Morgunblaðið - 25.05.2022, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar
þig í ný
gleraugu!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Einar Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, bauð
fyrir hádegi í gær til blaðamanna-
fundar í Grósku, ásamt oddvitum
Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.
Áður hafði Framsókn boðið banda-
lagi hinna þriggja flokkanna til
formlegra viðræðna um myndun
meirihluta í borgarstjórn.
Varðist Einar spurningum um það
hvort hann geri kröfu um borgar-
stjórastólinn í komandi viðræðum, of
snemmt væri að ræða slíkt á þessu
stigi. Hann benti þó á að í kosninga-
baráttunni hefði hann gefið það
skýrt til kynna að breytinga væri
þörf á hinni pólitísku forystu í borg-
inni.
Of snemmt að ræða
skipun embætta
Dagur B. Eggertsson, oddviti og
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
sagðist telja að til staðar væri tölu-
verður málefnalegur samhljómur
milli þeirra flokka sem ákváðu að
hefja formlegar meirihlutaviðræður
í gær.
Aðspurður hvort hann geri kröfu
um formann borgarráðs, verði hann
ekki borgarstjóri, sagði hann það of
snemmt að ræða skipun embætta,
farsælla væri að byrja á því að ræða
málefnin. Þá sagði Dóra Björt Guð-
jónsdóttir, oddviti Pírata í borginni,
það klárt mál í samtali við mbl.is að
það hlyti að skipta máli í viðræðum
um myndun nýs meirihluta að flokk-
urinn væri sá eini úr gamla meiri-
hlutanum sem vann ákveðinn kosn-
ingasigur og bætti við sig einum
borgarfulltrúa. Bæði Samfylkingin
og Viðreisn töpuðu borgarfulltrúum.
Þá kom fram á fundinum að fyrsti
borgarstjórnarfundur nýkjörinna
borgarfulltrúa yrði haldinn í síðasta
lagi 7. júní en auk blaðamannafund-
arins í gær fór einnig fram síðasti
borgarstjórnarfundur fráfarandi
stjórnar.
Níu á sínum síðasta fundi
Níu borgarfulltrúar eru á útleið úr
borgarstjórn og var fundurinn því
tilfinningaþrunginn. Margir luku
máli sínu á því að þakka samstarfs-
félögum sínum í borginni fyrir sam-
starfið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Blaðamannafundur Framsókn hefur boðið þremur flokkum til formlegra viðræðna um myndun meirihluta.
Fjórir flokkar hefja við-
ræður um meirihlutann
- Segja of snemmt að ræða um borgarstjórastólinn
Faðmlag Katrín Atladóttir og Diljá Ámundadóttir láta báðar af störfum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Samningaviðræður EFTA-ríkjanna
þriggja innan EES við ESB um nýtt
starfstímabil Uppbyggingarsjóðs
EES hefjast 16. júní næstkomandi.
Þetta var ákveðið fyrr í vikunni.
Á fundi EES-ráðsins í Brussel á
mánudag lagði Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra
áherslu á mikilvægi EES-samnings-
ins og að áfram þyrfti að standa vörð
um góða framkvæmd hans, að því er
fram kemur á heimasíðu utanríkis-
ráðuneytisins. Þórdís tók einnig upp
undirbúning fyrirhugaðra viðræðna
um nýtt samningstímabil Uppbygg-
ingarsjóðs EES. Hún áréttaði þar
hve mikilvægt það væri fyrir Íslend-
inga að auka aðgengi þeirra að mark-
aði ESB fyrir sjávarafurðir og að
landbúnaðarsamningur Íslands og
ESB yrði endurskoðaður. Hvort
tveggja hefur utanríkisráðherra tekið
upp á fundum sínum með fram-
kvæmdastjórum ESB í Brussel að
undanförnu, segir í tilkynningu ráðu-
neytisins.
Í norskum fjölmiðlum kemur fram
að EES-löndin, Noregur, Ísland og
Lichtenstein, hafi greitt um það bil
378 milljarða íslenskra króna í Upp-
byggingarsjóð EES á árunum 2014-
2021. Þar af greiðir Noregur mest.
Fénu er skipt milli 15 landa í Evrópu-
sambandinu og stór hluti þess rennur
til Pólverja. Ekki fengust upplýsingar
um það frá utanríkisráðuneytinu í
gær hversu mikið Íslendingar hafa
greitt til sjóðsins á liðnum árum.
Í svari utanríkisráðherra við fyrir-
spurn Ernu Bjarnadóttur á Alþingi
kemur fram að samhliða slíkum við-
ræðum hafi hingað til verið samið um
tímabundna tollfrjálsa innflutnings-
kvóta fyrir tilteknar íslenskar sjávar-
afurðir til ESB. Einnig er gert ráð
fyrir að framþróun viðræðna um
markaðsaðgang fyrir landbúnaðar-
afurðir fylgi þeim viðræðum.
Ráðherra upplýsir að frá því í byrj-
un árs 2021 hafi ráðuneytið átt í við-
ræðum við ESB um endurskoðun á
tvíhliða samningi Íslands og ESB um
viðskipti með landbúnaðarvörur. Ósk-
að var eftir endurskoðun samningsins
í desember 2020 og hafa fulltrúar við-
komandi ráðuneyta hitt fulltrúa fram-
kvæmdastjórnar ESB á fjórum form-
legum fundum frá því að óskað var
eftir endurskoðun samningsins. „Að
fengnu samþykki ríkisstjórnar ósk-
uðu stjórnvöld eftir endurskoðun
landbúnaðarsamningsins á grundvelli
þess að langtímabreytingar hefðu
orðið á forsendum samningsins. Snúa
þær forsendubreytingar bæði að út-
göngu Bretlands úr ESB sem og því
að framtíðarspár um möguleika ís-
lensks landbúnaðar til útflutnings
hafa ekki gengið eftir. Það hefur því
skapast ójafnvægi á milli samnings-
aðila varðandi nýtingu á þeim mögu-
leikum sem samningurinn felur í sér.
Aðalmarkmið viðræðnanna af Íslands
hálfu er að auka jafnvægi í samningn-
um. Markmið stjórnvalda er að vinna
að langtímalausn með endurskoðun
samningsins en möguleiki á uppsögn
samningsins hefur ekki verið ræddur
við fulltrúa ESB, segir í svarinu.
Samningalota við ESB fyrir höndum
- Viðræður um Uppbyggingarsjóð EES hefjast í næsta mánuði - Samið um tollfrjálsa innflutnings-
kvóta fyrir íslenskar sjávarafurðir - Samningar um viðskipti með landbúnaðarvörur endurskoðaðir
Morgunblaðið/Hari
Áburður Endurskoða þarf samning um viðskipti með landbúnaðarvörur.
Viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu
er enn í gildi hjá Matvælastofnun
og hefur verið síðan í mars.
„Tilkynningum um veikar eða
dauðar súlur fer ekki fækkandi og
þar af leiðandi
eru sterkar vís-
bendingar um að
enn séu smit í
gangi. Aukið við-
búnaðarstig er
enn í gildi sem
og hertar smit-
varnarreglur fyr-
ir alifugla og
aðra fugla. Við
viljum eins og
áður fá tilkynn-
ingar frá almenningi þegar dauðir
fuglar finnast. Það er mjög mik-
ilvægt fyrir okkur,“ segir Brigitte
Brugger, sérgreinadýralæknir í ali-
fuglasjúkdómum hjá Matvælastofn-
un.
Morgunblaðið birti á laugardag-
inn ábendingu frá sjómanni sem
varð var við dauðar súlur á Faxa-
flóa nokkra daga í röð en aðrir fugl-
ar á svæðinu virtust hraustir. Bri-
gitte kannast við málið og segir
vísbendingar um að súlurnar hafi
drepist úr fuglaflensu, þótt slíkt sé
óstaðfest.
Drepast líklega úr flensunni
„Við höfum nánast látlaust fengið
tilkynningar um veikar eða dauðar
súlur á þessu svæði síðan um miðj-
an apríl. Það sem Matvælastofnun
gerir er að skrá allar tilkynningar
hjá okkur og þær gefa okkur vís-
bendingu um líkleg smit sem séu
enn til staðar. Matvælastofnun
rannsakar súlurnar ekki nánar
heldur notar upplýsingarnar til að
meta smithættu á fuglaflensu fyrir
alifugla og landið allt.
Það er í raun ekki rannsakað
hvort súlurnar drepist úr fugla-
flensu eða hvort veiran greinist í
þeim eða þær hafi drepist úr ein-
hverju öðru. Það er möguleiki en
einkennin benda til þess að þær séu
að drepast úr fuglaflensu. Það er í
raun engin stofnun með það hlut-
verk eða með fjármagn til að rann-
saka þetta sérstaklega,“ sagði Bri-
gitte Brugger þegar Morgunblaðið
hafði samband við hana í gær.
kris@mbl.is
Sömu varúðar-
ráðstafanir í gildi
- Tilkynningum fer ekki fækkandi
Brigitte
Brugger