Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 Við Hækk um nni í gleð i Sá sem hér stingur niður penna sendir öllum þingmönnum Norðausturkjördæmis skýr skilaboð. Í Héð- insfirði, sunnan Múla- ganganna og út með Eyjafirði hafa fár- viðri, aurskriður og snjóflóð eyðilagt allar tilraunir til að koma Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri inn á eitt samfellt atvinnusvæði. Fyrir ofan báða gangamunnana í Héðinsfirði, við Ólafsfjarðarflugvöll og norðan Dalvíkur eyðileggur þetta vandamál sameiningu Fjalla- byggðar við allt Eyjafjarðarsvæðið. Líkurnar fyrir því að meirihluti heimamanna á Akureyri vilji sam- þykkja þessa sameiningu við nýja sveitarfélagið nyrst á Tröllaskaga eru einn á móti milljarði. Samein- ing Dalvíkur- og Fjallabyggðar kemur aldrei til greina án þess að ráðist verði í tvíbreið veggöng sunnan einbreiðu Múlaganganna, sem eru alltof utarlega og hafa í för með sér of mikla slysahættu. Fyrr komast þessi tvö sveitarfélög við utanverðan Eyjafjörð aldrei inn á eitt samfellt atvinnusvæði en nú- verandi veggöng sunnan Ólafs- fjarðar víkja endanlega fyrir tví- breiðum göngum sem skulu vera 2 km, norðan Dalvíkur. Snjóflóðin í þessum sveit- arfélögum við Eyja- fjörð sanna að steyptu vegskálarnir sunnan Múlaganga leysa eng- an vanda. Spurningin er hvenær þeir sópast ásamt núverandi vegi niður í fjörurnar þegar aurskriður sunnan ein- breiðu slysagildrunnar eyðileggja alla veg- tengingu Fjallabyggð- ar við allt Eyjafjarð- arsvæðið. Vestan gömlu Strákaganganna hverfur þetta vanda- mál aldrei án þess að tvíbreið jarð- göng undir Siglufjarðarskarð verði að veruleika. Án þeirra breyta Héð- insfjarðargöng engu fyrir utan- verðan Skagafjörð. Best væri fyrir alla þingmenn Norðaustur- og Norðvesturkjördæmis að svara því afdráttarlaust hvort heppilegra hefði verið að stöðva einangrun Fjallabyggðar við landsbyggðina í heild á undan framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng, sem vonlaust er að fjármagna með veggjaldi á hvern bíl. Milli Dalvíkur og Múlaganga munaði engu þriðjudaginn 28. des- ember að dauðaslys yrði, sem lög- reglan fékk enga tilkynningu um, þegar bifreið með bílstjóra og far- þega rann til í mikilli hálku sunnan við gangamunnann í utanverðum Eyjafirði. Þar skall hurð nærri hæl- um þegar bifreiðin stöðvaðist í hálkunni í vegkantinum í svimandi hæð yfir sjávarmáli. Í stað þess að reka hornin í samgöngumál Hún- vetninga og Skagfirðinga, og halda til streitu kröfunni um hálendisveg- inn milli Reykjavíkur og Akureyr- ar, skulu þingmenn Norðaust- urkjördæmis frekar flytja þingsályktunartillögu um tvíbreið veggöng, nær Dalvík og undir Siglufjarðarskarð, til að afstýra ein- angrun Fjallabyggðar við lands- byggðina í heild. Óbreytt ástand réttlætir ekki að íbúar Fjallabyggðar verði næstu áratugina án flugvallar á Siglufirði, sem skal uppfylla hertar öryggis- kröfur og tryggja þeim greiðan að- gang að innanlandsfluginu og sjúkrafluginu. Til þess hafa þeir sama rétt og aðrir landsmenn. Þingmaður Siglfirðinga, sem settist í stól samgönguráðherra vorið 2007, átti að kynna sér þetta vandamál í stað þess að gefa sveitarstjórn Djúpavogs fögur loforð um vel upp- byggðan og hindrunarlausan heils- ársveg á illviðrasömu svæði í 530 m hæð, um Öxi. Sjálfgefið var það ekki, að fyrr- verandi innanríkisráðherra, Ög- mundur Jónasson, hefði áhuga á því að standa við þessi loforð eftir harðar deilur við fyrirrennara sinn frá Siglufirði um tvíbreið Norð- fjarðargöng, sem hafa rofið ein- angrun Fjarðabyggðar. Með þeim var stigið fyrsta skrefið til að rjúfa einangrun sjúkrahússins í Nes- kaupstað við allan fjórðunginn. Án Mjóafjarðarganga fær þetta deilda- skipta sjúkrahús aldrei öruggar vegasamgöngur við Egilsstaða- flugvöll. Að þessu vandamáli áttu Þuríður Backman, Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þ. Herberts- son að snúa sér fyrir löngu í stað þess að taka hálendisveginn og Vaðlaheiðargöng fram yfir brýn- ustu verkefnin á Mið-Austurlandi og Vestfjörðum, sem þola enga bið. Krafan sem þingmenn Norðaust- urkjördæmis setja fram, um að halda Blönduósi og Varmahlíð utan hringvegarins, er tilefnislaus árás á samgöngumál Húnvetninga og Skagfirðinga. Að loknum fram- kvæmdum við Dýrafjarðargöng mæla öll rök með því að stutt göng undir Reynisfjall verði efst á blaði þótt stuðningsmenn Vaðlaheið- arganga á Alþingi berjist gegn þessu hagsmunamáli Víkurbúa. Skoðum möguleika á þrennum jarð- göngum vestan Dynjandisheiðar. Til þingmanna Norðausturkjördæmis Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Skoðum möguleika á þrennum jarð- göngum vestan Dynjandisheiðar. Höfundur er farandverkamaður. Eitt sinn varst þú aðeins draumur. Fal- legur draumur í huga Guðs. Draumur sem rættist. Frá upphafi tím- anna hefur andi þinn skynjað mig, ó, Guð. Ég hef verið í huga þér frá eilífð til eilífð- ar. Ég er tilgangur þinn og markmið eins og við öll og allt sem lifir og þarf að hlúa að. Samt erum við eitthvað svo agnarsmá, líkt og sandkorn eða hið minnsta fræ. Fyrirgefðu mér, höfundur og full- komnari lífsins, hvað ég læt oftast skelfing illa að stjórn. Hjálpaðu mér að leita daglega leiðsagnar þinnar svo mér farnist vel og mætti verða samferðafólki mínu til bless- unar og þér til dýrðar eins og til stóð. Í ljósi Guðs Við mannfólkið erum í raun eitt- hvað svo lítil og hugsum svo smátt. En miskunn Guðs er mikil og magnaðri öllum mannlegum mætti. Í ljósi mannlegs veruleika erum við í rauninni ekki annað en eins og sandkorn á strönd sem treðst undir í áreiti daganna. En í ljósi Guðs veit ég að við er- um líkt og óendanlega fagrar og dýrmætar perlur sem glitrar á svo tilveran lýsist upp um stundarsakir. Þar til við samlögumst endanlega hinni eilífu birtu í hinum himneska ljóssins yl lífsins. Jarðneskir englar Allt í kringum okkur í tilverunni eru englar sem auðga veru okkar. Ekki síst þegar skýjað er og þyrmir yfir. Veitum því athygli, tökum eftir þeim og þökkum fyrir þá. Boðberar kærleik- ans eru jarðneskir englar sem leiddir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju og miðla ást. Fylla nútíðina innihaldi og tilgangi. Veita framtíðarsýn vegna tilveru sinnar og kærleiks- ríkrar nærveru. Þeir eru jákvæðir, styðja, uppörva og hvetja. Þeir sýna hluttekningu, umvefja og faðma, sýna nærgætni og raunveru- lega umhyggju í hvaða kring- umstæðum sem er án þess að spyrja um endurgjald. Njótum dagsins og lífsins miðað við aðstæður. Með friðar- og kærleikskveðju. – Lifi lífið! Tilgangur og markmið Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Allt í kringum okkur eru englar sem auðga veru okkar. Ekki síst þegar skýjað er og þyrmir yfir. Veitum þeim athygli og þökkum fyrir þá. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld, rithöfundur og aðdáandi lífsins. Tækniframfarir verða æ hraðari með hverju árinu og á það líka við um sam- göngumál. Umhverf- isvænir rafdrifnir einkabílar munu taka yfir innan nokkurra ára. Tilkoma AI (gervigreind) og 5G í netinu, ásamt sjálf- keyrandi bílum, gerir það líklegt að innan 15-20 ára verði bíla- flotinn að mestu sjálfkeyrandi, ef ekki að öllu leyti. Ef svo verður er um algera byltingu að ræða. Bílaflotinn, a.m.k. í stærri bæjum, er sí- keyrandi bíl- stjóralaus og hægt verður að panta sér bíl fyrir strætógjald hvenær sem það hentar. Einkabíl- um fækkar mjög mikið og bíla- stæði hverfa. Ef þetta verður raunveruleikinn þá er núverandi hugmynd um borgarlínu þegar úrelt og mun standa sem risaeðla til minningar um þann gríðarlega skort á fram- sýni sem einkenndi alla þá sem komu að þessari úreltu ákvörð- un. Byggjum frekar upp góðar stofnbrautir með mislægum gatna- mótum, göngum, o.s.frv. Byggjum gatnanet sem verður eins gagnlegt þessum bílaflota og hægt er. Skipuleggjum umferð- ina sem allra sveigj- anlegasta og aðlögum hana þörfum fólksins. Gerum einkabílinn að almenningssam- göngum allra. Gerum umferðina dökkgræna. Hendum ekki milljörðum í risa- eðlur. Einkabíllinn almennings- samgöngur framtíðarinnar? Eftir Kristmund Ásmundsson Kristmundur Ásmundsson » Örar framfarir í tækni og umferðarþróun hafa gert borgarlínu úrelta nú þegar. Greið- um götu einkabílsins sem framtíðarlausn í almennings- samgöngum. Höfundur er læknir og fyrrverandi bæjarfulltrúi. kristmund@centrum.is Allt um sjávarútveg Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.