Morgunblaðið - 23.05.2022, Side 27
sem Maximilian Eggestein kom Frei-
burg yfir og Leipzig missti Marcel Hals-
tenberg af velli með rautt spjald. Chri-
stopher Nkunku jafnaði samt fyrir tíu
leikmenn Leipzig og liðið vann síðan
sigur í vítaspyrnukeppni eftir marka-
lausa framlengingu.
_ Óttar Magnús Karlsson tryggði
Oakland Roots sigur á varaliði Los Ang-
eles Galaxy, 1:0, í bandarísku B-
deildinni í fótbolta í fyrrinótt. Óttar
skoraði úr vítaspyrnu á 37. mínútu og
hann er nú markahæstur í deildinni
með sjö mörk í ellefu leikjum fyrir Oakl-
and. Liðið er samt næstneðst af þrett-
án liðum í vesturdeild B-deildarinnar.
_ Magdeburg er einu stigi frá þýska
meistaratitlinum í
handknattleik eftir
stórsigur á Ham-
burg á útivelli,
32:22, í gær. Liðið
á eftir þrjá leiki og
getur tryggt sér
titilinn í næsta
heimaleik gegn
Balingen. Ómar
Ingi Magnússon fór á kostum og skor-
aði 12 mörk úr 13 skotum í Hamborg,
og þá skoraði Gísli Þorgeir Krist-
jánsson tvö mörk fyrir Magdeburg. Lið-
ið er með 58 stig og á þrjá leiki eftir en
Kiel er með 50 stig og á fjóra leiki eftir.
_ Hörður Björgvin Magnússon, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, kvaddi CSKA
Moskva eftir 4:0 sigur liðsins á Rostov í
lokaumferð rússnesku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu um helgina.
Hörður yfirgefur nú CSKA eftir fjögur
ár en áhorfendur kvöddu hann með vík-
ingaklappinu í leikslok. Hörður kom inn
á sem varamaður undir lok leiksins en
CSKA endaði í fimmta sæti deild-
arinnar.
_ Alexandrea Rán Guðjónsdóttir,
kraftlyftingakona úr Breiðabliki, hlaut í
dag silfurverðlaun á heimsmeistara-
móti unglinga í bekkpressu sem nú
stendur yfir í Almaty í Kasakstan. Alex-
andrea keppir í -63 kg flokki og lyfti
112,5 kg, 117,5 kg og loks 125 kg, og
bætti þar með sinn besta árangur um
tvö og hálft kíló. Alexandrea keppir
einnig í klassískri
bekkpressu á
mótinu og þá mun
Matthildur Ósk-
arsdóttir keppa í
-84 kg flokki ung-
linga á mótinu.
Þær keppa báðar á
laugardaginn kem-
ur.
_ Hilmir Rafn Mikaelsson, 18 ára
strákur frá Hvammstanga, kom inn á
sem varamaður hjá Venezia í gærkvöld
og spilaði sinn fyrsta leik í ítölsku A-
deildinni. Hilmir kom til Venezia frá
Fjölni síðasta sumar og var í fyrsta
skipti í hópi aðalliðsins í deildinni en
lokaumferðin var leikin um helgina.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022
ENGLAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Manchester City tryggði sér enska
meistaratitilinn í fjórða sinn á fimm
árum með ævintýralegum fimm mín-
útna kafla gegn Aston Villa á Eti-
had-leikvanginum í Manchester í
gær þar sem liðið stóð uppi sem sig-
urvegari, 3:2.
Útlitið var ekki bjart fyrir City
sem var 0:2 undir eftir 70 mínútna
leik en Matty Cash og Philippe Co-
utinho höfðu þá skorað fyrir Aston
Villa.
Liverpool var á sama tíma í barn-
ingi gegn Wolves en staðan var 1:1
og Liverpool hefði orðið meistari
með því að knýja fram sigur. Það
gerði Liverpool reyndar, vann 3:1,
en það dugði skammt þegar á
reyndi.
Manchester City skoraði nefni-
lega þrjú mörk á fimm mínútna kafla
og breytti stöðunni úr 0:2 í 3:2 þegar
Ilkay Gündogan, Rodri og Gündog-
an aftur skoruðu á 76., 78. og 81.
mínútu.
Mohamed Salah og Andy Robert-
son skoruðu fyrir Liverpool á 84. og
89. mínútu en það breytti engu þeg-
ar upp var staðið. City fékk því 93
stig gegn 92 stigum Liverpool í æsi-
legum slag um meistaratitilinn.
Pep Guardiola, sem tók við City
árið 2016, hefur þar með unnið tit-
ilinn sem knattspyrnustjóri félags-
ins í fjögur skipti, 2018, 2019, 2021
og 2022, og er kominn með tíu meist-
aratitla í þremur af sterkustu deild-
um heims, á Spáni, Englandi og í
Þýskalandi.
Manchester City hefur nú átta
sinnum orðið enskur meistari, þar af
sex sinnum frá 2012 og fór með því
fram úr Aston Villa sem á sjö titla að
baki. Manchester United (20), Liver-
pool (19), Arsenal (13) og Everton
(9) eru þau fjögur félög sem oftar
hafa unnið enska meistaratitilinn.
Liverpool getur þar með ekki náð
fernunni eftirsóttu en félagið er
bæði bikarmeistari og deildabikar-
meistari. Liverpool mætir Real Ma-
drid í úrslitaleik Meistaradeild-
arinnar næsta laugardagskvöld og
getur því unnið þrjá stóra titla á
tímabilinu þó þessi hafi runnið Jür-
gen Klopp og hans mönnum úr
greipum.
_ Chelsea og Tottenham fylgja
Manchester City og Liverpool í
Meistaradeildina næsta vetur. Son
Heung-Min skoraði þrennu fyrir
Tottenham í 5:0 útisigri á Norwich
og hann varð því markakóngur
deildarinnar ásamt Mohamed Salah
með 23 mörk.
_ Arsenal og Manchester United
fara í Evrópudeildina og West Ham
fer í Sambandsdeildina.
_ Leeds hélt sæti sínu með því að
vinna Brentford 2:1 í London á með-
an Burnley tapaði 1:2 fyrir New-
castle. Burnley fellur því ásamt Wat-
ford og Norwich.
_ Fulham og Bournemouth eru
komin upp í úrvalsdeildina og Nott-
ingham Forest og Huddersfield
leika til úrslita um síðasta sætið.
Meistarar á magnaðan hátt
- Fjórði titill Manchester City á fimm
árum undir stjórn Pep Guardiola
AFP/Oli Scarff
Meistarar Fernandinho fyrirliði lyftir bikarnum í miðjum hópi Englands-
meistara Manchester City eftir sigurinn á Aston Villa í gær.
KNATTSPYRNA
Besta deild kvenna:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Þór/KA................. 18
Meistaravellir: KR – Afturelding ....... 19.15
Keflavík: Keflavík – Þróttur R............ 19.15
Garðabær: Stjarnan – Selfoss ............. 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Annar úrslitaleikur kvenna:
Hlíðarendi: Valur – Fram.................... 19.30
Í KVÖLD!
Þýskaland
Flensburg – Kiel .................................. 27:28
- Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk
fyrir Flensburg sem er í fjórða sæti.
Oldenburg – Sachsen Zwickau.......... 22:29
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Sachsen Zwickau sem komst úr
botnsætinu og fer í umspil um áframhald-
andi sæti í deildinni.
B-deild:
Aue – Empor Rostock ......................... 30:21
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði ekki skot í marki liðsins.
Hüttenberg – Emsdetten.................... 35:28
- Örn Vésteinsson skoraði 2 mörk fyrir
Emsdetten en Anton Rúnarsson ekkert.
Coburg – Dessauer.............................. 25:31
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 2 mörk
fyrir Coburg.
Danmörk
Úrslitakeppnin:
GOG – Skanderborg............................ 32:28
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 9 skot í
marki GOG, 50 prósent.
Aalborg – Skjern ................................. 29:27
- Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.
_ GOG mætir Skjern og Aalborg mætir
Bjerringbro/Silkeborg í undanúrslitum.
Svíþjóð
Annar úrslitaleikur:
Ystad IF – Skövde....................... (frl.) 29:34
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 7
mörk fyrir Skövde og staðan er 1:1.
E(;R&:=/D
KNATTSPYRNA
England
Burnley – Newcastle ............................... 1:2
- Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Arsenal – Everton .................................... 5:1
Brentford – Leeds.................................... 1:2
Brighton – West Ham.............................. 3:1
Chelsea – Watford.................................... 2:1
Crystal Palace – Manchester Utd .......... 1:0
Leicester – Southampton ........................ 4:1
Liverpool – Wolves................................... 3:1
Manchester City – Aston Villa ................ 3:2
Norwich – Tottenham.............................. 0:5
Lokastaðan:
Manch. City 38 29 6 3 99:26 93
Liverpool 38 28 8 2 94:26 92
Chelsea 38 21 11 6 76:33 74
Tottenham 38 22 5 11 69:40 71
Arsenal 38 22 3 13 61:48 69
Manch. Utd 38 16 10 12 57:57 58
West Ham 38 16 8 14 60:51 56
Leicester 38 14 10 14 62:59 52
Brighton 38 12 15 11 42:44 51
Wolves 38 15 6 17 38:43 51
Newcastle 38 13 10 15 44:62 49
Crystal Palace 38 11 15 12 50:46 48
Brentford 38 13 7 18 48:56 46
Aston Villa 38 13 6 19 52:54 45
Southampton 38 9 13 16 43:67 40
Everton 38 11 6 21 43:66 39
Leeds 38 9 11 18 42:79 38
Burnley 38 7 14 17 34:53 35
Watford 38 6 5 27 34:77 23
Norwich 38 5 7 26 23:84 22
Ítalía
Venezia – Cagliari ................................... 0:0
- Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn á hjá
Venezia á 74. mínútu. Venezia varð neðst í
deildinni og féll.
Genoa – Bologna...................................... 0:1
- Albert Guðmundsson lék allan leikinn
með Genoa sem varð í 19. sæti og féll.
B-deild, umspil, seinni leikur:
Pisa – Benevento ..................................... 1:0
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Pisa sem mætir Monza í úrslitum.
Tyrkland
Adana Demirspor – Göztepe Izmir ....... 7:0
- Birkir Bjarnason var á bekknum hjá Ad-
ana sem endaði í níunda sæti.
Grikkland
Bikarúrslitaleikur:
Panathinaikos – PAOK........................... 1:0
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Hvíta-Rússland
Bikarúrslitaleikur:
BATE Borisov – Gomel........................... 1:2
- Willum Þór Willumsson lék allan leikinn
með BATE.
Pólland
Slask Wroclaw – Górnik Zabrze............ 3:4
- Daníel Leó Grétarsson kom inn á hjá
Slask á 82. mínútu. Liðið endaði í 15. sæti.
Eyjamenn jöfnuðu í gær metin í
einvíginu við Valsmenn um Íslands-
meistaratitil karla í handbolta með
sigri á heimavelli, 33:31, í öðrum
úrslitaleik liðanna.
Þar með þarf minnst fjóra leiki
til að útkljá einvígið en liðin mætast
á Hlíðarenda á miðvikudagskvöldið
og aftur í Eyjum á laugardaginn.
Valsmenn voru yfir nær allan
tímann í gær, mest fimm mörkum í
seinni hálfleik. Á síðustu tíu mín-
útunum breytti ÍBV stöðunni úr
24:28 í 33:30 með mögnuðum kafla
og eitt Valsmark í blálokin breytti
engu.
Ásgeir Snær Vignisson og Kári
Kristján Kristjánsson skoruðu 6
mörk hvor fyrir ÍBV, Dagur Arn-
arsson og Elmar Erlingsson 5 hvor.
Stiven Tobar Valencia skoraði 7
mörk fyrir Val, Tjörvi Týr Gíslason
og Arnór Snær Óskarsson 6 mörk
hvor.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Sigur Eyjamenn fagna í leikslok eftir að hafa jafnað metin í 1:1 gegn Val.
ÍBV jafnaði með
frábærum lokakafla
Ísland vann sér sæti í 2. deild A á heims-
meistaramóti kvenna í íshokkí í gær með
því að sigra Ástralíu, 2:1, eftir framleng-
ingu og bráðabana í hreinum úrslitaleik
liðanna í Zagreb í Króatíu.
Bæði lið höfðu unnið Króatíu, Tyrkland
og Suður-Afríku fyrir lokaumferðina í
gær. Ísland komst yfir undir lok annars
leikhluta þegar Sunna Björgvinsdóttir
skoraði eftir undirbúning Teresu Snorra-
dóttur og Silvíu Björgvinsdóttur. Kristelle
Wolf jafnaði fyrir Ástralíu, 1:1, þegar sjö
mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta.
Ekkert mark var skorað í framlengingu
og því þurfti að grípa til bráðabana. Eftir
sex umferðir án marks skoraði Silvía Björgvinsdóttir fyrir Ísland og Birta
Helgudóttir markvörður varði frá Shonu Green. Silvía var síðan kjörin
besti sóknarmaður mótsins og Birta besti markvörðurinn.
Ísland vann úrslitaleikinn
Zagreb Íslenska liðið vann
alla fjóra leiki sína í 2. deild B.
Sara Björk Gunnarsdóttir varð
Evrópumeistari í knattspyrnu með
Lyon í annað sinn á laugardaginn
þegar franska liðið sigraði Barce-
lona 3:1 í úrslitaleik Meistara-
deildar kvenna í Tórínó. Sara sat á
varamannabekknum allan tímann
að þessu sinni.
Staðan var orðin 3:0 eftir 33 mín-
útur. Amandine Henry skoraði
stórglæsilegt mark og þær Ada He-
gerberg og Catarina Macário bættu
við mörkum. Alexia Putellas
minnkaði muninn fyrir Barcelona.
Lyon skellti
Barcelona
AFP
Tórínó Sara Björk Gunnarsdóttir
lyftir Evrópubikarnum.