Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 36

Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 36
Gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir held- ur tvenna tónleika í Bæjarbíói, í kvöld og annað kvöld, og er uppselt á seinni tónleikana. Bera þeir yf- irskriftina Betra líf fyrir Beggu. Auk þess að flytja tónlist mun hljómsveitin safna fé fyrir Berg- þóru Birnudóttur, stórvinkonu sína og eiginkonu eins meðlimanna sem glímir við alvarleg eftirköst fæðingar; örorku og stöðugar kvalir en eygir nú von um að fá einhverja bót meina sinna. Saga Berg- þóru var rakin í fréttaskýringaþættinum Kveik en hún stefnir nú á að gangast undir aðgerð hjá svissneskum sérfræðingi sem vonandi mun bæta líðan hennar að einhverju leyti og færa henni aukin lífsgæði. Söfnun til að standa straum af kostnaðinum við aðgerðina er í fullum gangi og munu Hálfvitarnir leggja sitt af mörk- um. Allur ágóði af miðasölu rennur í söfnunina. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en húsið verður opið frá kl. 19. Miðasala er á tix.is. Ljótu hálfvitarnir halda tvenna styrktartónleika fyrir Bergþóru Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undanfarin fimm ár hafa Árni Veig- ar Thorarensen í Hveragerði og afi hans, Gunnar Thorarensen Gunn- arsson í Ölfusi, smíðað skartgripi úr gömlum myntum og silfri. Fyrirtæki þeirra, Afi & ég, hefur eflst með hverju árinu og það, sem var fyrst og fremst hugsað sem áhugamál við sköpun úr íslenskri mynt, er orðið að blómlegu fyrirtæki. „Ég byrjaði að safna íslenskri mynt þegar ég vann sem gjaldkeri hjá Olís 1967 og söfnunin náði há- marki við myntbreytinguna 1981, en þá vann ég í Landsbankanum á Ak- ureyri,“ segir Gunnar. Safnið hafi síðan rykfallið og gleymst. Hann hafi ekki hreyft við því fyrr en þau hjónin fluttu suður 2017 og það þá öðlast nýtt líf. „Frá barnsaldri hefur Árni alltaf haft áhuga á alls konar föndri, er mjög öflugur, sérstaklega nákvæmur og gerir hlutina vel. Þeg- ar við fluttum á Suðurlandið fannst mér tilvalið að spyrja hann hvort við ættum ekki að gera eitthvað saman og skartgripagerð úr myntinni varð úr.“ Lærðu til verka Áður en þeir hófust handa fóru þeir á námskeið í gerð skartgripa hjá Handverkshúsinu og síðan hefur Gunnar lært að smíða úr silfri á vet- urna. „Við byrjuðum að vinna saman heima og þegar við fórum að hugsa um að selja gripina, þurftum við að stofna fyrirtæki og reksturinn hefur gengið mjög vel,“ heldur hann áfram. Bætir við að þetta sé töluverð vinna. „Ég smíða eitthvað daglega nema þegar ég er í fríi eins og núna í Þýskalandi.“ Hann segist reyndar alltaf vera með hugann við verkefnið og noti tækifærið, þegar hann sé er- lendis, og kaupi erlenda mynt og hnífapör úr silfri á nytjamörkuðum til þess að bræða og smíða úr því. „Íslenska myntin hefur svo flætt til okkar að undanförnu því fólk vill losa sig við hana.“ Árni tekur í sama streng. „Eftir að við byrjuðum á þessu hefur mynt- in streymt til okkar. Við erum með góða aðstöðu til að smíða, bæði heima hjá mér og hjá afa, og nýtum vel tímann. Þetta er meiri skorpu- vinna hjá mér en afa en ég er alltaf með hugann við sköpunina.“ Afinn og sonarsonurinn hand- smíða ermahnappa, eyrnalokka, bindisnælur, hringa og hnappa/tölur og eru með pöntunarsíðu á Face- book. Gripirnir eru auk þess til sölu á ýmsum stöðum eins og til dæmis í Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar og versluninni Kölska. Árni bendir á að fólk tengi gjarnan við ár- tölin á myntinni og panti skartgripi með ákveðnu ártali. „Ártalið getur vísað til fæðingarárs, skírnar, ferm- ingar, giftingar eða hvers sem er.“ Árni er með BS-próf í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfar hjá þekkingarfyrirtækinu Eflu. „Ég smíða skartgripi í frítím- anum upp á gamanið með afa,“ segir hann og bætir við að hann hafi í hyggju að fara í meistaranám. „Ég er langt kominn með skóla lífsins,“ segir Gunnar, sem er kominn á eft- irlaun og verður 75 ára í júní. Myntin í endurnýjun lífdaga á Suðurlandi - Afinn og sonarsonurinn smíða skartgripi úr gömlum fjársjóði Nákvæmni Gunnar Thorarensen Gunnarsson og Árni Veigar Thorarensen. Fjölbreytni Félagarnir smíða til dæmis bindisnælur, ermahnappa og hringa. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennur frá GRÖVIK VERK í Noregi Einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 145. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Axel Bóasson, kylfingur úr Keili, stóð uppi sem sigur- vegari Rewell Elisefarm-mótsins í Höör í Svíþjóð, sem er hluti af Nordic-mótaröðinni, fyrir tæpum tveimur vikum. Skömmu áður hafði hann hafnað í 30. sæti á Barncancerfonden Open-mótinu í Laholm í Svíþjóð, sem var einnig hluti af mótaröðinni, eftir að hafa verið í efsta sæti að loknum öðrum hring þess. „Það var kom- inn góður dynjandi í leik minn í mótinu á undan [í La- holm] fannst mér,“ sagði Axel í samtali við Morgun- blaðið á kynningarfundi Golfsambands Íslands. »30 Axel fagnaði sigri í rokinu í Svíþjóð ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.