Morgunblaðið - 23.05.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.05.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022 Morgunblaðið hefur veitt verð- launin Morgunblaðshnakkinn frá því hafin var kennsla í hestafræð- um á háskólastigi við Hólaskóla, nú Háskólann á Hólum. Á þessum tíma hafa 25 nemendur fengið þessi verðlaun. Morgunblaðshnakkurinn var í upphafi veittur þeim nemanda sem fékk hæstu einkunn á lokaprófi í þjálfara- og reiðkennaranámi. Hlutverkið breyttist og nú er Morgunblaðshnakkurinn hrein reiðmennskuverðlaun, veitt þeim nemanda sem hefur staðið sig best í reiðmennskuáföngum öll þrjú ár- in. Morgunblaðið hefur veitt verð- laun þeim nemendum sem hafa staðið sig best í reiðmennsku og tamningum við bændaskólana í 66 ár samfleytt. Lengi vel var það í formi verðlaunagrips sem kallaður var Morgunblaðsskeifan og var veittur í báðum bændaskólunum. Upphafið má rekja til þess að Gunnar Bjarnason, kennari á Hvanneyri og hrossaræktar- ráðunautur, hóf að kenna nem- endum að temja hest til reiðar. Hann tók upp próf í hestamennsku árið 1956 og leitaði í kjölfarið til Morgunblaðsins um að gefa verð- laun til að efla starfið. Fyrsta Skeifan var af- hent vorið 1957 og hlaut hana Örn Þorleifsson í Reykjavík, síð- ar bóndi og ráðunautur í Húsey. Hefur Morgunblaðsskeifan verið veitt á hverju ári síðan. Farið var að veita Morgunblaðs- skeifuna á Hólum vorið 1959. Hana vann Stefán Jónsson í Hrepphólum í Hrunamannahreppi. Var Skeifan veitt þar til ársins 2010. Byrjað var að veita áður- nefndan Morgunblaðshnakk árið 1996, þegar hestafræðinámið var byggt upp við Háskólann á Hólum. Hafa verðlaun verið veitt flest ár síðan. Morgunblaðið hefur útbúið bækling um sögu hestaverðlauna blaðsins, Morgunblaðsskeifuna og Morgunblaðshnakkinn. Þar eru einnig viðtöl við nokkra verð- launahafa og birtur listi yfir þá 140 einstaklinga sem þau hafa hlotið. Áhugasamir geta nálgast ritið í afgreiðslu Morgunblaðsins í Hádegismóum 2 í Reykjavík. 25 hafa unnið Morg- unblaðshnakkinn - Rit um sögu verðlauna blaðsins SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég er ákaflega stolt. Það liggur mikil vinna að baki þessu í þrjú ár,“ segir Birta Ingadóttir úr Reykjavík, útskriftarnemi úr hestafræði við Há- skólann á Hólum. Hún fékk verðlaun Morgunblaðsins, Morgunblaðs- hnakkinn, fyrir besta samanlagðan árangur í öllum reiðmennsku- áföngum þau þrjú ár sem námið hef- ur staðið. Vera Evi Schneiderchen fékk reiðmennskuverðlaun Félags tamningamanna fyrir hæstu eink- unn á þriðja ári námsins. Verðlaunin voru afhent á reiðsýn- ingu brautskráningarnema síðastlið- inn laugardag. Sýningin markar endi námsins en brautskráning fer fram síðar. Sextán nemendur út- skrifuðust úr hestafræðinni að þessu sinni og í fyrsta skipti í sögu há- skólanámsins voru það eingöngu stúlkur. Við lok athafnarinnar klæddust nemendurnir hinum bláa einkennisfatnaði tamningamanna. Mette Mannseth yfirreiðkennari sagði við kynningu á reiðsýningunni að árgangurinn hefði verið sterkur og afar mjótt á munum á milli efstu nemenda í keppninni um Morgun- blaðshnakkinn. Sigurbjörn Magn- ússon, stjórnarformaður Árvakurs sem gefur út Morgunblaðið, afhenti verðlaun blaðsins. Kom í ljós við af- hendinguna að stjúpdóttir hans, Birta Ingadóttir, hafði unnið verð- launin. Skemmtileg tilviljun það. Tæki í verkfærakistuna Birta tók undir orð Mette og sagði að bekkurinn hefði verið sterkur og allar stelpurnar mjög færar, þegar blaðamaður ræddi við hana. Það hefði því komið sér mikið á óvart að Morgunblaðshnakkurinn kom í hennar hlut. Hún segir að námið hafi veitt sér ný tæki í verkfærakistuna sem muni nýtast henni vel í framtíðinni. Birta segist ætla að nýta þekkinguna við atvinnumennsku í hestamennsku; reiðmennsku, þjálfun, tamningar og kennslu. Hún ætlar einnig að halda áfram að keppa og leggja líf og sál í þetta starf. Fer fyrst í fæðingarorlof Vera Evi Schneiderchen segir að tíminn á Hólum hafi verið skemmti- legur og þar hafi hún lært mikið. „Það er ótrúlega gaman að vera með hópi af stelpum sem hafa sömu áhugamál og ég og frábærum kenn- urum. Þetta er tími sem aldrei gleymist,“ segir hún. Vera er frá Þýskalandi en ætlar að búa áfram á Íslandi næstu árin. Reiknar hún með að vinna við tamn- ingar og þjálfun. „Hún ætlar fyrst í fæðingarorlof,“ skýtur Guðbjörn Tryggvason inn í og þá upplýsist að kærustuparið á von á barni. Vera hefur unnið við íslenska hesta frá unga aldri og það var alltaf draumurinn að komast til Íslands og sjá hvernig unnið væri að málum í upprunalandinu. Draumurinn hafi ræst árið 2018, hún hafi komist í tímabundið starf við tamningar og óvænt hafi hún komist í námið á Hól- um. Mikil vinna liggur að baki - Birta Ingadóttir er stolt af Morgunblaðshnakknum sem hún fékk fyrir að standa sig best í reið- mennsku í þriggja ára háskólanámi á Hólum - Sextán luku námi úr hestafræðideild og allt stúlkur Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reiðsýning Útskriftarnemar stilla sér upp, komnar í bláa einkennisjakka tamningamanna, ásamt Mette Mannseth yfirreiðkennara. Verðlaunahafar Vera Schneiderchen á Ramónu frá Hólshúsum og Birta Ingadóttir á Fjólu frá Skipaskaga með verðlaun sín ásamt Hlíf Sturludóttur, móður Birtu, og Sigurbirni Magnússyni, stjórnarformanni Árvakurs. Domusnova Fasteignasala verður lokuð eftir hádegi þriðjudaginn 24. maí vegna útfarar okkar kæra samstarfsmanns Magnúsar Guðlaugssonar hæstaréttarlögmanns og fasteignasala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.