Morgunblaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 AF MÁLMI Árni Matthíasson arnim@mbl.is Nú veit ég ekki, lesandi góður, hvort þú hafir gaman af þunga- rokki, eða tónlist yfirleitt, en að þú sért að lesa þessi orð (eða einhver fyrir þig) bendir vonandi til þess. Ómeðvituð talning Það hefur áður komið fram á þessum stað að ánægjan af tónlist er ánægjan af því að telja ómeðvit- að og kemur hvergi eins vel fram og í þungarokki. Það er þó ekki það eina sem gleður hjartað við að hlusta á þungarokk, því þangað má líka sækja laglínur, jafnvel hrífandi fagrar, og stundum næra textarnir andann (oft er þó gott að ekki sé hægt að greina orðaskil, því þær hendingar sem eru þó skiljanlegar eru skakkar eins og í skothendu kvæði). Í útjaðri smábæjarins Wacken í Slésvík-Holtsetalandi er ár hvert haldin mikil þungarokkhátíð, svo mikil að aðrar hátíðir fölna í sam- anburðinum. Þangað er boðið einni íslenskri hljómsveit ár hvert og til að velja þá sveit er haldin rokk- keppni hér á landi þar sem víðfrægt kunnáttufólk í rokkfræðum frá ýmsum löndum velur þá sveit sem best stendur sig. Slík keppni var haldin í tíunda sinn sl. laugardag, á Húrra, og þá kepptu sjö sveitir: De- vine Defilement, Forsmán, Holdris, Krownest, Merkúr, Múr og Vögel. Morpholith hitaði upp og Misþyrm- ing sló botninn í rokkámuna. Vögel var fyrst á svið keppnis- sveita og bauð upp á léttproggað þungarokk, sem brotið var upp með skældum gítarflekum og svo slegið í klárinn að nýju. Þegar þeir voru góðir voru þeir frábærir en svo slaknaði á klónni á milli. Fátt er eins skemmtilegt og smá tilrauna- mennska, ekki síst þegar allt geng- ur upp. Slátrarasveit andskotans Krownest-félagar stigu á stokk í hvítum samfestingum eins og slátr- arasveit andskotans – nú átti að rokka og það var líka rokkað svika- laust. Gítarvandræði settu þá félaga ekki á hliðina – reyndar varð sveit- in eiginlega betra tónleikaband með söngvara sem gat einbeitt sér að því að skapa stemmningu, laus við hryngígjuna. Það vantaði ekki stuð í Merkúr- félaga, þeir byrjuðu með látum, miklum látum, þótt það hafi kannski verið óþarfi að spyrja Are you ready fjórum eða fimm sinnum, eða kannski oftar (ég meina ARE YOU READY!!!!). Ekkert vantaði upp á hamagang, það var nóg af honum – þeir félagar voru eins og graðfolar í girðingu. Hold er mold, hverju sem það klæðist, sagði sálmaskáldið sem var líka mjög upptekið af upprisu holdsins, kannski ekki þó þeirri upprisu sem heiti hljómsveitarinnar Heimsslit á Húrra Holdris vísar í. Þungarokk er líka rokk, sama hverju það klæðist og Holdris er með riffin og stundum líka lögin. Þriðja lagið, nýtt lag, var til að mynda frábær flétta sem fór rólega af stað en sótti svo í sig veðrið. Dauðans umþeinking „Líferni hins vísa ætti ekkert annað að vera en dauðans umþeink- ing,“ reit Gregóríanus frá Nazian- zus fyrir sextán hundruð árum eða svo. Þeirri umþeinkingu bregður iðulega fyrir í þungarokkinu, til að mynda hjá hljómsveitinni Múr sem er næst á svið: nábleikir vangar og kolamolar í augntóftum. Slíkar bassaskruggur og býsn voru í fyrsta laginu að lá við heimsslitum; Húrra lék á reiðiskjálfi, hurðir hrukku af hjörum, glös brotnuðu og áheyrendur iðuðu eins og Hákon Hlaðajarl forðum. Devine Defilement var eins og vel smurð maskína, byrjað með bensínið í botni. Gríðarlega þéttir og öruggir í sinni spilamennsku og framkomu allri, knúnir áfram af heift og brennandi reiði. Síðasta sveit á svið var svart- málmssveitin Forsmán en liðsmenn hennar voru skreyttir eftir kúnst- arinnar reglum. Þá það sást framan í sveitarmenn (ljósameistara voru heldur mislagðar hendur allt kvöld- ið) birtust ókræsilegar ófreskjur sem rímaði vel við músíkina. Stór- efnilegt band. Múr sigraði, dómnefnd var nán- ast einróma um það, Devine Defile- ment varð í öðru sæti og Merkúr því þriðja. » Ánægjan af tónlist er ánægjan af því að telja ómeðvitað og kem- ur hvergi eins vel fram og í þungarokki. Svikalaust Slátrarasveit andskotans, eða bara Krownest. Ljósmyndir/Halldór Ingi Upphitun Morpholith, síðustu sigurvegarar Wacken-keppninnar, opnuðu kvöldið; þrítugur hljóðhamar með kaldhömruðum laglínum. Funatunga Devine Defilement var eins og vel smurð maskína, knúnir áfram af heift og brennandi reiði. Tilraunir Vögel bauð upp á létt- proggað þungarokk, sem brotið var upp með skældum gítarflekum. Heimsslit Múr bauð upp á bassaskruggur og býsn og sigraði örugglega með ná- bleika vanga og kolamola í augna stað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.