Morgunblaðið - 19.07.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
Veitingar af öllum stærðum,
hvort sem er í sal eða
heimahúsi
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja
Jón Magnússon lögmaður
bendir á þá löngun „frétta-
manna“ að ýta undir trúarsetn-
ingu um manngert veður. Hefð-
bundin háhitatíð er hafin upp í
heimatilbúin heimsmet:
- - -
Veðurfræðingur
gærdagsins
var greinilega
óviðbúinn tekinn til
að vitna um að
þetta sýndi ótví-
rætt hlýnun af
mannavöldum.
Hann varðist vel, en sagði í lokin
að marsmánuður 2022 væri sá
hlýjasti sem mælst hefur. Ekki
urðum við, sem vorum á Spáni í
mars, vör við það og skv. Al-
þjóðaveðurfræðistofunni NOAA
var fjarri því að hitamet hefði
fallið á Spáni í mars sl.
- - -
Í frétt á Al Jazeera um daginn
var sagt að mikill flótta-
mannastraumur frá Tigrahér-
uðum Eþíópíu væri vegna lofts-
lagsbreytinga og ófriðar í
landinu.
- - -
Þetta var rangt. Loftslags-
breytingar höfðu ekkert
með þetta að gera, heldur innrás
Eþíópíuhers inn í Tigrahéruðin
undir forustu friðarverðlauna-
hafa Nóbels, sem nú ræður ríkj-
um í landinu.
- - -
Í Eþíópíu ríkti sár hung-
ursneyð um og eftir 1970
vegna gríðarlegra hita og
þurrka.
- - -
Þá var ástandið mjög alvar-
legt. Nú er staðan allt önnur
og mun betri.
- - -
Sumir segja að aukið koltvísýr-
ingsmagn í andrúmsloftinu
bæti vaxtarskilyrði jarðargróða.“
Jón Magnússon
Allt tínt til
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Siguður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við fögnum þeirri grundvallar-
hugsun að gera starfslok lækna
sveigjanlegri,“ segir Steinunn Þórð-
ardóttir, formaður Læknafélags Ís-
lands. Sem kunnugt er boðar Will-
um Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
nú að breyta lögum á þann veg að
hámarksaldur fólks, sem starfar í
heilbrigðisþjónustu hjá hinu op-
inbera, svo sem á sjúkrahúsum og
heilsugæslu, verði 75 ár.
Lengi hefur gilt samkvæmt lög-
um að opinberir starfsmenn láti af
störfum sjötugir að aldri, sama á
hvaða sviði þeir eru. Með fyrirhug-
uðum breytingum er hugsunin sú að
mæta manneklu í heilbrigðis-
þjónustunni. Komist þetta í gegn
gætu þeir læknar sem sjálfir kjósa,
sem og hjúkrunarfræðingar, sjúkra-
liðar og fólk í fleiri slíkum stéttum,
unnið til 75 ára aldurs. Áframhald-
andi störf yrðu þá jafnan á grund-
velli nýs ráðningarsamnings, sem
gerður yrði þegar fólk verður sjö-
tugt. Tekið skal fram í þessu sam-
bandi að talsvert er um að læknar
starfi nokkuð fram á áttræðisald-
urinn, svo sem sérfræðingar með
eigin stofu-
rekstur. Læknar,
sem vilja halda
áfram til 75 ára,
verða að gangast
undir hæfnismat.
Lækningaleyfi
helst til æviloka,
nema skv. sér-
stökum ráðstöf-
unum.
„Tillagan
mætti vera betur undirbúin, því
með öllu er óljóst hver kjör lækna
eigi að vera, kjósi þeir að starfa
áfram á aldrinum 70-75 ára,“ segir
Steinunn. Af hálfu Læknafélags Ís-
lands segir hún þá kröfu skýlausa
að læknar á þessum aldri njóti að
öllu leyti sömu kjara og þeir sem
yngri eru. Ekki sé þó ljóst í tillögu
ráðherrans, hvort slíkt sé tryggt.
„Eins vek ég athygli á því orðalagi
að vandinn í sérhæfðri sjúkrahús-
þjónustu tengist mest mönnun
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
Læknafélagið vill undirstrika að
vandinn felst ekki síður í mikilli
manneklu meðal lækna og mikil-
vægt er að ekki sé horft fram hjá
þeirri staðreynd í opinberri um-
ræðu,“ segir Steinunn Þórðardóttir.
Sveigjanleg starfs-
lok fagnaðarefni
- Kjör lækna séu óbreytt eftir sjötugt
Steinunn
Þórðardóttir
Persónuvernd athugar nú notkun
hugbúnaðarlausna Google í skóla-
starfi hérlendis. Komi í ljós að hún
sé ekki í samræmi við persónu-
verndarlöggjöf, kynni notkun króm-
bóka (e. Chromebooks) að verða
óheimil hérlendis. Sú varð raunin í
Danmörku fyrir skömmu, á þeirri
forsendu að persónuupplýsingar
notenda væru vistaðar utan Evrópu-
sambandsins, í trássi við GDPR-
regluverk þess um persónuvernd.
Vigdís Eva Líndal, staðgengill
forstjóra Persónuverndar, segir að
notkunin í fimm sveitarfélögum sé
til skoðunar í fjölþjóðlegri úttekt í 23
ríkjum á EES-svæðinu.
Hún segir mögulegt að krómbæk-
ur verði bannaðar hérlendis, líkt og í
Danmörku. „Við erum nú þegar með
eina ákvörðun sem varðar notkun
Seesaw kennslulausnakerfisins hjá
Reykjavíkurborg. Þar taldi Per-
sónuvernd að innleiðingin á því kerfi
hefði ekki verið í samræmi við per-
sónuverndarlöggjöfina.
Þar var um að ræða svipuð álita-
mál, eins og flutning persónuupplýs-
inga til Bandaríkjanna og stjórn
sveitarfélaganna á þeim upplýs-
ingum. Þetta eru grunnatriði lög-
gjafarinnar sem er verið að skoða
aftur og aftur, bæði hér heima og
annars staðar í Evrópu.“
Búast má við að rannsókninni
ljúki á haustmánuðum.
Kanna bann á krómbókum hérlendis
- Persónuvernd með Google undir smásjánni - Niðurstöður koma með haustinu
Króm Ódýrar nettölvur með hug-
búnaði Google njóta vinsælda.