Morgunblaðið - 25.05.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.05.2022, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Gríptu til þinna ráða Pantaðu tíma í HEYRNAR GREININGU Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is Í grein sem birtist í Morgunblaðinu 2022- 05-17 var sagt frá því að 14 000 manns hefðu verið drepin í Donbass árin 2014/21. Starfsmaður breytti 14 000 í 14.000. Í lögum um staðla og Staðlaráð Íslands, nr. 36/2003, hljómar 3. grein svo: „Staðall er til frjálsra afnota. Stjórnvöld geta þó gert notkun til- greinds staðals skyldubundna með vísun til hans og hlutaðeigandi laga. Skal hann þá staðfestur með reglugerð af hlutaðeigandi ráðu- neyti og skal í reglugerð vísa til staðalsins.“ Reglugerð 1160/2011 fjallar um mælieiningar á Íslandi. Viðauki við reglugerðina er greinilega örút- dráttur úr alþjóðastaðli ISO 80000-1. Sá staðall tók formlega gildi á Íslandi 2013-10-15 sem ÍST EN ISO 80000-1:2013 og er notkun hans þar með skyldubundin. Í grein staðalsins nr. 7.3.1 eru ákvæði um ritun talna með mörg- um tölustöfum til að auðvelda lest- ur. Þeim megi skipta með þús- undaskila milli hverra þriggja tölustafa talið frá tugabrotsskila. Þúsundaskili skal vera stutt bil en hvorki punktur né komma né neitt annað merki. Í grein 7.1.4 eru ákvæði um rithátt magns og eininga. Magn er ritað með tölustöfum og mæliein- ing þar á eftir, bil á milli: 2,0 m, 437 kg, 15 °C. Sama regla á við prósentur, 47 %. Eina undantekningin eru hornatáknin °, ’ og “: 89° 59’ 59“. Sá bandaríski ósiður að klína ein- ingu beint aftan í magntölu hefur uppá síðkastið breiðst út svo undr- um sætir. Fjarlægðarmörk vegna COVID-19 voru hér 2 m, en iðulega tilgreind sem 2m eða jafnvel 2M. Í íslenskum staðli ÍST EN ISO 80000-1:2013 eru fjölmörg önnur atriði til eftirbreytni. Notkun hans er skyldubundin að lögum og hann ætti að vera ein af grunnstoðum menntakerfisins. 14.000 eða 14 000? Eftir Hauk Jóhannsson Haukur Jóhannsson » Þúsundaskili skal vera stutt bil en hvorki punktur né komma … Höfundur er lífeyrisþegi haujo@simnet.is Einn mesti mengun- arvaldur í heiminum í dag er framleiðsla sements, veldur þar meðal annars hið háa hitastig við framleiðsl- una (1.400°C). Viðurkenndar rann- sóknir hafa sýnt, að ef helmingur sements er tekinn úr steypu, og mulin eldfjallaaska sett í staðinn, eykst ekki aðeins styrkur byggingarinnar, veðurþolið margfaldast (við Íslendingar köllum það alkalí, gegn betri vitund) og kostnaður við framkvæmdir minnk- ar. Eldfjallaaska er nið- urgreidd auðlind hér á landi, því tvær millj- ónir tonna, sem áætlað er að flytja árlega á vegum landsins til út- flutnings, eyðileggja vegakerfið mun meira en álögðum þunga- skatti flutningatrukk- anna nemur. Ef einhver hér á landi skyldi hafa áhuga á hinum svokallaða mengunarkvóta mætti reikna út hvað tvær eða fleiri milljónir tonna af eldfjallaösku, sem spara jafngildi í orkusparnaði við sementsfram- leiðslu, mundu hafa á hann. Í Bandaríkjunum eru stórfyrir- tæki í iðnaði, sem byggja hráefnis- öflun sína á eldfjallaösku, en á Ís- landi er hún niðurgreidd til útlendinga í hráefnaútflutningi. Hvers vegna er ekki að minnsta kosti lagður auðlindaskattur á þessa auðlind allra landsmanna? Auðlind, auðlindagjald og mengunarkvóti Eftir Kristján Hall Kristján Hall »Ef helmingur sem- ents er tekinn úr steypu, og mulin eld- fjallaaska sett í staðinn, eykst ekki aðeins styrk- ur byggingarinnar, veð- urþolið margfaldast. Höfundur er eftirlaunaþegi. Fyrir stuttu heyrði ég á Rás 1 á RÚV, útvarpi allra starfsmanna, sérstakt viðtal meðstjórnanda þátt- arins, sem auðvitað er á línu full- komna fólksins í +101 Reykjavík. Hún hafði fengið í þáttinn tvær kon- ur. Önnur var tíður gestur í ríkis- útvarpi vinstri manna þegar hún var borgarfulltrúi fyrir einhvern vinstri flokkinn. Nú var hún kynnt sem sér- fræðingur í fjölbreytileika en hin konan var fjölbreytt. Báðar kvört- uðu þær undan því, að útlendingar eða fólk sem vill setjast hér að, sé ítrekað spurt að því, hvaðan það komi. Var þessi forvitni heima- manna kölluð öráreitni og fordæmd mjög af þeim stöllum. Slík forvitni er að mínu mati mjög eðlileg og merki um það, að heimamenn séu að reyna að koma af stað áhugaverðum sam- ræðum við hinn aðkomna og sýna með því vinarhug. Á ferðum mínum hef ég ítrekað verið spurður þess- arar spurningar. Alltaf hefur það leitt til áhugaverðra samræðna og mannlegra samskipta. Vonandi er hér bara um að ræða alvarlegan mis- skilning en ekki fordóma í garð heimamanna. Guðjón Smári Agnarsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hvaðan ertu? – Öráreiti og ofurviðkvæmni? Ljósmynd/Colourbox/Phovoir Samræður Ferðamenn kannast við að vera spurðir að því hvaðan þeir séu. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.