Morgunblaðið - 25.05.2022, Page 19

Morgunblaðið - 25.05.2022, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 ✝ Halldóra Að- alsteinsdóttir fæddist á Lind- argötu 23 í Reykja- vík 16. júní 1927. Hún lést á Vífils- stöðum 11. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Vilborg Jónsdóttir, f. 24. febrúar 1908, d. 27. nóvember 1997, og Aðalsteinn Guðmundsson, f. 8. ágúst 1903, d. 13. júní 1994. Systkini Halldóru voru Pál- ína, f. 29. ágúst 1925, d. 4. febr- úar 2013, Agnes, f. 16. mars 1935, d. 25. september 2016, og Guðmundur, f. 30. mars 1942, d. 31. júlí 2021. Árið 1949 giftist Halldóra Magnúsi Þorbjörnssyni prent- ara, f. 17. febrúar 1924, d. 12. ágúst 1996. Foreldrar hans voru Bjarnþrúður Magn- úsdóttir, f. 12. október 1902, d. 2. október 1983 og Þorbjörn Sigurðsson, f. 20. maí 1900, d. 20. ágúst 1978. Börn Halldóru og Magnúsar eru: 1) Magnús, f. 29. júlí 1954, maki: Kristín H. Valdimars- dóttir. Börn: Halldóra Margrét, Valdimar Þorbjörn og Magnús Finnur. Barnabörn: Davíð Máni og Tinna Katrín. 2) Vilborg, f. 13. júní 1956, maki (fráskilin): Árni Jón Hann- esson. Börn: Árni Gísli, Dóra Guð- laug og Bjarni Þór. Barnabörn: Bene- dikt Bóas, Árdís Eva, Fanney Mjöll, Snædís Katla, Baldur Ari og Róbert Kári. Halldóra bjó á Lindargötu til 10 ára aldurs og flutti þá á Hofsvallagötu þar til hún giftist Magnúsi og bjuggu þau á Fálkagötu til ársins 1995 er þau fluttu á Kleppsveg. Halldóra gekk í Austurbæj- arskóla og Miðbæjarskóla. Einnig fór hún í Húsmæðra- skólann á Ísafirði veturinn 1946-1947. Halldóra var heima- vinnandi á meðan börnin voru lítil en fór svo að vinna í bók- bandi hjá prentsmiðjunni Hól- um og síðar hjá Guðjóni Ó. Útför Halldóru fer fram frá Áskirkju í dag, 25. maí 2022, klukkan 13. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Elsku mamma, minning þín lif- ir í hjörtum okkar. Magnús og Vilborg. Minning um ömmu. Síðustu dagar hafa verið erf- iðir. Tilveran hefur þotið áfram í eins konar þoku. Núna stendur maður frammi fyrir því að þurfa að segja bless við ömmu sem hef- ur fylgt manni í gegnum lífið frá því maður man eftir sér. Þrátt fyrir háan aldur eru þessi skil alltaf erfið og þungbær, enn erfiðara ef maður er náinn þeim sem kveður. En það er ein- mitt það sem á við hjá mér. Við amma vorum afar nánar. Við vorum svo miklu meira en bara amma og barnabarn. Amma mín var mín besta vin- kona, stærsti stuðningsmaður og frábærasta kona í heimi. Það á eftir að vera erfitt að geta ekki hringt eða stoppað við hjá þér þegar ég þarf á þér að halda. Eða segja þér frá ein- hverju frábæru eða skemmtilegu. Sumir hefðu sagt að amma og afi Magnús hafi dekrað við okkur barnabörnin sín. En er það ekki hlutverk þeirra að dekra við okk- ur og skila þegar dekrið er búið? Við barnabörnin hennar vor- um nefnilega afar heppin að eiga þau sem afa og ömmu. Þau lögðu sig fram við að skapa skemmti- legar minningar, sem er gott veganesti til framtíðar. Amma vildi vera stór partur af lífi okkar. Hún sýndi ávallt áhuga á hvað væri að gerast í okkar lífi og var stolt af sínu liði. Jákvæð orka var það sem hún gaf frá sér og hlýja. Ég gæti skrifað milljón samtöl og minningar um hana ömmu. En það myndi þýða heila bók og framhaldssögu. Hér kemur lítil saga sem lýsir henni ömmu vel. Ég er tíu ára. Ég hringi í hana og spyr: Heyrðu amma, mig langar að gista og koma með þrjár vinkonur með mér, þær vilja líka gista. Svarið var já allt í lagi. Þó svo hún hafi kannski ekki verið ánægð með þetta þá var afi fljótur að segja já við alls konar vitleysu sem mér datt í hug og fannst sniðugt. Og já var það. Þessi saga er bara ein af mörg- um sem ég og bræður mínir get- um sagt af ömmu og afa og verð- ur hún að duga. Við bræður mínir viljum þakka ömmu fyrir allar samverustund- irnar sem verða ekki fleiri í bili. Við kveðjum þig og geymum í huga okkar. Viljum við votta börnunum hennar, Magnúsi og Vilborgu, okkar dýpstu samúð. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afar góð ég alltaf mun þín sakna (Guðrún V. Gísladóttir) Halldóra Margrét Magnúsdóttir, Valdimar Þ. Magnússon, Magnús F. Magnússon. Elsku Dóra amma. Það er erf- itt að lýsa því með nokkrum orð- um hversu góð og hlý þú varst. Þú gafst þér alltaf tíma fyrir okk- ur og sýndir hugðarefnum okkar einlægan áhuga. Þá hafðir þú ein- stakt lag á því að ná til barna okk- ar, gefa þig að leik þeirra og læra af þeim ef svo bar undir. Við er- um þakklát fyrir tímann sem við áttum með þér og höldum minn- ingu þinni á lofti um ókomin ár. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Hvíldu í friði elsku amma. Árni Gísli, Dóra Guðlaug og Bjarni Þór. Komið er að kveðjustund. Langamma okkar lést 11. maí síðastliðinn, einum mánuði áður en 95 ára aldri var náð. Þrátt fyrir háan aldur var hún í fullu fjöri nánast fram á síðasta dag þó svo aldurinn hafi vissu- lega verið farinn að segja til sín og veikindi síðustu mánuði. Hún langamma var einstök, skemmtileg, ljúf og góð. Við systkinin erum elstu lang- ömmubörnin hennar og eigum við fjölmargar skemmtilegar og góðar minningar um hana. Hún passaði mig, Davíð Mána, þegar ég var nokkurra daga gam- all því mamma var í skóla. Þá bauð hún öllum konunum í hús- inu sem hún bjó í að koma, skoða mig og dást að mér og monta sig í leiðinni að hún væri orðin langamma. Við fengum að gista nokkur skipti þó svo hún segði alltaf við okkur „ég er nú orðin svo gömul“ en eftir smá suð fengum við að gista á dýnu á gólfinu eins og í útilegu, sem var mikið sport. Einnig áttum við okkar eigin dótakassa inni í skáp sem maður gat gengið í og oftar en ekki fund- ið eitthvað nýtt, spennandi og sniðugt að leika með. Við áttum afar gott og skemmtilegt samband við lang- ömmu og eigum eftir að sakna hennar mikið. Núna er ekki hægt að heimsækja hana, fá gott að borða og segja henni frá ævintýr- um okkar en minning um góða langömmu lifir. Við elskum þig. Davíð Máni Viktorsson og Tinna Katrín Owen. Halldóra Aðalsteinsdóttir Mig langar með örfáum orð- um að minnast yndislegra frænkna minna sem báðar létust fyrr á þessu ári. Elsku hjartans dúllurnar mín- ar, hvað ég á erfitt með að kyngja því að þið séuð báðar farnar svona ungar, fallegar, yndislegar og svo miklir gleði- pinnar. Þið voruð svo miklar dúllur og uppátæki ykkar ansi fjörug oft á tíðum. Brynjan mín var mikið heima hjá Soffíu frænku enda hún og Henni minn óaðskiljanlegir vinir á yngri ár- um og voru þau svo náin og ynd- isleg. Svanhvítin mín kom seinna inn í af ýmsum ástæðum en hún og Henni minn urðu yndislegir vinir. ✝ Brynja Hjördís Pétursdóttir fæddist 23. febrúar 1984. Hún lést 11. febrúar 2022. Útför Brynju fór fram 3. mars 2022. Svanhvít Harð- ardóttir fæddist 7. nóvember 1984. Hún lést 23. apríl 2022. Útför Svan- hvítar fór fram 4. maí 2022. Elsku hjartans dúllurnar mín- ar, ég vona og trúi að ykkur líði vel í sumarlandinu og að afi og öll hin hafi tekið vel á móti ykk- ur og passi ykkur þar til við hitt- umst öll aftur. Góða nótt og sofið rótt, hjörtun mín. Ég elska ykk- ur. Börnum ykkar sendi ég mín- ar dýpstu samúðarkveðjur og bið Guð að vernda þau og hugga. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Ástarkveðja, Soffía frænka. Hanna frænka. Brynja Hjördís Pétursdóttir og Svanhvít Harðardóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar ✝ Sigrún Smith (fædd Páls- dóttir) fæddist í Reykjavík 7. maí 1925. Hún andaðist á heimili dóttur sinnar í Longwood, Orlando í Flórída, Bandaríkjunum 25. febrúar 2022. Foreldrar Sig- rúnar voru hjónin Páll Jónsson vél- stjóri, f. 1895, d. 1945, ættaður úr Reykjavík, og Gróa Ágústa Guðmundsdóttir, f. 1891, d. 1984, ættuð frá Kirkjubóli í Dýrafirði. Bróðir Sigrúnar var Björn, f. 1923, d. 2003, aðalbók- þeirra hjóna eru: 1) Earle Paul, f. 1948. 2) Elizabeth Groa, lést skömmu eftir fæðingu. 3) Erik, f. 1952. 4) Betty, f. 1955. 5) John, f. 1958. Sigrún ólst upp í Vonarstræti 12 í Reykjavík hjá fjölskyldu sinni en naut einnig umhyggju ömmu og afa sem bjuggu á Frakkastíg 4. Rúna, eins og Sig- rún var oftast kölluð af fjöl- skyldu og vinum, gekk í Miðbæj- arbarnaskólann. Síðar lærði hún hattasaum hjá Hattabúð Höddu á Hverfisgötu 35 og lauk meistaraprófi í þeirri iðngrein. Eftir að Sigrún og Earle fluttust til Flórída starfaði Sigrún um 16 ára skeið í Walt Disney World- skemmtigarðinum í Orlando. Útför Sigrúnar fór fram 25. mars frá Ascension Lutheran Church í Orlando í Flórída. ari í Reykjavík. Sigrún giftist Earle L. Smith 26. október 1945 í Reykjavík. Earle starfaði sem foringi í bandaríska hern- um á Íslandi um nokkurra ára skeið. Árið 1947 fluttust Sigrún og Earle til Ohio í Bandaríkj- unum og bjuggu þar í nokkur ár. Síðar fluttu þau til Connecticut í Norður- Karólínu en frá miðjum áttunda áratugnum voru þau búsett í Or- lando í Flórída. Earle lést eftir stutt veikindi árið 2000. Börn Sigrún Smith lést 25. febrúar síðastliðinn á 97. aldursári. Í hug- ann kemur fyrst og fremst upp þakklæti til Rúnu frænku fyrir væntumþykju og hlýju í okkar garð. Það var ætíð mikil tilhlökk- un hjá okkur sem börn í þau skipti sem Rúna frænka kom til Íslands. Ameríka var á þessum árum framandi heimur, sveipað- ur ævintýrablæ í huga okkar barnanna. Rúna var glæsileg kona og alltaf vel tilhöfð. Hún hafði alla tíð mikil og náin samskipi við ætt- ingja og vini á Íslandi og bar hag Íslands ætíð fyrir brjósti. Hug- urinn leitaði oft til Dýrafjarðar en þar dvaldi Sigrún oft hjá ætt- ingjum á sínum yngri árum. Gamli miðbærinn og Tjörnin í Reykjavík voru henni einnig afar kær. Í seinni tíð nutum við bræðrabörn Rúnu þess að heim- sækja fjölskylduna til Flórída. Þar sýndi Rúna okkur einstaka velvild og ómælda gestrisni. Það var lærdómsríkt og nærandi að taka spjall við Rúnu. Hún var hreinskiptin, réttsýn og minning- ar frá liðnum tíma voru skýrar í huga hennar þrátt fyrir að vera komin á tíræðisaldur. Það var Rúnu mikið áfall þegar Earl lést árið 2000. Þau voru samhent hjón og báru einstaka virðingu hvort fyrir öðru. Síðustu árin dvaldi Rúna á hjúkrunarheimili en naut jafnframt umhyggju og umsjá barna sinna og tengdabarna. Hafðu þökk fyrir allt. Minning þín lifir. Ágúst Kr. Björnsson, Björn Vignir Björnsson, Þórunn Gyða Björnsdóttir. Sigrún Smith Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA HJARTARDÓTTIR, Grundarfirði, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði þriðjudaginn 17. maí. Útför hennar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju föstudaginn 27. maí klukkan 13. Athöfninni verður streymt á youtubesíðu Grundarfjarðarkirkju. Einnig má nálgast streymi á mbl.is/andlat. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Fellaskjóls. Hafsteinn Hermann Elísa Anna Ingi Hans Sigurborg Kristín Hjördís Fríða Sævaldur Fjalar Guðmundur H. Margrét og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTJANA KRISTJÓNSDÓTTIR frá Ólafsvík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 23. maí. Hún verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 28. maí klukkan 14. Guðlaug J. Steinsdóttir Guðmundur Gísli Egilsson Leidy Karen Steinsdóttir Jóhann Magni Sverrisson Randver Agnar Steinsson Kristín I. Rögnvaldsdóttir Ragnheiður G. Steinsdóttir Gunnar Björn Gíslason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær bróðir okkar, SKÚLI ÚRANUSSON, Boðaslóð 6, Vestmannaeyjum, lést þriðjudaginn 10. maí á Landspítalanum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn í Vestmannaeyjum. Pálína Úranusdóttir Oddgeir Magnús Úranusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.