Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 47

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 47
Þegar ég horfi til baka og skoða gamlar myndir af okkur saman skín bæði gagnkvæmt traust og vinátta úr andlitunum. Vinátta sem hefur þróast og þroskast með árunum yfir í einstakt samband sem einkenndist af hreinskiptnum og góðum samskiptum. Við gátum alltaf talað um allt milli himins og jarðar hvort sem það voru stóð- hestar eða stjórnmál, það voru öll umræðuefni heimsins undir. Stundum sammála og stundum ekki. Það er í raun ekki svo langt síðan ég áttaði mig á því hvað öll þessi samtöl og þessar samveru- stundir hafa mótað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er. Flestar þessar minningar og samverustundir sem við áttum saman voru í hesthúsinu eða á hestbaki. Með þér steig ég mín allra fyrstu skref í hestamennsku og var hvorki stór né gömul. Fyrst um sinn í taumi en fljótlega gafstu mér tækifæri til að prófa mig áfram og eflast sem reiðmann. Ég man eftir stoltinu sem ég fylltist við að fá að prófa nýja og meiri hesta og þeirri tilfinningu að ég væri fullfær um að ráða við verk- efnið. Aldrei fann ég fyrir óöryggi eða hræðslu af því ég vissi að þú varst með mér. 5 ára mér fannst ég algjörlega ósigrandi og ég gat ekki ímyndað mér neina hesta sem ég ekki gæti riðið. Það er ómetanlegt að finna að einhver hafi óbilandi trú á manni eins og þú hafðir á mér og með það í far- teskinu eru manni allir vegir fær- ir. Þín hvatning og stuðningur hef- ur oft fleytt mér langt. Það má segja að það hafi verið táknrænt að eftir erfiðan og lang- an vetur þar sem heilsu þinni hrakaði smátt og smátt kom svo vorið með sólargeislum og fugl- söng og sótti þig. Vorið var einmitt besti tíminn sem við áttum saman. Þá voru hestarnir komnir í betra form og við gátum farið í lengri reiðtúra og áð við lækinn. Þar kenndir þú mér að þekkja fuglana og leita eftir hreiðrum. Í öllum hestaferðunum þar sem þú sýndir mér hvernig væri best að lesa landið, finna bestu leiðirnar og finna réttu vöð- in yfir árnar. Þú smitaðir mig snemma af því að bera virðingu fyrir bæði náttúrunni og dýrum og að þekkja mikilvægi þess menn- ingararfs sem færist á milli kyn- slóða með hvoru tveggja. Þó að það sé erfitt að kveðja þá get ég ekki annað en verið þakklát fyrir allar þær dýrmætu og góðu minningar með við höfum skapað saman. Þeim gleymi ég aldrei. Einskis gæti ég óskað minni dóttur heitar en að eiga afa sem leiðir hana í gegnum lífið eins og þú leiddir mig, það eru mikil forréttindi. Elsku afi, takk fyrir allt. Ég veit þú bíður mín með hlýjan faðm þegar við hittumst næst. Freyja. Minningarnar koma upp í hug- ann nú þegar Ásgeir frændi er all- ur, föðurbróðir okkar og vinur í áratugi. Bernskuminningarnar eru frá Herjólfsgötunni hjá ömmu og afa og fjölskyldum systkinanna, pabba, Nínu, Sirrý og Geira, jóla- og fjölskylduveislur. Ásgeir glæsi- legur ungur maður með Mæju sinni og og ungum börnum, Simma, Gumma, Þóru og síðan Ágeiri. Seinna urðu fjölskylduboð- in á heimilum pabba og systkina hans og var alltaf spenningur að mæta í Hrauntunguna til Mæju og Geira, glæsilegt heimili þeirra hjóna. Þarna fann maður strax að Ásgeir hugsaði vel um fjölskyldu sína, einbeittur í sínu starfi og kominn með sitt eigið trésmíða- verkstæði á Eiríksgötunni, mjór er mikils vísir, trésmíðaverkstæð- ið varð að húsgagnaverksmiðju. Fyrst byggði hann í Auðbrekk- unni, síðan á Skemmuveginum. Að lokum byggði hann glæsilega og fullkomna verksmiðju í Bæjar- lindinni þar sem fjölskyldufyrir- tæki hans starfar enn 66 árum eft- ir að starfsemin hófst á Eiríksgötunni. Þeir bræður Ásgeir og pabbi voru ágætis vinir og studdu hvor annan, pabbi byggingarmeistar- inn sem aðstoðaði litla bróður hér á árum áður við byggingu húsanna í Hrauntungunni, Auð- brekkunni og Skemmuveginum. Seinna þegar pabbi hrasaði á lífs- leiðinni voru Ásgeir og Mæja hon- um stoð og stytta, kærar þakkir, elsku frændi. Við erum strax farnir að sakna samverustundanna sem við áttum í gegnum árin með Geira, aðallega í Bæjarlindinni þar sem málin voru rædd í kjölinn, skipst á skoð- unum, pólitík, fyrirtækjarekstur, fjölskyldumál og annað sem snert- ir lífið og tilveruna. Menn oft á tíð- um með sterkar skoðanir, stríðni inn á milli, kannski hækkaður rómurinn en alltaf voru kveðju- stundirnar hlýjar. Það er með virðingu, hlýju og góðum minningum sem við bræð- ur kveðjum elskulegan frænda, hvíl í friði. Viðar Halldórsson Jón Rúnar Halldórsson. Að hafa fengið að alast upp í Hrauntungunni í Kópavogi á seinni hluta síðustu aldar finnst mér í dag hafa verið forréttindi. Kópavogurinn var að byggjast upp og í götunni voru ungir for- eldrar með mörg börn. Gatan iðaði af lífi og í hverju húsi var einhver til að leika við. Í húsi númer 18 við Hrauntunguna bjó frábær fjöl- skylda og dóttirin á því heimili varð fljótlega mín besta vinkona. En það var ekki bara það, milli hjónanna sem þar bjuggu, þeirra Ásgeirs og Mæju, og foreldra minna myndaðist góð vinátta þar sem hestamennskan tengdi þau saman. Við vorum öll félagar í Hestamannafélaginu Gusti þar sem við flest gegndum einhverj- um embættum og bárum hag fé- lagsins fyrir brjósti. Hesthús þeirra hjóna í Gusti var eins og félagsmiðstöð. Þar var alltaf glatt á hjalla og ekki skemmdi nú fyrir að þar var gjarnan heimsins besta hjóna- bandssæla á borðum sem Mæja galdraði fram af alkunnri snilld. Þangað var maður alltaf velkom- inn og þangað var gott að koma. Ásgeir var höfðinginn í húsinu. Hann átti mjög góða og fallega hesta og unun var að sjá hvað þeir voru alltaf vel hirtir. Snyrti- mennska var honum í blóð borin og birtist hún víða. Á þessum árum var mikið og fjörugt félagslíf í Gusti og flestar konur sem upplifðu að dansa við Ásgeir gleyma því ekki. Hann var afbragðs dansari og söngvari og hafði unun af slíkri list. Ég minnist einnig margra ferða á hestamannamót um landið þvert og endilangt og þá var Ásgeir hrókur alls fagnaðar. Hestaferðir um landið okkar fagra geymi ég einnig í minningakistunni hvort sem ég var með í eigin persónu eða fékk af þeim ógleymanlegar, vel kryddaðar sögur. Ásgeir og Mæja áttu unaðsreit í Borgarfirðinum þar sem ættir Mæju lágu. Þangað var gott að koma. Hjónin hreiðruðu um sig af miklum myndarskap og smekk- legheitum svo eftir var tekið og þar naut fjölskyldan öll góðra samverustunda í fögru umhverfi. Það er skrítin tilhugsun að vita að nú eru foreldrar okkar vin- kvennanna öll horfin í Sumarland- ið. Þóra mín var mikil pabbastelpa og tengingin milli þeirra mjög sterk. Ásgeir eignaðist líka góðan vin í Valda tengdasyni sínum og brölluðu þeir margt saman. Það var líka fallegt að sjá sambandið milli dætra Þóru og Valda og afa þeirra. Þar ríkti svo greinilega mikil væntumþykja og virðing. Elsku Simmi, Gummi, Þóra, Geiri og fjölskyldan öll. Við Har- aldur vottum ykkur okkar innileg- ustu samúð og þökkum góðum dreng fyrir vinskap og góðar minningar. Góða ferð elsku Ásgeir, við biðj- um að heilsa í Sumarlandið. Anna Rós Bergsdóttir. upp gömlu góðu dagana og lýsti gömlum staðháttum fyrir okkur. Hún yfirgaf Öxnadalinn fljót- lega eftir dauða móður sinnar og horfði á Hraun og drangana fjar- lægjast þar sem hún ók í burtu. Þessi kafli ævinnar varð eftir en var þó alltaf á sínum stað. Þess vegna einbeitti hún sér þeim mun meir að gleðinni og náungakær- leik þegar hún hóf nýtt líf inni á Akureyri. Strax barn að aldri dáði ég mjög þessa fallegu Töntu mína. Símameyna glöðu. Hún var bæði smart og glæsileg og vakti alls staðar aðdáun. Ég ætlaði aldeilis að verða eins og hún. Hún var mjög sjálfstæð, viljasterk og hvers manns hugljúfi. Naut frels- is sem talsímavörður á símstöð- inni og var ógift fram á miðjan aldur. Rödd hennar var þekkt landshornanna á milli. „Lilla á símanum“. Það vissu allir hver það var. Símastúlkurnar fóru gjarnan í góðu veðri í bústað í Vaglaskógi á vegum Símans. Það kom fyrir að hún tók mig með til að hressa barnið við, þetta sérlundaða og ómannblendna barn. Þarna fann ég, mitt í glaðværð þessara ungu símakvenna, einstaka tengingu við náttúruna, naut verndar og sérstæðrar birtu skógarins. Hljóðheimur hans var magnaðri en ég hafði áður kynnst. Þetta var upplifun og lærdómur sem hefur nært mig alla tíð síðan. Fyrir það er ég Töntu óend- anlega þakklát. Kristín Jóhannesdóttir. Bognar aldrei brotnar í bylnum stóra seinast. (St. G. St.) Þessar ljóðlínur komu upp í hugann við andlát vinkonu minn- ar Jóhönnu Elíasar eða Lillu eins og hún var alltaf kölluð. Ég sá hana fyrst í veislu hjá frændfólki hennar fyrir margt löngu og varð bókstaflega heilluð af þessari flottu konu sem sagði svo skemmtilega frá ferðum sín- um til útlanda, hafði nýverið farið til Ítalíu og alla leið til Róma- borgar. Mig langaði svo til að verða vinkona þessarar heims- konu, en hvernig mátti það verða, ég nýfermdur stelpugopi og hafði bara einu sinni komið til Reykja- víkur! En svo liðu árin og við Lilla urðum vinkonur og fórum meira að segja saman til útlanda og margar ferðir innanlands. Lilla var höfðingi heim að sækja og naut þess að hafa gesti og veita vel í mat og drykk, enda gestkvæmt á heimili hennar. Það var ótrúlegt hvað hún var dugleg að sjá um sig þrátt fyrir mikil veikindi. Að lokum vil ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þessari skemmtilegu og góðu konu sem lífgaði svo sannarlega upp á til- veruna. Margrét Rögnvaldsdóttir. Ég var 14 ára á leiðinni til Ak- ureyrar til þess að spila og æfa í nokkra daga. Lilla hafði boðið mér að vera hjá sér. Með smá- vegis kvíðahnút í maganum mætti ég í Höfðahlíðina þar sem mér var tekið opnum örmum og þarna eignaðist ég eina af mínum bestu vinkonum og fyrirmynd- um. Þrátt fyrir 57 ára aldursmun gátum við spjallað endalaust um allt og ekkert. Þegar ég var við nám í Menntaskólanum á Akur- eyri var ég reglulega boðin í mat til Lillu. Hún sótti mig á bílnum sínum sem ég kallaði konfektmol- ann og við hossuðumst um götur bæjarins. Ég reyndi að endur- gjalda matarboðin eftir að ég var komin með aðstöðu til og bauð í ofsoðið pasta eða gúmmíkennt gúllas sem alltaf var það besta sem Lilla hafði smakkað. Bíóferð okkar á rómantíska gamanmynd er eftirminnileg, ekki myndin sjálf, heldur sú staðreynd að við sváfum báðar stóran part mynd- arinnar og hlógum svo að því að vita lítið sem ekkert um sögu- þráðinn þegar heim var haldið. Lilla tengdist okkur sterkum fjölskylduböndum, bæði mér, Hjalta og börnunum okkar en líka mömmu, pabba, bræðrum mínum og fjölskyldunni allri. Hún gaf mikið af sér og hafði svo fallega lífssýn að fólk dróst að henni. Eftir að ég flutti síðar aft- ur til Akureyrar eftir námsár er- lendis og eignaðist mína eigin fjölskyldu hittumst við oft og reglulega. Heimsóknir þar sem við skáluðum í sérríi, hittumst í mat eða skruppum á snyrtistofu eru dýrmætar minningar. Lilla var jákvæð, hvetjandi og lífsglöð. Hún kunni að njóta og lifði í núinu. Hún var einstakur persónuleiki sem við erum afar þakklát fyrir að hafa fengið að hafa í okkar lífi. Hvíl í friði, elsku vinkona. Takk fyrir allt. Þín Lára Sóley og fjölskylda. Í dag kveðjum við með söknuði elsku Lillu vinkonu okkar, eða Jóhönnu Rannveigu Elíasdóttir eins og hún hét fullu nafni. Hún var fædd á Hrauni í Öxnadal en fluttist þaðan til Akureyrar barn að aldri ásamt föður sínum og bróður eftir að móðir hennar dó á besta aldri. Þrátt fyrir áföll var Lilla glaðlynd og naut sín vel í góðra vina hópi. Hennar starfs- ævi var lengst af hjá Símanum, eða í um 40 ár. Þessa tíma minnt- ist hún með mikilli gleði og eign- aðist í gegnum starfið marga góða vini. Lilla giftist Vigni Ársælssyni, föðurbróður Jóa, en hann lést 20. maí 1979. Allra heimsókna okkar í Höfðahlíðina minnumst við með gleði og þakklæti, hvort sem var að Jói fékk að gista hjá þeim hjónum, þegar hann ungur var að hefja sína togarasjómennsku hjá ÚA, eða síðar þegar við fengum inni hjá Lillu fyrir dóttur okkar Láru Sóleyju er hún aðeins ung- lingur fór að spila með Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands. Frá þessum tíma varð Lilla ein af fjöl- skyldunni og tók þátt í okkar gleði- og sorgarstundum. Við minnumst Lillu ásamt börnum okkar, tengdabörnum og barna- börnum fyrir vináttu og tryggð og allar skemmtilegu samveru- stundirnar sem við áttum með henni á Akureyri og Húsavík. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kær kveðja, Hulda og Jóhann. ✝ Jóhanna Elías- dóttir, fyrrver- andi talsímavarð- stjóri á Akureyri fæddist 22. janúar 1925 á Hrauni í Öxnadal. Hún lést 3. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Róslín Berghildur Jó- hannesdóttir, f. á Hrauni í Öxnadal 24. febrúar 1897, d. 28. janúar 1935, og Elías Tómasson, bóndi á Hrauni í Öxnadal og síðar bankafulltrúi á Akureyri, f. á Steinsstöðum í Öxnadal 3. apríl 1894, d. 8. sept- ember 1971. Bróðir hennar var Jóhannes Elí- asson, lögmaður og síðar banka- stjóri, f. á Hrauni í Öxnadal 19. maí 1920, d. 17. mars 1975. Jóhanna var gift Vigni Ársælssyni, sölufulltrúa, f. 23. febrúar 1924, d. 20. maí 1979. Þau voru barnlaus. Útförin fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 19. maí 2022, klukkan 13. Elsku Lilla. Takk fyrir alla þína hlýju og umvefjandi framkomu okkur til handa alla tíð. Pabbi átti góða daga með þér, fyrir það erum við ævinlega þakklát. Hvíl í friði. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Ársæll og Ásdís Vignisbörn og fjölskyldur. Tanta frænka mín var ávallt höfðingi heim að sækja. Enda bjó hún í Höfðahlíð á Akureyri. Það var alltaf gríðarlega gott að koma í heimsókn til hennar norður, enda var meiri gestgjafa erfitt að finna. Það var heitt á könnunni frá morgni til kvölds og fyrir utan það náði hún alltaf að taka til margrétta máltíð við hvaða tilefni sem er og skipti þá litlu hvort maður hefði nýborðað. „Þú hefur ekkert borðað“ sagði hún reglu- lega þegar maður skoraðist und- an ábót sem dugði oftast lítið. Hún var vinmörg, elskaði að hitta fólk, fá heimsóknir og var einstök stemningsmanneskja. Það var því auðvitað erfitt fyrir hana þegar takmarkanir voru settar á samkomur. En við vorum dugleg að tala saman í síma, ég og gamli talsímavörðurinn. Við gátum talað lengi saman um allt og ekkert. En alltaf eitthvað um veðrið. Ég hef verið mjög meðvit- aður um veðuraðstæður á Akur- eyri um langt skeið. Það sem ein- kenndi hana kannski helst í þessum samtölum var hversu einlæglega hún samgladdist öðr- um. Henni fannst alltaf jafngam- an þegar ég sagði henni frá áætl- unum um veislur eða ferðalög sem voru fram undan. Hún stimplaði þetta allt inn og rifjaði upp síðar og spurði mann betur út í plönin. Þrátt fyrir háan aldur hélt hún alltaf gleðinni og jákvæðninni. Hún kenndi mér það að lykillinn að lífshamingjunni og lífsviljan- um er jákvæðni, að horfa jákvætt á hlutina sama hvernig viðrar. Jóhannes Páll Sigurðarson Elsku Tanta frænka. Nú ert þú komin í Sumarland- ið, og er þá margs að minnast. Ég minnist þess sérstaklega þegar ég var lítil og fór með þér á símstöðina þar sem þú vannst. Skildi ekkert í öllum þessum snúrum og tökkum sem þú varst að vinna með og hvernig þú fórst að því að vita hvert þessar snúrur áttu að fara. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur á Akur- eyri. Við hittumst á hverju ári í Höfðahlíðinni og eyddum tímum saman. Það var svo gaman að vera hjá þér og fara með þér í ferðir. Þú varst svo minnug á allt, vissir nöfn á bæjum, jafnvel þeim sem komnir voru í eyði. Öll gömlu húsin á Akureyri þekktir þú, mundir nöfnin á þeim flestum og hverjir áttu heima þar áður fyrr. Við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér og kveðjum með sökn- uði. Róslín og Birgir. Jóhanna, eða Tanta eins og við bróðurbörnin kölluðum hana, var elskuð og dáð af öllum sem kynntust henni. Það var viðhorf sem skapaðist einfaldlega af því að hún sjálf bjó yfir takmarkalausum kærleik og örlæti til allra. Slíkt skilar sér alltaf til baka. Á heimili hennar voru miklar gestakomur og alltaf var heitt á könnunni. Stundum, ef tilefni þótti til, var sérríið dregið fram og skálað „til lífs og gleði“. Það voru kjörorð Töntu. Hún náði 97 ára aldri og var alltaf jafn glaðlynd og mann- blendin. Stuttu fyrir andlátið sá hún sig tilneydda til að flytja úr íbúð sinni inn á öldrunarheimilið Lögmannshlíð á Akureyri. Þar höfðu menn ekki orðið vitni að öðrum eins vinsældum og gesta- komum og voru til hennar þann tíma sem hún átti eftir. Það var ekki augljóst að konu með hennar erfiðu lífsreynslu tækist að rækta þetta viðhorf lífs- fagnaðar. Hún varð snemma sem barn fyrir miklu áfalli þegar hún missti móður sína. Hún fæddist á Hrauni í Öxnadal í gamla torf- bænum. Hún var fimm árum yngri en bróðir hennar, Jóhann- es. Þau voru bæði stolt af því að hafa fæðst í sama herbergi og Jónas Hallgrímsson. Dag einn, þegar systkinin biðu í eldhúsinu á meðan móðir þeirra útbjó matarpakka fyrir heimilis- fólk úti á engjum, féll Róslín, móðir þeirra, skyndilega örend í gólfið. Börnin gripu þá til þess ráðs að skvetta framan í hana vatni. Þetta höfðu þau heyrt að væri gott ráð þegar liði yfir kon- ur. Þegar fólk kom heim af engj- um var allt á floti í eldhúsinu og börnin í djúpu áfalli. Þegar ég og sonur minn, Jó- hannes Páll, fórum eitt sinn í ferð með Töntu að Hrauni, sem var þá komin yfir nírætt, trúði hún okkur fyrir því að hún væri í fyrsta sinn að treysta sér til að fara upp að bænum. Það var henni mikilvægt skref og hún naut þess að rifja Jóhanna Rannveig Elíasdóttir MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.