-sigur í ein-
víginu. „Við erum að fara að taka
þetta. Við ætlum bara að klára
þetta hér á laugardaginn. Þá eru
kosningar og svo Eurovision,“ sagði
hún við Morgunblaðið.
Martha viðurkennir að aldurinn
sé aðeins byrjaður að segja til sín.
„Ég finn alveg fyrir því að ég er að
verða 39 ára, sko. Ég tek frí frá æf-
ingum á milli leikja og fer bara í
sund,“ sagði Martha.
Karen skoraði
helminginn
- KA/Þór jafnaði gegn Valskonum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Ásdís Guðmundsdóttir sækir á mark Vals og Lovísa Thompson og
Mariam Eradze koma litlum vörnum við í KA-heimilinu í gærkvöldi.