Morgunblaðið - 23.05.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.05.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022 ✝ Steindór Árna- son stýrimaður fæddist í Neskaup- stað 11. október 1931. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 12. maí 2022. Foreldrar hans voru Gyða Guðmundína Stein- dórsdóttir hús- móðir, f. 27.2. 1901 á Nesi í Norðfirði, d. 20.3. 1960 og Árni Daníelsson, verkamaður og út- vegsbóndi, f. 23.3. 1901 í Sand- víkurseli, d. 3.7. 1978. Steindór var fjórði í röð níu systkina, þrjú þeirra eru enn á lífi. Hinn 13. september 1958 kvæntist hann Mettu Dagnýju Gunnarsdóttir frá Eskifirði, f. 13.7. 1940. Foreldrar hennar voru Guðrún Helga Kristjáns- dóttir og Gunnar Valgeir Hall- grímsson vélstjóri frá Eski- Dóttir Helgu: Metta Margrét Muccio, unnusti Oddur Vilberg Sigurðsson. 4) Gunnar Valur Steindórsson, f. 1971, maki Kristrún Einarsdóttir. Börn þeirra: a) Aníta Dagný, b) Brynja Mekkín, c) Eva Marín. Langafabörn Steindórs eru 6 talsins: Lilya Christine, 11 ára, Dylan Antony, 9 ára, Phonix, 6 ára, Hrafney Metta, 3 ára, Máni Rafn, 1 árs og Jens Pétur Sölvi, 1 árs. Steindór byrjaði kornungur til sjós fyrir austan og á Hornafirði. Eftir útskrift úr Stýrimannaskólanum í Reykja- vík 1955 var hann stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum og síldarbátum, m.a. á Vetti SU 103 og Austfirðingi SU 3, en lengst af var hann fyrsti stýrimaður á Hval 9 eða frá 1964 til 1973. Steindór hætti til sjós 1973 og hóf störf hjá Siglingamálastofnun, lengst af sem fulltrúi í skipaskrán- ingum og vann þar sleitulaust til sjötugs. Útför fer fram í kyrrþey. firði. Steindór og Dagný byggðu sér hús á Eskifirði og hófu þar búskap en fluttu í Kópa- vog 1964 og hafa búið þar æ síðan. Börn þeirra eru: 1) Árný Gyða, f. 1959, maki Steve Button. Börn Gyðu: a) Ben Dani- el Squires, maki Karen Squiers, b) Lísa Sue Squiers, maki Adarsh Sank- aranarayanan. 2) María Stein- dórsdóttir, f. 1962, maki Jens Pétur Jensen. Börn þeirra: a) Steindór Dan Jensen, unnusta Gunnþóra Elín Erlingsdóttir, b) Þór Jensen, unnusta Bjark- ey Ottósdóttir, c) Finnbogi Manfred Jensen, unnusta Steinunn Sara Arnardóttir. 3) Helga Steindórsdóttir, f. 1965, maki Hallur Þorsteinsson. Steindór Árnason stýrimaður frá Norðfirði varð bráðkvaddur í sófanum í stofunni heima hjá sér í Kópavogi, eins og hann hafði ætl- að sér. Hann var saddur lífdaga og tilbúinn fyrir síðustu sjóferðina. Fjölskyldan mætti öll á staðinn skömmu eftir andlátið og hélt hús- kveðju að íslenskum sið með presti. Allir fengu tækifæri til að kveðja hann þar sem honum leið best. Þetta var einstaklega falleg og ljúfsár stund og fyrir hana er- um við þakklát. Ég man vel daginn sem ég hitti Steindór sumarið 1984. Ég hafði verið að læðupokast með þvott til kærustu minnar, og tilvonandi eiginkonu, sem þá bjó í heimahús- um. Ég varð hálfskömmustuleg- ur þegar Steindór bar að garði, stór maður vexti, með svart skegg, kvikur í hreyfingum og tali. Ég ekki á heimavelli og vand- ræðalegur. Fljótlega sá ég hversu ljúfan og góðan mann Steindór hafði að geyma. Greið- vikni var honum í blóð borin. Þeg- ar frumburður okkar Maju fædd- ist bjuggum við í foreldrahúsum og í honum eignaðist Steindór nafna. Þá grét hann gleðitárum í Kópavogskirkju. Ég á margar góðar og skemmtilegar minningar frá Þinghólsbraut. Tengdapabbi og –mamma stunduðu heimilisiðnað af kappi, eins og títt var, en mest fór fyrir netafellingum. Þá var allt undirlagt, bæði stofan og bílskúr- inn. Ómögulegt var fyrir mig ann- að en að reyna að taka þátt í þessu, en fljótur þótti ég ekki að setja möskvana upp á rörið! Elju- semi og dugnaður Steindórs og tengdamömmu var slíkur, að fjöl- skyldan gat veitt sér að ferðast mun meira en þá þekktist á meðal venjulegs launafólks. Þannig ferð- uðust þau hjónin 1979, ásamt þremur börnum sínum og einum kærasta, til að heimsækja elstu dóttur sína, sem skömmu áður flutti með verðandi eiginmanni sínum til Tasmaníu í Ástralíu! Og þar búa tvö af barnabörnum þeirra hjóna. Fjölskyldurnar hafa í genum árin oft sameinast, ýmist á Íslandi eða í Ástralíu. Steindór kynnti sig gjarnan sem „kommúnista frá Norðfirði“ og það var hann, eins og tíðkaðist með Norðfirðinga. Nokkur breyt- ing varð þó á þegar hann eignaðist landið undir Vinaminni í Kjós, sumarbústaðinn sem hann byggði sjálfur, en á leigulandi. Hann varð á augabragði stoltur „landeig- andi“ í Kjós og þar undi hann sér best. „Komdu út á pallinn Jens og horfðu með mér á sólsetrið,“ skip- aði hann mér stundum. „Hefurðu séð fallegra útsýni drengur?“ spurði hann og horfði í vestur frá Norðurnesi niður Kjósardalinn. Það hentaði Steindóri að standa hátt í landinu og horfa vítt. Það var ekki fyrr en nýlega er ég hafði sjálfur eignast bústað að ég skildi tengdapabba fyllilega. Þegar kraftarnir dugðu ekki lengur til að viðhalda „Kjósinni“, þá seldi hann bústaðinn og gaf börnum sínum allt andvirðið. Búið spil. Þetta lýsti honum vel, aldrei nein vettlinga- tök eða hik hjá gamla stýrimann- inum. „Þú átt leikinn æskuher, sjálf- sagt munt þú síðar finna svalann blása á móti þér,“ sagði hann þeg- ar ég átti leik. Ég sakna þess að geta ekki lengur teflt við tengda- pabba. Guð blessi þig elsku tengda- pabbi. Jens Pétur Jensen, Skerjafirði. Elskulegur tengdapabbi er fall- inn frá. Ég kveð hann með sorg í hjarta og innilegu þakklæti fyrir skemmtilegar stundir og góðar minningar í gegnum árin, þær lifa áfram. Ég er þakklát fyrir allar sögurnar hans, vísurnar sem hann fór með og ljóðin. Þakklát fyrir samtöl okkar, hreinskilni hans og einlægni. Þakklát fyrir yndislegan afa sem dætur mínar fengu að kynnast og þá fallegu kveðjustund sem við áttum með fjölskyldunni þegar hann kvaddi þessa jarðvist. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Elsku Steindór, hvíldu í friði. Kristrún. Elsku afi okkar, takk fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman og allar góðu minn- ingarnar sem munu lifa áfram í hjörtum okkar. Góða ferð í sumarlandið þar sem Catla okkar bíður eftir þér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þínar afastelpur, Aníta Dagný, Brynja Mekkín og Eva Marín. Elsku afi. Þú sagðir okkur oft söguna af því þegar sagt var við þig, sem barn, að þú værir svo vit- laus að þú gætir ekki dáið. Þú varst greinilega ekki svo vitlaus eftir allt saman. Þegar við vorum litlir áttir þú það til að taka okkur í fangið og sleppa okkur ekki fyrr en við svöruðum rétt spurning- unni: „Hver er bestur?“ Rétta svarið var afi, sem var reyndar al- veg hárrétt, því þú varst svo sann- arlega bestur! Þú varst stríðinn, hávær, fyr- irferðarmikill, montinn, þrjóskur og dálítið orðljótur. En þér tókst að bera þessa eiginleika eins og þeir væru allir hinir mestu kostir. Þú komst nefnilega upp með það sem öðrum leyfist jafnan ekki, því þú gerðir það af lagni, húmor og hlýju. En umfram allt varstu fyndinn, skemmtilegur, góður og hjartahlýr. Oft montaðirðu þig af því að tala útlensku, þótt innstæð- an fyrir því væri af mjög skornum skammti. Til að sanna mál þitt sagðirðu „allabaddarí, fransí, biskví“ og glottir. Einn sólríkan dag uppi í bústað sagðirðu hátt og snjallt við okkur bræður: „Don’t believe it!“ og spurðir hvort við vissum hvað það þýddi. Við báðum þig auðvitað að segja okkur það og þú varst fljótur að ansa: Svona er lífið. Það þarf ekki að draga dul á að þér fannst gaman að tala og sög- urnar sem þú sagðir lifa með okk- ur, ekki síst vegna þess að þú passaðir upp á að endurtaka þær reglulega svo við gleymdum þeim ekki. Sögur af sjónum og sögur frá því í gamla daga voru áber- andi, t.d. sögur af því hvernig var að alast upp í 9 systkina hópi í litlu húsi. Þú hafðir líka dálæti á kveðskap og kunnir ósköpin öll af kvæðum utanbókar. Hæfileikan- um til að læra ljóð utan að glat- aðirðu aldrei, þótt aldur yrði hár. Eftir þig liggja einnig margir ódauðlegir frasar sem þú lést út úr þér við hin og þessi tilefni, en fæstir þeirra eru hæfir til prent- unar. Þú sast aldrei auðum höndum og vildir hafa margt fyrir stafni. Oftar en ekki sneri það að ýmiss konar listsköpun úr tréverki, allt frá því að renna litla kertastjaka til þess að smíða fuglahús og ný- stárlegan kofa utan um rotþróna uppi í bústað (og reyndar bústað- inn sjálfan líka). Þú sagðist oft vera heimsins mesti listamaður og þótt þú gerðir það í gríni var margt til í því. Þú skapaðir ótelj- andi listaverk yfir ævina og hann- aðir alls konar skrautmuni sem prýða heimili víða um land og minna okkur á þig á hverjum degi. Síðustu áratugina sastu löngum stundum og saumaðir út myndir. „Nú er ég sko að sauma fallega mynd af þér,“ áttirðu til að segja við gesti og þá varstu yfirleitt að sauma út mynd af einhverri bú- skepnu. Hvíldu í friði, elsku afi okkar. Við vitum að þú vakir yfir ömmu og okkur hinum, afkomendum þínum, vinum og vandamönnum. Takk fyrir sögurnar, allan hlátur- inn og ástina. Þínir dóttursynir, Steindór, Þór og Finnbogi. Steindór Árnason ✝ Sólveig Ein- arsdóttir fædd- ist á Siglufirði 14. júní 1934. Hún lést á Hrafnistu Hraun- vangi 15. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Dóróthea Sigurlaug Jóns- dóttir, f. 6.5. 1904, d. 24.3. 2001 og Ein- ar Ásgrímsson, f. 6.11. 1896, d. 5.10. 1979. Systkini Sólveigar eru: 1) Jón Einarsson, f. 31.1. 1926, d. 23.5. 2016, 2) Ásta M. Einarsdóttir, f. 14.5. 1928, 3) Ásgrímur G. Ein- arsson, f. 7.11. 1929, d. 19.5. 2010, 4) Guðlaug Einarsdóttir, f. 29.3. 1932, d. 10.6. 1999, 5) Brynjar Óli Einarsson, f. 17.9. 1936, d. 27.6. 1984, 6) Stella M. 5.6. 1961. Maki Runólfur Bjarna- son, börn þeirra: 1) Helgi, giftur Dagbjörtu Örvarsdóttur, börn þeirra eru Ragnheiður Birta, Margrét Freyja, Runólfur Kári og Viktoría Dís. 2) Margrét Soffía, gift Vilhelm M. Bjarna- syni, börn þeirra eru Kolfinna Rán og Hrafntinna Ýr. 3) Matthildur Helgadóttir, f. 5.4. 1966. Barn hennar Einar Sigurður Helgason. 4) Harpa Helgadóttir, f. 2.6. 1968. Maki Árni Örn Jónsson. Börn þeirra eru: 1) Kolbrún Hanna, börn hennar eru Harpa Sólveig og Hanna Sóley. 2) Jón Björn, sambýliskona hans er Ólöf Lund. Sólveig ólst upp á Grundar- götu 9 á Siglufirði. Sólveig vann ýmis störf, m.a. í síld og í Aðal- bakaríi á Siglufirði en var mest- an hluta ævinnar húsmóðir. Heimili Sólveigar og Helga var allan þeirra búskap í Hafnar- firði. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 23. maí 2022, kl. 13. Einarsdóttir, f. 9.2. 1940, d. 19.11. 2020. Samfeðra var Eysteinn Óskar Einarsson, f. 18.5. 1923, d. 1.2. 2011. Eftirlifandi eig- inmaður Sólveigar er Helgi Björn Ein- arsson, f. í Bjarna- bæ í Hafnarfirði 22.7. 1937. Þau giftu sig 14.2. 1960. Dætur þeirra eru: 1) Dóróthea E. Jónasdóttir, f. 5.2. 1954, d. 25.8. 2006. Maki Sig- urður Kristinsson. Dætur þeirra eru: 1) Sólveig Helga, sambýlis- maður Hlynur Jóhannesson, börn þeirra eru Dóróthea Elísa, Sigurður Ísak, Ísold Elísa og Kristófer. 2) Sigurbjörg Kristín. 2) Ragnheiður Helgadóttir, f. Elsku hjartans mamma mín lést á Hrafnistu 22. maí 2022, ég finn fyrir sorg og söknuði en ég finn einnig fyrir ró og veit að þér líður vel núna. Elsku mamma, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, það er fallegt og gott að eiga góðar minningar um góða mömmu. Þetta er tíminn þinn, sumarið að koma og líf að kvikna í görðum, þú hafðir gaman af að vinna í garð- inum í sumarbústaðnum ykkar pabba, gróðursetja blóm og gera fallegt í kringum ykkur, þar und- uð þið pabbi ykkur vel í sveitinni með yndislegum vinum. Mamma, ég elska þig, takk fyr- ir alla gleðina sem þú hefur gefið mér, takk fyrir alla hjálp þína og þolinmæði. Þín dóttir, Matthildur. Bjartan dag í júnímánuði árið 1968 byrjaði samfylgd okkar mömmu og varði í tæp 54 ár. Mér til mikillar gæfu fékk ég að njóta öryggis og ástúðar á æskuheimili mínu í Hafnarfirði þar sem mamma hafði stærsta hlutverkið. Mamma ólst upp á Siglufirði og við ljóslifandi minningar hennar frá æskustöðvum sínum lifnaði Siglufjörður við og allur hennar systkinahópur og var næstum eins og ég hefði búið þar sjálf. Hún fór eitt sumarið suður til að sækja vinnu og sá þá í fyrsta skipti Hafn- arfjörð, hún hreifst strax af þess- um bjarta og opna bæ sem síðar átti eftir að verða hennar heima- bær. Þegar ég kynntist Árna eig- inmanni mínum tók mamma vel á móti honum og líkaði það vel að hann væri frá Dalvík, að norðan, og brosti. Mamma var ekta amma og varði miklum tíma með börnum okkar og eru ómetanleg þau áhrif sem hún hafði á þau. Hún var mik- ið fyrir öll barnabörnin sín, studdi þau og veitti þeim ástúð og hlýju. Langömmubörnin bættust í hóp- inn og veitti það mömmu mikla gleði að elsta barnabarn okkar Árna var skírt í höfuðið á henni. Það voru forréttindi að fá að fylgj- ast með mömmu og pabba ferðast í gegnum lífið en mikil ástúð og væntumþykja þeirra hvors til ann- ars var okkur öllum sýnileg og barst til okkar allra. Þórustaðir voru þeirra sælureitur, sumarbú- staðurinn við Þingvallavatn. Þar á ég fallegar æskuminningar með mömmu og pabba og þau veittu okkur tækifæri til að koma þar saman þegar fjölskyldan stækk- aði. Síðustu ár mömmu þegar minningar frá fyrri tímum tóku yf- ir og skammtímaminni mömmu fór hverfandi, var hugur hennar á Þórustöðum en þar hafði henni lið- ið einna best. Það var okkur mikil huggun að mamma þekkti okkur öll með nafni og stutt var í brosið. Sumir dagar voru erfiðari en aðrir og þráin til að vera heima hvarf aldrei. Hugur okkar er hjá pabba á þessum erfiða tíma. Með söknuði í hjarta og tárum kveðjum við Árni mömmu og þökkum henni allt sem ekki rúmast í orðum. Harpa og Árni. Elsku amma, allar minngarnar með þér eru svo góðar, að koma heim til ykkar afa og finna hvað þú varst alltaf góð og blíð við okkur. Fara með ykkur í sveitina og þú að dekra við okkur var best. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Takk, elsku amma. Jón Björn og Einar Sigurður. Það er erfitt að skrifa í fáum orðum hversu dásamleg amma var, það voru algjör forréttindi að eiga hana ömmu. Amma var glettin og mikill húmoristi og alltaf stutt í brosið. En fyrst og fremst var amma blíð og góð við alla, sérstak- lega okkur barnabörnin. Amma elskaði að dekra við okkur og er æskan mín lituð af góðum minn- ingum um ömmu. Þær voru ófáar bústaðarferðirnar sem við fórum á Þórustaði. Þegar við komum í bú- staðinn hljóp amma á undan inn til þess að kveikja á gasofninum. Þar sátum við svo barnabörnin fyrir framan gasofninn í hlýjunni, með- an amma bar farangur inn með afa og gerði kaffið klárt því okkur mátti aldrei verða kalt. Það skipti engu máli hversu gömul ég var orðin, ég passaði alltaf upp á að vera í hlýjum fötum og sokkum þegar ég fór til ömmu, ef það gleymdist kom ég oft út í bíl með allskonar klúta og hatta sem amma hafði hlaðið á mig svo mér væri hlýtt. Það var dásamlegt að fylgjast með ömmu þegar langömmubörn- in fóru að bætast í hópinn. Þegar ég kom í heimsókn með Hörpu Sólveigu og Hönnu Sóleyju lifnaði yfir ömmu og við afi hlógum, amma varð eins og tvítug aftur þegar hún var í kringum litlu lang- ömmubörnin sín. Hún elskaði að hlaupa á eftir þeim, halda á þeim og hún leit ekki af þeim eina mín- útu. Það var ekki hægt að finna meiri barnagælu en ömmu. Ég er svo þakklát fyrir allar góðu minningarnar þegar amma var að leika við barnabörnin og skemmtilega spjallið sem við átt- um við eldhúsborðið í Erluási. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. (Hugrún) Elsku amma, takk fyrir allar stundirnar okkar saman. Kolbrún Hanna. Elsku amma, það má segja að við höfum unnið í lottó að eignast þig sem ömmu. Þú varst alltaf svo blíð og góð og hugsaðir svo vel um okkur ömmubörnin þín eins og alla aðra í kringum þig. Þú varst stór partur af okkar æsku og sem börn eyddum við ófáum stundum í sveitinni hjá ykkur afa þar sem þú dekraðir við okkur og fengum við að bralla ýmislegt sem annars var bannað. Þú hafðir einstakt lag á börnum og lékst þér að útkljá erfiðustu deilur okkar barnanna og skildir alla eftir með bros á vör. Það má með sanni segja að betri ömmu og langömmu er ekki hægt að eiga og er mikil synd að langömmubörnin þín fái ekki lengri tíma til að kynn- ast þér og njóta. Þú varst alltaf svo barngóð og þó að aldur og veikindi hefðu tekið yfirhöndina síðustu ár gladdist þú alltaf jafn mikið þegar langömmubörnin þín komu í heimsókn. Þið afi pössuðuð alltaf svo vel að halda okkur, hópnum ykkar, sam- an og standa jól og aðrir hátíðis- dagar upp úr þar sem við vorum öll komin saman hjá ykkur í Fagrahvammi eða í sveitinni. Öll jólin þar sem sást ekki í jólatréð fyrir pakkaflóði, páskarnir og verslunarmannahelgarnar sem við eyddum saman í sveitinni, þetta eru bestu minningarnar sem við hugsum til með mikilli ást og hlýju. Þú tókst okkur alltaf opnum örmum og fundum við vel hvað við vorum alltaf velkomin til ykkar sama hvenær það var. Þú tókst alltaf á móti okkur með brosi og faðmlagi og sást til þess að engin færi svangur frá þér þar sem nóg var til af kökum og góðum mat. Það er skrítið að geta ekki stoppað við í Erluási og kíkt í heimsókn sem var eins konar miðpunktur fyrir okkur fjölskylduna. Við söknum þín mjög en erum þakklát fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum með þér. Takk, elsku amma, fyrir samfylgdina í gegn- um lífið og allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Þín Helgi og Margrét. Sólveig Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.