Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 64

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 64
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 NORDAL Aster, eldstæði. Svart. Ø61 cm. 39.990 kr. STOCKHOLM Útiarmstóll. 86 x 88 x 80 cm. 65.990 kr. STOCKHOLM Sólbekkur. Dökkgrár eða natur. 195 x 60 x 44 cm. 89.990 kr. ASHFIELD Útihægindastóll. 70 x 82 x 93 cm. 89.990 kr. STOCKHOLM Hornsófi hægri. Dökkgrár eða natur. 250 x 160 x 85 cm. 204.990 kr. NOTALEGT SUMAR DIAMOND CUT Kanna 1,5L. 6.990 kr. Vínglas. 50 cl. 1.990 kr. Plastglas. 35cl. 1.690 kr. Plastglas. 50cl. 1.990 kr. Óperuhátíðin Oper im Berg í Salzburg stendur fyrir gala- tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 19. maí, kl. 20. Söngvarar á tónleikunum eru flestir verðlaunahafar í keppninni Grandi Voci sem er alþjóðleg söngkeppni fyrir óp- erusöngvara og eru þeir af ólíku þjóðerni, frá Bandaríkj- unum, Brasilíu, Tyrklandi, Ítal- íu og Íslandi. Flutt verður tón- list eftir Verdi, Wagner, Puccini, Mozart og fleiri. List- rænn bakhjarl Oper im Berg er Grace Bumbry og stjórnandi Ingo Kolonerics. Davíð Ingi Ragnarsson bassi er meðal söngvara en hann vann til verðlauna á Grandi Voci Ist- anbul fyrir tveimur árum. Miðar verða seldir við inn- ganginn og er einnig hægt að taka frá miða með tölvu- pósti á netfangið dragnarsson@gmail.com. Söngvarar frá fimm löndum á tón- leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Þróttur úr Reykjavík jafnaði Selfoss að stigum á toppi efstu deildar kvenna í knattspyrnu, Bestu deildarinnar, þegar liðið vann öruggan sigur gegn Þór/KA á Þrótt- aravelli í Laugardal í 5. umferð deildarinnar í gær. »54 Þróttarar skoruðu fjögur ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Listin þrífst vel í München í Þýska- landi og þar brýst sköpunin út hjá Sævari Karli Ólasyni, sem lætur vel um sig fara og málar af innlifun í vinnustofu eða á þaksvölum sínum í miðbæ borgarinnar. „Ég mála hérna þegar vinnustofan er upptekin í um hálfan mánuð fjórum sinnum á ári,“ segir myndlistarmaðurinn og bætir við að umhverfið og útsýnið veiti sér innblástur. „Þetta er ótrúlega falleg veröld.“ Hjónin Sævar Karl og Erla Þór- arinsdóttir hófu verslun með föt 1974. Verslun Sævars Karls í Reykjavík var alla tíð þekkt fyrir gæðavörur og reksturinn gekk vel. „Eftir að hafa verið kaupmaður alla starfsævina og rekið fyrirtæki í mið- bænum í um 35 ár fékk ég tilboð í þetta fína, flotta og vel rekna fyrir- tæki, það hækkaði stöðugt og loks seldum við og keyptum þessa íbúð.“ Samfara rekstri fataverslunar- innar hélt Sævar Karl við annarri ástríðu sem var og er að mála og var meðal annars með gallerí í versl- uninni, þar sem hann og fleiri sýndu verk sín. Hann nam fræðin í Mynd- listarskóla Reykjavíkur, var gesta- nemandi í Listaháskóla Íslands í tvö ár og eftir að hjónin fluttu til Þýska- lands 2008 fór hann í Kunstakadem- ie Bad Reichenhall og útskrifaðist þaðan eftir þriggja ára nám, þar af eitt ár í meistaranámi. „Ég er stöð- ugt að leita mér meiri þekkingar, kafa endalaust dýpra og er alltaf í endurhæfingu.“ Málverk prýða alla veggi Safn kemur fyrst upp í hugann þegar gengið er inn í íbúð hjónanna á sjöttu hæð, því stór málverk prýða alla veggi. Flest eru þau eftir Sævar Karl en þarna eru meðal annars líka verk eftir Erró, Gylfa Gíslason, Kristján Davíðsson og Karl Kvaran. „Ég hugsa stöðugt um myndlist og er með verk þessara manna fyrir framan mig á hverjum degi svo óneitanlega eru þeir ákveðnar fyrir- myndir.“ Eftir að hjónin hófu að upplifa nýjan kafla í lífsgöngunni í München hafa þau yfirleitt komið til Íslands á sumrin og farið þá í nokkurra daga reiðtúra um hálendið. Vegna veiru- faraldursins voru þau samfleytt í um níu mánuði hérlendis og fóru þá hringveginn, bæði réttsælis og rang- sælis. „Landið er öðruvísi eftir því hvor leiðin er farin og ég er svolítið upptekinn af íslensku landslagi í verkum mínum vegna ferða um það, litir og áferð skipta mig miklu máli.“ Sterkir litir eiga sérstaklega upp á pallborðið hjá Sævari Karli og hann málar gjarnan stórar myndir. „Þetta eru öflugar myndir, það er kraftur í verkunum,“ bendir hann á og leggur áherslu á að hann máli ekki rómantískt landslag. Á borðinu í „þaksvalastúdíóinu“ eru bæði olíu- og akríllitir. „Ég nota þá jöfnum höndum eftir því hvernig landið ligg- ur. Ég mála oft fyrst með akríllitum og ef ég vil fá meiri glans eða kraft bæti ég olíulitum ofan á.“ Þegar Sævar Karl hefur aðgang að stúd- íóinu við Odeonstorg fer hann þang- að daglega. „Ég mála samt ekki eftir klukku. Kannski mála ég í þrjá fjóra tíma og kannski ekki neitt. Þá skoða ég bækurnar, myndirnar, hugsa og spekúlera.“ Sævar Karl hefur haldið einka- sýningar víða og tekið þátt í samsýn- ingum, meðal annars í Berlín, París, Feneyjum og München. Næsta sýn- ing hans verður opnuð í SÍM-salnum í Hafnarstræti í Reykjavík í ágúst. Kraftur og litadýrð - Sævar Karl endurspeglar bjartar hliðar tilverunnar Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Á þaksvölunum Sævar Karl Ólason nýtir veröndina til þess að mála. Sköpun Sævar Karl fær innblástur víða, líka úr fiskborðinu á næsta horni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.