Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.
U S A TO D AY
92%
Radio Times
Total Film
Empire Rolling StoneLA Times
THE LEGACY CONTINUES
72%
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
E
ldkveikja er byggð á
samnefndri skáldsögu
Stephens Kings og er
endurgerð af samnefndri
kvikmyndaaðlögun frá 1984 eftir
Mark L. Lester. Kvikmyndin segir
frá fjölskyldunni McGee sem reynir
að fela ofurkrafta sína og lifa til-
tölulega eðlilegu lífi í nútímasam-
félagi.
Myndin hefst á endurliti (e.
flashback) af barninu Charlie
(Ryan Kiera Armstrong) í barna-
rúminu þegar hún kveikir í her-
berginu með ofurkröftum sínum og
er strax ljóst að hér er um að ræða
mjög hættulegan ofurkraft. Áhorf-
endur sjá annað endurlit, eða gaml-
ar upptökur, sem útskýra af hverju
þetta stafar. Foreldrar Charlie,
Andy (Zac Efron) og Victoria
(Sydney Lemmon), ræða við lækni
í klínískri rannsókn sem útskýrir
fyrir þeim að þau verði sprautuð
með efni sem kallast LOT-6. Efnið
gefur þeim, án þeirra vitundar,
yfirnáttúrulega krafta. Ofurkraft-
arnir erfast með Charlie en ólíkt
foreldrunum þá öðlast hún þá hæfi-
leika að geta kveikt í og jafnvel
valdið sprengingu. Charlie og for-
eldrar hennar reyna að halda ofur-
kröftum hennar í skefjum en það
gengur illa því þegar hún upplifir
stórar tilfinningar koma þeir fram.
Eftir að hafa valdið lítilli spreng-
ingu inni á skólasalerni kemst upp
um þau og illmenni, sem hafa
áhuga á að nota Charlie sem valda-
tól, fara að leita þeirra.
Bæði listabíóið og hefðbundnar
Hollywood-myndir eru helteknar af
hugmyndinni um ofurkrafta, mögu-
leika þeirra og hættuna sem af
þeim kann að stafa. Eldkveikja er
önnur slík saga sem áhorfendur
eru margir hverjir löngu orðnir
þreyttir á. Kvikmyndin er óþarfa
endurgerð, eins og svo margar,
enda kemur leikstjórinn Keith
Thomas ekki með neitt nýtt að
borðinu. Ef eitthvað er þá lítur
kvikmyndin verr út en útgáfan frá
1984 þrátt fyrir miklar tækni-
framfarir síðustu 20 ár. Ólíkt þess-
ari nýjustu tekst 1984-útgáfunni að
vera hallærislega töff auk þess sem
hún býr yfir eins konar nostalgíu-
sjarma frá 9. áratug 20. aldar. Ef-
laust hefði verið sterkara að vinna
áfram með nostalgíuna og láta
kvikmyndina gerast í fortíðinni eins
og Stranger Things-þættirnir (Matt
Duffer og Ross Duffer, 2016-) sem
virka svo vel. Í staðinn fáum við
mjög hallærislega og leiðinlega út-
gáfu sem oft á tíðum gengur ekki
upp. Dæmi um það er þegar for-
eldrarnir flýta sér heim að pakka
eftir að Charlie veldur sprengingu í
skólanum og kemur upp um þau.
Tilfinningar Charlie ná tökum á
henni í æsingnum og hún kveikir í
handleggjum móður sinnar. Í kjöl-
farið fer Andy með hana í ísbúð
nánast eins og hann sé að verð-
launa hana fyrir að kveikja í móður
sinni en svo virðist sem þeim liggi
ekki lengur á að flýja heimilið sitt.
Annað atriði er svo illa gert að það
verður fyndið en það er þegar
Charlie kveikir óvart í munaðar-
lausum ketti sem klórar hana. Í því
atriði tekst Keith Thomas að sjokk-
era áhorfendur en lélegu tækni-
brellurnar gera það svo augljóst að
ekki er um að ræða alvöru kött að
það verður hlægilegt. Tæknibrell-
urnar eru þó ekki það eina sem er
broslegt heldur eru leikmunirnir
einnig alveg út í hött. Þegar ill-
mennunum tekst að fanga Andy er
hann látinn klæðast bjálfalegri
grímu, sitja í kjánalegum stól í
asnalegu búri. Auk þess sem við
sjáum ekki Andy í stólnum heldur
Zac Efron af því hann hefur svo
mikla menningarvirkni í samfélag-
inu. Erfitt er að taka Zac Efron
alvarlega í hlutverki föðurins, sér-
staklega þegar hann reynir að tjá
tilfinningar en það eina sem við
sjáum er tár sem rennur niður
kinnina á óhreyfanlegu, bótoxuðu
andliti hans.
Kvikmyndin er sæmilegt gláp ef
hún er ekki tekin of alvarlega en
eflaust væri best að lýsa henni sem
logandi ruslatunnu.
Kveikt í ketti
Ofurkraftar heilla „Bæði listabíóið og hefðbundnar Hollywood-myndir eru helteknar af hugmyndinni um ofur-
krafta, möguleika þeirra og hættuna sem af þeim kann að stafa,“ segir í rýni um kvikmyndina Eldkveikja.
Sambíóin og Laugarásbíó
Firestarter/Eldkveikja bmnnn
Leikstjórn: Keith Thomas. Handrit:
Scott Teems. Aðalleikarar: Zac Efron,
Ryan Kiera Armstrong og Sydney
Lemmon. Bandaríkin, 2022. 100 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Aðstandendur
RIFF, Reykjavik
International
Film Festival,
fordæma innrás
Rússa í Úkraínu
og vilja sýna
samstöðu með
úkraínsku þjóð-
inni með styrkt-
arsýningu.
„Við viljum
bjóða ykkur að styrkja úkraínsku
þjóðina á meðan hún verst
ómannúðlegri innrás Rússa, og í
sameiningu horfa á myndina
Stop-Zemlia í leikstjórn Katerynu
Gornostai og með frjálsum fram-
lögum styrkja Ukrainian NGO
Tabletochki, sem ötullega aðstoða
krabbameinssjúk börn í þessu
óréttláta og hræðilega stríði,“
segir í tilkynningu frá RIFF.
Myndin er aðgengileg í streymi á
watch.riff.is frá og með deginum
í dag og til 17. júní. Miðvikudag-
inn 8. júní kl. 18 verður á sömu
síðu boðið upp á spurt og svarað
með leikstjóranum. Hægt er að
styrkja málefnið með frjálsum
framlögum á vef RIFF.
Styrktarsýning
RIFF fyrir Úkraínu
Verðlaunuð
Úr Stop-Zemlia.
Stjórnendur
streymisveit-
unnar Netflix
sögðu upp um
150 starfs-
mönnum aðeins
mánuði eftir að
upplýst var að
áskrifendum að
veitunni hefði
fækkað í fyrsta
sinn í um ára-
tug. Í seinasta mánuði var upp-
lýst að áskrifendum Netflix hefði
fækkað um 200.000 á fyrstu
þremur mánuðum ársins 2022 og
búast mætti við að þeim fækkaði
um tvær milljónir til viðbótar á
næsta ársfjórðungi. Uppsagn-
irnar snúa aðallega að starfsfólki
Netflix á skrifstofu veitunnar í
Kaliforníu og ná til um 2% af öllu
starfsfólki fyrirtækisins í Norður-
Ameríku.
Færri áskrifendur
leiða til uppsagna
Hátign Olivia
Colman í The Crown.