Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 18

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is MiniMax Ø: 33 cm, H: 50 cm Verð 159.900,- Large Ø: 33 cm, 1688 cm2 Verð 249.900,- X-Large Ø: 61 cm, 2919 cm2 Verð 359.900,- BIG GREEN EGG KAMADO KERMAMIK GRILL Þú getur gert allt á Egginu – grillað, bakað, steikt, gufusoðið og reykt. VIÐTAL Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Það er ekki hægt að halda því fram að aðskilnaðarstefna eigi sér stað í Ísrael, líkt og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum víða um heim og af mannréttindasamtökunum Amnesty International í skýrslu samtakanna sem kom út fyrr á þessu ári. Þetta segir Yoseph Haddad í sam- tali við Morgunblaðið, en hann er nú staddur hér á landi og hélt síðast- liðið mánudagskvöld fyrirlestur um málefni Ísraels og Palestínu, um- fjöllun fjölmiðla af málefnum svæð- isins og stöðu araba í Ísrael. Haddad, sem er fæddur og uppal- inn í Ísrael, er sjálfur arabi. Hann fæddist í Haifa í norðurhluta Ísraels en fluttist síðar með fjölskyldu sinni til Nasaret, hvar meirihluti íbúa eru arabar. Foreldrar hans eru einnig fæddir í Ísrael en foreldrar þeirra bjuggu á svæðinu áður en Ísraelsríki var stofnað árið 1948 og landið undir stjórn breska heimsveldisins. Ísrael ekki fullkomið ríki „Ég ólst upp í borgum og hverfum þar sem gyðingar, múslimar og kristnir bjuggu saman,“ segir hann. „Sem krakkar tengdumst við í gegnum knattspyrnu þar sem allir spiluðu saman en síðar óx vina- hópurinn og við erum mjög meðvituð um það að við getum búið saman á þessu svæði í sátt og samlyndi. Ég ætla samt ekki að vera það barna- legur að halda því fram að það fyrirfinnist ekki kynþáttafordómar í Ísrael. Það eru kynþáttafordómar meðal allra hópa, rétt eins og í öðr- um ríkjum og við höfum fengið frétt- ir af á liðnum árum. Ísrael er ekki fullkomið og það er oft tilefni til að gagnrýna stjórnvöld þar eins og annars staðar. En það að halda því fram að aðskilnaðarstefna eigi sér stað í landinu er hrein lygi og á sér enga stoð í raunveruleikanum. Það voru því mikil vonbrigði að sjá Am- nesty halda slíku fram.“ Vilja ekki flytja annað Haddad segist hafa fundið sig knúinn til að ferðast um heiminn til að fjalla um málefni svæðisins og vill meina að of oft heyrist aðeins önnur hlið málsins. Það eigi almennt við þegar fjallað er um Ísrael og ekki síður þegar fjallað er um átök sem eiga sér stað á svæðinu. „Ég er ekki starfsmaður ísraelska ríkisins,“ segir Haddad en hann starfar sem forstjóri samtakanna Together – Vouch for each other sem hefur það að leiðarljósi að vinna að málefnum araba innan Ísraels. En varla er skýrsla Amnesty úr lausu lofti gripin, er staða araba í Ísrael eins og best verður á kosið? „Ég held því fram já, og get fært rök fyrir því með staðreyndum,“ svarar Haddad að bragði og bætir því við að hann sem arabi hafi fullt tjáningarfrelsi til að tjá sig um mál- efni landsins og gagnrýna stjórn- völd. Það sama verði ekki sagt um íbúa Gaza-svæðisins sem búi við harðstjórn og ofríki Hamas- samtakanna, en gagnrýni á stjórn- völd þar geti falið í sér dauðadóm. „Við getum orðað það með ein- földum hætti þannig, að ef þú mynd- ir spyrja araba í Ísrael hvort þeir myndu vilja gefa upp ísraelskan rík- isborgararétt sinn til að fá að búa frekar í einhverju nágrannaríkjanna – yrði svarið að öllum líkindum nei.“ Haddad segir að allur heimurinn þekki nú hvernig raunveruleg að- skilnaðarstefna hafi farið fram, með- al annars í Suður-Afríku. Þar hafi blökkumenn, sem voru þolendur að- skilnaðarstefnunnar, þurft að lifa fyrir utan réttarkerfið, heilbrigðis- kerfið og á engan hátt notið þeirra réttinda sem hvítir íbúar nutu. „Þessu er öðruvísi farið í Ísrael. Þar geta arabar, óháð því hvers trú- ar þeir eru, orðið dómarar, stjórn- málamenn, embættismenn, yfir- menn í hernum, læknar og þannig mætti áfram telja,“ segir Haddad. „Það var hæstaréttardómari af arabískum ættum sem kvað upp dóm yfir fyrrverandi forsætisráð- herra Ísraels af gyðingaættum fyrir spillingu. Þú myndir ekki sjá slíkt í ríki þar sem aðskilnaðarstefna er við lýði. Bankastjóri stærsta banka Ísr- aels er arabi, við erum með þing- menn sem eru arabar, fyrirliði karla- landsliðsins í knattspyrnu er arabi og múslimi. Þrátt fyrir að arabar séu aðeins 20% íbúa eru þeir 30% allra lækna í landinu og 50% allra lyfja- fræðinga, svo dæmi séu tekin.“ Að berjast við bræður? Haddad gekk sjálfviljugur í ísrael- ska herinn og varð fljótt yfirmaður sinnar deildar. Spurður um það hvað hafi orðið til þess að hann gekk í her- inn svarar hann því til að þetta sé ísraelski herinn, ekki her gyðinga. Hann særðist illa í átökum í Líb- anon árið 2006 þegar hryðjuverka- samtökin Hezbollah vörpuðu sprengjum í átt að herdeild hans. „Nokkrum dögum áður en ég fór til Líbanon kom vinur minn, sem einnig er arabi, til mín hneykslaður á því að ég væri að fara að berjast við araba- bræður okkar,“ rifjar Haddad upp. „Ég svaraði að bragði að ég væri að fara að berjast við hryðjuverka- samtök sem ógnuðu lífi okkar allra. Hann áttaði sig síðar á því, eftir að Hezbollah höfðu varpað sprengjum á Nasaret og drepið þar fjölmarga araba og múslima, meðal annars börn, að ég hafði rétt fyrir mér. Þetta er raunveruleikinn sem við bú- um við, og við þurfum að horfast í augu við það að landið er undir stanslausum árásum aðila sem vilja tortíma því.“ Arabar geta náð árangri í Ísrael - Ísraelskur arabi mótmælir því að aðskilnaðarstefna sé við lýði í Ísrael - Gekk sjálfviljugur í herinn - Segir að of oft heyrist aðeins önnur hlið málsins - Arabar taki virkan þátt í samfélaginu Skráð voru 674 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í aprílmánuði og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mán- aðarskýrslu lögreglustjórans á höf- uðborgarsvæðinu fyrir apríl 2022. Tilkynningum um þjófnaði fækk- aði á milli mánaða en tilkynningar um innbrot voru álíka margar og í mars. Það sem af er ári hafa borist um tíu prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan. Alls bárust 130 tilkynningar um ofbeldisbrot í apríl og fjölgaði þess- um tilkynningum á milli mánaða. Til- kynningum um heimilisofbeldi fjölg- aði einnig á milli mánaða og fóru úr 66 í mars í 75 í apríl. Það sem af er ári hafa borist um eitt prósent færri tilkynningar en meðalfjöldi sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Alls bárust átta beiðnir um leit að börn- um og ungmennum í apríl. Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði á milli mánaða sem og til- kynningum um nytjastuld á vélknún- um ökutækjum. Álíka mörg fíkniefnabrot voru skráð í apríl og mars og voru fjögur stórfelld fíkniefnabrot skráð í apríl. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrif- um ávana- og fíkniefna fjölgaði örlít- ið á milli mánaða sem og tilkynning- um þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Í mars voru skráð 776 umferðar- lagabrot (að hraðamyndavélum und- anskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 23 prósent færri um- ferðarlagabrot á höfuðborgarsvæð- inu en að meðaltali á sama tíma síð- ustu þrjú ár á undan, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Morgunblaðið/RAX Afbrot Færri þjófnaðir voru til- kynntir í apríl en í mars sl. Aukið heimilisofbeldi en færri þjófnaðir - 674 brot á hegningarlögum í apríl Félagið Ísland-Palestína boðaði til mótmæla fyrir utan Grand hótel þar sem Haddad hélt fyr- irlestur á mánudagskvöld. Hóp- ur fólks mætti til að mótmæla, en mótmælin fóru þó frið- samlega fram þótt hluti hópsins hafi reynt að trufla fyrirlestur Haddad meðan á honum stóð. Haddad segir að félagar MIFF hafi boðið forsvarsmönnum Ís- lands-Palestínu að eiga samtal við Haddad fyrr um daginn, en það boð hafi verið afþakkað. „Það kom mér á óvart að þau skyldu ekki vilja eiga samtal, þau vilja ekki að ég að flytji minn fyrirlestur en vilja heldur ekki eiga við mig samtal,“ segir Haddad. Mótmæltu fyrirlestri AFÞÖKKUÐU SAMTAL Morgunblaðið/Eggert Málsvari Yoseph Haddad hefur ferðast víða um heim og kom nýlega fram fyrir utanríkismálanefnd írska þingsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.