Morgunblaðið - 19.05.2022, Page 41

Morgunblaðið - 19.05.2022, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Listin hefur alltaf verið haldreipi Hugrúnar Brittu Kjartansdóttur sem hefur að eigin sögn gengið í gegnum marga skrítna hluti á sínum 24 árum. Hún vinnur nú í sjálfri sér eftir ofbeldis- samband sem setti sitt mark á söngkonuna sem leitar bæði í garðyrkju og tónlistina til að finna innri ró. Fyrsta lagið af komandi EP-plötu Hugrúnar kom út í síðustu viku, lagið Settle Down, en plat- an er væntanleg í sumar, á allra næstu vikum. Nýja lagið fjallar um tímabil í lífi Hugrúnar þar sem hún varð hrifin af vinkonu sinni fyrir nokkrum árum, rómantík sem aldrei varð, en textinn kom til hennar eftir að hún hitti vinkon- una aftur fyrir nokkrum mánuðum. Hún fattaði þá hvernig hrifningin hafði verið tengd þeirri manneskju sem hún var einu sinni en ekki þeirri sem hún er í dag. Nú einblínir Hugrún á að finna sjálfa sig upp á nýtt og endurspeglar sjálfa sig og sína reynslu í tónlistinni sem hún vinnur að með upptökustjóra sínum Erik Sjö- stedt sem er búsettur í Svíþjóð en þar stundaði Hugrún tónlistarnám um skeið. „Ég verð alltaf smá hrifin af henni en er með- vituð um að ég er ekki þar lengur,“ segir Hug- rún í samtali við blaðamann en hún segir að merking textans hafi breyst mikið fyrir hana upp á síðkastið enda hefur lagið verið í mótun í þó nokkurn tíma. Spurð út í það hvernig hún myndi lýsa sjálfri sér segist Hugrún einmitt vera að reyna að komast að því hver hún er sjálf. Hún segist aldr- ei hafa fundið fyrir því að hún passaði beint inn í samfélagið og vill helst ekki setja sig í ákveðið box. Þrátt fyrir að upplifa sig yfirleitt sem konu er kynvitund hennar flæðandi. „Ég er ótrúlega glaður kvíðaklumpur,“ segir hún og hlær en hún segist vera mjög brosmild en þrátt fyrir það sé hún að vinna úr alls konar „tráma“ og fer reglulega til sálfræðings. Þar vinnur hún meðal annars úr fyrrnefndu ofbeld- issambandi sem hún er nýbúin að losna úr en hún lokaði sig alveg af eftir að hún losnaði. Hún segir tónlistina hjálpa mikið við að vinna úr trámanu en eitt lag, Stone Cold, á væntanlegri EP-plötu er einmitt samið á þeim tíma sem hún gekk út úr sambandinu. „Síðan þá hefur mikið breyst,“ segir Hugrún, en nokkrir mánuðir eru síðan hún fór að geta opnað sig aftur fyrir fólki. „Það var mjög þægi- legt að fá að nota þessar tilfinningar sem ég er búin að vera svo ótrúlega mikið að vinna úr og fá eitthvað fallegt út úr því,“ segir Hugrún sem hlakkar mikið til að geta gefið plötuna út á næstu vikum. Hugrún er mjög listræn að eðlisfari og hefur verið viðloðandi tónlist alla tíð enda er fjöl- skylda hennar uppfull af tónlistarfólki. „Ég byrjaði að spila á franskt horn þegar ég var sex ára,“ segir hún og hlær en hún er nú að undirbúa sig fyrir framhaldspróf á píanó. Þrátt fyrir að tónlistin sé alltaf til staðar er Hugrún einnig myndlistarkona í frítíma sínum auk þess sem hún hefur notið þess upp á síð- kastið að elda mat úr íslenskum hráefnum sem hún finnur í náttúrunni. „Mér finnst mjög gaman að nota það sem er til. Það nota ég í mikið myndlistinni. Ég fer bara út og finn einhvern jarðveg og nota hann í listina mína,“ segir Hugrún sem segist fá ákveð- in tímabil þar sem hún fær gífurlegan áhuga á einhverju einu og telur að það tengist ADHD- greiningu hennar. Akkúrat núna á matseldin hug hennar allan. „Núna er ég mikið að einbeita mér að því að elda úr öllu sem Ísland hefur upp á að bjóða. Ég tengi þetta eiginlega við allt sem ég geri,“ segir Hugrún. Myndir Hugrúnar eru meðal annars gerðar úr íslenskum leir, skeljum, kolum, ösku, steinum, eggjaskurn, vikri og sandi en hún seg- ist passa sig á að taka ekki frá vernduðum svæð- um og aðeins það magn sem hún þarf fyrir myndirnar sínar. Garðyrkja er þó annar mikilvægur hluti af lífi Hugrúnar en hún ákvað einmitt að hætta við að fara í myndlistarskóla í Gautaborg sem hún hafði komist inn í til að byrja nám í Garðyrkju- skólanum á Reykjum. „Ég ólst upp að hluta til á Garðyrkjustöðinni Engi. Ég er mjög mikill kvíðahnútur og hef lent í mörgu skrítnu í lífinu en garðurinn og garð- yrkjan er það eina sem ég hef náð fullkomlega að lenda í og jarðtengja mig – í orðsins fyllstu merkingu,“ lýsir Hugrún og hlær. „Að vera ró- leg. Ég þarf ekki að hugsa um neitt annað. Það er tónlistin líka en þar þarf maður náttúrulega að vera í samskiptum við annað fólk,“ lýsir hún. Hugrúnu dreymir þó um að geta sameinað þetta tvennt; tónlistina og garðyrkjuna ásamt öðrum áhugamálum í framtíðinni. „Annars verð ég bara jarðfræðingur eða eitt- hvað. Ef það virkar ekki,“ segir hún hlæjandi. Skapar fegurð úr erfiðum tilfinningum Hugrún gaf út fyrsta lagið af komandi EP-plötu sinni á dög- unum en platan fjallar um ýms- ar birtingarmyndir ástar sem hún hefur upplifað á lífsleiðinni. List Hugrún semur bæði tónlist og málar myndir úr íslenskum jarðvegi í frítíma sínum. Náttúra Hugrún fær innblástur úr náttúrunni og mannlegu eðli þegar hún semur tónlist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.