Morgunblaðið - 23.05.2022, Side 4

Morgunblaðið - 23.05.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is Albufeira Portúgal 29. maí í 9 nætur 78.550 Flug & hótel frá Frábært verð! 90.700 Flug & hótel frá 2 fullorðnir stundum klukkustundum saman. Bensín- og olíudælur N1 eru við Staðarskála auk hleðslustöðva fyr- ir rafmagnsbíla. Fleiri slíkum verður bætt við á næstunni. „Rafmagnsbílum fjölgar og kröfum viðskiptavina sem af því skapast þarf að mæta. Til þess er- um við hér,“ segir vertinn í Stað- arskála, sem í sumar verður með um 40 manns í vinnu. Í því liði eru bæði fastur mannskapur og svo krakkar sem koma í sumarvinnu. Skemmtileg vertíð „Krakkarnir eru hér í nokkurra daga törnum og fyrir þau höfum við hér útbúið góða aðstöðu. Sum sem hér hafa starfað hafa lýst sumrinu hér sem ævintýri og skemmtilegri vertíð. Sjálfur kom ég hingað norður nánast til að prófa, en er nú fluttur í Hrúta- fjörðinn og vil vera hér,“ segir Ólafur Ragnar – vert við veginn og nafni fyrrverandi forseta Ís- lands! pungar með kaffinu standa líka alltaf fyrir sínu. Yfir daginn er umferðin hér annars nokkuð jöfn. Mesti kúfurinn í vikunni er síð- degis á föstudögum þegar fólk af höfuðborgarsvæðinu er á leiðinni norður – það sama og stoppar hér á suðurleið þegar líða tekur á sunnudaginn. Á allra bestu dögum yfir sumarið hafa um 9.000 manns farið í gegnum húsið á einum degi. Miðstöð mannaferða, segir Þór- arinn Eldjárn í ljóði sínu Staðar- skáli er Ísland. Í ljóðinu lýsir skáldið veitingaskálanum með mörgum orðum – stað sem nálgast að vera þjóðarsjoppa Íslendinga. Sá sess sem staðurinn hefur ræðst sjálfsagt að einhverju leyti af staðsetningu, það er því sem næst miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar og í jaðri Holtavörðu- heiðar – sem oft verður ófær á veturna. Af því leiðir að í skipu- lagi almannavarna hefur skálinn neyðarhlutverk og á illviðradögum bíður fólk þar af sér vonda veðrið; Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Stemningin er góð og á matseðl- inum er strangheiðarlegur íslensk- ur matur. Þetta er lýsingin á stöðu mála í Staðarskála í Hrúta- firði þar sem nýr rekstrarstjóri tók við keflinu fyrir nokkrum mánuðum. Sá heitir Ólafur Ragn- ar Eyvindsson meistarakokkur úr Reykjavík sem um dagana hefur víða starfað við eldamennsku og matargerð. Eftir að hafa starfað bæði við veitingahús og mötuneyti í Reykjavík til fjölda ára lá leið hans norður – og flestir stansa í Staðarskála, eins og slagorðið hermir. Þangað kom Ólafur til starfa um þetta leyti í fyrra og ár- ið var ekki úti þegar honum bauðst að taka við keflinu og stýra starfseminni. Miðstöð mannaferða „Starfið er líflegt. Aldrei dauð stund og hér sér maður í raun samfélagið í hnotskurn. Hér er opnað klukka átta á morgnana og vaktin staðin fram til klukkan hálftólf á kvöldin. Hér eru margir í mat, til dæmis í hádegi og svo aftur síðdegis og fram eftir kvöldi, en þá stoppa hér til dæmis bíl- stjórar á stóru flutningatrukk- unum sem eru í ferðum milli landshluta. Steiktur fiskur, kjöt í karrí og kjúklingur svo ég nefni eitthvað,“ segir Ólafur Ragnar. „Matseðillinn hér er fjölbreyttur en breytilegur milli daga. Ástar- Morgunblaðið/Sigurður Bogi Staðarhaldari Aldrei dauð stund, segir Ólafur Ragnar Eyvindsson um starf sitt í veitingaskálanum vinsæla. Ólafur Ragnar nú á vaktinni í Staðarskála - Nýr vert - Pylsur og ástarpungar - 9.000 gestir á dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hrútafjörður Þekktur viðkomustaður fólks sem er á ferðinni norður í landi. Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is „Við erum í viðræðum við mjög stóra bandaríska aðila sem við telj- um mjög líklegt, þegar frumvarpið verður samþykkt á þingi, að komi hingað, jafnvel í lok árs,“ segir Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá Truenorth og formaður Sam- bands íslenskra kvikmyndafram- leiðanda, um frumvarp til laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Með frumvarpinu, sem samið er í menningar- og viðskiptaráðuneyt- inu, eru lagðar til breytingar á nú- gildandi lögum þar sem hlutfall endurgreidds framleiðslukostnaðar verður nú 35% fyrir afmörkuð stærri verkefni. Skilyrði þess eru að framleiðslukostnaður viðkom- andi kvikmyndar eða sjónvarps- efnis nemi að lágmarki 200 millj. kr., tökudagar hér á landi séu að lágmarki 30 og að fjöldi starfs- manna sem vinna beint að verkefn- inu sé að minnsta kosti 50. Þetta er sérstaklega gert til að laða hingað stór kvikmyndaverkefni. Kristinn segir að ekki sé hægt að upplýsa um hvaða aðila sé að ræða en bendir hins vegar á þegar hann er spurður að aðilinn sé á stærð við HBO. „Það eru verkefni í pípunum og hjá fleirum hef ég heyrt. En hjá okkur er sérstaklega eitt stórt verkefni sem er mjög nálægt því að detta inn,“ segir hann og bætir við að þetta skapi grundvöll til að byggja fleiri stúdíó á Íslandi. „Þegar stúdíóin eru orðin kannski tvö eða þrjú á Íslandi þá er kominn grundvöllur fyrir að taka á móti svona stórum verkefnum og skila þeim af okkur með sóma.“ Hann segir fyrirhugaðar breyt- ingar vera jákvæðar og að þær muni gjörbylta kvikmyndabrans- anum á Íslandi. Segir stór verk- efni í pípunum - Kvikmyndaframleiðendur fagna frumvarpi um hærri endurgreiðslu Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Tökur Frá tökum á myndinni North- ern Comfort á Mývatni í vetur. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Rúm vika er síðan Íslendingar gengu til sveitarstjórnarkosninga, en síðan þá hafa miklar þreifingar flokkanna farið af stað og sums stað- ar hefur meirihluti þegar verið myndaður. Meirihlutaviðræður í Grindavík hafa tekið heldur óvænta stefnu en sjálfstæðismenn leiða nú óformlegar meirihlutaviðræður við Framsókn og Rödd unga fólksins. Þetta er nokkuð óvænt þar sem Mið- flokkurinn var sigurvegari kosning- anna í Grindavík með 32,4% fylgi. Hallfríður Hólmgrímsdóttir, odd- viti Miðflokksins í Grindavík, segir það algjörlega „galið“ og gegn vilja fólksins að Miðflokkurinn sé ekki í meirihluta gangi áform sjálfstæðis- manna eftir. Spurð hvers vegna flokkurinn sé ekki að leiða meiri- hlutaviðræður svarar Hallfríður í samtali við Morgunblaðið: „Það var bara fullreynt hjá okkur við Fram- sókn og Rödd unga fólksins. Hvor- ugur flokkurinn vildi ganga í meiri- hlutasamstarf með okkur.“ Aðspurð segir Hallfríður að Mið- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki átt í viðræðum um mögu- lega meirihlutamyndun. „Við óskuðum ekki eftir viðræðum við hann, við töldum að það væri ekki endilega vilji fólksins þar sem þeir voru að tapa svo miklu fylgi,“ segir Hallfríður og bætir við að flokkurinn verði einn í minnihluta nái samstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Raddar unga fólksins í gegn. „Þeir eru með sviðið, ég bíð bara átekta. Þetta er alveg ótrúleg sviðs- mynd sem er að myndast hérna, en þetta kemur í ljós.“ Formlegar meirihlutaviðræður milli Framsóknarflokksins, Sam- fylkingar og Beinnar leiðar hófust í gærkvöldi í Reykjanesbæ. Þetta staðfestir Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. „Við höfum verið að tala saman óformlega, en nú eru formlegar við- ræður hafnar. Ég vona að við tökum næstu viku í þetta,“ segir Friðjón. Meirihlutaviðræður Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar í Skaga- firði ganga vel að sögn Einars Eð- varðs Einarssonar, oddvita Framsóknarflokksins í Skagafirði. „Niðurstöður kosninganna voru þannig að það lá beint við að skoða þann kost fyrst. Við erum með sama fulltrúafjölda, báðir flokkar. Þetta samtal gengur vel og við ætlum að reyna að klára þetta um helgina,“ segir Einar í samtali við Morgun- blaðið og bætir því við að flokkarnir hafi síðastliðin átta ár verið í meiri- hluta saman. Aðspurður segir Einar að það verði alltaf einhverjar áherslubreytingar á nýju kjörtíma- bili, sérstaklega þegar nýtt fólk er að koma inn. Varðandi næsta sveitar- stjóra Skagafjarðar er ekki búið að taka ákvörðun hvort framlengt verð- ur við núverandi sveitarstjóra eða hvort nýr verður ráðinn inn. Meirihlutaviðræður milli Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar eru einnig yfirstandandi í hinum tveimur sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra, sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps og Húnaþingi vestra. Á fimmtudag þurfti að grípa til endurtalningar í Húnaþingi vestra þar sem munur á atkvæðum var mjór. Talningin leiddi í ljós tvö frávik en breyting hafði ekki áhrif á röðun fulltrúa. Meirihlutar taka á sig mynd - Viðræður í Grindavík taka óvænta stefnu - Formlegar viðræður hafnar í Reykjanesbæ - Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn í viðræðum á Norðurlandi vestra - Endurtalning í Húnaþingi vestra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.