Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 Slegið Loksins sjást sláttuvélar á grænum svæðum í borginni en gróður hefur tekið vel við sér í maí. Hér er sláttumaður með fjarstýrða vél við Miklubraut í rigningunni í gær. Hákon Pálsson Í nýlegri grein Birgis Guðjóns- sonar í tímaritinu Cancer Medicine Journal og í viðtali, sem birtist í Morgunblaðinu í kjölfarið, lýsti hann yfir að skurðaðgerðir við bris- krabbameini væru óréttlætanlegar. Við höfnum þessari fullyrðingu. Að okkar mati er ekki tekið tillit til þeirra framfara sem hafa orðið í meðhöndlun briskrabbameina. Að auki teljum við að hún valdi ótta hjá einstaklingum sem hafa grein- ist með briskrabbamein og eru í mjög viðkvæmri stöðu. Því er nauð- synlegt að upplýsa um þær fram- farir, sem hafa orðið í meðferð briskrabbameina, og þá sann- reyndu þekkingu sem liggur að baki meðhöndlun þessa sjúkdóms. Á Íslandi greinast árlega rúm- lega 40 manns með briskrabbamein og í árslok 2020 voru tæplega 70 manns á lífi með sjúkdóminn. Ein- kennin eru oft óljós og því greinist meirihluti þeirra þegar krabba- meinið er það dreift að ekki er hægt að fjarlægja það með skurð- aðgerð. Ef sjúkdómurinn hefur dreift sér til annarra líffæra er beitt krabbameinslyfjameðferð sem miðar að því að draga úr einkenn- um krabbameinsins og lengja líf sjúklinga. Hjá hluta sjúklinga er sjúkdómurinn þó afmarkaður og er þá metið á þverfaglegum samráðs- fundi sérfræðinga hvort skurð- aðgerð sé möguleg. Aðgerðin er umfangsmikil og mikilvægt að leggja ekki á einstaklinga sem hún gagnast ekki. Ef litið er til baka á síðustu ára- tugi, þá voru horfur sjúklinga með skurðtækt briskrabbamein ekki góðar. Einungis um 4% allra sjúk- linga, sem gengust undir aðgerð, voru lifandi 10 árum eftir hana. Það hlutfall var þó allt að 18% hjá einstaklingum með smæstu æxlin sem höfðu ekki dreift sér til eitla. Engir þessara sjúklinga hefðu lifað svo lengi án aðgerðar. Á síðari ár- um hafa horfur sjúklinga með stað- bundið briskrabbamein batnað tals- vert. Aðgerðir á brisi eru öruggari og sjúklingar jafna sig fyrr. Lang- flestir þeirra fá nú krabbameins- lyfjameðferð í kjölfar skurð- aðgerðar. Krabbameinslyfjunum er ætlað að eyða meinvörpum krabba- meins sem eru ekki sýnileg á myndgreiningarrannsóknum. Rannsóknir hafa sýnt að slík við- bótarmeðferð fjölgar þeim sem lifa lengur og hún þolist líka mun betur en áður var. Þó að aðgerð sé ein- ungis framkvæmanleg í 20-30% sjúklinga þá hafa þessar framfarir leitt til þess að langtímahorfur þeirra eru mun betri nú en þær voru á árum áður. Í dag eru 25- 30% sjúklinga með skurðtækt bris- krabbamein taldir læknaðir fimm árum eftir aðgerð en 10-15% í við- bót eru á lífi, þó með endurkomu sjúkdóms. Sjúklingar með æxli, sem áður fyrr voru talin óskurð- tæk, m.a. vegna vaxtar í nærlægar æðar, eru í auknum mæli með- höndlaðir með lyfja- og geislameð- ferð og síðan með aðgerð ef hægt er og nokkur hluti þeirra læknast. Þessi þróun heldur áfram og mun vonandi leiða til enn betri árang- urs. Það er augljóslega enn langt í land er kemur að meðhöndlun sjúk- linga með briskrabbamein. Fullyrð- ingar um gagnsleysi skurðaðgerða eiga sér ekki lengur stoð í raun- veruleikanum. Miklar framfarir hafa orðið í krabbameinslækn- ingum og árangur meðferðar held- ur áfram að batna. Við teljum að betri skilningur á tilurð bris- krabbameina muni leiða til þess að þau greinist fyrr en nú er. Það er okkar von að þessi þekking skili sér líka í þróun nýrra og betri lyfja og leiði þannig til aukinna lífsgæða einstaklinga, sem greinast með briskrabbamein, og til fjölgunar í hópi þeirra sem læknast eða lifa lengur með sjúkdómi. Eftir Gunnar Bjarna Ragnarsson, Þorvarð Ragnar Hálfdánarson og Kristínu Huld Haraldsdóttur » Fleiri læknast af og lifa lengur eftir greiningu briskrabba- meins. Greinarhöfundar rekja stuttlega hvað liggur að baki þeirri framþróun. Gunnar Bjarni Ragnarsson Gunnar Bjarni er krabbameinslæknir á Landspítala. Þorvarður Ragnar er prófessor í krabbameinslækningum og yfirlæknir krabbameinslyflækn- inga meltingarfæra við Mayo Clinic í Rochester í Minnesota. Kristín Huld er skurðlæknir á Landspítala og sérfræðingur í aðgerðum á briskrabbameinum. Kristín Huld Haraldsdóttir Þorvarður Ragnar Hálfdánarson Skurðaðgerðir geta læknað briskrabbamein Tugþúsundir Íslend- inga hafa brugðist við kalli stjórnvalda um að stofna til séreignar- sparnaðar fyrir hvatn- ingu í formi skattaf- sláttar. Slíkir skatt- afslættir eru þekktir og algengir. Sem dæmi má nefna skattafslátt til einstaklinga vegna kaupa á hlutabréfum og skattafslætti til fyrirtækja sem vilja reka stóriðjuver hér á landi eða taka upp kvikmyndir eða sjónvarpsþáttaraðir í íslensku umhverfi. Skattafslættir stofna í þessum til- fellum ekki til sérstakrar skattkröfu síðar. Hinn skattalegi hvati leiðir til athafna eða aðgerða sem ríkið sæk- ist eftir. Með skattaf- slætti vegna séreign- arsparnaðar er stefnt að mikilvægum þjóð- félagslegum mark- miðum. Meðal þeirra má nefna að efla inn- lendan sparnað, auka eftirspurn eftir ríkis- skuldabréfum og lækka vexti. Eldra fólk borgi – borgi mikið Ein undantekning er frá þeirri reglu að skattafsláttur komi ekki síðar niður á þeim sem hans njóta. Undantekningin er fólk- ið 60 ára og eldra, sem öðlast hefur heimild til að taka út séreignar- sparnað og nýta hann á þann veg sem það kýs. Gagnvart þessu fólki þykir hæfa að hafa uppi skattkröfu Eftir Ólaf Ísleifsson » Skattlagning sér- eignarsparnaðar stenst engar kröfur um sanngjarna og réttláta skattlagningu. Ólafur Ísleifsson Höfundur er hagfræðingur og fv. alþingismaður. Sérkennileg skattlagning séreignarsparnaðar og hana ósmáa. Hún felst í að skatt- leggja séreignarsparnað eins og hann væri launatekjur. Hann er það ekki. Honum verður ekki jafnað saman við tekjur. Hann er eign. Tekjur og eignir eru sitt hvað Allir kunna skil á hugtökunum eignir og tekjur. Tekjur eru eins og streymandi vatn. Eignir eru eins og stöðuvatn. Eignir sæta annars konar skattlagningu en tekjur og standa skýr rök til þess. Séreignarsparn- aður stendur saman af sparnaðar- greiðslum og ávöxtun þeirra. Færa má rök fyrir því að drýgstur hluti eignarinnar eigi rót að rekja til ávöxtunar yfir langan tíma. Séreignarsparnaður sker sig frá frjálsum séreignarsparnaði og er bundinn í kjarasamningum á vinnu- markaði. Ríkið viðurkennir séreign- arsparnaðinn sem eign. Eignin er að lögum varin fyrir kröfuhöfum. Eng- inn skuldheimtumaður í dánarbúi eða þrotabúi hefur rétt til að skerða réttindi samkvæmt samningi um séreignarsparnað á nokkurn hátt. Lög heimila að ráðstafa séreignar- sparnaði skattfrjálst inn á húsnæð- islán. Þeir sem huga að íbúðarkaup- um geta fengið séreign útborgaða skattfrjálst upp í fyrstu greiðslu. Ofsköttun á séreignarsparnaði Séreignarsparnaðurinn er skatt- lagður eins og eins og hann væri tekjur sem hann er ekki. Þrepin í tekjuskatti eru sem næst 31,5%, 38% og ríflega 46%. Skattur af fjár- magnstekjum sem á við um eignir er 22%. Allir sjá muninn. Skattfram- kvæmd sem felur í sér að leggja skatt á eign eins og hún væri tekjur stenst ekki skoðun. Hér er ekki við Skattinn að sakast heldur stjórnvöld í ljósi ákvæða í lögum um tekjuskatt. Ótalið er að fólki er mismunað eftir tekjum við skattlagningu á séreign sinni. Þeir sem falla undir ákvæði um íbúðarkaup sleppa með öllu við skattinn. Á jafnræðisreglan ekki við nema stundum? Fólk 60 ára og eldra má búa við óboðlega ofsköttun og mismunun við skattlagningu séreignarsparnaðar. Hversu lengi á þetta að standa?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.