Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir eru nýlega hafnar á Rauðarárstíg, frá Bríetartúni í suð- urátt að Hlemmi. Lokað var fyrir bílaumferð á Rauðarárstíg frá Bríetartúni við upphaf framkvæmda en áfram er opið frá Hverfisgötu. Tilkynnt verður síðar hvenær loka þarf fyrir bílaumferð sunnan megin. Verktakinn er Alma Verk ehf. Verk- lok eru áætluð vorið 2023 á öllum þáttum verksins. Gatnamót við Bríetartún verða hækkuð upp og akstursrými af- markað með tveggja og fjögurra sentímetra háum kantsteini, segir í verklýsingu. Gert er ráð fyrir hönn- un götunnar í einum fleti og að akst- ursrýmið verði hellulagt. Snúningshringur fyrir bíla Rauðarárstígur verður framvegis lokaður til suðurs við Gasstöðina á Hlemmi og með snúningshring fyrir fólksbíla í botni götunnar. Þetta verður breyting frá núverandi fyr- irkomulagi með gegnumakstri bíla um götuna. Er þetta fyrsta skrefið í því að gera Hlemm bíllausan. Raf- hleðslustæði verða nyrst í götunni og sleppistæði fyrir leigubíla. Meðfram húsaröð við Rauðarár- stíg verður aðkomusvæði íbúðarhús- anna, þar sem útfæra má, í samráði við húseigendur, tröppur, gróður- kassa með klifurgróðri og hellu- svæði. Bekkir afmarka svæðið næst húsunum. Götutré með trjáristum verða meðfram götunni og regnbeð með fjölbreyttum gróðri. Lýsing í götunni verður með 4-5 metra háum LED götuljósum sem dreifa lýsingu á götuflötinn. Næst torgsvæðinu og Hlemmi verða stæði fyrir hreyfi- hamlaða. Breytingin hefur þau áhrif á Strætó að leiðir 16 og 17 munu ekki lengur stoppa við Rauðarárstíg heldur færast að Hlemmi Mathöll. VSÓ ráðgjöf hannaði þennan hluta Rauðarárstígsins í samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Töluverð klöpp er í Rauðarárstíg sem þarf að losa og verður verktak- anum gefinn kostur á bæði spreng- ingum og fleygun. Gera má ráð fyrir hávaða á vinnutíma í um það bil þrjá mánuði eða frá lok júní og út sept- ember, að því er fram kemur í til- kynningu á vef Reykjavíkurborgar. Sjö tilboð bárust í verkið. Alma Verk ehf. bauð lægst, 189,8 millj- ónir. Var það 32% yfir kostnaðar- áætlun, sem var 143.9 milljónir. Engu að síður ákvað innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavík- urborgar að ganga að tilboðinu. Hæsta tilboðið var 311 milljónir í verkið. Í lok árs 2017 fór Reykjavík- urborg af stað með hugmyndaleit að nýju skipulagi á Hlemmtorgi. Tillögur arkitektastofanna Manda- works og DLD voru valdar til áframhaldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir endurhönnun svæð- isins og gerð nýs deiliskipulags. „Hlemmur verður kjörstaður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og góður staður fyrir fólk og við- burði, eftirsóttur bíllaus staður, grænn og lifandi en einnig byrj- unarreitur fyrir þau sem ætla í bæ- inn,“ sagði m.a. í kynningu á tillög- unni á sínum tíma. Rauðarárstígurinn endurgerður - Lokað fyrir um- ferð bíla norðan við Hlemm - Verður þannig til framtíðar Ljósmynd/reykjavik.is Rauðarárstígur Starfsmenn verktakans hafa komið sér fyrir með tæki sín og tól. Á næstu mánuðum mun gatan taka stakkaskiptum. Í hvíta húsinu við Bríet- artún eru höfuðstöðvar Frímúrarareglunnar á Íslandi. Í næsta nágrenni eru lögreglustöðin í Reykjavík (til vinstri á myndinni) og kínverska sendiráðið. Kærunefnd jafnréttismála féllst ekki á að Alcoa Fjarðaál hafi brotið jafn- réttislög þegar þrír karlar voru ráðnir í störf leiðtoga í skautsmiðju álversins í Reyðarfirði. Kona, sem einnig sótti um starfið, kærði ráðn- ingarnar. Leiðtogastörfin voru auglýst inn- an fyrirtækisins í mars á síðasta ári og sóttu 19 um störfin. Eftir fyrsta viðtal við flesta umsækjendur var ákveðið að bjóða einum karli eitt starfið sem hann þáði. Sex umsækj- endur voru boðaðir í seinna viðtal, tvær konur og fjórir karlar, en einn karlinn dró umsókn sína til baka áð- ur en kom að seinna viðtalinu. Eftir seinna viðtal voru fjórir umsækjend- ur metnir hæfir, þrír karlar og önnur konan. Í framhaldinu voru tveimur körlunum boðin þau tvö störf sem eftir stóðu. Konan taldi sig hafa orðið fyrir mismunun við ráðninguna. Fram kemur í úrskurði kærunefndarinnar, að konan hafði starfað í skautsmiðju álversins frá árinu 2009, síðast sem stóriðjutæknir en hún lauk grunn- og framhaldsnámi í stóriðju hjá Austurbrú. Hún benti á að hún hafi lengri starfsferil en allir karlarnir sem voru ráðnir og hafi stóriðjunám fram yfir einn þeirra. Hafi hún auk þess leyst leiðtoga af í starfi og séð um og sinnt sinni vakt í fleiri ár. Fram kemur að konan hafi verið upplýst um það í maí 2021 um að þrír karlar yrðu ráðnir í stöður leiðtoga. Hún hafi í framhaldinu farið á fund framkvæmdastjóra ásamt trúnaðar- manni og óskað skýringa og var henni þá tjáð að hún væri „of við- kvæm“. Samkvæmt greinargerð trúnaðarmanns hafi hún verið metin hæfust þeirra sem sóttu um störfin og hafi þannig uppfyllt öll hæfniskil- yrði. Það hafi þó ekki verið hægt að ráða hana þar sem hún hafi verið frá vinnu vegna veikinda. Í svörum Alcoa Fjarðaáls til kæru- nefndarinnar kemur m.a. fram að í öllu ferlinu hafi verið leitast eftir því að finna hæfasta eða hæfustu ein- staklingana til að takast á við það stóra og mikilvæga verkefni sem leiðtogar skautsmiðju stóðu frammi fyrir. Þótt það virðist skjóta skökku við að ráða aðeins karlmenn í þessar þrjár stöður í skautsmiðju þar sem markmið fyrirtækisins sé að jafna kynjahlutföll sé staðan engu að síður sú að hlutfall kvenna í leiðtogastörf- um hjá fyrirtækinu sé 40% sem sé innan þeirra markmiða sem fyrir- tækið hafi sett sér í jafnréttismálum. Kærunefndin segir m.a. í niður- stöðu sinni, að kærandi og þeir tveir sem hlutu störfin hafi að loknu síðara viðtali fengið jafnmörg stig í sumum matsþáttum sem lágu til grundvallar mati á umsækjendum, þ.m.t. í úr- lausn verkefnis, reynslu og öryggis- málum, en mismörg stig í öðrum þáttum, þ.m.t. í hæfni til að höndla álag og mætingu. Verði ekki annað ráðið en að lagt hafi verið mat á efn- islegt inntak þessara þátta. Ekki verði heldur ekki annað séð af gögn- um en að niðurstaða um hvað félli undir þessa matsþætti hafi verið byggð á málefnalegum sjónarmiðum og að mat á þeim hafi verið forsvar- anlegt. Telur kærunefndin því að mat fyrirtækisins á umsækjendum leiði ekki líkur að því að við ráðn- inguna hafi kæranda verið mismun- að á grundvelli kyns. Jafnréttislög voru ekki brotin í álveri - Deilt um ráðningu leiðtoga í skautsmiðju Alcoa Fjarðaáls Morgunblaðið/ÞÖK Álver Deilt var um ráðningu leiðtoga í skautsmiðju í álverinu í Reyðarfirði. Ástbjört Viðja vidja@mbl.is Í ár verður í fyrsta sinn keppt í raf- íþróttum á Unglingalandsmóti UMFÍ, sem markar tímamót, bæði fyrir ungmennafélögin og raf- íþróttahreyfinguna. Mótið fer fram á Selfossi um aðra helgi, dagana 29. til 31. júlí og munu þá börn og ung- menni á aldrinum 11-18 ára keppa í fjölmörgum íþróttagreinum. Í rafíþróttaflokknum verður keppt í League of Legends, Count- er-Strike: Global Offensive og Rocket League. Aron Ólafsson, framkvæmda- stjóri Rafíþróttasamtaka Íslands, segir þetta fagnaðarefni og lítur björtum augum á mótið framundan. „Það verður íþróttaandi á Sel- fossi og við trúum því að það verði til mörg vinaböndin eftir þessa helgi,“ sagði Aron. Þá hvetur hann þátttakendur og foreldra til þess að kynna sér fleiri íþróttir en keppendur á mótinu mega skrá sig í fleira en eina grein. Keppt í rafíþróttum á unglingalandsmóti - Í fyrsta sinn á móti á vegum UMFÍ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.