Morgunblaðið - 19.05.2022, Síða 49

Morgunblaðið - 19.05.2022, Síða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 ✝ Már fæddist í Hveragerði 19. september 1944. Hann lést 6. maí 2022. Foreldrar hans voru Paul V. Mich- elsen, f. 17. júlí 1917, d. 26. maí 1995, og Sigríður Ragnarsdóttir Mic- helsen, f. 14. júní 1916, d. 7. júní 1988. Hann átti tvo bræður, Jörgen Frank Michelsen, f. 10. nóv. 1941, d. 25. mars 1998, og Ragn- ar Hafstein Michelsen, f. 2. júlí 1943, d. 25. júlí 2012. Már kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Þorvaldsdóttur frá Vest- mannaeyjum, 19. september 1963. Börn Más og Önnu eru: 1) Páll Michelsen bakari, f. 1. júní 1963. Kvænt- ur Leu Michelsen. Þau eiga þrjú börn: Evu Rún, Axel Ni- colai og Láru Dawn. 2) Sigríður Ingifríð Michelsen, f. 12. ágúst 1964. Maki Svanur Örn Tómasson. Þau eiga fjögur börn: Ragnar Má, Hreiðar Örn, Aron Inga og Birtu Dögg. Barnabörn þeirra eru 14. 3) Örvar Már Michelsen bakari, f. 3. júlí 1973. Kvæntur Dögg Matthíasdóttur. Börn þeirra eru tvö: Breki Hjörvar og Tara. Útför Más verður gerð frá Þorlákskirkju í dag, 19. maí 2022, kl. 13. Elsku pabbi. Guð gefur og guð tekur. Margar á ég minningar um pabba minn, stuttar, langar, skemmtilegar og svo hundleiðin- legar. Minningar af ferðalögum saman, innan sem utan lands. Börnin mín höfðu mikið gaman af afa sínum sem endalaust gat strítt þeim og þau honum á móti, en í mínum eyrum var þetta oft hávaði og já þið vitið… Þegar við systkinin vorum lítil var farið í hringferð um landið og gist í tjaldi hér og þar. Galtalækur var paradís fyrir alla krakka og foreldra, þangað var farið oft, ég veit ekki hvort pabbi hafi skemmt sér eins vel og við en hann fór með okkur. Minningar mínar um pabba eru að hann vann mikið, var mikið í bílskúrnum að gera við bíla svo tók golfáhuginn við allar helgar. Má kannski segja að ég hafi kynnst pabbi upp á nýtt þegar ég eignaðist börn. Hann hafði tíma sem „afi“ til að kenna þeim hitt og þetta sem þau nýta sé vel. Já, þessir afar eru allt aðrir menn en pabbar. Margar stundir við vinnu í bak- aríinu eða á hátíðisdögum vörðum við pabbi saman, ekki gátum við verið sammála með allt og það komu stundir þar sem pabbi talaði bara ekki við mig svo mánuðum skiptir en svo bara allt í einu sat hann fyrir framan mig og talaði um daginn og veginn. Kannski hef ég bara verið erfið dóttir og skildi ekki hvað hann var mikil „karl- remba“, fínna orð yfir að vera af gamla skólanum. Pabbi var vinamargur og hafði mjög gaman af því að vera í alls konar nefndum og ráðum og var hann í essinu sínu þegar þurfti að safna styrkjum eða öðru fyrir hans félög. Pabbi var stríðinn með eindæm- um og átti það til að hrekkja mig í síma. Eitt skiptið auglýsi ég bíl til sölu og pabbi hringdi og bullaði í mér og fannst hann rosa fyndinn, svo hringdi síminn og það var mað- ur að bjóða mér hest og eitthvað fleira í skiptum fyrir bílinn, en þar sem ég var alveg viss um að þetta væri pabbi svaraði ég eftir því í símann „ég borða ekki hrossakjöt og hef ekkert að gera við mótor- hjól“. Eftir smá þögn heyrðist í manninum í símanum, „heyrðu góða, þetta er eðalhestur og ekki til áts“. Það tók mig smá tíma að róa manninn og biðja afsökunar, svona gat pabbi hrekkt mig endalaust og hafði mjög gaman af. Mér skilst að ég hafi erft þennan skemmtilega hæfileika, að stríða. Vegna veikinda síðustu ár var hann orðinn þreyttur og hvíldinni feginn. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Sigríður Ingifríð Michelsen Látinn er í Þorlákshöfn gamall vinur minn, Georg Már Michel- sen, eða Mási bakari, eins og við kölluðum hann oftast. Mig langar að minnast hans með nokkrum orðum. Við Már kynntumst fljót- lega eftir að við hjónin fluttumst til Þorlákshafnar á árinu 1996. Már rak þá sitt bakarí á Unubakk- anum en flutti það síðar á Selvogs- brautina og var alltaf gott að koma í bakaríið til hans. Kynni okkar Más tengdust golfi og sameigin- legum áhuga okkar á því að koma upp aðstöðu og stofna golfklúbb í Þorlákshöfn. Þannig hagaði til að ég og nokkrir félagar mínir höfð- um áhuga á að stofna golfklúbb en höfðum fæstir nokkra reynslu af golfi eða rekstri golfklúbba. Við vissum að Már, sem áður hafði bú- ið í Hveragerði, var vanur kylfing- ur og þekkti vel til margra sem þá voru í fararbroddi golfhreyfingar- innar á Íslandi. Það var síðan í maí 1997 að boð- að var til stofnfundar Golfklúbbs Þorlákshafnar í gömlu góðu Dugg- unni. Þar mætti 20-30 manna hóp- ur golfáhugafólks og ákváðu að stofna golfklúbb. Vandasamt var að finna menn til forystu, því flest- ir þekktu lítið til íþróttarinnar. Niðurstaðan varð sú að Már var einróma kjörinn fyrsti formaður Golfklúbbs Þorlákshafnar og við nokkrir meðreiðarsveinar með honum í stjórn. Það var gæfuspor fyrir okkur að fá Má sem formann, aðallega vegna góðra tengsla hans við golfsamfélagið og kynna hans af ýmsum einstaklingum sem síðar urðu velgjörðarmenn klúbbsins. Við byrjuðum algjörlega með tvær hendur tómar en eignuðumst fljót- lega marga velgjörðaraðila sem styrktu okkur mjög. Þessir hlutir gerðust þó ekki af sjálfu sér. Már, eins og margir aðrir, lagði mikið á sig við að koma rekstri hins ný- stofnaða Golfklúbbs á réttan kjöl. Golfklúbburinn er í dag vel rekið félag með trausta og kappsama einstaklinga í forystu. Mér fannst alltaf mjög gaman að vinna með Má. Hann var snöggur að gera upp hug sinn en við þurftum stundum að breyta þeim ákvörð- unum eftir smá íhugun. Mér er mjög minnisstætt þegar við þrír, Már, ég og Friðrik Guðmundsson, sem síðar varð formaður klúbbs- ins, fórum til Reykjavíkur til að kaupa fyrstu sláttuvél klúbbsins. Við fengum mikil sérkjör þegar Már var búinn að upplýsa sölu- manninn um hvað við værum blankir en mundum þó kaupa margar vélar af honum á næstu ár- um. Við fórum glaðir heim til Þor- lákshafnar eftir þessa ferð. Ég man að Már kom oft til mín í bank- ann og áttum við þá ánægjulegar samræður bæði um golf og allt milli himins og jarðar og fór vel á með okkur. Mér þótti vænt um þessar heimsóknir. Ég vil þakka Má fyrir góð kynni og vináttu og einnig fyrir hans heilladrjúgu störf fyrir Golfklúbb Þorlákshafnar á fyrstu árum klúbbsins. Kæra Anna, börn, tengdabörn og fjölskyldan öll, ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur um leið og ég þakka Georg Má vini mínum fyrir vináttuna og liðnar stundir og bið honum guðsbless- unar. Far í friði kæri vinur. Ægir E. Hafberg. Georg Már Michelsen ✝ Jón Hilberg Sigurðsson fæddist 17. apríl 1933 í Stykk- ishólmi. Hann lést á Hjúkrunar- og dval- arheimilinu Höfða, Akranesi, 26. apríl 2022. Foreldrar hans voru Sigurður Ólafur Lárusson, fæddur 1.11. 1895, dáinn 1.3. 1976 og Elín Kjærnested Helgadóttir, fædd 18.4.1898, dáin 25.9. 1960. Systkini hans voru Friðrik Óskar, f. 1920 og Sigríður Breið- fjörð, f. 1922. Sammæðra Þór- unn Laufey Samsonardóttir, f. 1917. Ragnheiður Júlía Wium Hilm- arsdóttir. Börn hans frá fyrra hjónabandi eru Steinunn Ósk og Sigurður Atli. 2) Elín, fædd 15. ágúst 1961, maki Hörður Hjart- arson, börn þeirra eru Andrea Hlín og Björgvin. 3) Valborg, fædd 15. ágúst 1961, maki Magni Rúnar Þorvaldsson, börn þeirra eru Elínborg, Erna Rún og Guð- jón. 4) Sævar, fæddur 3. nóv- ember 1967, maki Gerður Helga Helgadóttir, synir þeirra eru Emil Kristmann og Jón Helgi. 5) Sjöfn, fædd 3 nóvember, maki Kristján Eysteinn Harðarson, börn þeirra eru Linda Dögg, Ey- steinn Már og Magnús Þór. 6) Guðmundur Hilberg, fæddur 6. október 1969, maki Karólína Einarsdóttir, dóttir þeirra er Guðrún Emilía, synir hans úr fyrra sambandi eru Friðgeir Nökkvi, Sebastian Blær og Mika- el Máni. Langafabörnin eru 15. Útför Jóns Hilberg fór fram frá Akraneskirkju 6. maí 2022. Jón var fæddur og uppalinn í Stykkishólmi. Hann vann í vélsmiðju, húsasmíði og sem bóndi, en lengst af í Álverinu í Straums- vík. Jón kvæntist Kristjönu Emilíu Guðmundsdóttur 10. júlí 1957. Krist- jana Emilía var fædd 23. apríl 1939 í Stykk- ishólmi en ólst upp á Dröngum á Skógarströnd. Jón og Emma bjuggu fyrst á Dröngum, síðan í Kópavogi og Akranesi. Börn þeirra eru: 1) Steinar, fæddur 13. apríl 1958, maki Kær mágur og svili, Jón Hil- berg Sigurðsson, lést 26.4. 2022 aðeins tveim vikum eftir að eig- inkonan Kristjana Emilía Guð- mundsdóttir kvaddi þetta líf. Þau Nonni og Emma voru búin að tak- ast á við lífið saman síðan þau voru ungmenni og búin að vera gift í næstum 65 ár. Nonni var fæddur og uppalinn í Stykkishólmi, þar kynntust þau hjónin. Hófu búskap á Dröngum á Skógarströnd 1957 og bjuggu þar í félagsbúi við foreldra Emmu. Nonni var afar handlaginn maður og átti auðvelt með að gera við alla hluti og varð það hans hlutverk í búskapnum að gera við ýmislegt- ,sem aflaga fór. Á þeim árum sem þau bjuggu á Dröngum var bú- skapurinn að vélvæðast og kom sér vel að hafa laginn mann. Gamla bænum var breytt í verk- stæði og Skógstrendingar komu oft í heimsókn og hjálpaði Nonni þeim með viðgerðir. Á þessum ár- um var ekki búið að rafvæða Skógarströnd en Drangabúið keypti rafstöð fyrir bú og heimili, komnar voru mjaltavélar og heim- ilið komið með rafmagnstæki í heimilisstörfin. Einfaldaði það margt hvað vel lá fyrir Nonna að sjá um öll tæki og tól. Á þessum árum fór Nonni líka póstferðir í Stykkishólm og Búðardal á móti tengdaföður sínum. Drangar voru hlunnindajörð, faðir tengdaföður hans hafði keypt eyjajörðina Gjarðeyjar sem taldi u.þ.b. 20 eyj- ar, voru þær nýttar á ýmsan hátt, svo sem til beitar, heyskapar, eggja- og dúntekju. Nonni alltaf vakandi og virkur í öllu sem gera þurfti í umsvifamiklum búskap. Árið 1968 flutti fjölskyldan í Kópavoginn, fljótlega keyptu þau Nonni og Emma nýja íbúð í Lund- arbrekkunni, þá höfðu þau eignast börnin sín sex, þar af tvenna tví- bura. Nonni starfaði fyrstu árin í vélsmiðju, en fór síðar að vinna hjá Álverinu í Straumsvík og vann þar þangað til hann fór á eftirlaun. Þegar jörðin Drangar var seld var haldið eftir landi til byggingar sumarhúsa fjölskyldunnar. Þrast- arkot var hús Nonna og Emmu nefnt. Kom þá vel í ljós hve hand- laginn Nonni var og nýtinn á efni sem tiltækt var. Hann var hagur á tré og járn og m.a. smíðaði hann arna fyrir systkini Emmu. Nonni og Emma fluttu úr Lundarbrekk- unni á Borgarholtsbraut 27, þar bjuggu einnig foreldrar Emmu, mikil miðstöð fyrir alla ættingjana og alltaf gott að koma þangað. Nonni hafði góða nærveru, var mikill húmoristi og sagði skemmtilegar sögur og brandara. Emma og Nonni höfðu gaman af að ferðast og þau ferðuðust innan- lands og utan og fóru margar sól- arlandaferðir. Árið 2007 fluttu Nonni og Emma upp á Akranes, þar búa 3 börn þeirra með fjölskyldur sínar. Nonni naut þess að geta heimsótt son sinn Sævar í Blikksmiðju Guð- mundar. Síðustu árin voru þeim hjónum erfið því Emma fékk heilablæðingu og þurfti að flytjast á Höfða. Nonni var hjá henni öll- um stundum og reyndi að létta henni dagana. Heilsu hans hrak- aði síðasta ár og bjó hann líka sinn síðasta tíma á Höfða og var alltaf þakklátur fyrir allt sem var gert fyrir þau hjónin. Við fjölskyldurn- ar sendum aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur og þökkum Nonna og þeim hjónum samfylgd- ina. Ólafur, Unnsteinn, Rósa, Kristín Björk og fjölskyldur. Faðir minn Stolt ég stóð og studdist þér við hönd minn sterki faðir sem áttir líf og lönd og ljóma af æskufjöri hve glöð ég var að ganga þér við hlið í grasi mjúku út í sólskinið bjart er yfir bernsku minnar vori. (Kristjana Emilía Guðmundsdóttir) Fyrir hönd barna, tengda- barna, barnabarna og barna- barnabarna, Steinar Jónsson. Jón Hilberg Sigurðsson Elsku hjartans amma mín, það er svo sárt að missa þig þó ég viti að þú sért komin á góðan stað þar sem afi hefur tekið vel á móti þér. Þegar ég hugsa til baka streyma til mín ótal minningar, það sem ég elskaði að vera heima hjá ykkur afa og ég var þar mikið þegar ég var yngri, ég man að maður fékk að vaka aðeins lengur því það var svo mikið spilað fram eftir kvöldi og borðaðar súkku- laðirúsínur á meðan, mér fannst það æðislega gaman, líka allar Ása Guðbjörnsdóttir ✝ Ása Guðbjörns- dóttir fæddist 31. júlí 1937. Hún lést 8. apríl 2022. Útför Ásu fór fram 29. apríl 2022. þær ferðir og ævin- týrin í klettabæ, þar var notið til hins ýtr- asta að leika og spila og samverunnar saman og svo mætti lengi telja. Ég man líka hvað ég var dekruð út í eitt og á eftir að sakna þess mikið því þú vildir allt gott fyrir mig gera, elsku amma. Við vorum nánar og góðar vinkon- ur og ég gat alltaf talað við þig um allt og leitað til þín hvenær sem er og verð ævinlega þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Elsku hjartans amma mín, ég kveð þig með sorg og gleði í hjarta og þín verður sárt saknað. Þitt barnabarn, Hildur María Vilhjálmsdóttir. Kveðja frá Íþrótta- og ól- ympíusambandi Íslands Benedikt Geirsson kom víða við í íþróttahreyfingunni og var kjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ árið 1997 þegar Íþrótta- samband Íslands og Ólympíu- nefnd Íslands voru sameinuð í Íþrótta- og ólympíusamband Íslands eins og sambandið heit- ir í dag. Þar sat hann í stjórn til ársins 2006 og var í mik- ilvægum embættum sem for- maður afrekssviðs ÍSÍ og sem ritari stjórnar. Benedikt kom þannig að mótun nýrra heildar- samtaka þar sem horfa þurfti til þess fjölbreytileika sem íþróttirnar standa fyrir. Benedikt starfaði alla tíð öt- ullega að framgangi skíða- íþrótta, bæði á vegum skíða- deildar Fram, Skíðaráðs Reykjavíkur og sem formaður Skíðasambands Íslands. Bene- dikt var sæmdur Gullmerki ÍSÍ árið 1996, Heiðurskrossi ÍSÍ árið 2008 og á Íþróttaþingi ÍSÍ 2015 var Benedikt kjörinn heið- ursfélagi ÍSÍ, en þá viðurkenn- ingu hljóta einungis þeir sem starfað hafa ötullega og af hug- sjón innan vébanda íþrótta- hreyfingarinnar um langt ára- bil. Benedikt var tíður gestur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og mætti vel á þá viðburði sem heiðursfélögum ÍSÍ var boðið til og hafði áhuga á því starfi sem fram fór á vegum sam- Benedikt Geirsson ✝ Benedikt Geirsson fædd- ist 12. september 1953. Hann lést 6. maí 2022. Útför hans fór fram 18. maí 2022. bandsins. Þrátt fyrir að veikindin væru sýnilega farin að leggjast þungt á hann í apríl síðast- liðnum þá mætti hann á afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks sér- sambanda ÍSÍ og bar stoltur Heiður- skross ÍSÍ við það tilefni. Þrátt fyrir að vitað væri að hann glímdi við erfið veikindi þá var fráfall hans bæði óvænt og ótímabært. Að leiðarlokum standa eftir minningar um glæsilegan full- trúa hreyfingarinnar, sem lagði mikið af mörkum til íþrótta- hreyfingarinnar, á öllum stig- um hennar, þessarar stærstu sjálfboðaliðahreyfingar á Ís- landi. Stjórn og starfsfólk ÍSÍ kveður Benedikt með þakklæti í huga fyrir áratuga vináttu og frábær störf í þágu íþrótta- hreyfingarinnar á Íslandi. Eig- inkonu hans, fjölskyldu og að- standendum öllum sendum við dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Bene- dikts Geirssonar. Lárus L. Blöndal forseti. Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, ANDRÉSAR SIGURÐSSONAR, Álalind 14, áður Hrauntungu 49. Jensína Þórarinsdóttir Þórarinn Hólm Andrésson Rósa Bergmann Jónsdóttir Sigríður Andrésdóttir Linda Andrésdóttir Hafsteinn Björgvinsson Þorsteinn Andrésson Naluemon Seesan barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.