Morgunblaðið - 25.05.2022, Side 29

Morgunblaðið - 25.05.2022, Side 29
Borgarholtsskóla um árabil. Stefanía verður að heiman á afmælisdaginn. Fjölskylda Eiginmaður Stefaníu var Skúli G. Johnsen, f. 30.9. 1941, d. 8.9. 2001, borgarlæknir og síðar héraðslæknir í Reykjavík. Foreldrar Skúla voru hjónin Baldur Johnsen, f. 22.10. 1910, d. 7.2. 2006, læknir við Ísafjarðar- djúp, í Vestmannaeyjum og Reykja- vík, síðar forstöðumaður Heilbrigðis- eftirlits ríkisins, og Jóhanna Jóhannsdóttir Johnsen, f. 28.10. 1908, d. 8.10. 1996, söngkennari og konsert- söngkona í Reykjavík. Börn Stefaníu og Skúla eru 1) Baldur Johnsen, f. 25.11. 1963, tölv- unarfræðingur búsettur í Noregi. Maki: Darla Serafina jógakennari. Börn Baldurs eru Tryggvi, f. 1993, og Stefanía Snædís, f. 1995; 2) Valdemar Johnsen, f. 5.12. 1968, lögmaður, bú- settur í Garðabæ. Maki: Sigríður Nanna Gunnarsdóttir listfræðingur. Börn Valdemars eru Skúli Þór, f. 1989, Vera, f. 2006, Vigdís, f. 2009, og Saga, f. 2009; 3) Guðrún Johnsen, f. 5.4. 1973, lektor við Viðskiptaháskól- ann í Kaupmannahöfn. Maki: Þór- arinn R. Einarsson verkfræðingur. Dætur þeirra eru Valdís Anna, f. 2007, og Sólveig Lára, f. 2011. Systkini Stefaníu: Birna Helga Stefánsdóttir, f. 13.11. 1935, fv. fulltrúi hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, búsett í Kópa- vogi; Pétur Stefánsson, f. 23.3. 1939, verkfræðingur, búsettur í Garðabæ; Gunnsteinn Stefánsson, f. 13.6. 1947, d. 1.3. 2019, heimilislæknir, bjó í Hafnarfirði; Sigríður Ingibjörg Stef- ánsdóttir, f. 24.11. 1953, d. 11.6. 1954. Foreldrar Stefaníu voru hjónin Stefán Pétursson, f. 22.11. 1908, d. 1.3. 1992, vörubílstjóri og smiður á Egilsstöðum og í Reykjavík, og Lauf- ey G.V. Snævarr, f. 31.10. 1911, d. 9.11. 2002, húsfreyja á Egilsstöðum og í Reykjavík. Stefanía Valdís Stefánsdóttir Stefanía Stefánsdóttir húsfreyja í Hellisfirði og Skorrastað Erlendur Árnason útgerðarmaður og bóndi í Hellisfirði og Skorrastað í Norðfirði Stefanía Erlendsdóttir húsfreyja á Húsavík og í Neskaupstað Valdemar Snævarr skólastjóri á Húsavík og í Neskaupstað Laufey G.V. Snævarr húsfreyja á Egilsstöðum og í Reykjavík Rósa Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja á Þórisstöðum, síðar saumakona víða á Svalbarðsströnd Valves Finnbogason hákarlaformaður og bóndi á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd Ingibjörg Einarsdóttir húsfreyja í Bót Eiríkur Einarsson hreppstjóri og bóndi í Bót Sigríður Eiríksdóttir húsfreyja og síðar bóndi í Bót Pétur Stefánsson bóndi á Urriðavatni, í Fjallseli og Bót Ragnhildur Björg Metúsalemsdóttir húsfreyja á Desjarmýri og Hjaltastað Stefán Pétursson prestur á Desjarmýri á Borgarfirði eystra og á Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá Ætt Stefaníu Valdísar Stefánsdóttur Stefán Pétursson bóndi í Bót og á Flúðum í Hróarstungu og bifreiðarstjóri á Egilsstöðum, síðar kirkjugarðsvörður í Reykjavík DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is WEXIÖDISK, COMENDA OG HOBART UPPÞVOTTAVÉLAR ÖFLUGUR LIÐSAUKI Í ELDHÚSIÐ WEXIÖDISK Vandaðar og öflugar vélar fyrir þá sem vilja það besta COMENDA Ódýrari kostur - öflug og góð vél fyrir stærri eldhús HOBART Frábær fyrir minni eldhús, kaffistofur o.fl. Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900 „Í SANNLEIKA SAGT GEKK ÞETTA NÚ EKKI ALVEG EINS VEL OG ÉG HAFÐI BUNDIÐ VONIR VIÐ.“ „ÞÚ VEIST AÐ ÞÚ ERT Í MEGRUN. HVERS VEGNA ERTU AÐ KVELJA SJÁLFAN ÞIG SVONA?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að skipuleggja óvæntan glaðning. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VILTU HUNDANAMMI? LÁRUS, ELSKAN MÍN. ÞAÐ GANGA UM ÞIG KJAFTASÖGUR SEM SEGJA ÞIG VERA VARÚLF VANDRÓÞAÐ ER ARRRGASTA BULL, ÁSTIN MÍN … FÉLAGAR, MUNIÐ AÐ ÉG VIL NÁ ÖLLUM ANDSTÆÐINGUM OKKAR Í KASTALANUM LIFANDI! EF ÉG ÁKVEÐ AÐ BÚA HÉRNA VIL ÉG EKKI GLÍMA VIÐ FJANDSAMLEGA DRAUGA! Guðmundur Arnfinnsson yrkir á Boðnarmiði og kallar „Í vor- blíðunni“: Gullin sindra sólarblik sveipa tindinn háa gróa rindar, kát og kvik kliðar lindin bláa. Þar sem áin ljúflings lög leikur á bláa strengi og við sjávar ölduslög una má ég lengi. Ingólfur Ómar Ármannsson bæt- ir við: Veitir yndi vorsól blíð vermir tind og hjalla. Gróa rindar grænkar hlíð glitra lindir fjalla. Anna Dóra Gunnarsdóttir segist aldrei hafa ort áður undir þessum bragarhætti, hringhendu, og sé ríg- montin með árangurinn, – og má líka vera það! Röðull sindrar, rýkur barð, reikar kind um túnin. Lítill dindill, lambasparð, léttist rinda brúnin. Vorkoman eftir Sigurlínu Her- mannsdóttur: Geysist fram með gusti grænkar allt og vænkast. Smá upp stingast stráin strax þó úr sér vaxin. Laufrík garða gerðin gjarnan klippi þarna. Frá búðunum í beðin blómin vel sér sóma. Sigrún Haraldsdóttir yrkir: Ég þarf ekki að keppa í mælgi og masi, um metorðastiga að skunda, það nægir mér ilmur af nýslegnu grasi svo njóti ég hamingjustunda. Dagbjartur Dagbjartsson skrif- ar: „Þessar vísur eftir Valda Jós. Þorvald Jósepsson sem bjó í Sveina- tungu og Hafþórsstöðum og víðar mættu alveg vera þekktari“: Gamla Rauð ég muna má, mér hann skemmti að vonum. Skyldi ég aldrei aftur fá annan líkan honum? Er hann rennur gróna grund geislar streyma hlýju þá ég löngu liðna stund lifi upp að nýju. Kristján H. Theodórsson skrifaði á sunnudag: „Skógarböðin í Eyja- fjarðarsveit voru opnuð í dag“: Í Eyjafjarðar yndissveit, öllum létt er kvöðin: Þar sólríkum í sælureit, að sækja Skógarböðin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort í vorblíðunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.