Morgunblaðið - 23.05.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Øystein Meier Johannessen, fyrr-
verandi sveitarstjórnarmaður í
Hemnes og nú innsti koppur í búri
norska trúfélagsins Norges Psyke-
deliske Tros- og Livssynssamfunn,
hyggst láta reyna á það fyrir Mann-
réttindadómstól Evrópu í Stras-
bourg hvort norskum yfirvöldum sé
stætt á að banna trúfélagi hans,
sem telur um 40 félaga, að neyta
LSD, ofskynjunarsveppa og fleiri
efna til að komast í samband við hið
andlega og gera sóknarbörnin að
betri manneskjum, en það voru ein-
mitt rökin sem Johannessen tefldi
fram í héraði og fyrir lögmanns-
rétti þar sem hann hlaut að lokum
60 daga skilorðsdóm eftir að lög-
regla fann sveppi, LSD, amfetamín
og MDMA í húsbifreið hans.
Eins og nafn trúfélagsins gefur
til kynna leggur það blessun sína
yfir notkun hugbreytandi efna við
trúarathafnir en það gera norsk
yfirvöld hins vegar ekki og neitaði
Hæstiréttur Noregs Johannessen
um fyrirtöku málsins.
NOREGUR
Trúfélag vill leyfi til
fíkniefnaneyslu
Ljósmynd/Wikipedia
Trjónupeðla, Psilocybe semilanceata, er
meðal þess sem trúfélagið kýs að nota.
Tveir öryggis-
verðir Banda-
ríkjaforseta voru
sendir heim frá
Seoul, höfuðborg
Suður-Kóreu, um
helgina í kjölfar
atviks á fimmtu-
dag er þeir
skruppu á kráa-
rölt sem lyktaði
með því að þeir
lentu í átökum við leigubílstjóra.
Voru þeir í hópi slíkra varða úr
leyniþjónustunni sem sendir voru
til Suður-Kóreu til að undirbúa
heimsókn Bidens forseta til lands-
ins, fyrsta áningarstaðar í As-
íuheimsókn hans. Anthony Gug-
lielmi, talsmaður
öryggissveitarinnar, segir í frétta-
tilkynningu að yfirmönnum sé
kunnugt um að upp hafi komið at-
vik þar sem hugsanlega hafi verið
farið á svig við starfsreglur og
væru hlutaðeigendur í leyfi.
SUÐUR-KÓREA
Leyniþjónustumenn
voru sendir heim
Joe Biden ávarpar
fjölmiðla í Seoul.
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Úkraínumenn telja útilokað að til
vopnahlés eða nokkurra annarra til-
slakana komi í innrásarstríði Rússa
þar í landi í kjölfar þess að rússneski
herinn færði sig enn upp á skaftið í
Austur- og Suður-Úkraínu með því að
herða orrahríð sína að Donbas- og
Mykolaív-héruðunum með loftárás-
um og þungri stórskotaliðsárás.
Afstaða úkraínskra stjórnvalda
þykir síst hafa linast síðustu vikur á
meðan rússneski herinn hefur átt við
ramman reip að draga í landi sem
hann taldi sig eiga í fullu tré við í febr-
úarlok. „Þessu stríði verður að ljúka
með því að Úkraína endurheimti öll
sín landsvæði og komist til fullveldis á
ný,“ sagði í yfirlýsingu Andriy Jer-
mak, talsmanns úkraínska forseta-
embættisins, á Twitter í gær.
Úkraína ein ákveði framtíðina
Forseti Póllands, Andrzej Duda,
bauð stjórnvöldum í Kænugarði allan
mögulegan stuðning í ávarpi í gær og
lét þess þar getið að alþjóðasamfélag-
ið ætti ekki annars úrkosti en að
krefjast þess að Rússar hyrfu skilyrð-
islaust á brott frá Úkraínu, sérhver
fórn úkraínskra landsvæða í hendur
Rússa væri ekkert annað en gríðar-
legt högg í garð Vesturlanda.
Lét Duda þess enn fremur getið að
þær áhyggjuraddir yrðu æ háværari
sem héldu því fram að Úkraínumenn
skyldu beygja sig fyrir kröfum Pútíns
Rússlandsforseta. „Úkraína ein er til
þess bær að taka ákvarðanir um
framtíð sína,“ sagði pólski forsetinn
sem varð fyrstur erlendra þjóðarleið-
toga til að ávarpa úkraínska þingið
síðan Rússar réðust inn í Úkraínu 24.
febrúar.
Volodímír Selenskí Úkraínuforseti
ávarpaði þing sitt við sama tækifæri
og Duda og ítrekaði þar þá kröfu sína
að alþjóðasamfélagið léti rússnesk
stjórnvöld finna til tevatnsins með
viðskiptaþvingunum.
Stríðinu ekki lokið
„Engin vettlingatök duga gegn
árásargirni,“ sagði Selenskí í ávarpi
sínu, en ekki leið á löngu frá því þeir
Duda Póllandsforseti luku ávörpum
sínum, að loftvarnaflautur hljómuðu í
Kænugarði sem áminning um að
stríðinu væri engan veginn lokið þótt
víglínan hefði færst fjær höfuðborg-
inni.
Selenskí forseti hélt því fram á sam-
eiginlegum blaðamannafundi þeirra
Póllandsforseta, að 50 til 100 Úkraínu-
menn týndu lífi sínu á austurvígstöðv-
unum hvern þann dag sem styrjöldin
geisaði og við slíkar mannfórnir mætti
ekki búa deginum lengur.
Einna harðast er nú barist í borg-
unum Sverodonetsk og Lýsítjansk ef
marka má orð Vadím Denísjenkó,
talsmanns úkraínska innanríkisráðu-
neytisins, í sjónvarpsviðtali í gær en
borgirnar tilheyra báðar svæði sem
Rússar hafa lagt ofuráherslu á að ná á
sitt vald eftir að sókn þeirra inn í
Kænugarð rann út í sandinn í apríl.
Talsmenn úkraínska hersins gáfu
það út í gær að sjö almennir borgarar
hefðu týnt lífi sínu og fleiri særst í
árásum Rússa í Donetsk. Við sama
tækifæri sendi Mikhaíló Podolíak, yf-
irsáttasemjari úkraínska hersins, út
þá yfirlýsingu að hvorki tilslakanir né
vopnahlé kæmi til greina þar sem
hvort tveggja fæli í sér að rússneskir
hermenn yrðu innlyksa á hernumdum
svæðum í Úkraínu og við slíkt mættu
stjórnvöld í Kænugarði ekki búa.
„[Rússneski] herinn verður að yfir-
gefa landið til þess að hægt verði að
hefja friðarviðræður,“ sagði Podolíak
í viðtali við Reuters-fréttastofuna um
helgina og kvað allar kröfur um
vopnahlé út í hött, Rússar kæmu ein-
göngu til með að nýta sér hugsanlegt
vopnahlé til að koma tvíefldir til baka
á vígvöllinn.
Gríðarlegt högg í vestur
- Útiloka vopnahlé - „Þessu stríði verður að ljúka“ - Engin vettlingatök dugi
gegn árásargirni - Rússar muni nýta sér vopnahlé og koma tvíefldir til baka
AFP
Mótmæli Úkraínskar konur í Grikklandi halda á mótmælaskilti gegn stríð-
inu í Úkraínu um helgina. Úkraínumenn útiloka vopnahlé.
Uppátækjasemi umhverfisaðgerða-
sinnans Robs Greenfields ríður ekki
við einteyming þegar kemur að því
að vekja athygli samborgaranna á
landsins gagni og nauðsynjum. Hér
spásserar Greenfield um Beverly
Hills í Kaliforníu í „fötum“ úr öllu
því sorpi sem fallið hefur til hjá
honum á 27 af 30 dögum þessa til-
tekna verkefnis. Skrýðist hann þar
með samtals 28,5 kílógrömmum af
rusli með það fyrir augum að vekja
athygli á því fargani sem við hend-
um frá okkur án þess að hugsa mik-
ið út í það.
Af fyrri verkefnum Greenfields
má nefna eitt ár án þess að nota raf-
magn 2013, ár án sturtu 2014,
ferðalag þvert yfir Bandaríkin án
peninga 2015-2016 og ár án þess að
kaupa mat 2019.
Spókar sig í fatnaði úr eigin sorpi til að vekja athygli á hlassinu sem fólk kastar í tunnuna
Menn sem
klæðast
ruslafötum
AFP/ Robyn Beck