Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 Guðrún Sigríður Arnalds gsa@mbl.is Héraðsdómur dæmdi þann 15. júlí að Útlendingastofnun og kærunefnd út- lendingamála hefðu ranglega ekki tek- ið kynhneigð manns trúanlega, en stefnandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi árið 2019 sökum kyn- hneigðar. Áfangi í bættum réttindum hinsegin fólks Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður stefnanda, segir dómurinn vera til marks um það að fordómar viðgangist innan kerfisins og að hinsegin fólk sem hér sæki um hæli eigi undir högg að sækja. „Þetta er ákaflega mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir bættum rétt- indum hinsegin fólks sem hingað leitar vegna ofsókna í heimalandi.“ Málið var tekið til meðferðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem stefnandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun í Hollandi, en hann hafði verið þar í 15 daga fyrir komu til Íslands. Í dómnum segir að til hafi staðið að senda stefnanda aftur til Hollands með flugi en vegna Covid-19 faraldursins og sökum þess að hann mætti ekki í nafnakall Útlendingastofnunar varð ekki af því. Töldu stefnanda ljúga til um kynhneigð Meðal þeirra málsástæðna sem stefndu lögðu fram var að stefnandi hefði ekki komið kynhneigð sinni nógu skýrt á framfæri. „Útlendingastofnun synjaði stefn- anda um alþjóðlega vernd árið 2021 og var synjunin reist á því mati að stefn- andi hefði ekki gert sennilegt að hann væri tvíkynhneigður né heldur að hann hefði orðið fyrir áreiti og hótun- um af hálfu hryðjuverkasamtaka í heimaríki.“ Stefnandi kærði ákvörðun Útlend- ingastofnunar til kærunefndar útlend- ingamála en málið var höfðað 18. nóv- ember árið 2021. Kynntist eiginmanni sínum á Íslandi Í dómnum segir m.a. að stefnandi hefði verið í hjónabandi í heimaríki sínu en skilið áður en hann kom til Ís- lands. Eftir um fjögurra til fimm mán- aða dvöl á Íslandi hafi hann kynnst nú látnum eiginmanni sínum, sem var hjartveikur og bjuggu þeir saman í um eitt ár. Eiginmaður stefnanda lést nokkr- um vikum eftir að kæra kom fram í málinu og kom hann því ekki fyrir nefndina eins og óskað hafði verið eftir. Báru þar sex vitni um hjónaband stefnanda og ekkert þeirra taldi að um málamyndahjúskap væri að ræða. Í niðurstöðukafla dómsins kemur fram að úrskurður kærunefndar út- lendingamála frá 30. september 2021 verði ógiltur. Ákvörðun ÚTL snúið í héraði - Útlendingastofnun synjaði manni um alþjóðlega vernd sökum þess að tvíkynhneigð væri óljós - Maðurinn gifti sig á Íslandi - Ákvörðun synjað í héraði eftir þriggja ára baráttu stefnanda Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umboðsmaður Evrópusambandsins telur að ann- markar hafi verið á afgreiðslu Efnastofnunar Evr- ópu (ECHA) á allsherjar blýbanni, sem bannar notkun blýs í framleiðsluvöru. Það nær m.a. til banns við notkun blýs í skotfærum og sökkum við fiskveiðar. Efnastofnunin hefur nú opnað fyrir um- sagnir um drög að áliti nefndar um félagshagfræði- lega greiningu á áhrifum þess að takmarka notkun blýs í skotfærum og sökkum utandyra. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands (SKOTVÍS), segir að Evrópusamtök skot- veiðimanna (FACE) hafi kvartað til Umboðsmanns ESB vegna blýbannsins. SKOTVÍS hyggst senda umsögn um málið í samvinnu við FACE fyrir 28. ágúst. „Félagshagfræðileg greining á áhrifum blýbanns í skotfærum mun meðal annars skoða áhrif þess að mjög margar haglabyssur eru ekki gerðar fyrir stálhögl og hvað það þýðir ef milljónir haglabyssa koma í endurvinnslu,“ segir Áki. Í frétt FACE kemur m.a. fram að afskipti fram- kvæmdastjórnar ESB af málinu hafi orðið til þess að Efnastofnunin opnaði fyrir frekara samráð til að meta hættu af blýi í kjöti af villtum dýrum. Þar kemur einnig fram að Matvælastofnun ESB (EFSA) hafi ekki veitt upplýsingar tímanlega sem hafði áhrif á mat ECHA á hættunni af blýi í kjöti af villibráð. FACE óskaði eftir gögnum EFSA í febr- úar 2021 og hefði svarið átt að berast á 15 dögum. Gögnin bárust ekki fyrr en átta mánuðum eftir að um þau var beðið. Notkun blýskotfæra innanhúss fellur utan bannsins, auk þess sem nota má blýskotfæri í hern- aði. Þá verður áfram leyft að nota blýskotfæri í viss- um skotíþróttagreinum þar sem löng hefð er fyrir notkun blýs. Bann við notkun blýhagla við skotveiðar á vot- lendissvæðum tekur gildi í febrúar næstkomandi. Áki segir að SKOTVÍS bíði eftir svari frá umhverf- isráðuneytinu um hvernig votlendissvæði verði skil- greind í tengslum við bann við notkun blýhagla. Blýbann miðist við Ramsarsvæði „Írar komust að því að það var hægt að skilgreina 80% af Írlandi sem votlendissvæði samkvæmt ítr- ustu skilgreiningu. Þeir eru búnir að skilgreina um 20% landsins sem votlendissvæði,“ segir Áki. „Svíar og Finnar ætla að miða við Ramsarsvæðin hjá sér varðandi bann við notkun blýhagla. Eftir er að taka ákvörðun hér en SKOTVÍS leggur til að Ísland fari sömu leið og Svíar og Finnar. Ramsarsvæðin eru vel skilgreind á kortum og auðvelt að framfylgja banninu þar.“ Ramsarsvæði kallast votlendissvæði sem hafa verið valin sérstaklega til vernd- unar vegna gildis þeirra í mismunandi samhengi. Á Íslandi eru sex skráð Rams- arsvæði: Andakíll, Grunnafjörður, Guðlaug- stungur, Mývatn, Laxá, Snæfells- og Eyjabakkasvæðið og Þjórsárver. Öll þessi svæði eiga það sameiginlegt að vera að mestu óröskuð votlend- issvæði og mikilvæg búsvæði fuglastofna (yfir 1% ákveðinna stofna). Morgunblaðið/BFH Mývatn Eitt af Ramsarsvæðum Íslands. Svíar og Finnar hafa bannað notkun blýhagla á slíkum svæðum. SKOTVÍS bíður svara um hvaða leið Ísland fer. Annmarkar á afgreiðslu blýbanns kalla á samráð Ökumanni bíls á leið í gegnum Hafnarfjörð til Keflavíkur brá í brún þegar sprenging vegna fram- kvæmda nálægt veginum varð til þess að grjót og hnullungar þeytt- ust inn á Reykjanesbrautina og yfir bílana sem ekið var eftir henni. Að sögn ökumannsins varð sprengingin örfáa metra frá veg- inum, skammt þaðan sem Reykja- nesbrautin breytist úr tvíbreiðri í einbreiða braut. Fyrst hafi komið hár hvellur, en síðan hafi þyrlast upp moldarstrókur frá sprengi- staðnum og grjóti og hnullungum rignt yfir veginn. Ökumenn hafi stöðvað bíla sína, en starfsmaður við framkvæmdirnar stokkið til og tekið stærstu hnullungana af veg- inum. Ekkert óhapp varð þegar öku- mennirnir hemluðu svo snögglega, en röð bíla myndaðist þar fyrir aft- an í skamman tíma. Ökutækin sem voru á móts við sprenginguna virtust hafa farið verst út úr henni, en samkvæmt ökumanninum lenti grjót á bæði þaki þeirra og vélarhlíf. Hann telur nokkuð öruggt að það sjái á ein- hverjum þeirra bíla, en kveðst þó blessunarlega ekki hafa séð brotnar eða brostnar rúður. Hann sagði sinn bíl hafa sloppið, enda í nokk- urri fjarlægð frá sprengingunni. Hvorki fengust upplýsingar um atvikið frá lögreglunni í Hafnarfirði eða fyrirtækinu sem annast fram- kvæmdirnar. hmr@mbl.is Grjóti rigndi yfir bílana - Grjót og hnull- ungar á vélarhlíf Aurskriða féll á Seyðisfirði við Fjarðarselsvirkjun í gær. Aðrennsl- isrör að stöðvarhúsi fór í sundur og orsakaði talsverðan vatnsflaum í Fjarðará yfir veginn að Fjarðarseli, að gömlu stöðvarhúsi sem þar er. Fjarðarselsvirkjun er elsta starf- andi virkjunin á Íslandi, stofnsett 1913, og lítt breytt frá upphafi, en hún er starfrækt meira vegna varð- veislugildis en raforkuframleiðslu nú orðið. Að sögn lögreglunnar á Austur- landi gekk greiðlega að loka fyrir flauminn, en vegurinn varð fyrir smávægilegum skemmdum. Búið er að lagfæra veginn og er hann opinn. Stutt er síðan svipað atvik átti sér stað, en Rarik, sem rekur virkjun- ina, hefur að undanförnu haft að- stæður þar til athugunar með það fyrir augum að koma í veg fyrir að sams konar atvik endurtaki sig. Aurskriða féll við virkjunina á Seyðisfirði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði hljóð- mælingar á skotvelli Skotveiðifélags Reykja- víkur og nágrennis, sem er innan SKOTVÍS, á Álfsnesi í lok júnímánaðar. Fulltrúi frá íbúaráði Kjalarness var viðstaddur. „Hljóðmengun var í öllum tilvikum undir viðmiðum samkvæmt sænskum stöðlum,“ segir Áki Ármann Jónsson, formaður Skot- veiðifélags Íslands (SKOTVÍS). Hann segir þetta ekki koma á óvart, enda fjalli sænsku reglurnar að langmestu leyti um hvelli frá stórum rifflum en ekki haglabyssum. En hvers vegna er stuðst við sænska staðla við slíkar hljóðmælingar? „Það er vegna þess að hér eru ekki til staðlar um hljóðmengun frá skot- völlum. Það eru til viðmið um hljóð- mengun frá akandi umferð, flug- umferð og fleira,“ segir Áki. „Það verður að setja slík viðmið um skotvelli í reglu- gerð ef heilbrigðiseftir- litið á að geta byggt mæl- ingar sínar á þeim.“ Hvellirnir innan marka sænskra staðla HLJÓÐMÆLING Á SKOTVELLI Áki Ármann Jónsson - Blýhögl bönnuð við veiðar á votlendissvæðum í febrúar - Ekki ljóst hvernig votlendi verður skilgreint hér - SKOTVÍS bíður eftir svari frá ráðuneytinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.