Morgunblaðið - 19.05.2022, Qupperneq 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Laserlyftin
Náttúruleg andlitslyfting
sembyggir á nýjustu tækni
ALLTAÐ30%AFSLÁTTUR
Upplagt tækifæri fyrir þá semvilja gefa andl
náttúrulega lyftingu,milda hrukkur og línur o
fyrirbyggja slappleika húðar.
• Þéttir slappa húð á andliti og hálsi
• Eykur kollagenframleiðslu
g
itinu
g
Ve
13
Við to réttu
Pe
21 re
Við
ta 13
30%
afsláttur af
LASERLYFTINGU
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ
allt að
isráðherrann Sergei Lavrov sendi 48
bréf persónulega til kollega sinna í
NATO, ESB og fleiri ríkjum, viðtak-
andi í Reykjavík svaraði ekki bréf-
inu. Engin athygli og málin látin
reka á reiðanum, viðkvæðið e.t.v.
þetta íslenska „æi, þetta hlýtur að
reddast“.
Stríðið í Úkraínu hófst ekki nú í
febrúar við að Pútín hafi verið að
drepast úr sársauka vegna krank-
leika og ákveðið að nú rynni upp
„dagur Z“. Úkraínskar þjóðern-
issveitir hafa í átta ár skemmt sér
við að skjóta á byggðir Donbass og
14.000 (!) manns hafa verið drepnir.
Volodomír Selenskí fór á vígstöðv-
arnar, greinilegt var að hinn ungi
forseti hafði enga stjórn á nýnas-
istum sem gerðu grín að honum.
Þjóðhetjur Úkraínu nú eru dæmdir
stríðsglæpamenn og fjöldamorð-
ingjar (t.d. 60.000 Pólverjar í Wolyn
1943-’44), þeir helstu Stepan Ban-
dera og Róman Sjúkevits, eftir þeim
eru nefndar götur, verksmiðjur og
leikvangar; oflæti og hræsni vest-
ursins eru merkileg.
Allt frá því að Vigdís var forseti,
Steingrímur forsætisráðherra og
Davíð lánaði Höfða hefðu Íslend-
ingar átt að stuðla að samræðum og
friði. Ekta diplómatía felst í því að
rapportera rétt um stöðu mála, bera
klæði á vopnin, ekki olíu á elda.
Á Íslandi þróast mál með ólík-
indum, ritskoðun og hótanir, ekkert
má raska heimsmynd Reuters,
flokkslínu Brussel og glóbalista,
ekki skal einu sinni liðið að 1% upp-
lýsinga sé sjálfstætt og byggt á
söguþekkingu, ekki síst á tímum
„fjölbreytni og umburðarlyndis“ í
„upplýstu“ nútímasamfélagi, þetta
er hættuleg þróun og sorgleg.
Washington af 12
löndum. 1955 gengur
V-Þýskaland með sinn
her, Bundeswehr, í
NATO og sem svar við
því er Varsjár-
bandalagið stofnað í
höfuðborg Póllands
sama ár, í bandalaginu
voru sjö ríki: Sov-
étríkin, Tékkóslóv-
akía, Pólland, A-
Þýskaland, Rúmenía,
Ungverjaland og
Búlgaría. Eftir fall
kommúnismans var Varsjár-
bandalagið lagt niður árið 1991, í
Prag. Sumir segja að þar sem kalda
stríðinu var lokið hefði einnig átt að
leggja niður NATO, alltént var von
manna að í Evrópu yrði hlutlaust
belti („buffer zone“ eða „stuðari“)
um miðja álfuna, þ.e. Svíþjóð, Finn-
land, Austurríki, Sviss, Júgóslavía
(var ekki í Varsjárbandalaginu) auk
fyrrverandi „austantjaldsríkja“.
NATO hefur stækkað og stækkað til
austurs og telur nú 30 ríki. Var þetta
í mikilli óþökk Rússa og þeirra ör-
yggishagsmuna, sérstaklega eftir að
Jeltsín hætti árið 2000 og við tók
maður með betri yfirsýn mála. Ekki
þarf mikla sérfræðiþekkingu til að
sjá að „ógnarjafnvægið“ sem hélt
hundunum í keðjunum er löngu fyrir
bí, og það svo um munar. Rétt er að
líta á nokkrar staðreyndir: Mann-
fjöldi NATO-landanna er rúmur
milljarður / Sambandsríkisins Rúss-
lands 150 milljónir, hlutfall 10:1,5;
hlutfall hermanna 5:1; hernaðar-
útgjöld eru 1,2 T$: 65 G$ / (G – gíga,
milljarður. T – tera, trilljón), þ.e. 120
dalir gegn 6,5 (!). Nú hafa Banda-
ríkjamenn yfir að ráða kjarnavopn-
um í Póllandi og Rúmeníu, rétt við
landamæri Rússlands. Hér er um að
ræða nokkuð sem Rússar kalla rauð-
ar línur og benda á að ef þeir hefðu
svipuð vopn rétt við landamæri BNA
í Kanada eða Mexíkó væri ekki mikil
ánægja í Hvíta húsinu. Má líkja
átökum nú í þessu „proxy“-stríði
„US vs. RU“ við Kúbudeiluna 1962
þegar JFK og félagar gátu ekki liðið
sovésk kjarnavopn rétt við landa-
mærin.
Veturinn 2021/’22 var mikið reynt
til að koma á viðræðum um öryggis-
hagsmuni Rússlands, utanrík-
Skörungurinn Marg-
aret Thatcher, forsætis-
ráðherra Stóra-
Bretlands, barði í skrif-
borð sitt í
Downingstræti 10, svo
glumdi í „five o’clock“-
postulínstebollanum og
undirskálinni. Árið er
1989, Járnfrúin fékk
rapport frá Moskvu um
að það væri fátt sem
gæti úr þessu komið í veg fyrir nýtt
Stór-Þýskaland, þ.e. sameiningu
þýsku ríkjanna. Mikhail Gorbatsjov,
fyrsti og síðasti forseti Sovétríkj-
anna, var í viðræðum við Banda-
ríkjamenn og vildi allt gera til að
„ZGV“, zapadnaja gruppa voisk –
sovétherinn í Austur-Þýskalandi,
yrði sendur heim sem fyrst. Erich
Honecker var mjög óánægður í A-
Berlín, í París var Francois Mitterr-
and heldur ekki hrifinn af enn einu
sterku Þýskalandi, sem menn óttast
að fari að marsera enn einn ganginn
(nú verður það gegn Rússum og
rússneskum almenningi, sem ekki
fær lækningu á sjúkrahúsum, pláss
á hótelum og veitingastöðum vegna
þjóðernis og tungumáls). „ZGV“ var
kallaður heim í skyndi og urðu mörg
þúsund liðsforingjar og hermenn
Rauða hersins, sem hafði 45 árum
áður lagt að fótum sér Þriðja ríkið,
að hafast við í tjöldum, heilu fjöl-
skyldurnar mánuðum saman á kart-
öfluökrum V-Rússlands í öllum veðr-
um. Spillingin var mikil á þessum
tíma og varnarmálaráðherrann Pa-
vel Gratsjov fékk viðurnefnið
„Pasha Mercedes“ þar sem hann var
skyndilega kominn á Benz 600, í stað
svörtu Volgunnar.
Mikhail Gorbatsjov segist hafa
fengið loforð frá Bandaríkjamönn-
um um að NATO myndi ekki stækka
um þumlung í austur – „not an inch
towards East“ – í viðræðum sínum
við Bush, Schultz, Baker o.fl.; það
sem hann og Edvard Sjevardnadse
klikkuðu á var að fá loforðið skjal-
fest og undirskrifað. Þau skipu-
lagsmistök auðtrúa sovétleiðtoga í
lok kalda stríðsins eru nú að koma í
ljós.
Í apríl 1949 er NATO stofnað í
Átök í Evrópu
Eftir Hauk
Hauksson » Á Íslandi þróast
mál með ólíkindum,
ritskoðun og hótanir,
ekkert má raska
heimsmynd Reuters,
flokkslínu Brussel og
glóbalista …
Haukur Hauksson
Höfundur er magister í alþjóðamálum
og leiðsögumaður.
haukurhau@gmail.com
Til að fjölga farþeg-
um í strætó fékk borg-
in frá Vegagerðinni
fjármagn sem var ætl-
að til samgöngubóta á
höfuðborgarsvæðinu.
Ekki gekk fjölgunin
og var þá leitað til
þekkts sérfræðings,
Jarretts Walkers.
Hann gaf góð ráð, sem
meirihlutinn bar því
miður ekki gæfu til að fara eftir.
Taldi betri kost að þrengja svo mik-
ið að fjölskyldubílnum að íbúarnir
neyddust til að taka strætó. Það
gekk ekki þrátt fyrir miklar
skemmdir á gatnakerfinu.
Umferðin var komin í algeran
hnút þegar Degi & co. datt í hug að
skella strætó á miðja götu og kalla
borgarlínu. Borgarlínan varð kosn-
ingaloforð Samfylkingar, sem öllu
skyldi redda. Minnihlutinn stökk á
vagninn af ótta við að annars yrði
hann sagður á móti almennings-
samgöngum.
Í kosningunum féll meirihlutinn,
en þá fannst enn ein hækjan og við
sátum uppi með sama borgarstjóra
og áfram var haldið með borgarlín-
una. Fagmenn bentu á að almenn-
ingsvagnar á miðri götu væru úrelt
lausn sem flestir vildu losna við. Nú
væri komin önnur lausn sem kostaði
helmingi minna. Það vildi meirihlut-
inn ekki svo mikið sem skoða, enda
alltaf hægt að slá lán, eins og fjár-
hagur borgarinnar sýnir.
Allt þetta kjörtímabil hefur meiri-
hlutinn þrengt að bílum og svikið
það sem áður var samþykkt og lof-
að. Nú er unnið að því að eyðileggja
Bústaðaveg sem stofnbraut. Við
þann endann sem mislægu gatna-
mótin áttu að koma skal koma
hringtorg. Á hinum endanum er
verið að byggja fjölbýlishús þétt við
Bústaðaveginn. Eyðileggingin hefði
haldið áfram ef íbúarnir hefðu ekki
haldið alvöruíbúafund með þeim ár-
angri að meirihlutinn segist hættur
við að byggja blokkir á Bústaðaveg-
inum.
Kosningaloforð Samfylkingar er
nú aftur borgarlína, þótt lítið meira
sé vitað um hana en fyrir fjórum ár-
um. Hvernig verða vagnarnir og
hvað mun hún kosta? Eitt er þó al-
veg kristaltært: Borgarlínan skal
nýtt til að útrýma allri umferð fjöl-
skyldubíla með ýmsum hindrunum,
t.d. að setja þá í stokka.
. Sæbrautarstokkur verður með
borgarlínu í miðju vegsniði og ein
akrein fyrir bíla beggja vegna við
hana. Við það myndast stíflur og
enn meiri tafir. Bili rafknúinn bíll
á akreininni gæti orðið erfitt að
fjarlægja hann. Tilgangur svona
hönnunar er greinilega að hindra
bílaumferð sem allra mest.
Kannski sjá þeir einhvern von-
arpening í tafagjöldum frá hel…
einkabílnum.
. Miklubrautarstokkur
er öllu verri en Sæ-
brautarstokkur að
því leyti að þar er
ekki hægt að fækka
akreinum í eina í
hvora átt. Í viðbót
við 2+2-akreinar
bætist við neyð-
arbraut. Það verður
mjög dýrt að sökkva
svona stokk ofan í
jörðina og ekki
lagast það með borg-
arlínu og fjölbýlishúsum ofan á
honum. Svo þarf rampa til að
komast ofan í og upp úr stokkn-
um. Við það verður ekki hægt að
byggja blokkir þétt við Miklu-
brautina, eins og kynnt hefur ver-
ið við lítinn fögnuð. Kannski er
hugsunin að fara inn um annan
endann og út um hinn, eins og í
Hvalfjarðargöngunum. Þannig
stokkur myndi lítið nýtast fjöl-
skyldubílum.
Nú er spurning hvort ekki sé hag-
stæðara að fara hina leiðina; létta
borgarlínan fari í stokk og bílaum-
ferð upp á yfirborðið. Þá þyrfti ekki
að taka miklu meiri breidd undir
stokkinn en sem samsvarar annarri
núverandi akrein og enga rampa.
Það myndi kosta að minnsta kosti
helmingi minna og í bónus gæti um-
ferð gengið á 1+1 á framkvæmda-
tímanum. Í hinu tilfellinu myndi hún
stöðvast alveg. Sparnað við þetta
mætti nýta í uppbyggingu á nýju
hverfi, sem lengi hefur vantað. Svo
virðist sem helst ekki megi byggja
austan Elliðaáa, hvort sem það eru
trúarbrögð eða skortur fjármagns
til uppbyggingar nýrra hverfa þar
sem innviðir eru ekki komnir, eins
og á þéttingarsvæðum.
Eflaust koma fleiri stokkar út um
allt og fleiri hindranir til að tefja
umferð bíla. Búið er t.d. að teikna
brú yfir Fossvog fyrir borgarlínu,
hjólandi og gangandi. Þessi brú
kostar að stærðargráðu tvo millj-
arða og myndi kosta lítið meira með
eina akrein í hvora átt fyrir bíla.
Það myndi létta mikið á vegum sem
í dag stíflast á annatímum. Maður
veltir fyrir sér hvernig svona
ákvarðanir séu teknar og hvort
minnihlutinn sé samþykkur þessu.
Borgarstjórinn fækkar bílastæð-
um og vill helst ekki leyfa meira en
eitt bílastæði við hverja nýja íbúð.
Sjálfur er hann með þrjú bílastæði,
tvo bíla + bíl og bílstjóra frá borg-
inni. Svo er hann í göngufæri frá
vinnustaðnum.
Eftir Sigurð
Oddsson
Sigurður Oddsson
»Er hagstæðara að
fara hina leiðina;
borgarlínan fari í stokk
og bílaumferð upp á
yfirborðið?
Höfundur er verkfræðingur og eldri
borgari.
Með borgarlínu
skal fjölskyldubíln-
um útrýmt
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is