Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Eftir tæpan áratug þar sem engin
sýklalyf hafa verið notuð í íslensku
fiskeldi brá svo við að grípa þurfti til
lyfjagjafar í landeldi á bleikju síðast-
liðið haust,“ segir í ársskýrslu dýra-
læknis fiskisjúkdóma hjá Matvæla-
stofnun. Enn hefur aldrei þurft að
nota sýklalyf hjá þeim fyrirtækjum
sem í dag stunda laxeldi í sjó á Vest-
fjörðum og Austfjörðum.
„Að þessu sinni þurfti að gefa alls
26 kg af lyfinu oxýtetracýklín í einni
eldisstöð vegna kýlaveikibróður sem
átti upptök sín í óbólusettri bleikju,“
segir í skýrslunni. Þar er jafnframt
greint frá því að bakterían sem veld-
ur þessum sjúkdómi sé „til staðar í
umhverfi allra strandeldisstöðva þar
sem einhver selta kemur við sögu“. Í
yfirgnæfandi tilfella nær bólusetn-
ing að halda sýkingu af völdum bakt-
eríunnar í skefjum en hún greinist á
hverju ári í stökum villtum fiski sem
er nýgenginn úr sjó í laxveiðiár allt í
kringum landið.
Óvarin útiker
Þá greindust tvö tilfelli af rauð-
munnaveiki í villtum laxaseiðum sem
alin voru til fiskræktar fyrir lax-
veiðiár og var einnig sýklalyfjum
beitt. Samkvæmt ársskýrslunni var
sjúkdómurinn „fremur alvarlegs eðl-
is“ og kom upp í fimm útikerum í
einni eldisstöð. Bakterían er sögð út-
breidd í íslenskri náttúru og er fugl
talinn einn helsti smitberinn á milli
svæða og blossar sjúkdómur nánast
undantekningarlaust upp í kerum
sem standa óvarin utandyra.
„Algengt er að yfirvöld birti lyfja-
notkun sem magn sýklalyfja per
tonn af framleiddum sláturfiski og
með slíkum umreikningi fáum við út
að um 0,5 g af sýklalyfi hafi verið
notuð fyrir hvert slátrað tonn árið
2021,“ segir í ársskýrslu dýralæknis
fiskisjúkdóma.
Sérstaklega er vakin athygli á því
að mikil breyting hefur orðið á þess-
um stuðli á síðastliðnum þremur
áratugum, en hann var 150 g á hvert
slátrað tonn árið 1990.
Fyrstu sýklalyf
í eldi í áratug
- Aðgerðir náðu aðeins til landeldis
Morgunblaðið/Eggert
Fiskeldi Beita þurfti sýklalyfjum í fyrsta sinn í áratug í íslensku eldi.
Samþykkt var á fundi allsherj-
arþings Alþjóðasiglingamálastofn-
unarinnar (IMO) í nóvember í fyrra
að 18. maí yrði árlegur al-
þjóðadagur kvenna í siglingum.
Var því sá fyrsti í sögunni í gær og
voru kjörorð dagsins: „Þjálfun,
sýnileiki og viðurkenning; Brjótum
niður múra starfsgreinanna“. Til-
gangur dagsins er að skapa vett-
vang til að varpa ljósi á og fagna ár-
angri kvenna sem starfa á sjó og
greina svið þar sem bæta má kynja-
jafnvægi, að því er fram kemur á
vef IMO.
Stofnunin hefur í dag kynnt nýtt
merki dagsins og staðið að al-
þjóðlegu málþingi þar sem lögð var
áhersla á nauðsyn þess að konur
séu sýnilegri í geiranum í heild, séu
í auknum mæli með virka fulltrúa á
ákvarðanatökustigum og studdar
betur með viðeigandi þjálfun og
menntun. Jafnframt var hrint af
stað herferð á samfélagsmiðlum
undir myllumerkinu #WomenIn-
MaritimeDay (konur í siglingum).
Þá voru kynntar niðurstöður
skýrslu um stöðu kvenna í sigl-
ingum. Samkvæmt skýrslunni, sem
nær til allra aðildarríkja IMO, eru
aðeins 2% af áhafnarmeðlimum
konur, langflestar í farþegaskipum.
gso@mbl.is
Skýrsla Staða kvenna í siglingum
meðal IMO-ríkja var skoðuð.
Dagur
kvenna í
siglingum
Morgunblaðið og 200 mílur hafa
ákveðið að leita til dyggra lesenda er
kemur að forsíðumynd sjómanna-
dagsblaðs 200 mílna 2022 og hefur
verið efnt til ljósmyndasamkeppni.
Ljósmyndarinn sem sendir myndina
sem valin verður á forsíðu blaðsins
hlýtur ekki einungis þann heiður
heldur einnig 50 þúsund króna
gjafabréf á Finnsson bistro í
Reykjavík.
Leitað er að fallegum, hrikaleg-
um, mögnuðum og öðruvísi ljós-
myndum af sjónum eða sjósókn.
Best er að hafa myndina háa fyrir
forsíðuna en það er ekki skilyrði fyr-
ir þátttöku.
Alls verða þrjár myndir verð-
launaðar og er skilafrestur til og
með 3. júní. Upplýsingar má nálgast
á 200 mílum á mbl.is. gso@mbl.is
Keppt um
forsíðuna
Keppni Einn heppinn ljósmyndari
gæti nælt sér í forsíðuna.
VIKUR
Á LISTA
10
6
1
3
2
1
2
1
7
1
HUNDRAÐÓHÖPPHEMINGWAYS
Höf. Lilja Sigurðardóttir
Les. Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason
ásamt öðrum leikröddum
GESTALISTINN
Höf. Lucy Foley
Les. Ýmsir lesarar
HELKULDI
Höf. Viveca Sten
Les. Hanna María Karlsdóttir
ALLT EÐA EKKERT
Höf. Simona Ahrnstedt
Les. Álfrún Helga Örnólfsdóttir
HÖGGIÐ
Höf. Unnur Lilja Aradóttir
Les. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
SLÉTTOG BRUGÐIÐ
Höf. Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Les. Lára Sveinsdóttir
HYLURINN
Höf. Gróa Finnsdóttir
Les. Lára Sveinsdóttir, Guðmundur
Ingi Þorvaldsson
TILFINNINGAR ERU FYRIRAUMINGJA
Höf. Kamilla Einarsdóttir
Les. Saga Garðarsdóttir
BRÉFIÐ
Höf. Kathryn Hughes
Les. Sara Dögg Ásgeirsdóttir
ROBBI RÆNINGI
- OG SKELFILEGA FJÖLSKYLDAN HANS
Höf. Roope Lipasti
Les. Guðmundur Felixson
1.
2.
3.
4.
7.
8.
6.
10.
9.
5.
-
›
›
›
›
›
TOPP 10
VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI
VIKA 19
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Sýningarsalur Draghálsi 4 -
Sími: 535 1300 -
verslun@verslun.is
Skiptiborð á veggSnertilaus handþurrkari
Sundfata vinda
Hárþurrka upphækkanlegFataskápar,munaskápar
Snertilaus handþurrkari
Vatnsbrunnur á vegg