Morgunblaðið - 19.05.2022, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 19.05.2022, Qupperneq 60
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant, sem búið hefur hér á landi til fjölda ára, mun hita upp fyrir koll- ega sinn bandarísk-kanadískan, Rufus Wainwright, á tónleikum hans í Silfurbergi í Hörpu sunnu- daginn 29. maí. Wainwright hefur gefið út tíu breiðskífur með frumsömdum lögum og einnig samið tvær klassískar óperur og tekið þátt í fjölda sam- starfsverkefna með öðrum lista- mönnum, samið kvikmyndatónlist og snarað sonnettum Shakepeares yfir í tónlist, eins og segir á vef Hörpu og kom síðasta plata hans út fyrir tveimur árum. Wainwright er af tónlistarfólki kominn, lærði snemma á píanó og gítar og fór í tón- leikaferðir með móður sinni, Kate McGarrible, og systur sinni Mörthu þegar hann var aðeins 13 ára. John Grant þarf varla að kynna fyrir Íslendingum en hann sló í gegn með fyrstu sólóplötu sinni, Queen of Denmark, og heillaðist svo af Íslandi eftir að hafa komið fram á hátíðinni Iceland Airwaves að hann ákvað að flytja hingað og býr hér enn. Nýj- asta breiðskífa Grants, Boy from Michigan, kom út í fyrrasumar og hefur hlotið mikið lof líkt og fyrri skífur hans. Persónulegir, opinskáir og oft glúrnir textar með mátuleg- um skammti af kaldhæðni einkenna grípandi lögin, líkt og á fyrri plötum. Nægur tími gafst í kófinu Grant var heima hjá sér, í Reykja- vík, þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans fyrr í mánuðinum til að ræða við hann um tónleikana með Wain- wraight og nýjustu afurðina, fyrr- nefnda breiðskífu. En fyrst varð auðvitað að spyrja hvað Grant hefði verið að gera í kóf- inu alræmda, Covid-19 faraldrinum. „Ég var að mestu hér á Íslandi að vinna að plötunni minni,“ svarar Grant. Platan góða, Boy from Mic- higan, kom út í júní 2021 og segist Grant hafa lokað sig af á þessum tíma. „Öllu var aflýst í langan tíma og ég hafði því nægan tíma til að vinna að henni en líka öðru.“ Mikilvægt flipp Platan virkar tónlistarlega á blaðamann eins og góð blanda af öllu því sem Grant hefur áður gert og tekur tónlistarmaðurinn undir þær vangaveltur. „Já, það virðist ágætis lýsing, ég hef sjálfur hugleitt þetta,“ segir Grant. Hljóðgervlar og áhrif frá tónlist níunda áratugarins eru áberandi en tónlistin líka hugljúf og stundum flippuð, ef svo mætti kom- ast að orði. Grant sleppir fram af sér beislinu af og til með kostulegri útkomu. Hann segist enda innblásinn af flippurunum í Devo og Missing Persns. „Slíkt skiptir mig jafnmiklu máli og ballöðurnar. Ég dýrkaði tón- listina á áttunda og níunda áratugn- um og þetta er alltaf blanda af því tvennu,“ segir Grant, sem fæddist árið 1968 og verður 54 ára í sumar. Af öðrum sveitum nefnir hann Eurythmics, New Order, Visage, Cocteau Twins, Pet Shop Boys, Dead Can Dance, Bauhaus og marg- ar fleiri. Grant segir áhrifavaldana koma víða að og nefnir að hann hafi líka verið hrifinn af sumri kántrí- tónlist, t.d. lögum Patsy Cline, og leikið klassíska tónlist á píanó og ragtime. Cate Le Bon stýrði upptökum á plötunni og Grant er spurður út í hennar áhrif á útkomuna. Hann seg- ir Le Bon hafa leikið á gítar og feng- ið ýmsa tónlistarmenn til að leika inn á lögin, m.a. klarínettu- og saxó- fónleikara. „Það sem mestu skiptir er að hún mótaði þetta allt saman í eina heild,“ segir Grant. Þau Le Bon hafa verið vinir lengi og langað að vinna saman. Sá draumur hafi loks- ins ræst. Af ólíkum heimum Við snúum talinu að Wainwright og Grant er spurður hvort þeir hafi þekkst áður en kom að tónleika- skipulagi. „Við höfum alltaf dansað hvor í kringum annan en aldrei hist, ekki fyrr en nýlega. Við höfum lengi dáðst að tónlist hvor annars,“ segir Grant. Þeir Wainwright hafi talað saman í fyrsta sinn á Zoom fyrir ekki svo löngu. – Þetta virðist hið fullkomna stefnumót, þið tveir saman á tón- leikum … „Já … það er dálítið skrítið að við höfum ekki hist áður en þetta hefur átt sér langan aðdraganda og ég er mjög spenntur fyrir því að syngja með honum,“ svarar Grant. – Heldurðu að þið eigið margt sameiginlegt og þá bæði persónu- lega og tónlistarlega? „Ég veit ekki með persónulega en án efa tónlistarlega. Hann er af mjög opnu, tónelsku og frjálslyndu fólki kominn en ég afar trúuðu og eiginlega lágmiðstéttarfólki. Hann hefur alltaf tilheyrt tónlistarkónga- fólki, ef þannig mætti að orði kom- ast. Við erum af ólíkum heimum en hrifnir af sams konar tónlist að mörgu leyti. Hann er meira í líf- rænum hljómi, á heildina litið, með klassískum hljóðfærum en ég er meira í áttunda áratugnum. Ég blanda þessu tvennu saman og hef tilhneigingu til að fara meira í áttina að níunda áratugnum,“ svarar Grant. Biblían í stað stjórnarskrár? Á plötunni nýju, sem kennd er við drenginn frá Michigan, kemur Grant víða við í textum sínum og er ómyrkur í máli um pólitíkina í heimalandinu. „Það var mikið að gerast í bandarískum stjórnmálum sem fékk mig til að hugleiða æsku mína, hvar ég hef verið, hvert ég stefni og af hverju ég er á þeim stað sem ég er á núna. Mér bauð við því sem var að gerast í Bandaríkj- unum,“ segir Grant og skal tekið fram að Donald Trump var enn for- seti þegar hann samdi textana, í upphafi árs 2020. Nú virðist allt stefna í að dregið verði úr rétti kvenna til þungunarrofs vestan hafs, sem hefur verið mótmælt harðlega, bæði í Bandaríkjunum og víðar um lönd. „Þetta er ömurlegt,“ segir Grant og spyr hvort hjónabönd sam- kynhneigðra fari næst í gapastokk- inn. Útlitið sé sannarlega ekki gott. „Svo virðist sem næstum helm- ingur Bandaríkjamanna vilji guð- veldi, að Biblían komi í stað stjórn- arskrárinnar,“ segir Grant og er augljóslega mikið niðri fyrir. „Ég gæti ekki verið meira á móti því.“ Grant bendir á að Trump hafi opnað dyrnar fyrir alls kyns óþverra sem hann vilji ekki fara nánar út í. Tónleikaferðir, hátíðir og frí Grant er spurður hvort hann ætli að flytja einhver lög með Wain- wright í Hörpu. „Já, hann ætlar að syngja einhver af mínum lögum með mér og ég einhver hans laga með honum,“ svarar Grant. „Þetta verð- ur gaman, ég er virkilega spenntur.“ – Þú hefur þá rætt það við hann, hvaða lög þið ætlið að taka saman? „Já, algjörlega, við funduðum um daginn, sem var í fyrsta sinn sem við spjölluðum saman, og það var virki- lega gaman.“ En hvað er fram undan hjá Grant? Fleiri tónleikar, kannski plata? „Ég er að vinna að nokkrum endurhljóðblöndunum fyrir aðra, farinn að spá í næstu plötu og svo er stutt í tónleikaferðir og hátíðir sem ég kem fram á í sumar. Ég mun ferðast líka og skrepp kannski í stutt frí til Bandaríkjanna. Svo eru það bara fleiri tónleikaferðir í haust,“ svarar hann. – Er von á plötu á næsta ári? „Vonandi, já, það hljómar vel,“ svarar Grant kíminn. Þeir sem vilja kynna sér verk Grants og feril geta gert það á vef- síðu hans, johngrantmusic.com. Blár Grant blámálaður með glimmer í andliti og hári. Ljósmynd/Tony Hauser Dáður Rufus Wainwright á sér stór- an aðdáendahóp og er dáður víða. Flauel Málverk af Grant, á umslagi plötunnar Boy from Michigan, er málað á svart flauel. Gagnkvæm aðdáun - John Grant og Rufus Wainwright koma saman á tónleikum í Hörpu 29. maí - „Þetta verður gaman, ég er virkilega spenntur,“ segir Grant um tónleikana sem hafa átt sér langan aðdraganda 60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 Hreint loft –betri heilsa Honeywell gæða lofthreinsitæki Láttu þér og þínum líða vel - innandyra Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. HFD323E Air Genius 5. Hægt að þvo síuna. Verð kr. 39.420 HPA830 Round Air Purifier. Mjög hljóðlát. Verð kr. 29.960 S. 555 3100 · donna.is Hátíð helguð sýrutónlist (e. acid) verður haldin í Frystiklefanum á Rifi um helgina, frá föstudegi til sunnudags og er aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á breska, banda- ríska, sænska og íslenska listamenn og verður Syd Barrett heitinn heiðr- aður, einn stofnenda Pink Floyd. Viðburðurinn er skipulagður af hinu breska félagi Liverpool Psych- edelic Society og bandarísku útgáf- unni Creation Dream Machine. Tón- list verður flutt í þrjá daga, bæði í formi tónleika og skífuþeytinga. Einnig verður haldin ljósmyndasýn- ing helguð Barrett og 28. maí verður sýrukvöld á Kex hosteli í Reykjavík. Föstudagskvöldið verður tileinkað Syd Barrett og allir tónlistarmenn hafa valið sér eitt Syd Barrett-lag til að spila, auk eigin tónlistar. Gleðin hefst kl. 18 með ljósmyndasýningu og skífuþeytingum og svo tekur Ivan Thunders við. Tónlistarmaðurinn Dominic Lewington, eða Dominos, stígur næstur á svið og á eftir honum Sparklestars með gítarleikaranum Texas Bob Juarez. Undir lokin kem- ur fram sveitin Men on the Border. Á laugardagskvöld kemur fyrst fram ensk hljómsveit, Thee Lucifer Sams, og spilar hávært, síkadelískt rokk, innblásið af sveitum á borð við Hawkwind. Á eftir henni stígur íslenski tónlistarmaðurinn Henrik Björnsson á svið. Hann er hvað þekktastur fyrir að vera forsprakki hljómsveitarinnar Singapore Sling. Henrik er með nýtt sólóverkefni sem nefnist The Cult of One. Á sunnu- deginum verða margvíslegir við- burðir í gangi frá kl. 15. Um kvöldið troða íslensku sveitirnar Russian Girls og Skrattar upp með tónlistar- manninum Dada Pogrom. Á Rifi Skrattar munu skemmta skrattanum á Rifi um helgina. Sýrutónlistarhátíð á Rifi um helgina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.