Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 2

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is Verona LáttuÍtalskadrauminnrætast! 19.950 Flug aðra leið frá Flugsæti Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Strákarnir voru gríðarlega áhuga- samir, spurðu mikið og voru glaðir með þetta,“ segir Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður jafnréttisnefndar Landspítalans. Um 50 strákar í 9. bekk Lang- holtsskóla fengu í gær innsýn í störf hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Sendinefnd heilbrigðisstarfsmanna kom í skólann með ýmsan búnað meðferðis til að sýna þeim út á hvað störfin ganga. Heimsóknin er hluti af verkefninu Strákar og hjúkrun sem hófst í fyrra. Markmið þess er að vekja áhuga stráka á hjúkrunar- störfum, breyta staðalímyndum og fjölga körlum sem leggja fyrir sig hjúkrunarstörf, þannig að árið 2030 séu karlmenn a.m.k. 20% þeirra sem hefja nám í hjúkrunarfræði og á sjúkraliðabrautum. Verkefni þetta hófst í fyrra og fengu þá um 500 strákar í 9. bekk slíka kynningu og stefnt er að því að annar eins fjöldi fái kynningu í ár. „Við erum ekkert að lesa yfir strákunum heldur að leyfa þeim að prófa og sjá út á hvað þetta gengur. Þeir fara á nokkrar stöðvar, fá að handleika sprautur og æfa sig að sprauta, þeir fá að endurlífga og svo skiptast þeir á að leika slasaðan dreng og sinna honum og hjúkra. Þá fá þeir að skoða sár og meðferð við sárum auk þess sem þeim er kennd Heimlich-aðferðin,“ segir Eygló. Hún segir að fjármagn hafi feng- ist til verkefnisins til tveggja ára og óskandi væri að meira fjármagn fengist til að halda áfram á næsta ári. Hér á landi séu karlar bara 3% af þeim sem starfa sem hjúkrunar- fræðingar og sjúkraliðar en í flestum löndum sem við berum okkur saman við sé hlutfallið um og yfir 10%. „Við viljum fá fleiri karla. Það er mikil synd að karlmenn sjái þetta ekki sem frábæran starfsvettvang. Við þurfum að brjóta niður staðal- ímyndir í kringum þessi störf. Það gengur vel að brjóta þær niður hvað varðar karlastörf en ekki hvað varð- ar það sem stundum hafa verið köll- uð kvennastörf,“ segir Eygló. Morgunblaðið/Eggert Áhugasamir Strákar í 9. bekk Langholtsskóla fengu að spreyta sig á endurlífgun og fleiri verkefnum. Strákarnir fengu kennslu í endurlífgun og hjúkrun - Fjölga á körlum í hjúkrunarstörfum - Mjög áhugasamir Kynning Strákarnir fengu kennslu í sárameðferð og að prófa sprautur. Þóra Birna Ingvarsdóttir Ragnhildur Þrastardóttir Akureyri getur búið sig undir nýjan meirihluta, þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn, Framsókn, Samfylkingin og Miðflokkurinn hafa náð saman og komist að þeirri niðurstöðu að grundvöllur sé fyrir áframhaldandi viðræðum sín á milli. Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins, segir allar líkur á að þeir myndi meirihluta en flokkarnir funduðu í gær. Var það fyrsti form- legi fundur flokkanna en þeir höfðu átt óformleg samtöl áður. Í Kópavogi héldu fundir sjálfstæð- ismanna og Framsóknarmanna áfram í gær. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðis- flokksins, segir viðræðurnar ganga ágætlega. Sjálfstæðismenn gera til- kall til bæjarstjórastólsins og er hún bæjarstjóraefni flokksins. Smurður gangur í Eyjum Páll Magnússon, oddviti og bæj- arfulltrúi Eyjalistans í Vestmanna- eyjum, segir engar óvæntar uppá- komur hafa gert vart við sig í meirihlutaviðræðum Eyjalistans og lista Heimaeyjar. „Þetta er ekki búið fyrr en það er búið en það er bara já- kvæður andi og hlutirnir ganga smurt fyrir sig.“ Hann gerir ráð fyr- ir að niðurstaða verði komin í málið fyrir helgi. Funda í lok vikunnar Í Mosfellsbæ var snemma til- kynnt að formlegar meirihlutavið- ræður væru fram undan milli Fram- sóknarflokksins, Viðreisnar, Vina Mosfellsbæjar og Samfylkingarinn- ar. Halla Karen Kristjánsdóttir, oddviti og bæjarfulltrúi Framsókn- arflokksins, segir að nú séu flokk- arnir að móta sínar kröfur, svo muni fyrsti fundurinn verða í lok vikunn- ar, en nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir. Aðspurð hvort það séu einhver sérstök atriði sem Fram- sóknarflokkurinn ætli sér ekki að gefa eftir segir hún: „Í samninga- viðræðum þarf maður alltaf að bæði gefa og þiggja.“ Allt rétt í Garðabæ Endurtalning á atkvæðum fór fram í Garðabæ í gær og varð nið- urstaðan sú sama og á kjördag. „Þetta stemmdi upp á hvert einasta atkvæði,“ segir Soffía Eydís Björg- vinsdóttir, formaður kjörstjórnar. Hún kveðst fegin því að fá staðfest- ingu á að vinnubrögðin hafi verið til fyrirmyndar. Eftir endurtalninguna er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínum sjö bæjarfulltrúum, Garðarbæjarlistinn fékk tvo en Framsókn og Viðreisn, einn mann hvor. Ótímabært að ræða sæti Valdimar Víðisson, oddviti Fram- sóknar í Hafnarfirði, segir ótíma- bært að ræða opinberlega um bæj- arstjórastólinn eða um skiptingar innan bæjarstjórnar.„Við vonum að þetta taki ekkert allt of langan tíma.“ Farin að sjá fyrir endann víða - Stutt í bæjarstjórn á Akureyri - Kópavogur þokast nær - Ekkert óvænt í Eyjum - Fundað í Mos- fellsbæ í lok vikunnar - Sjöundi fulltrúi D öruggur í Garðabæ - Meirihlutinn fundar áfram í Hafnarfirði Morgunblaðið/Árni Sæberg Talið Niðurstöður endurtalningar í Garðabæ leiddu í ljós fullt samræmi. Dómsmálaráðuneytið segir að tilefni kunni að vera til að skoða hvort æski- legt sé að lengja frest, sem fjarskipta- fyrirtæki hafa til að varðveita lág- marksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda, úr sex mánuðum í 12 mánuði til samræmis við áþekka fresti í öðrum ríkjum. Þetta kemur fram í minnisblaði, sem ráðuneytið hefur sent umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um gildi ákvæðis í lagafrumvarpi um fjar- skipti við rannsóknir sakamála. Í ákvæðinu, sem er sambærilegt ákvæði í gildandi fjarskiptalögum, er kveðið á um þennan frest. Segir ráðuneytið í minnisblaðinu, að þær upplýsingar sem um ræðir, séu afar þýðingarmiklar fyrir með- ferð sakamála almennt. Falli þær undir það sem kalla megi „stafrænt spor“ og líkja megi við fingraför í raunheimum. Hafi þessar upplýsing- ar alloft reynst mjög mikilvægar og jafnvel getað haft úrslitaáhrif við rannsóknir alvarlegra sakamála á borð við manndráp, skipulagða brota- starfsemi, fíkniefnabrot, mansal og efnahagsbrot. Þá séu upplýsingar sem þessar ekki síður mikilvægar við rannsókn brota þar sem netið kemur við sögu. Ísland tengist oft rannsókn- um stórra sakamála annars staðar í heiminum en fjölgun gagnavera hér á landi hafi haft þær óhjákvæmilegu af- leiðingar að hér séu vistuð gögn sem tengjast brotastarfsemi víða um heim, þ.m.t. rannsóknir vegna hryðjuverkaárása og skipulegrar brotastarfsemi. Hins vegar hafi tímalengd á vörslu gagnanna ekki verið talin nægilega löng sem geti haft skaðlegar afleið- ingar fyrir rannsóknir sakamála. Hingað berist árlega fjöldi réttar- beiðna sem lúti að öflun slíkra upplýs- inga og þá reyni á hversu skammur tímafresturinn sé. Oft og tíðum hafi þurft að vísa slíkum beiðnum frá þar sem umræddur frestur sé liðinn og muni það hafa komið í veg fyrir upp- ljóstrun brota í einhverjum tilfellum. Stafræn spor eru eins og fingraför - Fjarskiptagögn mikilvæg í rannsóknum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.