Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Vakið hefur töluverða athygli að Út-
gerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR)
hafi ákveðið að losa sig við Sólborgu
RE, þar sem innan við ár er síðan
félagið festi kaup á skipinu.
Við kaupin var sagt frá áformum
um að breyta og endurnýja vinnslu-
dekk skipsins með hátæknibúnaði í
fremsta flokki. Heildarfjárfestingin
var áætluð um þrír milljarðar króna.
ÚR keypti skipið af Arctic Prime
Fisheries á Grænlandi sumarið
2021. Það þótti mikill kostur að skip-
ið væri í efsta ísklassa sem fiskiskip
eru byggð fyrir, enda var tilgang-
urinn með kaupunum meðal annars
að eignast skip sem myndi stunda
veiðar í Barentshafi, sérstaklega á
ufsa og karfa. Alls voru 48 ráðnir á
Sólborgu og var þeim skipt í tvær 24
manna áhafnir.
Þeim hefur öllum verið sagt upp
en Runólfur Viðar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri ÚR, sagði við
Morgunblaðið í gær að nú sé verið
að skoða kaup á öðru skipi.
Lokuð lögsaga
Ekki er ljóst nákvæmlega hver
ástæðan er fyrir því að skoða kaup á
nýju skipi í stað Sólborgar en
reynslumikill skipstjóri, sem rætt
hefur verið við, segir útgerðir sem
stunda veiðar í Barentshafi hafi
þurft að endurskipuleggja veiðarnar
að undanförnu þar sem dregið hefur
verulega úr aflaheimildum í Bar-
entshafi. Í fyrsta lagi hefur þorsk-
kvóti í Barentshafi verið skorinn
niður um ríflega 20% tvö ár í röð á
grundvelli ráðgjafar vísindamanna
hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu
(ICES) og hefur einnig orðið nið-
urskurður í ýsukvóta. Vonir, um að
auknar heimildir í ufsa myndu vega
á móti þessari þróun, hafa orðið að
engu, þar sem lokað hefur verið á
stóran hluta Barentshafsveiðanna
sem eiga sér stað í rússneskri lög-
sögu.
Sólborg, sem átti að nýta afla-
heimildir í Barentshafi, sat því í vet-
ur uppi með mun færri verkefni en
áætlað var og hefur aðallega landað
lúðu í vor og í sumar. Eftir því sem
blaðamaður kemst næst, mun áhöfn-
in starfa áfram þar til endanleg
ákvörðun hefur verið tekin um
hvernig skuli leysa úr stöðunni.
Uppsjávarskip?
Ekki liggur fyrir hvers konar
skipi ÚR leitar að en á Sólborgu
voru skráðar þó nokkrar heimildir í
loðnu þegar Brim fór yfir kvótaþak-
ið í vetur. Frystitogarinn veiðir þó
ekki uppsjávartegundir og hafa
heyrst vangaveltur um það hvort
ÚR hafi áhuga á að eignast uppsjáv-
arskip.
Lokun lögsögu ástæða uppsagna?
- Sólborg átti að veiða í Barentshafi
- 48 hefur verið sagt upp störfum
Morgunblaðið/Sisi
Frystitogari Sólborg RE var sérstaklega keypt af Útgerðarfélagi Reykja-
víkur hf. til að sinna veiðum í Barentshafi. Nú leitar félagið að öðru skipi.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kennsla hefst í haust í Fossvogs-
skóla, samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg. Framkvæmdirnar
í skólanum eru sagðar svo umfangs-
miklar að við liggur að verið sé að
byggja nýjan Fossvogsskóla á göml-
um grunni.
Vinnu við endurnýjun skólans mið-
ar vel og allir sem koma að fram-
kvæmdinni eru meðvitaðir um að
skólastarfið verði samkvæmt stunda-
töflu sem hefst 22.
ágúst. Starfsfólk
mætir 15. ágúst.
Einhverjir
verklegir þættir
munu ekki klárast
fyrir opnun skól-
ans. Það er vegna
sérpantana frá
birgjum, t.d.
vegna lausra inn-
réttinga í
kennslustofur og fleira þess háttar.
„Skólastjórnendur eru meðvitaðir
um þá stöðu og verður eldri búnaður
sem hefur verið í notkun í Korpu-
skóla notaður til að byrja með. Þann-
ig að það er ekki vandamál,“ segir í
svari borgarinnar.
Fækkun um eina bekkjardeild
„Við, fulltrúar foreldra, höfum
fylgst náið með framkvæmdum nú á
vordögum og fundað reglulega með
yfirmönnum þeirra sviða borg-
arinnar sem koma að þessu,“ segir
Karl Ó. Þráinsson, formaður for-
eldrafélags Fossvogsskóla. Hann tel-
ur að áætlanir um að taka Austur-
land og Vesturland í notkun í
skólabyrjun standist. Ekki hefur ver-
ið tekin ákvörðun um að laga Meg-
inland á milli þeirra. Það var verst
farið. Foreldrar gerðu kröfu um að
Meginland yrði rifið en borgin telur
mögulegt að nýta húsið með veruleg-
um breytingum.
Nemendur þurftu að hverfa úr
skólabyggingunni í mars 2019 vegna
myglu og komu aftur um haustið.
Vesturland var aftur rýmt á haust-
önn vegna veikinda barna. Foreldrar
fengu ekki áheyrn borgarinnar fyrr
en í mars 2021 þegar skólinn var
rýmdur enn á ný, að sögn Karls.
„Það eru eiginlega fjórir vetur sem
börnin hafa verið meira og minna á
hrakhólum. Börn sem luku fjórða
bekk í vor hafa aldrei verið í eðlilegu
skólastarfi. Þetta hefur haft mjög
neikvæð áhrif á skólagönguna og
komið niður á líðan barnanna,“ segir
Karl. „Nokkur hópur barna hefur
flutt í aðra skóla og nemendum hefur
fækkað sem nemur einni bekkjar-
deild.“
Skólastarf í Fossvogsskóla í haust
- Framkvæmdum miðar vel - Nemendur hafa verið meira og minna á hrakhólum í fjóra vetur
Karl Óskar
Þráinsson
Listamaðurinn Erró, Guðmundur Guðmundsson, er níræður í
dag. Af því tilefni var þessi strætisvagn skreyttur verkum
listamannsins en í dag býður Listasafn Reykjavíkur öllum
ókeypis á yfirlitssýninguna Erró: Sprengikraftur mynda í
Hafnarhúsinu. Sjálfur gaf Erró Reykjavíkurborg um tvö þús-
und verka sinna árið 1989. Þá verður í dag aukaúthlutun úr
Guðmundusjóði, sem listamaðurinn stofnaði árið 1997 til
minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur
frá Miðengi, til að efla listsköpun kvenna.
Morgunblaðið/Hákon
Níræður Erró á götum borgarinnar