Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Úrslitin í ensku úrvalsdeild-
inni ráðast um helgina þegar Liv-
erpool fær Wolves í heimsókn á
Anfield í Liverpool og Manchest-
er City tekur á móti Aston Villa á
Etihad-vellinum í Manchester.
Bæði Jürgen Klopp, stjóri
Liverpool, og Pep Guardiola,
stjóri City, hafa kvartað yfir
leikjaálaginu á Englandi und-
anfarin ár.
Liverpool varð enskur bik-
armeistari um síðustu helgi en
eins og James Milner, miðjumað-
ur Liverpool, kom réttilega inn á í
viðtali við fjölmiðla eftir leik
gafst ekkert sérstaklega mikill
tími til þess að fagna bikarsigr-
inum.
Milner fékk sér reyndar eina
ískalda kók í rútunni á leiðinni
heim af Wembley-leikvanginum
og svo var bara farið beint í það
að undirbúa sig fyrir leikinn gegn
Southampton sem fram fór á
þriðjudaginn síðasta.
Sem stuðningsmaður Liv-
erpool vonast maður auðvitað
eftir einhvers konar kraftaverki á
sunnudaginn. Steven Gerrard,
fyrrverandi fyrirliði Liverpool,
stýrir í dag Aston Villa og Phil-
ippe Coutinho, sem var á meðal
vinsælustu leikmanna Liverpool
á meðan hann lék með liðinu, er í
stóru hlutverki hjá Villa-
mönnum.
Stuðningsmenn Liverpool
bindur miklar vonir við að þeir
tveir geti gert gæfumuninn í bar-
áttunni um Englandsmeistaratit-
ilinn og auðvitað er ákveðin róm-
antík fólgin í því líka að þeir geti
hjálpað gamla félaginu sínu að
landa þeim stóra.
Fyrir mér hefur Jürgen Klopp
unnið kraftaverk með Liverpool-
liðið og takist honum að landa
þessari svokölluðu fernu á næstu
dögum myndi ég bara láta af
störfum og láta reisa gullstyttu
af mér fyrir utan Anfield.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Á HLÍÐARENDA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Valsmenn eru Íslandsmeistarar
karla í körfuknattleik í fyrsta skipti í
39 ár eftir sigur á Tindastóli, 73:60, í
oddaleik liðanna á Hlíðarenda í gær-
kvöld.
Þar með lauk mögnuðu einvígi lið-
anna með 3:2 sigri Vals og Tinda-
stólsmenn urðu að sætta sig við að
tapa í úrslitum Íslandsmótsins í
fjórða skipti í sögunni og þurfa enn
að bíða eftir því að geta komið með
Íslandsbikarinn eftirsótta í Skaga-
fjörðinn.
Í þriðja leikhluta og í upphafi þess
fjórða fengu bæði liðin fullt af tæki-
færum til að skora sem ekki nýttust.
Bæði liðin spiluðu reyndar mjög öfl-
uga vörn sem spilaði þar inn í sem og
taugaspennan sem fylgir leikjum þar
sem allt tímabilið er undir. Stólarnir
geta horft til þessa kafla í leiknum.
Við höfum séð þetta áður í spennu-
þrungnum úrslitaleikjum. Þetta eru
sjaldan leikir þar sem menn sýna lip-
urlegustu tilþrifin en menn fá tæki-
færi til að sýna úr hverju þeir eru
gerðir. Hverjir þola spennuna og
geta haldið einbeitingu. Skagfirð-
ingar hittu illa í síðari hálfleik og þar
spilar spennustigið inn í sem og öflug
vörn Vals.
Þú gerir ekki rassgat einn, sagði
bolvíski tónlistarmaðurinn Mugison
einhvern tíma. Það sýndi sig hjá Ís-
landsmeistaraliði Vals. Árangur liðs-
ins snýst ekki um einn stjörnuleik-
mann eða tvo. Sigursæll þjálfari,
leiðtogi eins og Pavel, íslenskir lands-
liðsmenn og öflugir erlendir leik-
menn, líflegir stuðningsmenn, stjórn-
armenn með metnaðarfulla sýn og
sterk fjárhagsleg staða. Allt hjálpast
þetta að og tæplega fjögurra áratuga
bið er lokið.
Atlagan hófst með Pavel
Þegar Valur fékk Pavel Ermol-
inskij til félagsins sumarið 2019 sendi
það sterk skilaboð um að mönnum
væri alvara að gera atlögu að titlinum
sem ekki hafði unnist síðan 1983.
Koma Pavels var upphafið að meiru.
Í samkomubanni síðla vetrar 2020
urðu viss vatnaskil þegar Valur réði
Finn Frey Stefánsson sem þjálfara.
Mann sem hafði gert KR að Íslands-
meisturum fimm ár í röð.
Finnur var kominn til Danmerkur
í þjálfun en flutti heim vegna heims-
faraldursins og atburðarásin því til-
viljunarkennd. Með tilkomu Finns
varð ákvörðunin um að skipta úr KR
yfir Val vafalítið örlítið auðveldari
fyrir Jón Arnór Stefánsson og Krist-
ófer Acox sem síðar gengu til liðs við
Val.
Valsmenn hafa á margan hátt ver-
ið snjallir í því að velja leikmenn.
Ekki er nóg að sækja leikmenn,
menn þurfa að sækja réttu leikmenn-
ina. Kári Jónsson hafði verið frábær
hér heima með Haukum og því lá al-
veg fyrir að hann kann vel við sig í
mikilvægum leikjum. Hjálmar Stef-
ánsson hafði reynslu af úrslitarimmu
með Haukum eins og Kári. Hann er
mjög vanmetinn en einn besti varn-
armaður deildarinnar en var síðan í
aðalhlutverki í sóknarleiknum í gær-
kvöld og skoraði hvorki fleiri né færri
en 24 stig. Kristófer Acox var næstur
með 13..
Eins og stundum hefur áður sést
þá skiptir ekki mestu máli að ná sér á
strik í deildakeppninni. Valsmenn
fundu taktinn fyrir alvöru á réttum
tíma og unnu fyrstu sjö leikina í úr-
slitakeppninni. Töpuðu ekki fyrr en í
öðrum leik gegn Tindastóli.
Stigvaxandi stemning
Ekki er hægt að láta hjá líða að
minnast á stemninguna í úr-
slitarimmunni og umtalið í kringum
leikina. Vinsældir úrslitakeppninnar í
körfunni hafa farið stigvaxandi í
nokkuð mörg ár og mun ekki minnka
á meðan liðin í deildinni eru jafn
sterk og raun ber vitni. Skagfirðingar
settu sinn svip á leikina en Valsmenn
tóku einnig vel við sér og voru að mér
sýndist töluvert hressari en í úr-
slitakeppninni í fyrra. Miðar á leikina
hafa fuðrað upp í forsölu og langar
biðraðir að hætti Breta voru fyrir ut-
an íþróttahúsin löngu áður en leik-
irnir áttu að hefjast.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslandsmeistarar Stuðningsfólk Vals fagnar sínum mönnum á lokakafla leiksins á Hlíðarenda í gærkvöld en neðst til vinstri má sjá þjálfarann sigursæla,
Finn Frey Stefánsson, sem nú hefur unnið sex Íslandsmeistaratitla í karlaflokki, fimm með KR og nú sinn fyrsta með Val.
Langri bið Vals lokið
- Valsmenn eru Íslandsmeistarar karla í körfuknattleik í fyrsta sinn síðan árið
1983 eftir sigur á Tindastóli í oddaleiknum á Hlíðarenda í gærkvöld
Miami Heat fer vel af stað gegn
Boston Celtics í úrslitaeinvígi Aust-
urdeildarinnar í NBA-körfubolt-
anum í Bandaríkjunum. Miami
fagnaði 118:107-heimasigri í fyrsta
leik einvígisins í fyrrinótt.
Jimmy Butler spilaði afar vel fyr-
ir Miami og skoraði 41 stig og tók
níu fráköst. Var Butler yfirburða-
maður hjá Miami því Tyler Herro
kom næstur með 18 stig.
Jayson Tatum skoraði 29 stig og
tók átta fráköst fyrir Boston og
Jaylen Brown skoraði 24 stig og
tók 10 fráköst.
Miami vann
fyrsta leikinn
AFP/Michael Reaves
Aðalmenn Jimmy Butler og Jayson
Tatum voru stigahæstir.
Einvígi Vals og ÍBV um Íslands-
meistaratitil karla í handknattleik
hefst í kvöld með fyrstu viðureign
liðanna á Hlíðarenda en flautað
verður til leiks klukkan 19.30.
Valsmenn eru deildarmeistarar
og unnu alla fimm leiki sína gegn
Fram og Selfossi í úrslitakeppninni.
ÍBV endaði í þriðja sæti í vetur
og vann fimm af sex leikjum sínum
gegn Stjörnunni og Haukum.
Liðin leika á sunnudag í Eyjum
og næsta miðvikudag á Hlíðarenda
en þrjá sigra þarf til að verða Ís-
landsmeistari.
Fyrsti úrslita-
leikurinn í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Mætast Fyrsta viðureign Vals og
ÍBV af fimm mögulegum.
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Aalborg – Veszprém ........................... 37:35
- Aron Pálmarsson meiddist í upphitun og
kom ekkert við sögu hjá Aalborg. Arnór
Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.
_ Veszprém áfram, 71:66 samanlagt.
Kielce – Montpellier............................ 30:22
- Haukur Þrastarson skoraði eitt mark
fyrir Kielce en Sigvaldi Björn Guðjónsson
er meiddur. Ólafur Guðmundsson lék ekki
með Montpellier vegna meiðsla.
_ Kielce áfram, 61:50 samanlagt.
Þýskaland
Leverkusen – Zwickau ....................... 25:24
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 6
mörk fyrir Sachsen Zwickau sem er neðst
fyrir lokaumferðina en gæti bjargað sér yf-
ir í umspilssæti með sigri.
B-deild:
Grosswallstadt – Emsdetten.............. 35:26
- Anton Rúnarsson og Örn Vésteinsson
skoruðu ekki fyrir Emsdetten sem er næst-
neðst þegar fimm leikir eru eftir, fimm
stigum frá því að komast úr fallsæti.
Bietigheim – Coburg........................... 29:29
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði ekki fyr-
ir Coburg sem er í 12. sæti af 20 liðum.
Noregur
Undanúrslit, þriðji leikur:
Elverum – Nærbö ................................ 40:28
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði 2 mörk
fyrir Elverum en Aron Dagur Pálsson ekk-
ert. Elverum vann 3:0 og mætir Arendal
eða Drammen í úrslitaeinvíginu.
Sviss
Annar úrslitaleikur:
Spono Eagles – Zug............................. 37:28
- Harpa Rut Jónsdóttir lék ekki með Zug.
Staðan í einvíginu er 1:1 en þrjá sigra þarf
til að verða meistari.
%$.62)0-#