Morgunblaðið - 19.05.2022, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 19.05.2022, Qupperneq 34
34 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 VIGOR 3.0 16.995 kr./ St. 41- 47,5 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS HERRASKÓR MEÐ GRIPGÓÐUM BOTNI OG MJÚKU INNLEGGI 19. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 131.58 Sterlingspund 164.34 Kanadadalur 102.61 Dönsk króna 18.639 Norsk króna 13.627 Sænsk króna 13.286 Svissn. franki 132.64 Japanskt jen 1.0175 SDR 176.42 Evra 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.7629 « Í nýrri þjóð- hagsspá Íslands- banka segir að verulegt ójafnvægi ríki milli framboðs og eftirspurnar á íbúðamarkaði. „Í raun má segja að markaðurinn hafi verið tæmdur en auglýstum eignum til sölu hefur fækk- að um nær 70% frá upphafi faraldursins enda hefur framboð af íbúðum til sölu aldrei mælst jafn lítið,“ segir í spánni. Þá segir að enn séu engin merki þess að eftirspurn fari dvínandi en bæði er samkvæmt þjóðhagsspánni meðal- sölutími íbúða í sögulegu lágmarki um þessar mundir og töluverður fjöldi íbúða er að seljast yfir ásettu verði. Þá segir í spánni að íbúðaverð sé nú orðið mjög hátt í sögulegu samhengi og það hafi vikið verulega frá þeim þáttum sem til lengri tíma eru taldir ráða þróun þess. Íslandsbanki segir að þetta sé töluvert áhyggjuefni og bendir á að Seðlabankinn hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við hækkunum og tryggja að fólk skuldsetji sig ekki um of. Bæði hafi hann hækkað stýrivexti og einnig hert á reglum um hámark veð- setningarhlutfalls nýrra íbúðalána og hámarksgreiðslubyrði slíkra lána í hlut- falli við ráðstöfunartekjur. „Hingað til hafa þessar aðgerðir ekki haft tilætluð áhrif á íbúðamarkaðinn og teljum við að aukið framboð íbúða þurfi til þess að þessar aðgerðir hafi veruleg áhrif á verðþróunina,“ segir í spánni. Hagsjá Landsbankans fjallar einnig um fasteignamarkaðinn og segir hús- næði hafa verið einn helsta drifkraft verðbólgunnar síðustu mánuði. Segir bankinn að hækkunin sem nú sést í gögnum Þjóðskrár sé til þess fallin að breyta spánni sem birt var í síðustu viku. „Nú teljum við að vísitala neyslu- verðs muni hækka um 0,9% milli mán- aða og að verðbólga muni mælast 7,7% í maí en ekki 7,6%.“ Verulegt ójafnvægi fram- boðs og eftirspurnar Verð Íbúðir hafa hækkað um 8% fyrstu 4 mánuði ársins. STUTT BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Undanfarinn mánuð hefur verð á áli í kauphöllinni með málma í London (LME) lækkað úr tæplega 3.300 döl- um tonnið í rúmlega 2.800 dali tonn- ið. Til samanburðar var meðalverðið 1.730 dalir 2020 og tæplega 2.490 dalir 2021. Verðið er því enn hátt í sögulegu samhengi. Vegna þessara hækkana jukust útflutningstekjur íslenska þjóðar- búsins af áli um tugi milljarða milli ára 2020 og 2021, líkt og hér er sýnt á neðra grafinu, jafnframt því sem Landsvirkjun greiddi ríkinu um 15 milljarða króna í arð vegna síðasta rekstrarárs en tekjur fyrirtækisins eru að hluta tengdar álverði. Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli, seg- ir marga þætti skýra lækkun álverðs að undanförnu. Meðal annars hafi vaxtahækkanir haft áhrif á væntingar um efnahagshorfur sem birtist í lækkunum á hlutabréfa- mörkuðum. Þau áhrif megi einnig greina í hrávörunni, þ.m.t. álinu. Sóttvarnir hægja á hagkerfinu Þá hafi útbreiðsla kórónuveirunn- ar í Kína haft áhrif á álmarkaðinn. „Kína notar yfir 50% af öllu áli sem framleitt er í heiminum og þar hafa mjög strangar sóttvarnaað- gerðir í stórborgum haft veruleg áhrif á almenna eftirspurn. Sem dæmi minnkaði smásala í Kína um 11% í apríl samanborið við árið áður. Kína er þó ekki eina breytan sem hefur haft áhrif til lækkunar á ál- verði. Orkukreppan í Evrópu hefur dregið úr framleiðslu á áli, sem eitt og sér ætti að leiða til hækkunar, en orkukreppan er einnig farin að hafa áhrif á kaupendur áls, til dæmis verksmiðjurnar sem vinna álið. Þá hafa verðbólga og vaxtahækkanir auðvitað almennt haft áhrif á kaup- gleði neytenda,“ segir Páll. Sömuleiðis hafi innrás Rússa í Úkraínu haft mikil efnahagsleg áhrif. Þrátt fyrir efnahagsþvinganir á hendur Rússum séu rússnesk álver enn að framleiða á fullum afköstum og rússneska álið fari að mestu til Evrópu og Asíu. Sem áður segir jókst verðmæti út- flutts áls mikið milli ára 2020 og 2021. Það var þannig 208 milljarðar árið 2020 en 284 milljarðar árið 2021 sem var aukning um 76 milljarða. Fór úr 79 í 123 milljarða króna Sé horft til tímabilsins frá janúar og út apríl þá jókst útflutningurinn um 44 milljarða króna milli ára 2021 og 2022. Verðmætið var frá 70 og upp í 79 milljarða árin 2018 til 2021 en hefur stóraukist í 123 milljarða. Rauða línan hér á neðra grafinu sýnir mánaðartaktinn en eins og sjá má geta sveiflur verið töluverðar á verðinu innan skemmri tímabila. Ef fram heldur sem horfir kunna arðgreiðslur Landsvirkjunar að aukast enn frekar milli ára en orku- sölusamningar fyrirtækisins eru að hluta tengdir álverði. Sömu áhrifa kann að gæta hjá Orkuveitunni. Mikil umskipti hafa orðið í áliðnaði síðustu misseri en í febrúar 2020, skömmu áður en faraldurinn hófst, var rætt um að jafnvel þyrfti að loka álverinu í Straumsvík en það tapaði samtals 28,4 milljörðum 2018-20. Til samanburðar var samanlagt tap álveranna þriggja – í Straums- vík, á Grundartanga og á Reyðarfirði – um 48 milljarðar á þessu tímabili. Eftir að álverð hækkaði hafa álverin hins vegar verið rekin með hagnaði. Þessi umskipti hafa mildað höggið af faraldrinum á íslenska hagkerfið. Álverð hefur gefið eftir en er enn sögulega hátt Þriggja mánaða framvirkt verð, bandaríkjadalir á tonn Heimsmarkaðsverð á áli frá ársbyrjun 2019 4.000 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 2019 2020 2021 2022 Heimild: LME 1.862 1.493 3.543 2.832 FEBRÚAR 2020 Rio Tinto íhugar að loka álverinu í Straumsvík HAUST 2021 Orkukreppa hefst í Evrópu MARS 2020 Kórónuveiru- faraldurinn hefst FEBRÚAR 2022 Rússar ráðast inn í Úkraínu - Verðmæti útflutts áls var yfir 40 milljörðum hærra í janúar til apríl en í fyrra Alls í jan.-apríl Alls í maí-des. Þróun útflutningsverðmætis frá ársbyrjun 2018 Heildarverðmæti 2018-2022 Verðmæti útflutts áls og álafurða 35 30 25 20 15 10 Heimild: Hagstofan 20192018 2020 2021 2022 159 71 140 72 138 70 205 79 123 2018 2019 2020 2021 2022 230 212 208 284Fob verð,ma.kr.Fob verð,ma.kr. Heimilistæki ehf. hafa, samkvæmt staðfestum heimildum Morgun- blaðsins, fest kaup á heildversluninni Ásbirni Ólafssyni ehf. Samkvæmt heimildum blaðsins er kaupverðið hátt í tveir milljarðar króna og eru kaupin gerð með fyrirvara um sam- þykki Samkeppniseftirlitsins. Eigendur heildverslunarinnar höfðu áður selt hluta af starfsemi hennar en Danól, dótturfélag Öl- gerðarinnar, fékk í fyrra leyfi Sam- keppniseftirlitsins til að taka yfir hluta viðskiptasambanda, birgða og tækja á sviðum matvöru-, stóreld- húsa- og hreinlætisvara. Rekstur Ásbjörns Ólafssonar ehf. hefur gengið sæmilega og tekjur aukist lítillega, þótt afkoma félagsins hafi dvínað á liðnum árum. Sam- kvæmt ársreikningi fyrir árið 2020 nam hagnaður félagsins um 26,6 milljónum króna og eigið fé í árslok 2020 var tæpar 250 milljónir króna. 85 ára fjölskyldusaga á enda Ásbjörn Ólafsson ehf. hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá stofnun fyrirtækisins, eða í 85 ár. Félagið er í eigu fimm barna Ólafíu Ásbjörns- dóttur, sem var dóttir Ásbjörns Ólafssonar stofnanda. Af þeim systkinum er Guðmundur K. Björns- son nú framkvæmdastjóri og Ásta Friðrika Björnsdóttir sölustjóri sér- vöru. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins munu þau að óbreyttu starfa áfram hjá félaginu. Hin systk- inin eru Ólafur Björn, Gunnlaugur Rafn og Ásbjörn. Eigendur Heimilistækja eiga jafn- framt Sjónvarpsmiðstöðina ehf., sem í dag er rekin undir merkjum Raf- lands. gislifreyr@mbl.is Eigendur Ásbjörn Ólafsson ehf. og barnabörn stofnandans. Selja Ásbjörn Ólafsson ehf. - Heimilistæki kaupa heildverslun fyrir á 2. milljarð króna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.