Morgunblaðið - 25.05.2022, Side 30
30 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022
Besta deild kvenna
Breiðablik – Valur .................................... 0:1
Staðan:
Valur 6 5 0 1 18:3 15
Þróttur R. 6 4 1 1 13:8 13
Selfoss 6 3 2 1 8:5 11
Stjarnan 6 3 1 2 12:9 10
ÍBV 6 3 1 2 10:8 10
Breiðablik 6 3 0 3 11:4 9
Keflavík 6 2 1 3 7:7 7
Þór/KA 6 2 0 4 10:16 6
Afturelding 6 1 0 5 7:15 3
KR 6 1 0 5 3:24 3
Lengjudeild kvenna
Fylkir – Víkingur R.................................. 0:4
Staðan:
Víkingur R. 4 3 0 1 12:5 9
FH 3 3 0 0 9:3 9
HK 3 3 0 0 8:3 9
Fjarð/Hött/Leikn. 3 2 0 1 9:3 6
Tindastóll 3 2 0 1 3:1 6
Augnablik 3 1 0 2 4:6 3
Grindavík 3 1 0 2 2:5 3
Haukar 3 1 0 2 3:7 3
Fjölnir 3 0 0 3 4:12 0
Fylkir 4 0 0 4 2:11 0
Mjólkurbikar karla
3. umferð:
Höttur/Huginn – Ægir ............................ 1:3
Vestri – Afturelding............................frl. 2:3
Sindri – ÍA................................................. 3:5
Selfoss – Magni ................................. 1:1(6:4)
Grindavík – ÍR.......................................... 1:2
Hvíti ridarinn – Kórdrengir .................... 0:2
HK – Grótta .............................................. 3:1
Dalvík/Reynir – Þór ................................. 2:0
Svíþjóð
B-deild:
Östersund – Örgryte ............................... 0:0
- Brynjar Björn Gunnarsson þjálfar Ör-
gryte.
>;(//24)3;(
Pólland
Wisla Plock – Kielce ............... 20:20 (23:25)
- Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn
Guðjónsson léku ekki með Kielce vegna
meiðsla. Kielce hafnaði í 1. sæti deildarinn-
ar.
Svíþjóð
Þriðji úrslitaleikur:
Skövde – Ystad IF ............................... 27:31
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 3
mörk fyrir Skövde.
_ Staðan í einvíginu er 2:1 fyrir Ystad.
E(;R&:=/D
Spánn
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Valencia – Baskonia............................ 79:80
- Martin Hermannsson tók eitt frákast á
fjórum mínútum með Valencia.
Belgía/Holland
16-liða úrslit, seinni leikur:
Antwerp G. – Landstede Hammers .. 94:39
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði 6 stig og tók 10 fráköst á 29 mínútum
fyrir Landstede.
_ Antwerp vann einvígið samanlagt
183:118 og er komið áfram í 8-liða úrslit.
Úrslitakeppni NBA
Fjórði úrslitaleikur Austurdeildar:
Boston – Miami................................... 102:82
_ Staðan er 2:2 og fimmti leikurinn fer
fram í Miami í kvöld.
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 3. umferð:
Würth-völlur: Fylkir – ÍBV...................... 18
Kaplakrikavöllur: FH – Kári............... 19.15
Keflavík: Keflavík – Njarðvík ............. 19.15
Samsung-völlur: Stjarnan – KR.......... 19.45
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kórinn: HK – Augnablik........................... 18
Extra-völlur: Fjölnir – FH .................. 18.30
Sauðárkrókur: Tindastóll – Haukar ... 19.15
2.deild kvenna:
Framvöllur: Fram – ÍA........................ 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Þriðji úrslitaleikur karla:
Hlíðarendi: Valur – ÍBV ...................... 19.30
Í KVÖLD!
Körfuknattleiksmaðurinn Ragnar
Örn Bragason hefur skrifað undir
eins árs samning við ÍR og mun því
leika með uppeldisfélagi sínu í efstu
deild á næsta keppnistímabili.
Ragnar Örn, sem er 27 ára gam-
all bakvörður, kemur til ÍR frá Þór
úr Þorlákshöfn, þar sem hann varð
Íslandsmeistari á síðasta ári. Hann
hóf meistaraflokksferil sinn með ÍR
en gekk svo til liðs við Þór sumarið
2015. Hann skipti yfir til Keflavíkur
tímabilið 2017/2018 en fór aftur til
Þórs að því loknu og hefur verið í
Þorlákshöfn síðan.
Liðstyrkur í
Breiðholtið
Ljósmynd/ÍR
ÍR Ísak Máni Wíum, þjálfari ÍR,
ásamt Ragnari Erni Bragasyni.
Kielce tryggði sér í gærkvöldi
pólska meistaratitilinn í handbolta
ellefta árið í röð með 25:23-sigri á
Wisla Plock á útivelli í vítakeppni í
lokaumferð pólsku úrvalsdeild-
arinnar. Var Kielce með þriggja
stiga forskot á Wisla Plock á toppn-
um fyrir umferðina.
Wisla Plock var með forystuna
stærstan hluta leiks en Kielce tókst
að jafna með glæsilegum enda-
spretti og að lokum tryggja sér sig-
urinn. Sigvaldi Björn Guðjónsson
og Haukur Þrastarson léku ekki
með Kielce í gær vegna meiðsla.
Meistarar ell-
efta árið í röð
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Meistarar Sigvaldi Björn Guð-
jónsson og Haukur Þrastarson.
GOLF
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Axel Bóasson, kylfingur úr Keili,
stóð uppi sem sigurvegari Rewell
Elisefarm-mótsins í Höör í Sví-
þjóð, sem er hluti af Nordic-
mótaröðinni, fyrir tæpum tveimur
vikum síðan. Skömmu áður hafði
hann hafnað í 30. sæti á Barn-
cancerfonden Open-mótinu í La-
holm í Svíþjóð, sem var einnig
hluti af mótaröðinni, eftir að hafa
verið í efsta sæti að loknum öðrum
hring þess.
„Það var kominn góður dynjandi
í leik minn í mótinu á undan [í La-
holm] fannst mér. Ég var byrjaður
að spila nokkuð vel og kastaði
þessu aðeins frá mér kannski líkt
og í seinna mótinu nema í fyrra
mótinu var enginn möguleiki fyrir
mig að vinna það,“ sagði Axel í
samtali við Morgunblaðið á kynn-
ingarfundi Golfsambands Íslands í
síðustu viku.
Um sigurinn í Höör sagði hann:
„Í seinna mótinu var í raun og
veru svolítið hvasst, við fengum
það sem ég kalla Suðurnesjarokið
og ég kíkti aðeins á stöðuna eftir
um 5-6 holur, aðeins til að sjá hvar
ég væri staddur og þá voru bara
allir að spila nokkuð illa.
Eða illa og ekki, aðstæður voru
bara ekki nógu góðar og menn
voru ekki að gera neitt af viti ef
við getum orðað það þannig. Ég
hélt bara mínu striki og það virk-
aði eins og par væri gott skor fyr-
ir lokadaginn. Ég stefndi á það,
var einu höggi frá því og það
dugði.“
Ætlar að vinna sig aftur upp
Með því að standa sig vel í
Nordic-mótaröðinni, sem er þriðja
sterkasta atvinnumótaröðin í Evr-
ópu, gefst kylfingum möguleiki á
að vinna sig upp í Áskorendamóta-
röðina, næststerkustu atvinnu-
mótaröð Evrópu, og hefur Nordic-
mótaröðin einmitt reynst íslensk-
um kylfingum góður stökkpallur
undanfarin ár.
Axel kvaðst bjartsýnn á að vinna
sig aftur upp í Áskorendamótaröð-
ina, en til þess að gera það þarf
hann annaðhvort að vera í einu af
efstu fimm sætunum að mótaröð-
inni lokinni eða vinna þrjú mót á
henni. „Já ég er búinn að gera það
einu sinni. Samkeppnin á öllum
mótaröðum í dag er bara að verða
harðari og harðari, það eru allir
ógeðslega góðir. Fjöldinn er orðinn
meiri alls staðar á öllum túrum.
Það er kannski ekki eins sjálf-
gefið eins og í gamla daga að vinna
sig upp, ef svo mætti segja, en það
þarf alltaf gott og stöðugt golf.
Fyrir mína parta þá þarf ég að
vinna í mínum þáttum og þá mun
það líklega skila nokkrum svona
sigrum. Við erum auðvitað að
stefna á að vera í topp fimm eða
einfaldlega þessa þrjá sigra.“
Stefnan sett á um 20 mót
Spurður hversu mörgum mótum
Axel getur tekið þátt í á Nordic-
mótaröðinni þetta árið sagði hann:
„Það eru í kringum 26-27 mót á
dagskrá á þessari mótaröð og ég
er sjálfur að stefna á að taka þátt
á 19-20 mótum. Það eru pásur eins
og núna, aðeins að koma heim og
fara að vinna auðvitað. Ég er með
fjölskyldu núna og hús og allt ann-
að sem þarf að græja. Sigurinn
hjálpaði auðvitað mikið en þetta er
ekki jafn stöðugt eins og með
venjulega launatékka.“
Af þeim sökum segir Axel það
henta honum best að keppa á
nokkrum mótum í röð í senn. „Það
er allur gangur á þessu en planið
er að fara núna í lok maí og taka
þátt í þremur mótum til viðbótar.
Þetta er þannig rútína hjá mér, ég
tek svona 3-4 mót í einu. Það væri
svo erfitt að vera að ferðast fram
og til baka en svo í júlímánuði
verður bara eitt og eitt mót því
þeir eru í fríi sjálfir, s.s. Danirnir
og Svíarnir,“ útskýrði Axel.
Er að slá mjög vel
Hann kvaðst almennt bjartsýnn
fyrir komandi golfsumri. „Já ég er
búinn að vera að spila mjög vel
finnst mér síðan í lok febrúar, þeg-
ar við fórum á vetrarmótaröðina.
Ég er að slá mjög vel en það sem
hefur vantað er kannski parturinn
af þessu sem snýr að aðstöðunni
sem við fáum aldrei bara því við
eigum heima á Íslandi, sem er að
komast á grasið og fá að vippa og
pútta.
Þú færð aldrei almennilega þær
aðstæður, en auðvitað væri
kannski hægt að undirbúa sig að-
eins betur í stutta spilinu. Ég var
að vinna mikið í sveiflunni í vetur
og kom mjög vel gíraður eftir það
en svo vantaði aðeins upp á
ákvarðanatökur og stutta spilið.
En það púslaðist saman í þrjá
hringi á síðasta móti og skilaði
sigri,“ sagði Axel að lokum í sam-
tali við Morgunblaðið.
Suðurnesja-
rok hjálpaði
Axel í Svíþjóð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sveifla Axel Bóasson hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari karla í golfi, síð-
ast árið 2018. Hann hefur þegar unnið eitt mót á Nordic-mótaröðinni í ár.
- Vann mót á Nordic-mótaröðinni
- Stefnir á Áskorendamótaröðina á ný
Dalvík/Reynir úr 3. deild gerði sér
lítið fyrir og vann Þór úr 1. deild í
Norðurlandsslag í 3. umferð Mjólk-
urbikars karla í fótbolta í gær-
kvöldi. Dalvík/Reynir komst í 1:0
með sjálfsmarki á 28. mínútu og Jó-
hann Örn Sigurjónsson gulltryggði
óvæntan sigur á 79. mínútu.
Á Höfn í Hornafirði þurfti úrvals-
deildarlið ÍA að hafa mikið fyrir
5:3-útisigri á Sindra úr þriðju deild.
Sindramenn komust tvívegis yfir
með mörkum frá Abdul Bangura og
Ibrahim Barrie en að lokum gull-
tryggði Gísli Laxdal Unnarsson
tveggja marka sigur Skagamanna.
Þá vann Selfoss úr 1. deild sigur
á Magna úr 2. deild á heimavelli í
vítakeppni og Afturelding vann 3:2-
sigur á Vestra á útivelli í fram-
lengdum 1. deildar slag.
Þá skoraði Stefán Ingi Sigurðar-
son tvö mörk fyrir HK í 3:1-sigri á
Gróttu á heimavelli í 1. deildar slag
og ÍR úr 2. deild gerði góða ferð til
Grindavíkur og vann 2:1-sigur á
Grindvíkingum úr 1. deild.
Nánari upplýsingar um leiki gær-
dagsins í bikarkeppninni má nálg-
ast á mbl.is/sport.
Óvænt úrslit í Norðurlands-
slagnum á Dalvík
Morgunblaðið/Eggert
Tvenna Stefán Ingi Sigurðarson skoraði tvö mörk fyrir HK í 3:1-sigri á
Gróttu í 3. umferð Mjólkurbikars karla í fótbolta í gærkvöldi.
Íþróttir