Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Bergþórsdóttir | Kontakt fyrirtækjaráðgjöf
brynhildur@kontakt.is | 868 8648
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
er til sölu
Tísku- og snyrtivöruverslunin hefur verið starfrækt í verslunarmiðstöðinni Glæsibæ
frá því hún tók til starfa árið 1970. Eigendum þykir tími til kominn að aðrir taki við keflinu
og vilja selja rekstur, birgðir og innanstokksmuni.
Auk snyrtivara selur verslunin fatnað og fylgihluti með áherslu á aldurshópinn 40+.
Hlutfall fatnaðar í sölu er um 50%. Í versluninni eru seld þekkt alþjóðleg
snyrtivörumerki s.s. Chanel, Lancome, Guerlain, Helena Rubenstein, Bioterm og
Bioeffect auk ilmvatna.
Verslunin er vel staðsett í rúmlega 100 fm. leiguhúsnæði. Stöðugildi eru að
jafnaði 2-3. Hentar vel einum eða fleiri einstaklingummeð áhuga á þessu sviði.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
D
ýrahald er ákveðinn liður í
okkar sjálfbærnivinnu
hér í Krakkakoti. Við gef-
um til dæmis kanínunum
það sem til fellur af mat, afskurð af
rófum og gulrótum, kál og fleira
þess háttar og þurfum fyrir vikið
ekki að henda því,“ segir Hjördís
Ólafsdóttir leikskólastjóri í Krakka-
koti, náttúruleikskóla í Garðabæ þar
sem eru nokkur dýr til heimilis.
„Í ríflega tuttugu ár höfum við
verið með hænur og kanínur úti, en
fugla, froska og fiska inni. Við leyf-
um áhugasviði hvers og eins barns
að ráða för þegar kemur að sam-
skiptum við dýrin, þeir sem hafa
mikinn áhuga á dýrum sækja eðli
málsins samkvæmt mikið í þau en öll
börnin hafa samt aðgang að dýrun-
um. Deildirnar skiptast á viku í senn
að sjá um dýrin, ein deild sér þá um
útidýrin og önnur um innidýrin. Við
skiptumst líka á með alla flokkun
rusls og við reynum að flokka allt
sem við getum og látum börnin taka
þátt í því. Þetta er hluti af um-
hverfismenntun hér hjá okkur og við
segjum krökkunum og sýnum þeim
að við tökum matarafganga frá fyrir
dýrin til að gefa þeim að borða. Á
sumrin taka börnin þátt í að fara og
tína njólablöð, fífla og gras til að
gefa kanínunum.“
Læra að annast um dýrin
Börnin og starfsfókið hafa mis-
mikinn áhuga á dýrunum, eins og
gengur, en Hjördís segir að það sé
mjög gefandi að vera með dýrin í
leikskólanum.
„Sérstaklega þegar börn eru í
aðlögun eða eiga erfitt með að koma
inn í leikskólann á morgnana, þau
eru auðvitað misvel upplögð. Þá för-
um við gjarnan með þau til dýranna
til að dreifa huganum og sum börn
vilja alltaf byrja daginn á því að
kíkja á fuglana og froskana. Mér
finnst ótrúlega fallegt hversu börnin
hafa gaman af því að fylgjast með
dýrunum, ég sé oft í lok dags að
börnin leiða foreldra sína til dýranna
og kasta kveðju á froskana og
fuglana. Ég heyri þau oft spjalla
saman um dýrin og þetta er líka
kennsla í því að annast einhvern og
láta sér þykja vænt um dýr, því það
eru ekki gæludýr á öllum heimilum í
þéttbýli,“ segir Hjördís og bætir við
að hún sé einstaklega heppin að vera
með yfirdýrahirði í Krakkakoti.
„Hún Togga er starfsmaður hér
á elstu deildinni og sér sérstaklega
vel um allt sem við kemur dýrunum.
Hún hugsar mjög fallega um velferð
dýranna og er dugleg að láta okkur
vita hvernig best er að umgangast
þau, til dæmis skiptir máli hvernig
maturinn er settur fyrir dýrin og það
er ekki í lagi að þau fái mat sem er
þeim ekki boðlegur. Hún leiðbeinir
okkur af kostgæfni og er í raun okk-
ar mentor í dýrahaldinu öllu hér í
Krakkakoti.“
Foreldrar ánægðir með dýrin
Hjördís segir að í Krakkakoti
hafi verið hænsnahús sem var orðið
mjög lélegt en Garðabær byggði nýtt
hús fyrir kanínurnar og hænsnin.
„Núna eru kanínurnar okkar
aðeins búsettar í nýja húsinu, því
hænurnar flytja ekki þangað inn fyrr
en húsið er tilbúið til að taka við
þeim. Við erum núna aðeins með
þrjár kanínur úti í húsi, en þær hafa
oft verið fleiri. Þegar þær voru enn
að fjölga sér þá seldum við kanínu-
ungana í gæludýrabúðir og fengum
fóður í staðinn, það er ákveðin sjálf-
bærni í því. Við erum líka með páfa-
gauka sem fjölga sér og við höfum
sama hátt á þar, förum með ungana
þeirra í gæludýrabúðir og fáum páfa-
gaukafóður í staðinn.“
Þegar Hjördís er spurð að því
hvort foreldrar barna í Krakkakoti
séu ekki ánægðir með dýrahaldið,
játar hún því.
„Ég heyri alla vegana ekki ann-
að. Margir foreldrar hafa samband
við mig áður en barn byrjar hér í
leikskóla og lýsa yfir ánægju að hér
séu dýr. Þetta er kærkomin viðbót
við lífið í leikskólanum og vekur auk
þess áhuga margra foreldra almennt
á dýrum.“
Fuglavinir Páfagaukarnir fá mikla athygli, enda skemmtilegar skepnur sem vilja félagsskap. Forvitnilegir Froskarnir eru skemmtileg gæludýr sem gaman er fyrir börnin að kynnast.
Krútt Kanínurnar í Krakkakoti eru mjúkar, loðnar og skemmtilegar.
Dýrin gleðja blessuð börnin
„Í ríflega tuttugu ár höfum við verið með hænur og kanínur úti, en fugla, froska og fiska inni,“ segir Hjördís Ólafsdóttir leikskólastjóri
í náttúruleikskólanum Krakkakoti. Hún segir að sum börn vilji alltaf byrja daginn á því að kíkja á fuglana og froskana.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kanínufjör Þau Sindri, Sölvi, Snædís, Ísabel og Eva Sigrún heilsuðu upp á kanínurnar kafloðnu og sætu.