Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 39

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Bein Jónasar Hall- grímssonar voru grafin á Bakka í Öxnadal haustið 1946; þetta er á vitorði niðja þeirra, sem að verki voru. Einn þeirra, nú látinn, Ágúst, sonur Sigurðar prests, sem þjónaði Bakkasókn, birti reyndar lýsingu á mál- inu öllu í Degi- Tímanum 1996-97, en þó þannig, að lesa varð milli línanna. Þar birti hann einnig myndir af þeim, sem brutu með því gegn stjórnvaldi. Ég vék að þessu árið 2015 og lét fylgja eft- irmælum mínum eftir Gest Eggerts- son bónda á Steinsstöðum, þar sem bernska Jónasar stóð, í Morg- unblaðinu í maí 2015. Þá viðbót birti ég ekki í blaðinu, heldur á vefsíðu minni, en hér er hún, með heitinu Út- förin: „Útfarardagurinn 29. apríl var fag- ur. Kirkjan á Bakka er snotur, frá 1843, og varð því sóknarkirkja Rann- veigar á Steinsstöðum. Jónas sonur hennar fór síðast frá Íslandi 1842. Kirkjan er hæfilega stór fyrir útför, eins og best gerist; þær systur sorg og gleði, vegna vinarhugar, ásamt gestunum fylltu guðshúsið. Hér kem- ur að því, sem við Gestur ræddum aldrei. Gestur var nefnilega í skáld- skapnum, ekki í skáldunum, benti mér reyndar einu sinni út um eldhús- gluggann á foss ofan við húsið: þarna er Gljúfrabúi. Eftir jarðsetninguna skyggndist ég um eftir leiðum vit- orðsmanna haustið 1946, þegar hluta af jarðneskum leifum Jónasar Hall- grímssonar var komið fyrir á laun í grafreitnum. Ég rifjaði síðar upp fyr- ir mér ritaða frásögn sonar prestsins, sem við þetta var riðinn, af þeim feg- inleik, sem aldrei brást, þegar vit- orðsmennirnir hittust, en ekki mátti afhjúpa, eins og hann, sr. Ágúst Sig- urðsson, segir í Degi-Tímanum 1997, og sé þá enn ívið snemmt að lýsa. Nú fyrst skil ég leynd sr. Ágústs. Faðir hans, embættismaður, varð brotlegur gegn stjórnvaldi, ásamt nokkrum dalbúum. Greinaflokki í blaðinu fylgja myndir af þeim. Syninum þótti því ívið snemmt að lýsa frekar, en ekki mátti dragast að setja milli lína, þar sem þegar árið 1996, ef til vill fyrr, var farið að halla undan fyrir hon- um. Með þessum brögð- um dalbúa og prests var haldið eftir á Bakka því, sem norðlensk skáld, náttúrufræðingar og all- ur almenningur nyrðra höfðu óskað opinberlega eftir.“ Nú sjö árum eftir að ég skrifaði þetta og 25 árum eftir að sr. Ágúst skrifaði milli línanna í Dag-Tímann, hef ég orðið þess áskynja, að ekkert ætti að vera að því að segja frá þessu berum orðum. Reyndar er frásögn sr. Ágústs slík snilld, að ekki verður bætt. Ég vil samt draga fram nokkra myndatexta úr 4. og síðustu grein sr. Ágústs, Leifar í tveimur löndum. Hún hefst með frásögn af minning- arathöfn á Bakka 12. október 1946, áður en beinakistan var flutt suður til Reykjavíkur. Fyrst er mynd, þar sem segir: „Jónas Hallgrímsson í Dan- mörku – fyrr og enn. Bein komu til Íslands, en án höfuðs, herða og brjósts.“ Síðan er mynd af kirkjunni og segir þar: „Í Bakkakirkju stóð steinkistan í fulla viku (6.-13. okt.). Var til þess ætlast, að við aðhefðumst nokkuð eða gerðum ekkert? Á.S.“ (Skyldi eiga að standa beinakistan?) Á næstu síðu í blaðinu er mynd af bóndanum í Efstalandskoti og undir stendur: „Brynjólfur Sveinsson hreppstjóri Öxndæla mátti ekki að- hafast eins mikið og vildi, fulltrúi fóg- etavalds í sveit sinni. Hann var í sendinefndinni sem kom út að Möðruvöllum 7. október, eins og sagði í síðustu grein.“ Þá er mynd og segir: „Bernharð Stefánsson alþm. frá Þverá var einn líkmanna á Þing- völlum. Jafnvel hann vissi ekki undir hvað hann hélt ekki …“ Svo er mynd af bóndanum á fæðingarstað Jónasar, þaðan sem hann fór hvítvoðungur að Steinsstöðum. Þar segir: „Jónas Jónsson bóndi í Hrauni, formaður sóknarnefndar í Öxnadal, var mik- ilvirkur í beinamálinu.“ Þá er mynd af hjónum og segir: „Anna Sigurjóns- dóttir ljósmóðir og maður hennar Ár- mann Þorsteinsson bóndi og stöðv- arstjóri á Þverá.“ Loks nefni ég mynd af bróður Ármanns og undir stendur: „Kári Þorsteinsson á Þverá.“ (Þverá var í lykilstöðu vegna símstöðv- arinnar, þar sem ekki var sími á öðr- um bæjum í sókninni). Í síðustu grein sr. Ágústs er það rakið, hvernig engin athugun var gerð á því, hvað væri í beinakistunni, eftir að stjórnvöld endurheimtu hana, en hún stóð ólæst uppi á annan mán- uð fyrir norðan og síðan í Reykjavík, áður en hún var grafin á Þingvöllum. Þá er því lýst, sem gert var og ekki gert, fyrir norðan og syðra. Tölvuleikir tíðkast nú. Þeir breyta ekki gangi mála. Í Reykjavík fór fram fyrir miðja síðastliðna öld valdaleikur um listastefnu og menntastefnu. Beinamál Jónasar Hallgrímssonar var dregið inn í þær deilur, og urðu háðuleg skrif Halldórs Laxness í At- ómstöðinni sígild í því sambandi. Sá valdaleikur virðist ekki hafa haft nein áhrif á gang málsins. Norðlendingar létu deilur syðra ekki trufla sig eða það hvernig bein Jónasar Hallgríms- sonar voru komin norður. Þeir tóku beinin sem bein heilags manns, og þannig fengu þau leg. Með því brutu Öxndælir ásamt presti gegn stjórn- valdi, sem var sýslumaðurinn fyrir hönd ráðherra. Varla hefur göfugra brot verið framið hér á landi. Jónas Hallgrímsson: Útfararlok Eftir Björn S. Stefánsson Björn S. Stefánsson » Það er á vitorði niðja þeirra, sem að verki voru, að bein Jónasar Hallgrímssonar voru grafin á Bakka í Öxna- dal haustið 1946. Höfundur er borinn og barnfæddur í Reykjavík. bstorama@gmail.com Toyota Kauptúni Kauptúni 6 570-5070 www.toyotakauptuni.is Betri notaðir bílar LEXUS RX 450H L EXE HYBRID • Nýskráður 10/2019 • Akstur 31 þ.km. • Hybrid • Sjálfskipting • Ábyrgð umboðs gildir til 7.10.2026 eða 200.000 km. • Raðnúmer 996618 9.390.000 kr. Kauptún Betra verð Ásett verð kr. 10.180.000 kr. Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is GRÍMSEY hanska Kr. 2.990.- SÓLA zip-off göngubuxur Kr. 17.990.- TEITUR regnjakki Kr. 7.990.- Þín útivist - þín ánægja BRIMNE meðalþy göngus Kr. 2 S kkir okkar .150.- ASOLO Angle GV Kr. 25.990.- DRANGSNES merino buxur Kr. 11.990.- DRANGSNES hálfrennd peysa 11.990 Kr. FAGRADALSFJALL ullarpeysa 14.990 Kr. ARCTIC EXPLORER göngustafir Kr. 5.990.- r HVÍTA Merínó húfa Kr. 3.990.- NES

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.