Morgunblaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 31
ÍÞRÓTTIR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 _ Ragnar Már Garðarsson er efstur Íslendinganna þriggja eftir fyrsta hring á Moss & Rygge Open-mótinu í golfi. Leikið er í Dilling í Noregi og er mótið hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Ragnar er á einu höggi undir pari og í 19. sæti ásamt nokkrum öðrum kylf- ingum. Hann fékk tvo fugla og einn skolla á holunum 18. Gísli Sveinbergs- son er næstur Íslendinganna á tveimur höggum yfir pari og í 63. sæti. Hann fékk tvo fugla og fjóra skolla. Andri Þór Björnsson er í 87. sæti á fjórum höggum yfir pari. Hann fékk fimm skolla og einn fugl. _ Kurt Zouma, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham Unit- ed, játaði sök í tveimur ákæruliðum vegna dýraníðs fyrir rétti í Lundúnum í gær. Zouma var ákærður í þremur lið- um fyrir brot gegn velferð dýra eftir að myndband af honum fór í dreifingu á veraldarvefnum þar sem hann sést sparka í og slá kött sinn auk þess að kasta skóm í átt að gæludýrinu. _ Enska knattspyrnufélagið West Ham United hefur sett sig í samband við sóknartengiliðinn Jesse Lingard með það fyrir augum að semja við hann, en samningur hans við uppeldis- félagið Manchester United rennur út í sumar. Hamrarnir hafa í síðustu tveim- ur félagaskiptagluggum reynt að festa kaup á Lingard í kjölfar frábærs gengis hans sem lánsmanns hjá liðinu síðari hluta tímabilsins 2020/2021, þar sem hann skoraði níu mörk í 16 deildar- leikjum. David Moyes, knattspyrnu- stjóri West Ham, vonast til þess að þau tengsl sem Lingard hafi myndað við félagið eftir lánsdvölina á síðasta ári muni hjálpa til við að fá leikmanninn. _ Handknattleiksdeild Aftureldingar hef- ur samið við Stefán Árnason. Verður hann þjálfaranum Gunnari Magn- ússyni til halds og trausts við þjálfun meistaraflokks karla, ásamt því að þjálfa yngri flokka félagsins. _ Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liver- pool, var í gærkvöldi kjörinn stjóri árs- ins af samtökum knattspyrnustjóra á Englandi. Undir stjórn Klopp endaði Liverpool í öðru sæti ensku úrvals- deildarinnar eftir magnaða baráttu við Manchester City. Þá hefur liðið þegar fagnað sigri í enska bikarnum og enska deildabikarnum. Liverpool getur tryggt sér glæsilega þrennu ef liðið vinnur Real Madrid í úrslitum Meist- aradeildarinnar á laugardaginn kemur. _ Knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappé, franska stórstjarnan í liði Parísar Saint-Germain, hefur greint frá því að það var ekki einungis Real Madríd sem var á höttunum eftir hon- um áður en hann skrifaði undir nýjan samning við PSG, þar sem hann hafi einnig rætt við Liverpool. Útlit var fyrir að Mbappé myndi fara til Madrídinga á frjálsri sölu þegar samningur hans við PSG átti að renna út í sumar en á dög- unum var tilkynnt að hann yrði áfram í París til næstu þriggja ára. Eitt ogannað Jarrod Bowen, sóknarmaður West Ham United, og James Justin, bak- vörður Leicester City, eru í 27 manna landsliðshópi enska lands- liðsins í fótbolta fyrir leiki gegn Ungverjalandi, Þýskalandi og Ítalíu í Þjóðadeild UEFA. Eru þeir í landsliðshópnum í fyrsta skipti. Bowen átti afar gott tímabil með West Ham og skoraði 12 mörk og lagði upp önnur 12 í 36 deildar- leikjum. Justin lék aðeins 13 leiki með Leicester á leiktíðinni og glímdi mikið við meiðsli. Nánar á mbl.is/sport/enski. Tveir nýliðar í enska hópnum AFP/Christof Stache Nýliði Jarrod Bowen, leikmaður West Ham, er nýliði í enska hópnum. Handknattleiksmaðurinn Arnar Freyr Ársælsson hefur samið við Stjörnuna. Kemur hann til félagsins frá KA, þar sem hann hefur verið undanfarið ár. Arnar skoraði 43 mörk í 21 leik með KA í Olísdeildinni í vetur og fór alla leið í bikarúrslit með liðinu. Dagur Gautason fer í hina áttina en hann samdi við KA á dögunum eftir tvö ár með Stjörnunni. Arnar hefur einnig leikið með Fram og FH og verið einn besti hornamaður úrvalsdeildarinnar undanfarin ár. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Garðabærinn Arnar Freyr Ársæls- son fer úr KA til Stjörnunnar. Arnar semur við Stjörnuna Í KÓPAVOGI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Valur er með sex stiga forskot á Breiðablik í Bestu deild kvenna í knattspyrnu eftir afar mikilvægan 1:0-sigur Íslandsmeistaranna í stór- leik 6. umferðar deildarinnar á Kópavogsvelli í Kópavogi í gær. Arna Sif Ásgrímsdóttir reyndist hetja Vals en hún skoraði sigurmark Vals á 55. mínútu með frábærum skalla eftir hornspyrnu Ásdísar Kar- enar Halldórsdóttur. Blikar voru sterkari aðilinn í leiknum en líkt og svo oft áður í sum- ar tókst liðinu ekki að koma bolt- anum í netið, þrátt fyir prýðisgóð marktækifæri. Besta færi leiksins fengu Blikar á 82. mínútu þegar Vilhjámur Alvar Þórarinsson, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu á Val eftir mikinn atgang í vítateig Valskvenna. Ástralinn Melina Ayers steig á punktinn en Sandra Sigurðardóttir kórónaði frábæran leik sinn með því að verja spyrnuna, og einnig frá- kastið sem féll fyrir Karitas Tómas- dóttur. Kjarninn sá sami á Hlíðarenda Þrátt fyrir að hafa verið lakari að- ilinn í leiknum verður að hrósa Vals- liðinu fyrir að vinna hann. Þær nýttu sér styrkleika sína vel og þvinguðu Blika í fyrirgjafir úr þröngum stöð- um sem varnarmenn Vals réðu mjög vel við. Breiðablik er með mikið breytt lið frá síðustu leiktíð og liðið virðist ennþá vera að finna taktinn. Þá vantar liðið sárlega framherja sem getur haldið boltanum almennilega og maður efast um það að þeir leik- menn sem voru sóttir fyrir mót til þess að leysa þá stöðu séu nægilega góðir til þess að spila fyrir lið sem á að berjast um Íslandsmeistaratit- ilinn. Á sama tíma eru Valskonur einnig með breytt lið frá síðustu leiktíð en kjarninn í liðinu er nánast sá sami. Valskonur héldu sínum kjarna á meðan Blikar gerðu það ekki og það gæti riðið baggamuninn í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Breiðablik tapaði aðeins fjórum leikjum í deildinni á síðustu leiktíð en endaði engu að síður níu stigum á eftir Val sem tapaði aðeins einum leik. Að sjálfsögðu er spurt að leiks- lokum í fótbolta en það er ýmislegt sem bendir til þess að Breiðablik sé að missa af lestinni og að titillinn sé Valskvenna að tapa, þrátt fyrir að einungis sex umferðir séu búnar af mótinu. _ Miðvörðurinn Arna Sif skoraði sitt þriðja mark í deildinni í sumar í sex leikjum og er markahæsti leik- maður Vals ásamt Elínu Mettu Jen- sen. _ Breiðablik hefur fengið þrjár vítaspyrnur í deildinni til þessa en liðinu hefur aðeins tekist að skora úr einni þeirra. Valur lagði lánlausa Blika í stórleiknum - Valskonur með tveggja stiga forskot á toppnum eftir sigur í Kópavogi Morgunblaðið/Eggert Gleði Valskonur fögnuðu mikilvægu sigurmarki Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur vel og innlega á Kópavogsvelli í gær. Pólska Íslendingaliðið Kielce mætir ungverska stórliðinu Veszprém í undanúrslitum Meist- aradeildar Evrópu í handbolta en dregið var í undanúrslitin í gær. Landsliðsmennirnir Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn Guð- jónsson leika með Kielce. Ríkjandi meistarar í Barcelona og Kiel mætast í hinum undanúrslita- leiknum. Úrslitahelgi Meistaradeildar- innar fer fram í Lanxess-höllinni í Köln í Þýskalandi. Undanúrslitin fara fram 18. júní og úrslitaleik- urinn og leikurinn um bronsið degi síðar. Haukur mun að öllum líkindum taka þátt í úrslitahelginni í fyrsta skipti en Sigvaldi hefur ekkert spil- að síðan á EM í upphafi árs vegna meiðsla. Kielce hefur einu sinni áður orðið Evrópumeistari er liðið vann Vesz- prém í vítakastkeppni árið 2016. Barcelona er sigursælasta liðið í keppninni með tíu sigra. Kiel hefur unnið fjórum sinnum en Veszprém aldrei, þrátt fyrir að hafa leikið til úrslita fjórum sinnum. Íslendingarnir leika við Veszprém í undanúrslitum Ljósmynd/Einar Ragnar Köln Haukur Þrastarson og liðsfélagar hans mæta Vezprém í undan- úrslitum Meistaradeildarinnar í Köln um miðjan næsta mánuð. BREIÐABLIK– VALUR 0:1 0:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 55. MM Arna Sif Ásgrímsdóttir (Val) Sandra Sigurðardóttir (Val) M Telma Ívarsdóttir (Breiðabliki) Taylor Ziemer (Breiðabliki) Karitas Tómasdóttir (Breiðabliki) Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Breiðabliki) Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki) Elísa Viðarsdóttir (Val) Mist Edvardsdóttir (Val) Lára Kristín Pedersen (Val) Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val) Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. – 8. Áhorfendur: 586. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.