Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Cloud 5 24.995.- / St. 37,5-46 Cloudswift 26.995.- / St. 37-42,5 Cloudultra 29.995.- / St. 37,5-47 Cloudventure 3 29.995.- / St. 36,5-47 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE ON CLOUD HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ AÐ HLAUPA Á SKÝI ? SVIÐSLJÓS Atli Vigfússon Laxamýri Glatt var á hjalla í félagsheimilinu Breiðumýri í Þingeyjarsveit á degi harmonikunnar. Löng hefð er fyrir því að hittast þá og hlusta á unga harmonikuleikendur sem stunda nám á svæðinu. Margir hafa unun af því að sjá unga fólkið halda á harm- onikum og hlusta um leið á ljúfa tóna. Mjög vel var mætt af eldri fé- lögum úr Harmonikufélagi Þing- eyinga, sem stóð fyrir tónleikunum, og dagskráin var fjölbreytt. Það var föngulegur hópur sem kom með Jóni Þorsteini Reynissyni tónlistarkennara, en nemendurnir komu aðallega frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og einnig frá Tónlistar- skóla Húsavíkur. Alls 15 nemendur. Í kynningunni sagði Jón Þor- steinn að tónleikarnir væru blanda af sóló- og samspili enda spiluðu margir einir og svo tveir eða fleiri saman. Alls voru tíu atriði á dag- skránni og spilaði Jón Þorsteinn stundum með nemendum sínum. Einnig var skemmtilegt að nokkrir voru með frumsamið efni og hluti af harmonikunáminu hjá krökkunum er að fást við að semja sjálf lög sem þau spila. Það finnst þeim gaman og það er mjög hvetjandi þáttur í nám- inu. Ekkert kynslóðabil Harmonikufélag Þingeyinga var stofnað 1978 og hefur alla tíð haldið uppi alls konar viðburðum. Starf- semin lá niðri um tíma meðan á heimsfaraldrinum stóð, en nú fagn- aði fólk því sérstaklega að geta komið saman og átt góðar stundir. Harmonikudagurinn, með unga fólkinu, þykir mörgum sérlega skemmtilegur enda tengir hann kynslóðirnar saman í heillandi tón- listarflutningi. Eins og heil hljómsveit Margir þóttu spila mjög vel en nemendur eru að sjálfsögðu mis- langt komnir. Magnús Karl Kjerúlf, sem er í 10. bekk Borgarhólsskóla á Húsavík, vakti athygli fyrir leik sinn á harmonikuna en hann hefur verið að læra frá því hann var átta ára gamall. Hann segist hafa valið að læra á harmoniku vegna þess hve hún er kraftmikil og það sé eins og að vera með heila hljómsveit í tak- inu í einu hljóðfæri. Margir tónar heyrist í einu. Hann segist ætla að halda áfram að læra, en ekki enda- laust, þar sem hann hefur einnig mikinn áhuga á stærðfræði og vís- indum. Hins vegar býr í honum áhugi á að spila á böllum og finnst að það geti verið skemmtilegt í framtíðinni. Því miður á hann ekki harmoniku sjálfur, en hefur fengið lánsharm- oniku til þess að æfa sig. Hann segir að góð harmonika geti kostað allt að hálfri milljón og auðvitað hafi hann ekki efni á því ennþá, þó svo að hann langi til þess að eiga eina slíka. Veisla og viðurkenningar Að tónleikunum loknum steig for- maður Harmonikfélags Þingeyinga, Jón Helgi Jóhannsson, á svið og ávarpaði unga fólkið. Hann þakkaði þeim sérstaklega fyrir frábæran tónlistarflutning. Hann afhenti hverjum og einum viður- kenningarskjal fyrir frábæra frammistöðu og að endingu var boð- ið upp á veitingar, kaffi og drykki fyrir alla aldurshópa ásamt hlað- borði af kökum og rjómatertum sem allir kunnu vel að meta. Harmonikan heillandi hljóðfæri - Dagur harmonikunnar haldinn hátíðlegur í Breiðumýri - Löng hefð hjá Harmonikufélagi Þing- eyinga - Efnilegir harmonikuleikarar úr tónlistarskólum í Eyjafirði og á Húsavík mættu til leiks Frá Þelamerkurskóla F.v. Ingveldur Myrra Ólafsdóttir, Hrafney Krista Ólafsdóttir, Hjördís Emma Arnarsdóttir og Tinna Margrét Axelsdóttir. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Efnileg Hópur harmonikunemenda úr Eyjafirði og frá Húsavík ásamt kennara sínum, Jóni Þorsteini Reynissyni, lengst til vinstri. Friðrik Jónsson, bóndi, organisti, tónskáld og harmonikuleikari frá Halldórsstöðum í Reykjadal S- Þing. (1915-1997), sagði í hárri elli að alltaf hefði verið mikill kraftur í dansinum en hann spilaði oft fram á nætur í samkomuhúsum sýsl- unnar. Fyrst var hann þekktur fyrir að spila fyrir dansi á orgel en svo kom þar að hann fékk sér hnappa- harmoniku og var mjög spenntur fyrir því. Þetta var árið 1937. Hann átti enga peninga í þá daga og fékk lánaðar 100 krónur til þess að geta keypt hljóðfærið. Yfirleitt þekktist ekki annað en að það væri bara einn maður að spila og þá var, eins og hann sagði sjálfur frá, gott að vera ungur og hraustur. Yfirleitt stóðu böllin í 3-5 tíma en lengst spilaði hann í níu klukkutíma fyrir dansi en það var erfitt því þá sást aldrei neinn sitja með nikkuna. Hann sagði að lítið hefði verið um kaffihlé en stundum þáði hann hressingu meðan fólkið beið og spjallaði saman. Allir vildu dansa og um leið og byrjað var að spila aftur komu mörg pör á gólfið. Það var enginn til þess að leysa hann af. Böll í hér- aðinu voru alltaf vel sótt og Friðrik minntist þess að oft hefði svitinn runnið af sér þegar feikilegt fjör var í fólkinu. Hann var mjög vinsæll og fór mikið orð af list hans. Heimild: Viðtal greinarhöfundar við Friðrik í dagblaðinu Degi 14.mars 1992. HARMONIKUBÖLLIN HÉR ÁÐUR FYRR Margmenni og mikið dansað Friðrik Jónsson með nikkuna. Myndin tekin á árunum 1937- 1940.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.