Morgunblaðið - 25.05.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022
Vísir segir sr. Davíð Þór, sóknar-
prest í Laugarneskirkju,
ómyrkan „í máli um þann gjörning
að vísa skuli um þrjú hundruð hæl-
isleitendum úr
landi á næst-
unni“. Prest-
urinn skrifar: „Í
fréttum er það
helst að fasista-
stjórn VG hefur
ákveðið að míga
á barnasáttmála
SÞ, sem hún þó
lýgur því að hún hafi „lögfest“ á Ís-
landi, en þar kemur skýrt fram að
hann gildi um öll börn (þ.e. ein-
staklinga yngri en 18 ára) í lögsögu
hvers ríkis – óháð því með hvaða
hætti þau komu þangað.
- - -
Þar er kveðið á um að allar
ákvarðanir sem varði heill og
hamingju barna beri að taka með
hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Samt á að senda fjölda barna úr
langþráðu öryggi og skjóli hér á Ís-
landi, þvert á það sem þeim er fyrir
bestu, til að hafast við í fullkomnu
reiðileysi á götum úti á Grikklandi,
jafnvel þótt Flóttamannahjálp SÞ
hafi af mannúðarástæðum lagst
eindregið gegn því að fólk sé flutt
þangað.
- - -
Til að bíta höfuðið af skömminni
er málsvörnin fólgin í inni-
haldslausu froðusnakki um „heild-
stæða stefnumótun í málaflokkn-
um“ og því að væna formann Rauða
krossins um lygar þegar hún lýsir
ástandinu þar. Þetta er í beinni
mótstöðu við það hvernig VG-liðar
töluðu um þessi mál þegar þeir
voru í stjórnarandstöðu. Þinglið og
ráðherrar VG eru ekki lengur bara
meðsek um glæpi þessarar ríkis-
stjórnar gegn mannúð og góðu sið-
ferði, þau eru einfaldlega sek eins
og syndin.
- - -
Það er sérstakur staður í helvíti
fyrir fólk sem selur sál sína
fyrir völd og vegtyllur.“
Hótað helvíti
STAKSTEINAR
Bætt
hreinlæti
í nýjum heimi
Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrsti rampurinn í átakinu „Römp-
um upp Ísland“ var vígður við há-
tíðlega athöfn við Matkrána í
Hveragerði í fyrradag. Er þetta
fyrsti rampurinn af 1.000 sem
stefnt er að því að koma upp víðs
vegar um land á næstu fjórum ár-
um.
Ramparnir eru ætlaðir til að
veita hreyfihömluðum aukið að-
gengi að verslun og þjónustu en
stofnaður var sjóður með aðkomu
fyrirtækja og aðila sem munu
standa straum af kostnaði fyrir þá
verslunar- og veitingahúsaeigend-
ur sem taka þátt í verkefninu.
Í fyrra voru settir upp 100 ramp-
ar í miðborg Reykjavíkur í gegnum
verkefnið „Römpum upp Reykja-
vík“. Gekk verkefnið vonum framar
en smíði á römpunum lauk þremur
mánuðum á undan áætlun og undir
kostnaðaráætlun, segir í tilkynn-
ingu.
Haraldur Þorleifsson, stjórnandi
hjá Twitter og stofnandi hönnunar-
fyrirtækisins Ueno, er hvatamaður
verkefnisins.
Römpum upp Ísland
hófst á Matkránni
Rampar Hvergerðingurinn Kristján Birgisson vígði rampinn við veitinga-
húsið Matkrána í Hveragerði, að viðstöddum aðstandendum verkefnisins.
Stjórnvöld hafa í mörgum tilvikum
endurskoðað eða leiðrétt ákvarðanir
sínar í kjölfar fyrirspurna frá um-
boðsmanni Alþingis. Í fyrra lauk til
að mynda 48 málum, sem umboðs-
maður lét sig varða, með leiðréttingu
stjórnvalds og níu málum með end-
urupptöku í kjölfar spurninga frá
umboðsmanni vegna kvartana sem
honum bárust. Var þetta um 10% af
heildarfjölda kvartana á síðasta ári.
Frá þessu er greint á vefsíðu um-
boðsmanns og er tiltekið nýlegt
dæmi um tilmæli Reykjavíkurborg-
ar til bílastæðasjóðs um að endur-
skoða ákvörðun um stöðubrotsgjald.
Gert að endurgreiða gjaldið
„Í kvörtun til umboðsmanns
vegna málsins voru meðal annars
gerðar athugasemdir við að ekki
hefði verið tekin formleg ákvörðun
af hálfu borgarinnar um að tiltekinn
hluti Bankastrætis skyldi vera
göngugata á því tímabili sem sektin
var lögð á. Óskaði umboðsmaður því
eftir upplýsingum frá borginni um
hvenær og hver hefði ákveðið að
Bankastræti yrði göngugata á um-
ræddum tíma. Hvers vegna ákveðið
hefði verið að taka niður merkingar
um að umrætt svæði væri göngugata
og þá hver hefði tekið þá ákvörðun.“
Segir einnig í frásögn umboðs-
manns að hann hafi spurt hvernig
borgin teldi að merkingar um göngu-
götu á þessum hluta Bankastrætis
byggði á fullnægjandi grundvell og
að sektin samræmdist lögum. „Eftir
yfirferð málsins, í framhaldi þessa,
ákvað borgin að beina þeim tilmæl-
um til bílastæðasjóðs að endurskoða
málið, afgreiða það á réttum laga-
grundvelli og endurgreiða gjaldið.“
Leiðréttu ákvarðanir í 48 málum
- Fyrirspurnir umboðsmanns Alþingis leiða iðulega til breytinga á ákvörðunum