Morgunblaðið - 19.05.2022, Page 43
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Vefverslun
selena.is
Sumar
2022
Frábært
úrval af
sundfötum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
„Litabombur eru hylki, líkt og við
þekkjum úr vítamíngeiranum, en
þessi hylki innihalda ofurfæðuna
túrmerik, rauðrófu, bláa spírúlínu
og hveitigras. Í hverju glasi eru 80
blönduð hylki með innihaldi sem
litaglaðir einhyrningaelskandi flipp-
arar geta opnað og hellt út í nánast
hvað sem er til að fá lit. Ég lita
jógúrt, sósur, smjörkrem, baðvatn,
poppkorn, drykki og kókosmjöl
sem dæmi. Ég hef líka prófað að
vatnslita með duftinu og lita flíkur.
Það er í raun galið að nota mat-
arliti sem innihalda alls kyns
óæskileg efni þegar hægt er að
nota 100% náttúruleg efni sem gefa
þér um leið vítamín og alls kyns
góða virkni,“ segir Tobba, sem hef-
ur um árabil notað ofurfæðu til að
lita gúmmelaðið sem hún galdrar
fram í eldhúsinu, bæði heima og á
Granóla-barnum.
Ofurhetjur í eldhúsinu
Katrín og Tobba þekkjast frá því
að þær voru unglingar í Kópavogi á
þeim árum sem skittles var bannað
á Íslandi, einmitt vegna litarefna.
Mikið hefur breyst síðan þá – nema
einmitt gleðin við að borða marg-
litan mat og gúmmelaði.
Tobba segir að hingað til hafi
verið hægt að kaupa náttúrulegt
duft til að lita mat en það sé al-
mennt mjög dýrt og kaupa þurfi
marga poka til að fá grunnlitina
fjóra. „Okkur Katrínu fannst til-
valið að smella þessu saman til að
fólk gæti prófað alla litina án þess
að það kostaði fúlgu.“
„Hver vill ekki vera ofurhetja í
eldhúsinu og geta borið fram fjólu-
blátt blómkál eða blá hrísgrjón?
Það besta er að lítið sem ekkert
bragð er af duftinu svo það stuðar
ekki bragðlaukana,“ segir Katrín,
sem líkt og Tobba er móðir tveggja
stúlkna og þekkir vel „einhyrn-
ingaáhrifin“.
„Allt í lit er svo miklu meira
spennandi og um leið finnst dætr-
um okkar gaman að vita að það sé
ofurkraftur í litunum.“
„Til að toppa snilldina getur full-
orðna fólkið svo gleypt hylkin til
sér heilsubótar. Tvö gul hylki af
túrmerik eru til dæmis mjög góð
við bólgum og þrota og rauðu hylk-
in innihalda rauðrófu, sem vinnur
gegn þrek- og blóðleysi,“ segir
Tobba.
„Bomburnar komu í Bónusversl-
anir í gær og salan hefur farið
mjög vel af stað. Við vonumst til
þess að anna eftirspurn og koma
þeim í fleiri verslanir fljótlega. Það
er alveg óþarfi að drekka nokkuð
annað en regnbogann í sumar,“
segir Katrín og vonar að flipparar
landsins taki Litabombunum fagn-
andi.
Litabombur
trylla landann
„Lífið er betra í lit og það sama gildir um mat,“ seg-
ir Tobba Marinósdóttir, athafnakona og eigandi
Granólabarsins, þegar hún er spurð út í Litabomb-
ur – nýjasta afrek hennar og Katrínar Amni, eins
eigenda Kavita ehf., sem meðal annars framleiðir
bætiefnin frá ICEHERBS.
Hægt að lita nánast allt Hér gefur
að líta snjókarl sem var litabomb-
aður ærlega í vetur og sjaldan hefur
jafn fínn karl sést.
Fjórir litir Litabomburnar koma í
fjórum litum sem er blandað saman
í eina dollu til þess að fólk þurfi ekki
að kaupa margar einingar.
Lífsglaðar litabombur Athafnakon-
urnar Tobba Marínós og Katrín Amni.
Nú er loksins hægt að
kaupa tilbúinn íslenskan
hafragraut í boxum en hing-
að til hefur eingöngu verið
um innfluttan hafragraut að
ræða. Það er íslenski frum-
kvöðullinn, Karen Jóns-
dóttir hjá Kaja Organic,
sem stendur að framleiðsl-
unni. Karen segir að varan
hafi verið talsvert lengi í
þróun, enda vandað til verka
en vöru sem þessa hafi vant-
að. Umbúðirnar séu um-
hverfisvænar og grauturinn
að sjálfsögðu lífrænn eins og
öll hennar framleiðsla. Ein-
ungis þarf að setja sjóðandi
vatn ofan í og bíða í eina til
tvær mínútur. Hægt er að
nota jurtamjólk og geyma í
ísskáp yfir nótt.
Það gefur því augaleið að
um byltingu er að ræða fyr-
ir neytendur sem vilja huga
að hollustunni og geta gripið
sér hollan morgun- eða há-
degisverð með einföldum hætti.
Fyrirhöfnin sé nánast engin,
kolefnissporið í lágmarki og gæðin
eins og best verður á kosið. Þrjár
bragðtegundir eru í boði. Graut-
urinn inniheldur hvorki viðbættan
sykur né aukaefni, auk þess sem
hann er vegan.
Hafragrauturinn var frumsýndur
á matarmarkaðinum í Hagkaup
sem nú stendur sem hæst. Þar hafa
íslenskir smáframleiðendur kynnt
vörur sínar fyrir neytendum. Mikil
gróska er í frumkvöðlastarfseminni
hér á landi og eru neytendur hvatt-
ir til að leggja sín lóð á vogarskál-
arnar og styðja við innlenda frum-
kvöðlastarfsemi.
Íslenskur hafragraut-
ur kominn á markað
Hollur og fljótlegur Hafragrauturinn er
fáanlegur í þremur bragðtegundum, er
lífrænn, vegan og án allra aukaefna.