Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Rafræn kosning
Þú átt val!
Nú er í fyrsta skipti kosið rafrænt til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Í framboði eru:
Yngvi Harðarson,
óháður sjóðfélagi,
frkv.stj. Analytica ehf.
Elías Jónatansson,
upphaflega skipaður af Arion árið 2007.
Elín Þórðardóttir,
upphaflega skipuð af Arion árið 2009.
Jón Guðni Kristjánsson,
upphaflega skipaður af Arion árið 2014.
Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta
kosningarétt sinn og styðja ferska vinda
í stjórn sjóðsins. Hægt er að kynna sér
frambjóðendur á heimasíðu sjóðsins,
frjalsi.is. Þar er jafnframt tengill til að
greiða atkvæði.
Kosningu lýkur sunnudaginn 22. maí
kl. 12 á hádegi.
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir,
óháður sjóðfélagi,
lögmaður.
QR-kóði
tengill fyrir
rafræna kosningu.
Auglýsing þessi er kostuð af sjóðfélögum í
Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Til stendur að sigla varðskipinu
Óðni til Grindavíkur um sjó-
mannadagshelgina fáist staðfesting
á haffærni skipsins í tæka tíð. Al-
menningi verður þá boðið að skoða
skipið sem ekki hefur siglt í langan
tíma utan stutta prufusiglingu árið
2020. Óðinn hefur legið við bryggju
sem hluti af Sjóminjasafninu.
„Hópur átta vélstjóra og tveggja
loftskeytamanna hefur unnið að
þessu síðustu tvö árin. Sumir hverj-
ir hafa unnið að því frá 2014 eða
2015 að gera skipið haffært og fá á
það haffærniskírteini. Í september
2020 var gefin út reglugerð um
siglandi safnskip að okkar frum-
kvæði. Var það grunnurinn að því
að Samgöngustofa gat unnið að því
að taka skipið út og gert kröfur um
endurbætur eftir ákveðnu kerfi.
Við höfum unnið að því og vonumst
eftir því að fá haffærniskírteini fyr-
ir lok mánaðarins. Ef svo verður þá
munum við sigla til Grindavíkur 11.
júní,“ segir Egill Þórðarson loft-
skeytamaður sem er formaður haf-
færnisnefndar. Með honum í nefnd-
inni eru skipherrann Magni
Óskarsson, yfirvélstjórinn Ingólfur
Kristmundsson og tæknistjórinn
Kristinn Halldórsson.
Hollvinasamtök varðskipsins Óð-
ins voru stofnuð árið 2008. Ríkið af-
henti samtökunum skipið og var
það tekið af skipaskrá. Árið 2018
var tekin ákvörðun að sigla skipinu
á ný. „Þótt ég hafi ekki samlagn-
ingu úr stimpilklukku þá tel ég að
vinnustundirnar sem við höfum
lagt í þetta í sjálfboðavinnu séu
ekki undir 15 þúsund. Ég var svolít-
ið hissa þegar ég fór að taka þetta
saman en ég hef reyndar verið í
þessu á hverjum degi í tvö ár,“ seg-
ir Egill. kris@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Óðinn Varðskipið tók þátt í landhelgisdeilum á Íslandsmiðum.
Ætla að sigla Óðni
til Grindavíkur
- Mikil sjálfboðavinna liggur að baki
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Heimsminjaskrifstofan í París telur
að notkun Silfru til köfunar sé í
sjálfu sér ekki ósamrýmanleg stöðu
Þingvalla sem heimsminjastaðar.
Hins vegar verði að reka starfsem-
ina innan þeirra marka sem stað-
urinn þolir. Í samræmi við tillögur
ráðgjafarsamtaka er lagt til að
markmið um hámarksfjölda gesta
verði rökstutt frekar en gert hefur
verið.
Jónas Haraldsson lögfræðingur
kvartaði á árinu 2019 til skrifstofu
heimsminjasáttmálans yfir köfunar-
starfsemi sem lengi hefur verið rek-
in í gjánni Silfru, í hjarta þjóð-
garðsins. Telur hann ástæðu til að
taka hinn friðlýsta þjóðgarð af
heimsminjaskránni vegna þess að
þessi starfsemi falli ekki að nátt-
úruverndarsjónarmiðum heims-
minjaskrárinnar eða friðhelgi Þing-
valla.
Telja að gjáin þoli álagið
Heimsminjaskrifstofan óskaði
eftir viðbrögðum frá Þingvallanefnd
sem hún sendi í janúar 2020. Taldi
nefndin að gjáin bæri það álag sem
fylgdi núverandi snorkli og köfun.
Sérfræðingar telji þolmörkin um 75
þúsund manns á ári og gestafjöld-
inn sé undir þeim mörkum.
Skrifstofan sendi upplýsingarnar
til Alþjóðaráðs um minnisvarða og
sögustaði (ICOMOS) sem annast
úttektir á stöðum sem tilnefndir
eru á heimsminjaskrá og byggir
heimsminjaskráin niðurstöður sínar
á ráðgjöf ráðsins.
Ekki ósamrýmanlegt
Heimsminjanefndin telur að köf-
un í Silfru sé í sjálfu sér ekki ósam-
rýmanleg stöðu Þingvalla á heims-
minjaskrá. Eigi að síður þurfi
starfsemin að vera innan þeirra
marka sem staðurinn þolir án þess
að alþjóðlegt gildi hans skaðist.
Vitnað er til ráðgjafar ICOMOS um
að rökstyðja þurfi betur þá tillögu
stjórnvalda að hámarksfjöldi kafara
í Silfru verði 75 þúsund á ári.
Þingvallanefnd hefur verið að
ræða bréf Heimsminjaskrifstofunn-
ar á fundum sínum. Einar Á.E. Sæ-
mundsen þjóðgarðsvörður segir að
nefndin horfi til starfseminnar í
Silfru í samhengi við stjórnun á öllu
svæðinu því mikið álag sé á fleiri
stöðum. Unnið sé að nýju deili-
skipulagi og stefnt að því að færa
bílastæði og jafnframt aðstöðuna
við Silfru upp undir Langastíg. Ver-
ið sé að gera drög að nýrri þjón-
ustumiðstöð og þar væri hægt að
koma fyrir fleiri þjónustuþáttum.
Hugmyndin sé að láta rafskutlur
ganga þaðan til helstu áfangastaða í
þjóðgarðinum. Einar segir að nið-
urstaða Heimsminjanefndarinnar
sé mjög í anda framtíðaráætlana
þjóðgarðsins.
Þingvellir ekki teknir
af heimsminjaskrá
- UNESCO biður um rök fyrir reglum um fjölda kafara
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Þingvellir Ferðafólk kemur langar leiðir til að snorkla í frægu gjánni Silfru.
Oftast var strikað yfir nafn Hildar
Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, í nýliðnum
sveitarstjórnarkosningum. Alls var
strikað 290 sinnum yfir nafn Hildar.
Þá var strikað 123 sinnum yfir
nafn Kjartans Magnússonar, sem
skipaði 3. sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins, 129 sinnum yfir nafn
Mörtu Guðjónsdóttur sem var í því
fjórða og 117 sinnum yfir nafn Helga
Áss Grétarssonar sem var í 7. sæti.
Hjá Samfylkingunni var oftast
strikað yfir nafn Hjálmars Sveins-
sonar sem skipaði 5. sæti listans, alls
114 sinnum. Strikað var yfir nafn
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra
67 sinnum.
Hjá VG var oftast strikað yfir
nafn Lífar Magneudóttur, eða 65
sinnum. Á meðal frambjóðenda Pí-
rata var oftast strikað yfir nafn
Alexöndru Briem, eða 45 sinnum, og
á meðal frambjóðenda Sósíalista var
oftast strikað yfir nafn Trausta
Breiðfjörð Magnússonar, 13 sinnum.
Hjá Flokki fólksins var oftast
strikað yfir nafn Kolbrúnar Bald-
ursdóttur, 8 sinnum, og hjá Viðreisn
var oftast strikað yfir nafn Þórdísar
Lóu Þórhallsdóttur, 59 sinnum. Á
lista Framsóknar var oftast strikað
yfir Einar Þorsteinsson, 26 sinnum.
Kjörkassi Kjósendur nýttu sér rétt
sinn til útstrikana á kjörseðli.
Oftast
strikað yfir
nafn Hildar
- Strikað yfir nafn
hennar 290 sinnum
Morgunblaðið/Eggert