Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 10

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúm- fatnaði og öðru líni fyrir hótel Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ástæða þess að Landsvirkjun er að skoða að stækka vatnsaflsvirkjanir á Þjórsár-Tungnaársvæðinu er að þörf er á því að auka afl í kerfi fyrir- tækisins og þar með sveigjanleika til að mæta breytilegri eftirspurn, að sögn fram- kvæmdastjóra hjá Landsvirkjun. Markaðurinn kallar bæði eftir aukinni orku og afli og sú litla aukning orku- framleiðslu sem stækkunin skilar sé ekki grundvöll- ur fjárfestingar- innar heldur muni hún vera borin uppi með því svigrúmi sem aflaukn- ingin skilar. Landsvirkjun rekur stærsta vinnslukerfi landsins. Samanlagt uppsett afl kerfisins er um 2.150 megavött, þar af um 2.000 MW í vatnsafli. Er þetta stærsti hluti raf- orkukerfis landsins því uppsett afl raforku er í heild um 3.000 MW. Ef allir viðskiptavinir keyptu jafnmikla raforku allt árið þyrfti fyrirtækið um 1.700 MW til að framleiða hana. Gunnar Guðni Tómasson, fram- kvæmdastjóri vatnsafls hjá Lands- virkjun, bendir á að þarfir viðskipta- vinanna séu misjafnar. Sumir geri langtímasamninga um kaup á jafnri orku en aðrir gerir skammtímasamn- inga af ýmsu tagi. Eftirspurnin sé því misjöfn, eftir árstíðum, dögum og innan hvers sólarhrings. Því þurfi meira vélarafl að vera í kerfinu til að mæta þessum sveiflum. Áhyggjur af aflskorti Gunnar segir að vinnslukerfi Landsvirkjunar sé nánast fullselt. Bendir á að á nýliðnum vetri hafi vinnslumet ítrekað verið slegin og á tímabili í desember hafi vinnslan í fyrsta skipti farið yfir 1.900 MW. Þá var nánast ekkert laust afl eftir í kerfinu og Landsvirkjun hefði lent í vandræðum með að standa við samn- inga ef vélar hefðu bilað. Til viðbótar þessu kom léleg vatnsstaða miðl- unarlóna sem leiddi til ákvarðana um skerðingar á afhendingu orku sam- kvæmt samningum. Segir Gunnar að Landsvirkjun hafi áhyggjur af aflskorti þegar næsta vetur, jafnvel þótt nóg vatn verði í lónunum, þannig að ekki verði hægt að sinna eftirspurninni á mark- aðnum. Ljóst er að ekki verður búið að stækka virkjanirnar þá því það tekur nokkur ár. Gunnar segir að Landsvirkjun sé að skoða stækkanir á þremur vatns- aflsvirkjunum á Þjórsár-Tungnaár- svæðinu til að auka sveigjanleikann í vinnslukerfinu til að geta mætt sveiflum í eftirspurn og einnig til að eiga borð fyrir báru þegar einstakar vélar bila eða þurfa viðhald. Ef farið yrði í þessar þrjár framkvæmdir myndi uppsett afl aukast um 210 MW en orkuvinnslugeta aðeins um 25-42 gígavattstundir á ári. Í umsögn náttúruverndarsamtak- ann Náttúrugriða við stjórnar- frumvarp um breytingar á lögum um vernd og orkunýtingu er vakin at- hygli á þessu og sagt að aukin sala geti ekki staðið undir fjárfestingunni. Hún sé því ekki réttlætanleg. Gunnar segir að orkan sem fáist með stækkun virkjana sé ekki ástæð- an fyrir hugsanlegum fram- kvæmdum heldur aflaukningin sjálf. Landsvirkjun muni fá tekjur út á aukið afl vegna þess sveigjanleika sem það skapar við að útvega raf- orku. Verðið á markaðnum þurfi að endurspegla kostnaðinn við aukið afl. Óviðkomandi Kjalölduveitu Frumvarpið sem vitnað er til gengur út á það að einfalda það að stækka virkjanir, þar sem það er hægt án þess að fara inn á óröskuð svæði. Ekki þurfi að fara með slíkar framkvæmdir í gegn um rammaáætl- un. Í umsögn Náttúrugriða eru rifj- aðar upp tillögur Landsvirkjunar um Kjalölduveitu sem ætlað er að veita vatni úr Þjórsá yfir í Þórisvatn og sú skoðun látin í ljós að Landsvirkjun hljóti að vera að horfa til hennar til að fá aukið vatn í virkjanirnar. Gunnar Tómasson segir að Kjal- ölduveita tengist hugmyndum um aflaukningu virkjana ekki neitt. Þurfi fjörugt ímyndunarafl til að tengja þetta tvennt saman. Tekur hann fram að Kjalölduveita sé ekki á dag- skrá hjá Landsvirkjun að svo stöddu. Það verkefni sé í ferli í rammaáætlun og bíði afgreiðslu þar. Aukið afl til að mæta sveiflum í eftirspurn - Aflaukning stendur undir fjárfestingu í stækkun virkjana - Áformaðar framkvæmdir tengjast ekki Kjalölduveitu Ljósmynd/Landsvirkjun Höfuðstöðvar Landsvirkjun kannar nú stækkun þriggja virkjana. Gunnar Guðni Tómasson Lík fannst í fjörunni við Eiðs- granda í Reykjavík á öðrum tím- anum í gær. Margeir Sveinsson, hjá miðlægri rannsóknardeild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, stað- festir þetta í samtali við mbl.is í gær. Í tilkynningu frá lögreglunni sem send var út um eftirmiðdaginn sagði að rannsókn málsins væri á frumstigi og að ekki væri hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Varðist lögregla enn allra frétta þegar staðan var könnuð um kvöldið. Var lögreglan með töluverðan viðbúnað á svæðinu og tók nokkur fjöldi lögreglumanna þátt í aðgerð- um. Þá voru bæði merktir og ómerktir lögreglubílar ásamt sjúkrabílum á vettvangi. Einnig var notast við dróna. Líkfundur við Eiðsgranda - Rannsókn málsins sögð á frumstigi Líkfundur Mikill viðbúnaður var við Eiðsgranda eftir að líkið fannst. DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Ungt fólk var áberandi í framlínu stjórnmálaflokkanna í kosningabar- áttunni sem nú er yfirstaðin. Þar skiptu ungliðahreyfingar flokkanna sköpum við að virkja sitt fólk í kosn- ingastarfinu. Í Dagmálum í dag er rætt við þrjár forystukonur á vettvangi ung- liðahreyfinganna. Það eru þær Unn- ur Þöll Benediktsdóttir, formaður Sambands ungra framsóknarmanna, Ragnar Sigurðardóttir, forseti Ungra jafnaðarmanna, og Lísbet Sigurðardóttir, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Það var svo kannski til marks um að ný kynslóð bankar nú á dyrnar hjá flokkunum að með Lísbet í för var Ólöf, fimm ára dóttir hennar sem lét til sín taka í umræðunum fyrstu mínúturnar sem þátturinn lifði. Unnur Þöll er nýr varaborgarfulltrúi Framsóknar og var raunar kosningastjóri flokks- ins í Reykjavík fyrir þessar kosn- ingar. Hún segir flokkinn með sterkt umboð og að fulltrúar hans treysti Einari Þorsteinssyni vel til að leiða meirihlutaviðræður til lykta. Hún telur Einar vel að því kominn að setj- ast í stól borgarstjóra og gefur lítið fyrir vangaveltur þáttastjórnenda um að reynsluleysi hans og annarra nýrra kjörinna fulltrúa Framsóknar geti reynst þeim mótdrægt. Ragna telur hins vegar að Samfylkingin eigi enn erindi í meirihluta í borginni og að ekki sé ástæða til að gera of mikið úr þeirri staðreynd að öðru sinni í röð fellur meirihluti undir stjórn Dags B. Eggertssonar. Bend- ir hún á að meirihlutar hafi oftast fallið í kosningum frá aldamótum. Hún telur áherslur flokksins ríma að mörgu leyti vel við það sem finna megi í áherslum annarra flokka til vinstri og út á miðjuna. Mestu skipti að mynda meirihluta í kringum mál- efnalegan samstarfsgrundvöll en ekki einstaka embætti eins og borg- arstjórastólinn. Hildur geri tilkall til stólsins Lísbet leggur áherslu á að nið- urstöður kosninganna vitni um ákall um breytingar. Því væri óviturlegt af Framsóknarflokknum, sem keyrði á þeirri áherslu í kosning- unum að gerast hækja undir hinn fallna meirihluta. Hún telur að Hild- ur Björnsdóttir geti greiðlega gert tilkall til borgarstjórastólsins, enda flokkurinn stærstur í borgarstjórn að afloknum kosningum. Leiðtogar Lísbet Sigurðardóttir formaður SUS með Ólöfu Jóhannesdóttur í fanginu, Ragna Sigurðardóttir forseti UJ og Unnur Þöll Benediktsdóttir, for- maður SUF. Lífleg stjórnmálaumræða í Dagmálum þennan fimmtudaginn. Sínum augum lítur hver flokkur silfrið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.