Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi viðurkenning skiptir mig
mjög miklu máli,“ segir Haukur
Ingvarsson, sem í gær hlaut Maí-
stjörnuna 2021, ljóðabókaverðlaun
Rithöfundasambands Íslands og
Landsbókasafns Íslands – Háskóla-
bókasafns, fyrir bók sína Menn sem
elska menn. Haukur segist deila því
með öðrum að finnast gott að fá
klapp á bakið og hljóta hvatningar-
orð. Haukur hlýtur 350 þúsund
krónur að launum og því liggur
beint við að spyrja hvort hann sé
búinn að ákveða í hvað hann ætli að
nýta verðlaunaféð. „Ég vildi óska að
ég gæti sagt að þeir peningar færu í
eitthvað skemmtilegt en það er ver-
ið að skipta um glugga í húsinu sem
ég bý í og hundraðþúsundkallarnir
eru frekar fljótir að hverfa inn í þá
hít,“ segir Haukur kíminn og rifjar
upp að þegar hann, fyrir nokkrum
árum, fékk styrk til að stunda dokt-
orsnám við Háskóla Íslands, hafi
hann boðið ungum sonum sínum
tveimur með sér í dótabúð og leyft
þeim að velja sér eitthvað skemmti-
legt. „Ætli ég haldi því ekki upp á
daginn með því að láta eitthvað eftir
strákunum mínum,“ segir Haukur,
en synir hans eru níu og ellefu ára
gamlir.
Sterkt ljóðabókaár í fyrra
Auk bókarinnar Menn sem elska
menn sem Mál og menning gefur út
voru tilnefndar bækurnar Kona lítur
við eftir Brynju Hjálmsdóttur, sem
Una útgáfuhús gefur út; Klettur –
Ljóð úr sprungum eftir Ólaf Svein
Jóhannesson sem Bjartur gefur út;
Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafs-
son sem Bjartur gefur út; Verði ljós,
elskan eftir Soffíu Bjarnadóttur sem
Angústúra gefur út og Tanntaka eft-
ir Þórdísi Helgadóttur sem Mál og
menning gefur út.
„Árið í fyrra var mjög sterkt
ljóðabókaár og margar bækur sem
hrifu mig. Mér þótti það því strax
mikill heiður að bókin mín væri í
hópi þeirra sex bóka sem tilnefndar
voru til Maístjörnunnar í ár,“ segir
Haukur og tekur undir með ónefnd-
um bókmenntafræðingi þess efnis
að helsti vaxtarbroddurinn í
íslenskri útgáfu sé í ljóðabókum,
sem skili sér inn í annan skáldskap.
„Ég held að það sé oft mikið bensín í
ljóðagerðinni sem drífur kerfið
áfram, þótt ljóðabækur séu ekki
þær söluhæstu,“ segir Haukur.
Einu verðlaunin fyrir ljóðabók
Gjaldgengar til Maístjörnunnar
2021 voru allar útgefnar íslenskar
ljóðabækur ársins 2021, sem skilað
var í skylduskil til Landsbókasafns
Íslands – Háskólabókasafns og fékk
dómnefnd þær til umfjöllunar. Dóm-
nefndina skipa Soffía Auður Birgis-
dóttir fyrir hönd Rithöfunda-
sambandsins og Birgir Freyr
Lúðvígsson fyrir hönd Landsbóka-
safnsins. „Maístjarnan er einu verð-
launin á Íslandi sem veitt eru fyrir
útgefna ljóðabók. Verðlaununum er
ætlað að vekja sérstaka athygli á
blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi
sem og mikilvægi þess að ljóðabók-
um sé skilað í skylduskil til Lands-
bókasafns Íslands – Háskólabóka-
safns og varðveitist þannig sem
hluti af menningararfi þjóðarinnar,“
eins og segir í tilkynningu. Þar kem-
ur fram að Maístjarnan hafi verið
veitt árlega síðan 2017 og að Kári
Tulinius, skáld og rithöfundur, hafi
átt frumkvæði að stofnun Maístjörn-
unnar.
Hvött til að kafa ómælisdjúpt
Í umsögn dómnefndar um verð-
launabókina segir: „Í Menn sem
elska menn yrkir Haukur Ingvars-
son um þunga kroppa og sviflétta
anda, um þyngdarkraft alheimsins,
kærleikann, sem leggur bönd á efn-
in og heldur sólum á brautu. Með
snjöllu myndmáli skyggnist skáldið
um heim allan frá myrku dýpi sjávar
til óravídda himingeimsins en hug-
leiðingar um fótspor á örþunnri
skurn yfir djúpinu vekja grun um
yfirborð sem getur brostið hvenær
sem er. Í ljóðunum birtist þéttur
vefur tilvísana til íslenskra bók-
mennta gegnum aldirnar, sem víkk-
ar út merkingarsvið þeirra. Áleitn-
ustu viðfangsefnin og markviss tákn
bókarinnar varða ástina, vináttuna
og karlmennskuna. Skáldið hvetur
okkur til að kafa í ómælisdjúp orða
og kennda og eiga stefnumót í anda.
Menn sem elska menn er bók sem
kallar á endurtekinn lestur og
launar þeim sem sinna því kalli ríku-
lega.“
Skepnur sem næra hvor aðra
Haukur lauk doktorsprófi í
íslenskum bókmenntum frá Háskóla
Íslands 2020. Hann starfaði sem
dagskrárgerðarmaður á Rás 1 frá
árinu 2005, lengst af sem einn af
umsjónarmönnum og ritstjórum
Víðsjár. Um skeið hélt hann úti sín-
um eigin bókmenntaþætti, Glætu,
þess utan gerði hann fjölda þátta og
þáttaraða um bókmenntir, menn-
ingu og listir. Eftir Hauk hafa birst
ljóð, smásögur og greinar í ýmsum
tímaritum og sýnisbókum heima og
erlendis. Hann hefur sent frá sér
þrjár ljóðabækur. Fyrir aðra bók
sína, Vistarverur, hlaut hann bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar 2018. Sú bók var einnig
tilnefnd til Maístjörnunnar það ár.
Þá hefur hann skrifað eina skáld-
sögu, Nóvember 1976, og fræðibæk-
urnar Andlitsdrættir samtíðarinnar:
Síðustu skáldsögur Halldórs Lax-
ness og Fulltrúi þess besta í banda-
rískri menningu: Orðspor Williams
Faulkners í íslensku menningarlífi
1930-1960, sem út kom í fyrra og
byggist á doktorsrannsókn hans.
Haukur ritstýrir Skírni, tímariti
hins íslenska bókmenntafélags,
ásamt Ástu Kristínu Benedikts-
dóttur. Fyrr á þessu ári hlaut Hauk-
ur nýdoktorastyrk frá Háskóla
Íslands til þriggja ára.
Að sögn Hauks hefur hann ávallt
sinnt höfundastörfum meðfram öðr-
um störfum. „Ég er hræddur um að
ég myndi fljótlega veslast upp og
deyja ef ég þyrfti eingöngu að fást
við fræðastörf,“ segir Haukur og
rifjar upp að hann hafi skrifað Menn
sem elska menn samhliða því sem
hann vann að fyrrnefndri doktors-
ritgerð sinni um Faulkner. „Flæðið
milli þeirrar bókar og ljóðabókar-
innar var mjög frjálslegt. Sem dæmi
fjallar fyrsti hluti ljóðabókarinnar
um heimsókn á skjalasafn, sem var
hluti af doktorsrannsókninni minni.
Þannig að þetta eru tvær skepnur
sem næra hvor aðra,“ segir Haukur
sem er hálfnaður með næstu bók
sem hann segir vera smásagnasafn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listin nærir „Ég er hræddur um að ég myndi fljótlega veslast upp og deyja ef ég þyrfti eingöngu að fást við fræða-
störf,“ segir Haukur Ingvarsson, sem hér er ásamt Ragnheiði Tryggvadóttur og Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur.
„Skiptir mig mjög miklu máli“
- Haukur Ingvarsson hlýtur Maístjörnuna 2021 fyrir ljóðabókina Menn sem elska menn
- „Mikið bensín í ljóðagerðinni sem drífur kerfið áfram, þótt ljóðabækur séu ekki þær söluhæstu“
» Það var líf og fjör
í Cannes í Frakk-
landi í fyrrakvöld þeg-
ar kvikmyndahátíðin
alþjóðlega, sem bærinn
er hvað þekktastur
fyrir, var sett. Opn-
unarmynd hátíðar-
innar var hin franska
Coupez! og mættu
leikstjóri og leikarar
á rauða dregilinn.
Kvikmyndahátíðin í franska strandbænum Cannes var sett í 75. skipti
AFP/Loic Venance
Krefjandi Einn frumsýningargesta í kjól sem erfitt reyndist að ganga í án aðstoðar, eins og sjá má.
Heiðurspálmi Bandaríski leikarinn Forest Whitaker tók við heiðurs-
verðlaunum hátíðarinnar úr hendi hátíðarstjórans Pierre Lescure.
Glæsileg Ítalska leikkonan Jasmine Trinca með leikaranum Vincent Lind-
on sem er jafnframt formaður aðaldómnefndarinnar í ár sem Trinca situr í.
Setning Leikarar og leikstjóri opnunarmyndarinnar Coupez!, frá vinstri
Finnegan Oldfield, Berenice Bejo, Michel Hazanavicius, Romain Duris og
Matilda Anna Ingrid Lutz. Myndin var tekin fyrir frumsýningu.
AFP/Antonin Thuillier
AFP/Valery Hache AFP/Loic Venance